Þjóðviljinn - 25.05.1984, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 25.05.1984, Qupperneq 16
NOÐVIUINN Fðstudagur 25. maí 1984 Aöalsími Þjó&viljans er 81333 kl. 9 -20 mánudag til föstudags. Utan þess tima er hægt aö ná í blaðámenn og aðra starfsmenn blaðsins I þessum slmum: Ritstjórn Aóalsíml Kvöldsími Helgarsúni 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná i afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663 Merki Listahátíðar 1.-15. júní 1984 komið fyrir við Lækjartorg / himneskri sœlu Piakati Listahátíðar 1984 var komið fyrir í stórri útgáfu á vegg Hiimar- vertíð byrjar vel Humarvertíð hefur byrjað með þokkalegasta móti hjá Horna- fjarðarbátum en þó er aflinn ekki eins mikill og í vertíðarbyrjun í fyrravor. Nú hefur í fyrsta skipti verið settur kvóti á hvern humar- bát og má alls veiða 2.400 tonn sem er 300 tonnum minna en í fyrra. Fyrstu bátarnir lönduðu á Höfn sl. mánudag og voru þá með 11-12 tunnur hver en í gær var aflinn skárri, um 1800 kg á bát. Alls eru gerðir út 19 bátar frá Höfn til humarveiða og leggja 16 þeirra upp hjá Kaupfélagi Austur- Skaftfellinga en 3 hjá Stemmu. Hjá Kaupfélaginu var í gær búið að vinna um 26 tonn af humri en alls vinna yfir 100 manns við humarinn á Höfn og gera menn sér vonir um að humarveiðar og vinnsla standi fram í ágúst. - Ig. Viðræður á lokastigi í Sviss Útvegsbankans við Lækjartorg í gær. Myndlistarmaðurinn Hannes Sigurðarson, varpaði því fram af svölum bankans ásamt aðstoðar- fólki. Saxófónleikari klæddur geimfarabúningi spilaði af svölu- num á meðan verkið var tjóðrað fast. Þetta er upphaflega blue-print mynd í stærðinni 60x90 cm. Þessi mynd vann í samkeppni um næsta plakat listahátíðar sem haldin var í Handíða og myndlistaskólanum í vetur. Nú er hún á Útvegsbanka- veggnum í stærðinni 5.40x7.40 og hún er líka til í litlu barmmerki", sagði listamaðurinn Hannes Si- gurðarsson sem nú er að útskrifast úr skólanum eftir 4 ára nám. í dag tekur hann einnig burtfararpróf á flautu úr Tonlistarskólanum. Hannes er 24 ára gamall. Hann ætlar til Grönoble í Frakklandi á næstunni „til að hugleiða málið og hverfa af sjónarsviðinu í bili“. „Myndin er af konu sem veður í skýjum af himneskri sælu“ sagði myndlistarmaðurinn Hannes Sig- urðarson í gær. -ÍP „Heilög Sesselía, verndargyðja tonlistar stekkur hæð sina í loft upp af ánægju vegna blómstrandi listalífs á höfuðborgarsvæðinu" heitir myndin sem piakat Listahátíðar er af. Hannes Sigurðarson vann hana upphaflega í blue-print. Mynd-Atli. Samið um 20 mills? Gæslan má kaupa þyrlu Ríkisstjórnin samþykkti í gær að heimila Landhelgisgæslunni, að festa kaup á þyrlu samkvæmt hagstæðustu tilboðum, sem bor- ist hafa. Fimm tilboð hafa borist en talið er að franskt og ítalskt tilboð séu hagstæðust. Landhelg- isgæslan hyggst nú kanna þetta mál gaumgæfilega. Samningaviðræðurnar í Sviss milli Alusuisse og íslensku viðræð- unefndarinnar eru nú sagðar vera á lokastigi. Framleiðsluverð raforku hérlendis er nú á bilinu 18 til 22 mills, - og bíða landsmenn spenntir eftir að sjá hvort íslensku samning- anefndinni tekst að ná kostnaðar- verði í samningnum. Alusuisse verksmiðjan kaupir nú um helming allrar raforku sem Landsvirkjun selur, en á um helm- ing af kostnaðarverði. Landsvir- kjun hefur á undanförnum mánuð- um hækkað verulega taxta sína til almenningsveitna og ríkisstjórnin hafði sagt mundu ná hagstæðum samningum hið fyrsta eftir að hún settist að völdum. Nú er liðið á annað ár og raunveruleg hækkun hefur fram að þessu látið standa á sér. Viðræðunefnd fslands skipa Jó- hannes Nordal sem nýlega átti stór- afmæli, Gunnar G. Schram alþing- ismaður sem nýverið hefur sótt um ársleyfi til rannsókna fyrir Há- skólann - og Guðmundur G. Þór- arinsson sem heldur því fram í blaðagrein í gær, að meðalverð ra- forku í Evrópu sé 14-5 mills. -óg. Unglingar fá endur- greitt Þeir unglingar sem þegar hafa keypt sér aðgangsmiða í skemmtistaðinn Trafík í kvöld fyrir 350 krónur fá 100 krónur til baka við innganginn. Astæðan er sú að öflug mótmæli hafa orðið við þessu háa miðaverði. Þykir mönnum nóg um að greiða venjulega 250 krónur fyrir að komast inn á staðinn. Nú er grunnskólum borgarinnar að ljúka og krakkarnir hafa hug á að bregða sér á ball að loknum pró- fönnum. Á skemmtistaðnum Traf- ík kom sú hugmynd upp að hækka aðgangseyri í kvöld og hafa miðana sem happadrættismiða um leið. Gunnlaugur hjá Trafík sagði Þjóðviljanum í gær að hætt hefði verið við þessa hugmynd vegna mótmæla. Innifalið í 250 krónum sagði hann að væri diskómúsík og break-danssýning. Gosglasið kost- ar 30 krónur. - jP- Rafurmagnaður strætó í Reykjavík? Verður einhvern tíma rafur- magnaður strætó í Reykjavík? A laugardaginn verður fræðslufund- ur um rafknúnar bifreiðar á vegum Háskólans að Borgartúni 6 4. hæð í Reykjavík. Þar flytur Gísli Jónsson rafbíla- frömuður nokkur erindi og ást- ralskur framkvæmdastjóri fyrir- tækis, sem hannað hefur rafknúinn strætisvagn, mun einnig flytja þar tölu. Hann mun og ræða hugsan- legt samstarf um framleiðslu á slík- um strætisvögnum hér á landi. Yrðu þá vagnarnir byggðir hér frá grunni og skapa atvinnumöguleika fyrir bifreiðasmiði, segir í fréttat- ilkynningu um fræðsludaginn. -óg. Helmingaskipti stjórnarflokkanna Enginn frá st jórnarandstöö- unni í stjórn Slippstöðvarinnar Framsóknarmenn í bæjarstjórn Akureyrar kjósa Sjálfstæðismann Nú er Ijóst að enginn fulltrúi þrátt fyrir að í tíð Ragnars Arnalds stjórnarandstöðu. gangur við þegar málið kom til verður frá stjórnarandstöðunni í hafi verið fulltrúar þáverandi Ekki tók lýðræðislegri þanka- kasta bæjarstjórnar Akureyrar. landinu næstu stjórn Slippstöðvar- innar á Akureyri, þar sem fjármál- aráðherra hefur tilnefnt fjóra menn og bæjarstjórn Akureyrar kosið tvo menn úr stjórnarflokkun- um til að gegna þessum störfum. Með atkvæðagreiðslunni í bæjar- stjórn Akureyrar sameinuðust Framsóknar og Sjálfstæðisflokkur- inn um að kjósa tvo menn úr sínum röðum, en Framsóknarflokkurinn. hefur myndað meirihluta með Al- þýðubandalagi og kvennaframboði á Akureyri. Þessi ólýðræðislegu helmingaskipti ríkisstjórnarinnar og framkoma Framsóknarflok- ksins á Akureyri er litin mjög alvar- legum augum af samstarfsaðiljum í bæjarstjórn, að sögn Sigríðar Stef- ánsdóttur bæjarfulltrúa Alþýðu- bandalagsins á Akureyri. Albert Guðmundsson fjármáia- ráðherra tilnefndi nýverið fjóra fulltrúa ríkisstjórnarinnar í næstu stjórn Slippstöðvarinnar og vakti athygli að enginn úr stjórnarand- stöðunni í landinu var þar á meðal, Alþýðubandalag og Kvennaframboð: Þeir hafa ekki áhuga á pólitískri samstöðu um atvinnumálefnin -Greinilegt er að stuðningsflokkar ríkisstjórnar- innar ætla að taka sér vald til að ákveða að fulltrúar þriðjungs kjósenda á Akureyri eigi ekki aðild að stjórn Slippstöðvarinnar, segir í bókun bæjarfullt- rúa Alþýðubandalags og Kvennaframboðs á Akur- eyri sem lögð var fram eftir kosningu í bæjarstjórn Akureyrar á þriðjudaginn. „Miklir erfiðleikar steðja nú að í skipasmíðum og virðist ljóst að svo muni verða á næstu misserum eins og nú er ástatt í sjávarútvegi. Slippstöðin hf er lang stærsta fyrirtæki í þessari grein hér á landi með 250 til 300 starfsmenn og er að 9/10 hlutum í eigu Akureyjarbæjar og ríkissjóðs. Með kosningu þeirri sem hér hefur farið fram ásamt með tilnefningu fjármálaráðherra á fulltrúum ríkissjóðs í stjórn fýrirtækisins; er greinilegt að stuðningsflokkar ríkisstjórnarinnar ætla að taka sér vald til að ákveða að fulltrúar þriðjungs kjósenda á Akureyri eigi ekki aðild að stjórn fyrirtækisins. Ekki er hægt að líta á þessar ákvarðanir á annan hátt, en þann, að flokk- arnir hafi ekki áhuga á nauðsynlegri pólitískri sam- stöðu um rekstur fyrirtækisins eins og þó er brýn nauðsyn að okkar áliti, svo sem nú er háttað í þess- um atvinnurekstri". Sigríður Stefánsdóttir, Valgerður Bjarnadóttir og Sigríður Þorsteinsdóttir stóðu að þessari bókun á bæjarstjórnarfundinum sl. þriðjudag. -óg Þar klofnaði bæjarstjórnarmeiri- hluti þannig um málið að Fram- sóknarmenn kusu Sjálfstæðis- flokksmanninn Aðalgeir Finnsson með Framsóknarmanninum Helga Bergs ásamt íhaldsmönnunum sjálfum. Kosið var persónukosningu á bæjarstjórnarfundinum á þriðju- daginn og hlutu frambjóðendur Alþýðubandalags og Kvennafram- boðs þau Valgerður Bjarnadóttur og Páll Hlöðversson einungis 4 at- kvæði. Athygli vekur einnig að í tilnefningu ráðherra og vali Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks á Akureyri er enginn úr verkalýðs- hreyfingunni, en Helgi Guð- mundsson hefur um árabil verið í stjórn Slippstöðvarinnar sam- kvæmt tilnefningu ráðherra. Viðmælendur Þjóðviljans í gær á Akureyri töldu ógerlegt að segja fyrir um afleiðingar af þessari framkomu Framsóknarflokksins á Akureyri gagnvart samstarfsaðilj- um í meirihluta bæjarstjórnar. -óg

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.