Þjóðviljinn - 25.05.1984, Síða 11
Föstudagur 25. maí 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
Helgar-
sportið
Knattspyrna
Um 1. deild karla er fjallaö annars
staðar, en mikið er leikið í neðri
deildunum. í 2. deild eru fimm leikir
á morgun, laugardag. Skallagrím-
ur-Einherji í Borgarnesi,, Víöir—
Völsungur í Garðinum, ÍBÍ-FH á
ísafirði, IBV-KS í Eyjum og
Tindastóll-Njarðvik á Sauðárkróki.
Alliráttu að hefjast kl. 14en seinkar
að líkindum öllum vegna beinu út-
sendingarinnar frá Stuttgart.
í 3. deild leika Þróttur og Huginn á
Neskaupstað kl. 20 í kvöld og fjórir
leikir verða á morgun; ÍK-Víkingur
Ó., Selfoss-Grindavík, Austri-
HSÞ.b og Leiftur-Magni. Á sunnu-
dag kl. 14 mætast Snæfell-Fylkir
og Fteynir S.-Stjarnan.
Þrettán leikir verða í 4. deild um
helgina og þar eru sem fyrr athygl-
isverðustu leikirnir í A-riðli. Ármann
og Víkverji leika á Árbæjarvelli kl.
20 í kvöld og Haukar-Augnablik
Hafnarfirði á morgun.
Golf
Opið mót, Dunlop-open, á veg-
um Golfkiúbbs Suðurnesja, verður
haldið á Hólmsvelli í Leiru á morgun
og á sunnudag. Þetta er höggleikur,
36 holur, með og án forgjafar.
Völlurinn er að komast í sitt besta
form og aðeins beðið eftir góðu
veðri.
Frjálsar íþróttir
EÓP-mótið verður haldið á
Laugardalsvelli i kvöld og hefst kt.
18.30. Mótið er á vegum frjáls-
íþróttadeildar KR. Keppt verður í
fimm greinum karla og fimm grein-
um kvenna.
Badminton
Ársþing Badmintonsambands is-
lands verður haldið á morgun,
laugardaginn 26. maí, í sal Skag-
firðingafélagsins, Síðumúla 35,
Reykjavík og hefst kl. 10 f.h.
Umsjón:
Víðir Sigurðsson
Ásgeir
meistari
a morgun
Nema stórslys eigi sér stað
T
Asgeir
Sigurvinsson.
Ásgeir Sigurvinsson verður
vestur-þýskur meistari í knatt-
spyrnu á morgun með liði sínu,
Stuttgart, nema stórslys eigi sér
stað. Stuttgart fær V.Þýskalands-
og Evrópumeistarana Hamburger
SV í heimsókn í lokaumferðinni og
Hamburger þarf að vinna fimm
marka sigur til að komast uppfyrir
Stuttgart á markatölu til að verja
meistaratitil sinn.
Leikurinn hefst kl. 13.30, hálf-
að íslenskum tíma og verður
un sýndur beint í íslenska sjón-
Webster
er lög-
legur
Drakarsta Webster, körfu-
'knattleiksmaðurinn kunni sem
verið hefur búsettur hér á landi
undanfarin ár, öðlaðist íslenskan
ríkisborgararétt nú á dögunum.
Þar með getur hann leikið með
Haukunum í úrvalsdeildinni
næsta vetur og ættu þeir þá að
eiga góða möguleika á að vera í
baráttunni um íslandsmcistara-
titilinn. Haukarnir hafa endur-
ráðið Einar Bollason sem þjálf-
ara.
Trevor Francis.
Francis með
matareitrun
Wales og Norður-írland gerðu jafn-
tefli, 1-1, í bresku meistarakeppninni í
knattspyrnu á þriðjudagskvöldið.
Leikið var í Swansea og kom Mark Hug-
hes Walesbúum yfir en Gerry Arms-
trong jafnaði. Pat Jennings lék í marki
Norður-íra í 104. skipti en meiddist og
fór útaf í hálfleik.
England og Skotland mætast í síðasta
leik keppninnar á morgun, á Hampren
Park í Glasgow. Sigurliðið þar vinnur
þessa síðustu meistarakeppni en verði
jafntefli, standa Norður-Irar uppi sem
sigurvegarar á markatölu, öll liðin þá
með 3 stig.
Óvíst ef að Trevor Francis leiki með
enska liðinu. Nú eru það ekki meiðsli,
heldur veiktist hrakfallabálkurinn af
matareitrun.
-VS
Leiðrétting
I blaðinu í gær birtist mynd af Sigurði
Halldórssyni knattspyrnumanni frá
Akranesi en í myndatexta var nafn Sig-
urðar Lárussonar. Við biðjumst vel-
virðingar á mistökunum.
Augnablik
sigraði
Augnablik vann stóran sigur á
Létti er liðin áttust við í bikarkepp-
ni KSÍ á Melavellinum í gær, úrs-
litin urðu 3-0.
Bikarleik-
ir 5. júní
Eftir leikina í bikarkeppni KSÍ í
gærkvöldi og fyrrakvöld er komin
skýr mynd á hvaða lið mætast í 2.
umferðþann 5. júní. Þau eru þessi:
Leiknir R. - Árvakur/Vík.ÓI.
Fylkir - Afturelding
Fh - Snæfell
Seifoss - Reynir S.
ÍBÍ - Léttir/Augnablik
Viðir - Grindavík
ÍBV - ÍK
Skallagrímur - Stjarnan
Vorboðinn/Vaskur - KS
Völsungur - Tindastóll
Þróttur N. - Huginn
Austri - Einherji
Liam Brady.
Liam Brady
til Inter
Liam Brady, írski knattspyrnusnill-
ingurinn, verður kyrr á Ítalíu næsta
vetur en gengur þá til liðs við Inter Mí-
lanó. Brady hefur tvö undanfarin ár
leikið með Sampdoria og þar áður með
Juventus, en miklar líkur voru taldar á
að hann sneri aftur til Englands og þá til
síns gamia félags, Arscnal.
varpinu, þökk sé elju Bjarna Fel-
ixssonar, íþróttafréttamanns sjón-
varpsins, sem hefur staðið í ströngu
við að útvega þá útsendingu.
Ef ekkert stórvægilegt fer úr-
skeiðis, sjáum við Ásgeir og félaga
tryggja sér meistaratitilinn. Löngu
er uppselt á sjálfan leikinn og að-
staða hefur verið sett upp fyrir tíu
þúsund áhorfendur utan vallarins
þar sem þeir geta séð leikinn á
kvikmyndatjaldi. Uppselt er í þau
sæti líka.
Það þarf ekki að fara mörgum
orðum um þátt Ásgeirs í velgengni
Stuttgart í vetur. Hann liefur verið
lykilmaður á miðjunni, átt hvern
stórleikinn á fætur öðrum og
skorað heil 12 mörk í deildinni sem
er mikið afrek hjá miðjumanni.
Aðeins einn leikmaður hefur verið
oftar valinn í „lið vikunnar" hjá
íþróttablaðinu Kicker í vetur,
Herget hjáUerdingen. Hann hefur
verið valinn 11 sinnum en Ásgeir
og sjálfur Karl-Heinz Rummen-
igge hjá Bayern 10 sinnum hvor.
Eins og Ásgeir sagði í samtali við
Kicker sl. mánudag: „Við töpum
þessari forystu aldrei niður, það
kemur ekki til greina!"
-VS
Braut
flaggið!
Ze Beto, ntarkvörður Porto og
portúgalska landsliðsins í knatt-
spyrnu hefur verið dærndur í 14
mánaða keppnisbann í Evrópu-
keppni. Eftir úrslitaleik Juventus
og Porto í Evrópukeppni bikarhafa
í síðustu viku, þreif hann flaggið af
öðrum línuverðinum, braut það og
þeytti brotunum útum víðan völl.
Hann missir því af úrslitum Evr-
ópukeppni landsliða sem hefjast
12. júní.
4 mörk skoruð í jafn-
tefli Þróttar og F ram
Einn leikur var háður í 1. deild
íslandsmótsins i gærkvöldi. Fram
og Þróttur áttust þá við á Valbjarn-
arvöllum og lyktaði stórskemmti-
legum leik með jafntefli, 2-2. Guð-
mundur Steinsson tryggði Fram
annað stigið er 5 mínútur voru liðn-
ar umfram venjulegan leiktíma.
Framarar voru sterkari í byrjun
og fór svo að þeir skoruðu eftir að-
eins 4. mínútna leik. Ómar Jó-
hannsson var þá með boltann á
vinstra kanti og gaf fyrir mark
Próttar, Guðmundur Steinsson var
þar staddur og honum urðu ekki á
nein mistök, hann afgreiddi bolt-
ann nett með innanfótar skoti í
markið. Fram var síðan næstum því
búið að bæta við öðru marki er skot
Braga Björnssonar fór í einn varn-
armann Þróttar og kastaðist þaðan
rétt framhjá markinu. En skyndi-
sóknir Þróttara voru síst hættu-
minni. Á 18. mínútu „klikkaði"
rangstöðutaktik Fram illa og Páll
Ólafsson komst aleinn upp vinstra
kantinn, hann lék síðan inn í vítat-
eiginn og skaut stungubolta óverj-
andi fyrir Hauk Bragason í marki
Fram. Þróttararnir voru hættulegri
það sem eftir var hálfleiksins en
mörkin fyrir lok hans urðu ekki
fleiri.
Á 12 mínútu síðari hálfleiks
Staðan
Staöan í 1. deildinni i knattspyrnu ettir
leik Fram og Þróttar i gærkvöldi:
ÍA......................2 2 0 0
Víkingur................2 1 1 0
ÞórAk...................2 1
KR..................... 2 0
Breiðablik..............2 0
IBK.,
.2 0
Þrúttur..................2 0
KA.......................2 0
Valur....................2 0 1
Fram....................2 01
4-0 6
2-1 4
1 2-4 3
0 2-2 2
0 1-1 2
0 1-1 2
0 2-2 2
1 2-3 1
1 0-1 1
1 2-3 0
komust Þróttarar yfir, Páll Olafs-
son tók horn, boltinn barst til Pét-
urs Arnþórssonar sem skallaði
hann í hornið. Á síðustu mínútum
fengu Þróttarar tvö upplögð tæki-
færi, en þau fóru bæði forðgörðum,
Þróttur átti mun meira í leiknum og
jöfnunarmark Fram kom því sem
þruma úr heiðskíru lofti. Mis-
heppnað útspark hjá Þrótti lauk
með því að Kristinn Jónsson fékk
boltann skot hans fór í einn varnar-
mann og barst þaðan til Guðmund-
ar Steinssonar sem skaut föstum
stungubolta í mark Þróttar. Eftir
markið hljóp mikið fjör í leikmenn
Fram en mörkin urðu ekki fleiri.
Bestur hjá Þrótti var Pétur Arn-
þórsson en einnig áttu þeir Ásgeir
Elíasarson og Kristján Jónsson
ágæta spretti.
Guðmundur Steinsson var hætt-
ulegastur Framara, aðrir jafnir.
-Frosti
Guðmundur Magnússon.
,Dadu“
þjálfar
FH-inga
Guðmundur „Dadú“
Magnússon hefur verið ráð-
inn þjálfari íslandsmeistara
FH í handknattleik karla.
Guðmundur hefur vcrið fyrir-
liði FH-inga undanfarin ár og
er leikreyndasti leikmaður
liðsins en hefur aldrei þjálfað
meistaraflokk áður þannig að
ráðningin kemur mjög á
óvart. Hann hefur hins vegar
þjálfað mikið hjá yngri flokk-
um FH-inga.
Kúbumenn
hœttir við
Kúbumenn tilkynntu í fyrrakvöld
að þeir niyndu ekki senda íþrútta-
menn á Ólympiuleikana í Los Angeles
í sumar. Þeir eru þar með tíunda
þjóðin til að fara að fordæmi Sovét-
manna í þcssum efnum.
Tvö heimsmet
austur-þýskra
Tvö heimsmet í sundi féllu í Magde-
burg í A.Þýskalandi í fyrrakvöld, og í
bæði skiptin var austur-þýskt sund-
fólk að verki. Kristin Otto synti 200 m
skriðsund kvenna á 1:57,75 mín. og
bætti met Cynthiu Woodhcad frá
Bandaríkjunum um hálfa sekúndu.
Jcns-Peter Brandt synti 400 m fjúr-
sund karla á 4:19,61 mín. og bætti
heimsmet Brasilíumannsins Ricardo
Prado um 17/100 úr sckúndu.
Wurbeck
tæpur
Willie Wurbeck frá V.Þýskalandi,
sigurvegari í 800 m hlaupi á
licimsleikunum í Hclsinki í fyrra, gæti
misst ar Ólympíuieikunum í sumar.
Hann meiddist á kné fyrir skömmu og
það seinkar öllum hans undirhúningi
um margar vikur.
Kóreuríkin
rœðast við
Fulltrúar Norður- og Suður-Kóreu
hittast í þriðja sinn nú um helgina til
að ræða möguleikann á áð þjóðirnar
sendi sameiginlegt lið á Olympíu-
leikana í sumar og önnur alþjóðleg
íþróttamót í framtíðinni. Tvær fyrri
samkomurnar hafa farið út um þúfur
vegna pólitískra dcilna, cnda grunnt á
því góða milli grannþjóðanna og þær
aðskildar af breiðri gjá, stjórnmála-
lega séð.
Rowell til
Norwich?
Norwich City sem leikur í 1. deild
ensku knatlspyrnunnar, fær senni-
lega markaskorarann Gary Rowell
frá Sunderland fyrir ekki neitt. Row-
ell hefur verið markakóngur Sunder-
land sex sinnum á síðustu sjö árum en
nú á dögunum ákvað félagið að gefa
honum frjálsa sölu og Ken Brown,
framkvæmdastjóri Norwich, var
fijótur að setja sig í samband við
hann.