Þjóðviljinn - 30.05.1984, Blaðsíða 8
S SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Migvikudagur 30. mai 1984
Miðvikudagur 30. maí 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 21
Kantadorum Slgurðar Guðmundssonar.
Ólíkar sýningar á
Kj ar valsstöðum
Fjölbreytni var aðalmarkmið Listahátíð-
ar, þegar ákvörðun var tekin um það hvaða
tíu myndlistarmönnum búsettum erlendis
skyldi boðið heim til að sýna verk sín. Þjóð-
viljinn fór á fund fjögurra þeirra til að for-
vitnast um hvað þeir vaeru með í poka-
horninu.
Þórður Ben — myndlist og
arkitektúr
- Ég hef síðan 1978 unnið mest að mynd-
Hst út frá arkitektúr og skipulagsmálum.
Sérstaklega hef ég haft áhuga á arkitektúr á
íslandi, sem sprettur af sérkennilegum ís-
lenskum aðstæðum. Árið 1981 hélt ég hér
sýningu sem fjallaði um arkitektúr og
skipulagsmál aðallega í Reykjavík. Þar
kom ég fram með athugasemdir um skipu-
lag Reykjavíkur, auk þess sem ég var með
uppkast að öðrum möguleikum en nú eru.
Þau verk sem ég er með hér núna hafa
orðið til eftir þá sýningu og eru einskonar
framhald af henni. Málverkin sýna íslensk-
an arkitektúr í íslenskri stemmningu, t.d.
með tilliti til birtu sem er mjög sérkennileg
á íslandi, og annars slíks. Síðustu ár hef ég
aðallega fengist við verk af þessu tagi og hef
mestan áhuga á myndlist út frá menningar-
heimspeki, náttúrufræði og vistfræði.
Hreinn Friðfinnsson —
nota Ijósmyndina mikið
- Það er nú ekki hægt að segja að mín
verk tilheyri neinni einni stefnu. Það má
kalla mig algerlega stefnulausan. Ég vinn
verk mín eftir ýmsum aðferðum og úr ýms-
um efnum, öllu blandað saman. Við þetta
nota ég mikið ljósmyndir sem ég blanda við
önnur efni og aðferðir. Ekki vil ég samt
kalla þetta skúlptúr, því þetta eru nær ein-
göngu tvívíddarverk. Eiginlega kalla ég
þessa tegund myndlistar bara Myndir. Hef
ekki þrengri merkingu.
Þær my ndir sem hér eru, eru ailra nýjustu
verk mín, flest unnin frá 1980 til ársins í ár,
en auk þeirra er smá viðbót af eldri verkum,
alveg frá 1975-6. Ég var með þessi verk á
sýningu nú nýlega í París, en hef reyndar
verið að sýna vítt og breitt um Evrópu.
Sigurður Guðmundsson —
skúlptúr og blýants-
teikningar
Ég er hér með þrjá skúlptúra og þrjár
blýantsteikningar, mjög stórar. Myndefnin
eru úr ýmsum áttum, landslag, dýr og alls
konar fígúrur.
Ein myndin sem ég er með kalla ég t.d.
Katanesdýrið og fékk hugmyndina í Öld-
inni 19. Katanesdýrið sást hér 1876, það
kom upp úr sjónum og át lömb og kindur.
Aðra teikningu kalla ég Gunnar Carnac.
Steinninn sem teikningin er af stendur í
Camac í Frakklandi. An árangurs var ég
búinn að leita að steini til að vera fyrirmynd
í verkið, í löndunum í kringum Holland og
fann hann svo í Carnac, þar sem franskir
villimenn höfðu tekið upp á því fyrir kann-
ski tvö þúsund árum að reisa hundruði
steina upp á rönd þannig að fyrir mig var úr
nógu að velja.
Nú hvað ég er að fara með þessum verk-
um mínum. Yfirleitt veldur svar mitt við
svona spumingum vonbrigðum. Ég hef
tekið eftir því að gáfaðra fólkið dregur jafn-
an þá heimskulegu ályktun af svari mínu að
ég lumi á skilgreiningu á verkinu og að ég
vilji halda henni leyndri. Ég má kannski
nota tækifærið hér til að segja að ef verk er
ekki misheppnað er meiningin í því mér
alltaf hulin.
Tryggvi Ólafsson — ein-
hverskonar yrkingar
- Þetta eru allt saman acrylmálverk á
striga. Myndefnið er úr öllum áttum. Ég set
saman hluti sem ég finn á öllum mögulegum
stöðum, bæði úr bókum og í ruslahrúgum
og set saman í samhengi. Myndirnar sem ég
er með hér eru allar unnar á sl. tveimur
árum, í þær hef ég sótt vissa hluti frá börn-
um og allt upp í pressuljósmyndir.
Ég er t.d. hér með eina mynd sem heitir
Þulan. Hún er sambland af bamaþulu og
nútímanum. Ég byrjaði þetta sem smá-
mynd handa barnabarni mínu, en hún
svona smástækkaði.
Ég hef heyrt það sagt að myndirnar séu
táknrænar. Fyrir mér er þetta dálítið eins og
að semja texta, án þess að þær séu „illust-
ration“ við texta, svona eins og gítarleikari
sem býr bæði til ljóð og lag, einhverskonar
yrkingar.
Stefnur og stílar interessera mig ekki
neitt. Það er augljóst að maður lærir af
öllum mögulegum hlutum, síðan fer maður
eigin götur. Éfg tek það þó fram að ég er
ekki að segja að ég hafi fundið upp neitt
nýtt.
ss.
Tíu myndlistarmenn sem búa erlendis sýna á Kjarvalstöðum
Myndlist á Listahátíð
Listahátíð mun, nú í júnf, standa
fyrir sýningu á Kjarvalsstöðum sem
nefnist Tíu gestir á Listahátíð. Er
það sýning á verkum tíu listamanna,
sem búsettir eru, eða hafa verið er-
lendis undanfarna áratugi. Fjölda-
margir íslenskir listamenn búa er-
lendis núna, svo nokkur vandi hefur
verið að ákveða hverjum skyldi boð-
ið heim.
Ekki var það þó tilviljun ein sem réði
valinu, heldur aðallega húsnæðið, auk þess
sem áhersla var lögð á að sýningin yrði sem
fjölbreyttust. Þeir listamenn sem sýna á
þessari sýningu eru Erró, Hreinn Friðfinns-
son, Jóhann Eyfells, Kirstín Eyfells, Krist-
ján Guðmundsson, Louisa Matthíasdóttir,
Sigurður Guðmundsson, Steinunn Bjama-
dóttir, Tryggvi ólafsson og Þórður Ben
Sveinsson.
Erró, sem hefur verið búsettur í Frakk-
landi frá því árið 1958, er með fimm stórar
myndir í anddyri Kjarvalsstaða, sem lýsa
stríði og ofbeldi. Það má sjá glöggt af
nöfnum myndanna, sem eru m.a. Pólland,
Beirút og Falklandseyjar. Erró hefur sýnt
áður á Islandi, í Listamannaskálanum í
Reykjavík árin 1957, 1960 og 1965. Hann
var gestur Listahátíðar á Kjarvalsstöðum
1978 og árið 1982 sýndi hann á Kjarvals-
Qtnðum
Louisa Matthíasdóttir er aldursfor-
seti þeirra Iistamanna sem sýna á Kjarvals-
stöðum á Listahátíð. Hún nam myndlist í
New York, París og Kaupmannahöfn. Á
stríðsárunum fluttist hún til Bandaríkjanna
þar sem hún hefur verið búsett síöan. Hún
hefur lítið sýnt á íslandi, en var þó gestur á
sýningu á vegum Félags myndlistarmanna
árið 1974. Hún hefur lengi verið að undir-
búa sýningu á ísiandi og er því hennar
hlutur stærstur á þessari sýningu og verður
hún með 50 olíumyndir í austursal. Louisa
hefur komið til íslands á sumrin og málað
og er myndefni hennar því aðallega ís-
lenskt. Hún hefur sl. 20 ár sýnt annaðhvert
ár í Robert Schoelkopf Gallery í New York,
en það er eitt af stærstu galleríum á Man-
hattan. Þar stendur nú yfir sýning á verkum
hennar þessa dagana, þar sem hún sýnir
málverk með íslensku mótívi.
Tryggvi Ólafsson, sem hefur verið
búsettur í Kaupmannahöfn í 23 ár, var við
myndlistamám í Reykjavík og Kaup-
mannahöfn. Á þessari sýningu er hann með
12 nýjar myndir. Tryggvi hefur haldið fjöl-
margar einkasýningar á Islandi, allt frá ár-
inu 1969, mest hjá Gallerí SÚM, auk þess
sem hann hefur tekið þátt í samsýningum í
Listsmunahúsinu, Listasafni íslands og á
Kjarvalsstöðum.
Kristín Eyfells nam myndlist í San
Fransisco og New York, en hefur auk þess
BFA-gráðu í sálfræði. Hún hefur búið í
Bandaríkjunum frá stríðslokum (ásamt
eiginmanni sínum Jóhanni Eyfells sem
einnig tekur þátt í sýningu Listahátíðar).
Kristín er myndhöggvari, en hefur aðallega
fengist við að mála sl. ár. Á sýningunni á
Kjarvalsstöðum er hún með seríu af
mannamyndum. Hún hefur áður sýnt verk
sín á íslandi, árin 1964 og 1968 sýndi hún,
ásamt eiginmanni sínum, í Listamannaskái-
anum í Reykjavík og árið 1975 tók hún þátt
í listsýningu kvenna í Norræna húsinu í
Reykjavík.
Jóhann Eyfells nam arkitektúr, bygg-
ingarlist og myndlist í Kaliforníu, lauk námi
í keramik frá Lista- og handíðaskóla Kali-
i form'u, Oakland 1959, B. Arch. gráðu í ark-
itektúr frá Flórídaháskóla, Gainesville
1953 og M.F.A. prófi í skúlptúr árið 1964.
Hann hefur verið prófessor í myndlist við
Flórídaháskóla í Orlando frá 1969. Hann
hefur verið við nám og starf í Bandaríkjun-
um frá árinu 1946, að undanskildum árun-
um 1965-1969 þegar hann kenndi við
Myndlistarskólann í Reykjavík. Á sýning-
unni á Kjarvalsstöðum sýnir hann teikning-
ar og skúlptúrverk. Jóhann hefur lítið sýnt á
íslandi undanfarin ár, en árið 1961 sýndi
hann höggmyndir, málverk og teikningar á
sýningu í Reykjavík 1964 og 1968 ásamt
eiginkonu sinni í Listamannaskálanum og
árið 1974 tók hann þátt í sýningunni „ís-
lensk myndlist í 1000 ár“ á Kjarvalsstöðum.
Steinunn Bjamadóttir (Steina)
hefur verið búsett í New Mexico frá árinu
1980. Hún var við nám í tónlistarháskólan-
um í Prag 1959-1963, spilaði síðan með Sin-
fóníuhljómsveit íslands í eitt ár, en hélt til
Bandaríkjanna 1965, þar sem hún hefur
verið síðan. Þar komst hún, ásamt eigin-
manni sínum Woody Vasulka, tékkneskum
kvikmyndagerðarmanni, inn í hóp lista-
manna, sem fékkst við tilraunir með raf-
eindalist og myndbönd, og urðu þau brátt
þekkt sem frumherjar á því sviði, voru t.d.
með í því að stofna „The kitchen", þekkta
listamiðstöð á Manhattan. Steinunn hefur
ekki sýnt áður á íslandi en á þessari sýningu
verður hún með allsérstætt verk, „Vestrið",
sem krefst flókins útbúnaðar, tveggja sjón-
varpstækja, átta til tíu myndskjáa og segul-
banda. Verður verk hennar í fundarher-
bergi Kjarvalsstaða.
Þeir fjórmenningarnir Hreinn Friðfinns-
son, Sigurður Guðmundsson, Kristján
Guðmundsson og Þórður Ben Sveinsson
eru félagar frá því í „gamla daga“. Þeir
stóðu saman að stofnun SÚM, en fóru síðan
1964-65 allir til Hollands.
Þóröur Ben hefur verið búsettur í
Dusseldorf í Þýskalandi síðasta áratuginn.
Hann var við myndlistarnám í Reykjavík og
í Amsterdam. Hann hefur nokkrum sinn-
um sýnt hér heima, árið 1967 á U.M. í
Laugardalshöll, SÚM 111 í Gallerí SÚM
árið 1968, og var með útisýningu í Reykja-
vík 1969. Árið 1969 var Þórðurmeðsýningu
sína Gúmmífrelsi (sviðsverk) bæði í Vest-
mannaeyjum og í Gallerí SÚM í Reykjavík
og árið 1981 var hann með sýningu um ark-
itektúr og skipulagsmál á Kjarvalsstöðum.
Hreinn Friófinnsson hefur verið bú-
settur í Amsterdam síðan árið 1971, hann
stundaði myndlistarnám í Reykjavík og
Amsterdam þar sem hann var einn af stofn-
endum In Out Center. Hreinn hefur haldið
tvær einkasýningar á íslandi, 1974 í Gallerí
SÚM og 1977 í Gallerí Suðurgata 7,
Reykjavík. Hann hefur einnig tekið þátt í
þrem samsýningum á vegum SÚM en það
var árin 1965, 1969 og á Listahátíð 1972.
Siguróur Guómundsson hefur
stundað myndlistamám í Reykjavík og
Amsterdam, og er nú dósent í nútímalista-
deild listaskólans í Enschede í Hollandi.
Hann hefur haldið tvær einkasýningar í
Reykjavík, árin 1969 og 1977 á vegum Gall-
erí SÚM og tekið þátt í tveim samsýningum
á vegum SÚM, árið 1969 og á Listahátíð
1972. Sigurður er, ásamt Kristjáni og
Hreini, einn af stofnendum In Out Center í
Amsterdam.
Kristján Gu&mundsson var búsett-
ur í Amsterdam frá 1970 til 1979, en er nú
fluttur til íslands. Hann nam myndlist í
Reykjavík og Amsterdam, þar sem hann
var einn af stofnendum In Out Center.
Kristján hefur haldið fjölda einkasýninga á
fsiandi, í Reykjavík, á ísafirði, Akureyri og
Húsavík, auk þess sem hann hefur tekið
þátt í mörgum samsýningum, m.a. U.M. í
Laugardalshöll árið 1967, SÚM II and
SÚM III, Gallerí SÚM, skúlptúr á Skóla-
vörðuholti 1969 og á Listahátíð í Reykjavík
árið 1972.
Þeir fjórmenningarnir sýna í vestursal
Kjarvalsstaða á Listahátíð og hafa skipt
salnum bróðurlega á milli sín og sýna þeir
verk eftir eigin vali.
ss.
Tryggvi við mynd sína, Þula.
íslenskur arkitektúr og skipulagsmál eru myndefni Þórðar Ben.
Hreinn setur upp eltt af listaverkum sínum.
Slgurður Guðmundsson við mynd sem Kristín Eyfells hefur málað af honum.