Þjóðviljinn - 25.05.1984, Blaðsíða 6
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN.Föstudagur 25. mai 1984
Duarte: Eins og lús milli tveggja nagla?
Bandaríska ínnrás eða
samninga við andstöðuna
Duarte
verður
að
velja:
Andspyrnuhreyfingin í El
Salvador telur að Napoleon
Duarte, sem nýlega var kosinn
forseti landsins, eigi aðeins
tveggja kosta völ. Annaðhvort
að fallast á innrás bandarísks
herliðs eða taka upp samninga
við skæruherina og hina pólit-
ísku hreyfingu þeirra.
Vegna þess að Duarte og herinn
í E1 Salvador geta ekki með nokkru
móti unnið upp á eigin spýtur hern-
aðarsigur á skæruliðahreyfingunni,
segir Ruben Zamora í nýlegu við-
tali í DN. Zamora er einn af þrem
mönnum í framkvæmdanefnd
FDR, Lýðræðissinnuðu byltingar-
fylkingarinnar, sem er hin pólitíska
grein andstöðunnar í E1 Salvador.
Sjálfur er Ruben Zamora böl-
sýnn. Hann hefur ekki trú á því að
sú samningslausn sem hann og
hreyfing hans hefur lengi stefnt að
sé í sjónmáli.
Napoleon hefur sett sig upp á
móti þessum kostum tveim - bæði
samningaleiðinni og bandarískri
innrás, segir hann. En það kemur
að því að hann neyðist til að velja.
Og til að hann velji rétt er nauðsyn-
legt að á hann sé þrýst bæði heima
fyrir og á alþjóðlegum vettvangi.
Viljum semja
Sjálfir, segir Ruben Zamora,
munum við gera allt sem í okkar
valdi stendur til aö komast að
samningaborðinu. En áður en það
verður mögulegt mun styrjöldin
enn harðna.
Ruben Zamora starfaði sjálfur
innan hins Kristilega demókrata-
flokks Duartes á áttunda áratugn-
um, en hvarf þaðan vegna þess að
„Duarte lét að vilja Bandaríkj-
anna“. Zamora er nú einn fremsti
talsmaður stjórnarandstöðunnar í
útlegð og er búsettur í Mexíkó, en
kemur oft til Nicaragua.
Zamora lýsir Duarte sem „róm-
önskamrískum þjóðmálaskúmi"
sem sé mjög gjarn á að haga seglum
eftir vindi.
Madur Reagans
Vafalaust var Duarte frambjóð-
andi Bandaríkjanna í kosningun-
um, segir Ruben Zamora ennfrem-
ur. Hann hefði ekki sigrað án
þeirra stuðnings og vafalaust hefur
leyniþjónustan CIA dælt miklu
meira fé í kosningasjóði hans en
þeirri miljón dollara sem hún hefur
kannast við.
Duarte er maður Reagans, en
hann er einnig undir þrýstingi í
eigin flokki. Meirihluti meðlima
flokks hans vill leita pólitískrar
lausnar. Og Duarte hefur skipað
stjórn þar sem meirihluti ráðherra
er meðmæltur samningum. Þetta
er ekki hægristjórn, því kirkjan er
líka þýðingarmikill aðili sem vill
binda endi á stríðið.
En Ruben Zamora telur að Du-
arte sé mjög í tímaþröng. Og kosn-
ingarnar í Bandaríkjunum í haust
munu hafa mikla þýðingu fyrir
framtíð E1 Salvador.
- Ef að Reagan vinnur eru mest-
ar líkur á því að Duarte fái minna
svigrúm til athafna. Þá þarf Reag-
an ekki á Duarte lengur að halda
með sama hætti og nú.
Veik von
Það má greina í máli Ruben
Zamora veika von um að fundin
verði samningalausn á þeirri styrj-
öld sem staðið hefur í fimm ár.
Hann telur það kost að Duarte
vann kosningarnar, því að það
hefði verið með öllu útilokað að
semja við mótframbjóðanda hans,
d’Aubuisson, um eitt eða neitt.
Zamora telur það mæla gegn
því, að Duarte samþykkti banda-
ríska innrás, að um leið og af henni
yrði missti hann öll áhrif í landinu.
- Því að með innrás fengjum við
hreinræktaða leppstjórn eins og
var í Suðurvíetnam í stríðinu þar.
Og Duarte kærir sig ekki um það
hlutskipti.
Hitt er svo annað mál, að Zam-
ora telur flest í stefnu Reagans
benda til beinnar íhlutunar banda-
segir einn
af leiðtogum
FDR í útlegð
rískra hersveita í stríðið í E1 Salva-
dor. Hann telur það líklegra að
Bandaríkin ráðist inn í E1 Salvador
en inn í Nicaragua.
áb endursagði.
Prentarar neituöu að
prenta forsíðu Sun
Morgunblaöið birti í fyrradag
stuttan leiöara þar sem ráöist
var að prenturum við breska
blaðið Sun, sem höfðu komið í
veg fyrir að birt væri á forsíðu
mynd af Arthur Scargill, for-
manni breskra námuverka-
manna, þar sem hann sýnist
vera að heilsa með nasista-
kveðju. Morgunblaðið segir
þetta örgustu ritskoðun - en
prentarar munu á hinn bóginn
halda því fram, að þeir hafi ver-
ið að koma í veg fyrir þá sorp-
blaðamennsku sem Stak-
steinar Morgunblaðsins voru
einmitt þennan sama miðviku-
dag að fordæma í NT og DV.
Saga málsins er sú, að prentarar
við Sun neituðu að prenta á forsíðu
blaðsins stóra mynd af Scargill þar
sem hann hefur lyft hendi í kveðju
til fundarmanna. Átti að standa
með risaletri við hlið myndarinnar
„Meine Fiihrer“. Prentarar sögðu
að hér væri um augljósa „ögrun“ að
ræða, þar sem Scargill væri að veifa
til útifundarmanna og ljósmyndar-
inn hefði með skothríð sinni valið
„óheppilegt augnablik". Mætti svo
við bæta, að það sé meira en út í
hött að láta Scargill heilsa með nas-
istakveðju, en hann þykir mjög
langt til vinstri í Bretlandi og er
ofsóttur af æsingablöðum sem slík-
ur.
Æsingablöðin hafa mjög lagt
Scargill í einelti vegna námumann-
averkfallsins sem nú hefur staðið í
nokkrar vikur í Bretlandi. Það
hófst út af þeirri ákvörðun ríkis-
Tóku upp
hanskann
fyrir foringja
námumanna
stjórnarinnar að loka um 20 nám-
um og hefðu um 20 þúsundir
manna misst við það vinnuna - en
kolanámumönnum hefur reyndar
nú þegar verið mjög fækkað vegna
stjórnaaðgerða. Sjálft er samband
kolanámumanna klofið í afstöð-
unni til þess, hvort halda beri til
streitu baráttunni gegn lokun nám-
anna. Eru þeir þá helst andvígir
verkfallinu sem öruggastir þykjast
um starf sitt til frambúðar. Þetta
mál hefur þótt gott dæmi um við-
leitni stjórnvalda til að deila og
drottna í verklýðsfélögum og lama
þau svo. Arthur Scargill hefur
mjög staðið í ströngu - og rennur
mörgum úr öðrum verklýðsfé-
lögum blóðið til skyldunnar, þegar
reynt er með ómerkilegum ljós-
myndarabrellum að bendla hann
við nasisma - ofan á allt annað sem
sorpblöð segja honum til ófræging-
ar.
-áb.
Tll vinstri er forsíða Sun án myndarinnar umdeildu sem svo sést til hægri -
hún kom strax í öðrum blöðum.
Afleiöingar efnahagsstefnu Reagans:
Þeir ríku urðu ríkari
og þeir fátœku fátœkari
í nýlegri grein í málgagni banda-
rísku verklýðssamtakanna, AFL-CIO
News, er vísað á tvennar rannsóknir
sem gerðar hafa verið á vegum
Bandaríkjaþings og sýna, hvernig
þeir ríku hafa grætt á skattastefnu og
niðurskurðarstefnu Reagans forseta
en hinir fátæku tapað. Og mun hluti
þeirra færast niður fyrir hin opinberu
fátæktarmörk, eins þótt þeir hafi
vinnu.
CBO (Fjárlagaskrifstofa þingsins)
hefur gert athugun á þeim áhrifum
sem fjárlög Reaganstjórnarinnar og
skattbreytingar hafa haft á fimm
tekjuflokka. Þær fjölskyldur sem
hafa minna cn tíu þúsund dollara á ári
græddu 20 dollara á skattalækkun Re-
agans en töpuðu 410 dollurum vegna
niðurskurðar á félagslegri aðstoð,
bæði í formi peninga og í öðru formi.
Fjöiskyldur með 10-20 þúsund
doilara tekjur komu siéttar út úr
dæminu eða því sem næst - græddu
um 30 dollara á ári á lækkun skatta.
Um eitt þúsund dollara á ári
græddu svo fjölskyldur sem höfðu 20-
40 þúsund dollara í árstekjur, en þær
sem höfðu 40-80 þúsund dollara á ári
græddu sýnu ir.sira eða næstum því
þrjú þúsund dollara.
Aftur á móti hafa þeir sem ná mcira
en 80 þúsund dollurum í tekjur á ári
(um 2,4 miljónum króna) grætt veru-
lcga á skattagöldrum Reagans - slík
fjölskylda hefur að meðaltali bætt hag
sinn um 8300 dollara á ári eða um 250
þúsund krónur.
Önnur athugun skýrir frá því, að
niðurskurður Reagans hafi fækkað
um hálfa miljón þeim fjölskyldum
sem fá einhvcrja félagslega aðstoð,
Reagan útbíar stjórnarsetrin í
verklýðsfjandskap. Teikning úr
AFL-CIO News.
auk þess sem aðstoðin hefur verið
skorin niður með ýmsum hætti. Verst
fara konur og börn út úr niðurskurð-
inum, en sú hjálp sem helst kemur
þeim að gagni hcfur verið skorin nið-
ur um 100 miljarði dollara á sl. þrem
árum.
-áb.