Þjóðviljinn - 30.05.1984, Blaðsíða 1
DJÓÐVUHNN
Prófanefnd hefur
sagt af sér eftir að
menntamálaráð-
herra ákvað að
breyta fyrirkomulagi
samræmdu
prófanna.
Sjá bls. 28
maí
miðvikudagur
121. tölublað
49. árgangur
Samþykkti lóðarstækkun fyrir Húsasmiðjuna:
Háubakkarnír
eru í hættu
Friðlýstar setlagaopnur frá ísöld
sem eru einsdcemi í heiminum
„Þessi staður er ónýtur ef farið verður með
byggingar og þar til gerðar uppfyllingar hér fram
á bakkana. Það er fráleitt að skipulagsnefnd
skuli samþykkja annað eins, því þetta er annar
af tveimur friðlýstum stöðum í Reykjavík og búið
að kosta miklu fjármagni til að varðveita hann
óskemmdan". Þetta sagði Þorleifur Einarsson
jarðfræðingur í gær um þá ákvörðun skipulags-
nefndar að stækka lóð Húsasmiðjunnar fram á
Háubakka í Elliðavogi.
í Háubökkum eru setlagaopnur frá tveimur síöustu
hlýskeiðum ísaldar og veita dýra- og jurtaleifar í set-
lögunum þar mikilsverðar upplýsingar um loftslags-
breytingar á ísöld, svo og breytingar á sjávarstöðu.
Að sögn Þorleifs á þessi staður sér engan líkan í
heiminum og hafa Háubakkar í áraraðir verið notaðir
sem e.k. kennslustofa í jarðfræði fyrir nemendur í
Reykjavík og erlenda jarðfræðinga.
Það var í mars í fyrra að skipulagsnefnd samþykkti
lóðarstækkun til Húsasmiðjunnar við Súðarvog og
gengur nýja lóðin 20 metra inn í fýrirhugaðan fólk-
vang við Elliðaár og á tveimur stöðum alveg að frið-
lýstu jarðlögunum í Háubökkum. Ekkert tillit var
tekið til þessara náttúruvætta í skipulagsnefnd og ekk-
ert samráð haft við náttúruverndarráð eða umhverf-
ismálaráð. Nefndin samþykkti aðeins „að kynna af-
greiðslu erindisins fyrir umhverfismálaráði“ en ráðið
fer með eftirlit svæðisins samkvæmt auglýsingu
menntamálaráðuneytisins. Þessi „kynning" er fyrir-
huguð á næsta fundi umhverfismálaráðs.
Lóðarstækkunin gerir einnig ráð fyrir að byggt
verði yfir fyrirhugað holræsi efst á bökkunum og er
þar gengið þvert á álit gatna- og holræsadeildar borg-
arinnar. Þarna háttar svo til að ekki er hægt að byggja
fram á bakkana nema setja þar miklar jarðvegsfyl-
lingar, sem að sjálfsögðu myndu kaffæra jarðlögin
nyrst í bökkunum.
Sjá bls. 2
Beint neðan við Húsasmiðjulóðina kemur surtarbrandslagið
í Ijós undir Reykjavíkurgrágrýtinu. Bárujárnsgirðingin af-
markar núverandi lóð Húsasmiðjunnar sem skipulagsnefnd
vill flytja 20 metra fram á bratta bakkana. Ljósm.-Atli.
ROTTUR
á barnaleikvelli
í Reykjavík
Sjá síðu 3
11 ára gamall skáksnillingur
Reykjavíkurmeistari,
íslandsmeistari og
Norðurlandameistari
Hann er aSeins 11 ára gamll, en samt
er hann Reykjavíkurmeistari, íslands-
meistari og Norðuriandameistari í skák
pilta 12 ára og yngri. Um siðustu helgi
bætti hann enn einni skrautfjöður í
hattinn með því að vinna opið skákmót
14 ára og yngri. Fyrir það hlaut hann að
iaunum „Þjóðvifjabikarinn". Og ekki
bara þetta allt saman, heldur er hann
kominn með 1705 Eloskákstig sem er
meiri stigaijöldi en 11 ára drengur hefur
áður náð hér á landi. Enginn núverandi
skáksnillinga íslands hafði náð slíkum
árangri á hans aldri.
Þessi ungi skáksnillingur heitir
Hannes H. Stefánsson. Það kom fram í
viðtali sem Þjóðviljinn átti við hann í
gær, að þessum hógværa pilti þótti þetta
allt saman ekkert merkilegt. Sér hefði
bara gengið vel að tefla undanfarið.
Hannes sagðist hafa lært að tefla þeg-
ar hann var 5 ára og hafa stundað
skákæfingar há TR síðan hann var 7
ára. Hann viðurkenndi að næstum allur
hans frítími færi í skákina.
Hvort hann ætti uppáhaldsskák-
mann, já, sannarlega: Kasparov. Ég
held að hann sé sá besti í heiminum
núna, sagði Hannes. Ekki sagðist hann
hafa sérstakt dálæti á neinum íslenskum
skákmannni.
Við spurðum Hannes hver væri upp-
áhaldsbyrjun hans á hvítt og sagði hann
það vera Italska leikinn. Stórmeistarar
nota hann ekki mikið núorðið, þó
bregður Karpov heimsmeistari honum
fyrir sig og sömuleiðis enski stór-
meistarinn Nunn, sagði Hannes.
Það verður fróðlegt að fylgjast með
Hannesi í framtíðinni ef svo fer fram
sem horfir.
-S.dór
Hannes H. Stefánsson 11 ára gamall
Reykjavfkur - fslands og Norður-
landamelstarl í skák 12 ára og yngrl.
Nýtt fiskverð
frá 1. júní:
2-3%
hækkun
tösjó-
manna
en meira til út-
gerðarinnar ef
olíuverð hœkk-
ar
Nýtt fiskverð á að vera komið
fyrir 1. júní, en útséð er með að
svo verður ekki. Samkvæmt ör-
uggum heimildum Þjóðviljans
hefur ríkisstjórnin, sem skipar
oddamann í yfirnefnd verð-
lagsráðs sjávarútvegsins, á-
kveðið að fiskverðshækkun
verði 2-3%, sem kemur til
skipta. Sfðan er ákveðið að
bæta útgerðinni upp olíuhækk-
un ef af verður, þá framþjá
skiptum.
Sjómenn hafa sett fram kröfu
um lágmarks 8% hækkun fisk-
verðs en að því er heimildir
Þjóðviljans herma mun það
aldrei nást fram. Ríkisstjórnin
veit að staða sjómanna til að
fara í verkfall eða aðrar slíkar
aðgerðir til að knýja á um
launahækkun er veik vegna
kvótakerfisins.
Búist er við að ákvörðun fisk-
verðs muni citthvað dragast
vegna þess að menn eru að bfða
eftir svari við óskum olíufélag-
anna um olíuverðshækkun.
-S.dór