Þjóðviljinn - 14.06.1984, Page 4
4 SÍÐA - ÞJÓÐyiLJINN| Fimmtudagur 14. júní 1984
MOOVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðs-
hreyfingar og þjóðfrelsis
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson.
Umsjónarmaður Sunnudagsblaðs: Guðjón Friðriksson.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Auglýsingastjóri: Ólafur Þ. Jónsson.
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Blaðamenn: Auður Stvrkársdóttir, Álfheiður Ingadóttir.Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gísla-
son, ÓlafurGíslason, ÓskarGuðmundsson, SigurdórSigurdórsson, Valþór Hlöðversson.
Iþróttafréttaritari: Víðir Sigurðsson.
Utlit og hönnun: Haukur Már Haraldsson, Þröstur Haraldsson.
Ljósmyndir: Atli Arason, Einar Karlsson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Auglýsingar: Margrét Guðmundsdóttir, Ragnheiður Óladóttir, Anna Guðjónsdóttir
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir.
Símavarsla:í Sigríður Kristjánsdóttir og Aðalbjörg Óskarsdóttir.
Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir.
Bílstjóri: Ólöf Sigurðardóttir.
Innheimtum.: Brynjólfur Vilhjálmsson
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir.
Útkeyrsla, afgreiðsla og auglysingar:
Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333.
Umbrot og setning: Prent.
Prentun: Blaðaprent hf.
Hrun
atvinnu veganna
Og uppgjöf
ríkisstjórnar
Þegar núverandi ríkisstjórn var mynduð voru meg-
inrökin að nauðsynlegt væri að knýja í gegn grimma
kjaraskerðingu til að bjarga hag atvinnuveganna. For-
ystumenn Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins
sögðu launafólki að fjórðungs minnkun á kaupmætti
væri gerð til að tryggja öllum atvinnu. Aðgerðirnar
væru vissulega sársaukafuliar en hjól atvinnuveganna
myndu snúast áfram. íslandi hefði verið forðað frá böli
atvinnuleysisins.
Að undanförnu hefur verið að koma skýrt í ljós að
þessi málflutningur ríkisstjórnarinnar var ljótur blekk-
ingaleikur. Atvinnuleysistölur hafa undanfarna mán-
uði verið mun hærri en á liðnum árum. Forsvarsmenn
atvinnulífsins í heilum landshlutum hafa neyðst til þess
að tilkynna algera rekstrarstöðvun. Samband sveitarfé-
laga á Austurlandi hefur sent ríkisstjórninni alvarlega
viðvörun. í henni er sagt að rekstrarstöðvun blasi við
flestum fyrirtækjum í sjávarútvegi og muni það hafa
ógnvænlegar afleiðingar í för með sér fyrir Austurland.
Sveitarfélögin séu hvert af öðru að komast í greiðslu-
þrot vegna þess að burðarásar atvinnulífsins geti ekki
greitt til sveitarsjóðanna. í viðvöruninni er sagt skýrum
orðum að taki ríkisstjórnin ekki til hendinni og skapi
sjávarútveginum rekstrarskilyrði sé stutt í hrun á lands-
byggðinni.
Forráðamenn sjávarútvegsins á Austurlandi hafa
gert ítarlega grein fyrir vanda fyrirtækjanna og í öðrum
landshlutum eru nú haldnir fundir um stöðvun útgerðar
vegna sömu erfiðleika og eru að skapa hrun á Austur-
landi. Dag eftir dag hafa fjölmiðlar greint frá rökum og
tillögum talsmanna atvinnulífsins.
Svör ráðherranna hafa afhjúpað algera uppgjöf ríkis-
stjórnarinnar. Steingrímur Hermannsson forsætisráð-
herra sagði að ríkisstjórnin væri búin að taka allar þær
ákvarðanir sem hún ætlaði að taka. Þess vegna væri
ekki að vænta neinna sérstakra aðgerða úr hennar her-
búðum. Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra
reyndi að koma allri sök á bankakerfið, sérstaklega
Seðlabankann. Virðist ráðherrann vera búinn að
gleyma því að hann var sjálfur formaður bankaráðs
Seðlabankans í mörg undanfarin ár og aðaltalsmaður í
hópi þingmanna fyrir þeirri peningamálastefnu sem
Seðlabankinn og bankakerfið hafa fylgt.
Forsætisráðherra og sjávarútvegsráðherra hafa eng-
ar raunhæfar tillögur sett fram. Allar yfirlýsingar þeirra
sýna í reynd uppgjöf ríkisstjórnarinnar. Hrun atvinnu-
veganna blasir við í flestum landshlutum og óhæf ríkis-
stjórn kemur í veg fyrir að leitað sé nýrra leiða.
Viðvörun ASI
Fyrir helgina kom kjaramálanefnd ASÍ saman til
fundar og sendi ríkisstjórninni alvarlega viðvörun. Þar
segir að ríkisstjórnin hafi ekki staðið við þau fyrirheit
sem hún gaf launafólki þegar samningar voru gerðir.
Snúi ríkisstjórnin ekki af þeirri braut, sem hún er á, sé
augljóst að forsendur samninganna séu brostnar og þau
griðrof verði á ábyrgð stjórnvalda.
Björn Þórhallsson sem nú gegnir störfum forseta ASÍ
ítrekaði þessa viðvörun í blaðaviðtali og benti á að það
væri ríkisstjómarinnar að skapa frið á vinnumarkaði.
Ef hún notaði ekki úrslitaaðstöðu sína til að koma í veg
fyrir að kaupmátturinn rýrni áfram væru ráðherrarnir
að slíta sundur friðinn.
klippt
Embœtta-
veitingar
Embættaveitingar ráöherra
hafa vakið undrun og reiði í ýms-
um stofnunum að undanförnu.
Það er verið að misbeita valdi,
hygla flokksgæðingum eða fjöl-
skylduvinum. Ekki er það nýtt
fyrirbæri á íslandi, en núverandi
ráðherrar virðast ætla að vera
stórtækir í spillingunni.
Það kerfi sem viðhaft er hér í
embættaveitingum hefur augljós-
lega marga galla og í nýútkom-
inni bók Magna Guðmunds-
sonar, Hagfræði og stjórnmál, er
því lýst sem sérstöku efnahags-
legu vandamáli. Við tökum okk-
ur það bessaleyfi að vitna orðrétt
í dálítinn kafla um þetta atriði les-
endum til umhugsunar:
Hœfni aukaatriði
Skipan embœttaveitinga hefur-
engu að síður en kjördæmaskipun
- bœði bein og óbein áhrif ágang
efnahagsmála. Veltur á miklu, að
í opinberri stjórnsýslu sé réttur
maður á réttum stað.
Enda þótt ýmis ráðuneyti og
ríkisstofnanir séu til fyrirmyndar
um mannaval og alla stjórn, er
hinu ekki að neita, að mörgu er
ábótavant. Helstu embœttaveit-
ingar, sem eru í höndum ráð-
herra, hafa títtorðið tilefni deilna.
Dæmi eru um það fyrr og síðar,
að fjölskyldutengsl hafi ráðið vali
í embœtti, flokkssjónarmið eða
vilji starfsbrœðra, sem þurfa að
koma sínum að. Hœfni umsækj-
enda virðist stundum nánast
aukaatriði.
Víst er um það, að ekki er nein
trygging fyrir því, að hœfasta
fólkið, sem völ er á hverju sinni,
veljist til stjórnsýslustarfa. Helsti
gallinn við þetta er sá, að
menntaður starfskraftur nýtist
ekki. Er vandséð, hvaða tilgangi
umfangsmikið kerfi námslána og
styrkja þjónar, þegar lœrdómur-
inn er ekki virtur við stöðuveiting-
ar.
Embœttismennirnir eru ráðnir
ævilangt. Pað hefir gefið drottn-
unargjörnum tækifæri til þess að
hreiðra um sig og treysta stöðu
i______________________________
Náintengsl
- Bundin saman með 2 m
löngu bandi í heilt ár!
sína. Stofnanir hafa vaxið með
ótrúlegum hraða og náð ítökum á
hinum ólíklegustusviðum. Sumar
hafa bókstaflega þanist út og seilst
til áhrifa, er samrýmast ekki lýð-
ræði. Petta gerist annas vegar með
innlimun skyldra stofnana eða
hluta þeirra og hins vegar með
lagabreytingum, sem miða að því
að auka valdsviðið. Stundum er
slíkum ákvæðum laumað inn í
lög, án þess að eftir því sé tekið í
sjálfri þingmeðferðinni.
Hjökkum í
sama farið
Æviráðning yfirmanna ístjórn-
ardeildum og ríkisstofnunum
leiðir til rótgróins valds, þröng-
sýni og stöðnunar. Sömu menn-
irnir ráðaferðinni í meginatriðum
árum og áratugum saman. Lítt
eða ekki bólar á nýbreytni. Parna
er að finna eina skýringuna á því,
hvers vegna við hjökkum í sama
farið varðandi verðbólgu, óstöð-
ugt gengi og erlenda skulda-
söfnun.
Sú nlið skrifstofuveldis, sem
snýr beint að almenningi, lýtur að
kostnaðinum. Þegar starfslið og
umsvif aukast hröðum skrefum,
sprengir stofnunin veggina utan af
sér. Reistar eru hallir og þá
ógjarnan látið skorta á rými eða
íburð. Yfirbyggingin í þjóðfé-
laginu er orðin of mikil, enda af
almenningi oft kölluð „báknið".
Hér skal ekki lagður dómur á
það, hvort stytta œtti ráðningar-
tíma sumra embœttismanna, svo
sem ráðuneytisstjóra, bankastjóra
ríkisbanka o.fl.. Enda er til-
gangur þessa inngangskafla ekki
að gera umbótatillögur, heldur að
beina athygli lesandans að mál-
efnum, sem eru nátengd lausn
sjálfs efnahagsvandans. Ég vil þó
ekki láta hjá líða að geta þess, að
gerbreyta verður formi opinberra
stöðuveitinga, því að til ágalla
þess má líklega rekja velflesta erf-
iðleika okkar.
Burt með
mismunun
Nokkur menningarríki hafa
þann hátt á að fela slíkar stöðu-
veitingar sérstöku ráði, sem fer
eftir ákveðnum lagafyrirmœlum.
Fyrst er svonefnd verðleikaregla
(merit principle), sem kveður á
um, að stöðuveitingar skuli byggj-
gjast eingöngu á hœfni umsækj-
andans tilþess að gegna starfinu -
og þá einkum menntun hans og
reynslu. Ekki er heimilt að mis-
muna neinum vegna skoðana,
frændsemi, kynferðis eða heldur
aldurs. Hið síðastnefnda, að mis-
muna ekki aldurs vegna, á sér-
stakt erindi til okkar íslendinga,
því að enn þykir sjálfsagður
hlutur hérlendis að láta eldri
mann víkja fyrir yngri, jafnvel þó
að hinn fyrrnefndi ha.fi sömu
menntun og meiri reynslu. Setja
þarf ákvœði í nýja stjórnarskrá
um fullan rétt eldri borgara
gagnvart þeim yngri - engu síður
en umfullan rétt kvenna gagnvart
körlum.
Magni greinir og frá því að
glöggt sé gestsaugað því svo hafi
erlendur sendiráðsmaður nýlega
mælt um stöðuveitingar á ísland:
„Hið mikilvæga fyrir umsækj-
anda er ekki hvað hann veit held-
ur hvern hann þekkir.“ Og í á-
lyktunarorðum í bókarlok segir
Magni: „Fjölskylduþjóðfélagið
stuðlar ekki að vali hæfustu
manna í stjórnsýsluna.“ Það er
þjóðinni dýrt, það er efnahags-
vandamál.
- ekh.
Bundnir saman
NT birtir í gær sérkennilega
frétt um „tvær manneskjur sem
hafa af frjálsum vilja látið binda
sig saman með tveggja metra
löngu bandi, þannig að þau geta
ekki leyst sig og þannig ætla þau
að vera bundin þar til 4. júlí í
sumar en þá hafa þau verið bund-
in saman í heilt ár“.
í fljótu bragði sýnist hér komin
ein af mörgum kynjafréttum NT,
sem á að stefna að því að stela
lesendum frá DV ef hægt væri.
En það má líka líta svo á, ef
menn kjósa að lesa fréttina út frá
pólitískri táknfræði og djúpsálar-
fræði, að frétt þessi hafi heillað
blaðamann NT einmitt vegna
þess, að í henni hafi undirvitund
hans séð hliðstæðu við sambúð-
arraunir tveggja flokka, Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknar.
Sem eru bundnir saman með ým-
iskonar hagsmunaböndum og
bíða þó óþolinmóðir að losna
enda hafa þeir nú hangið saman í
heilt ár og „orðið að fara saman á
salernið, hvað þá annað“ eins og
segir í NT-fréttinni um Lindu
Muntano og Tshceng Hsieh.
Þessi tilgáta fær frískan byr undir
vængi þegar við lesum ummæli
fyrrgreindrar Lindu um það hver
sé tilgangurinn
Hún svarar:
með tilrauninni.
„Við vonum að fólk, sem er í
enn verri aðstöðu en við tvö sam-
anbundin, t.d. bundin í óham-1
ingjusömu hjónabandi eða í erf-
iðri og leiðinlegri vinnu, sjái, að
‘ úrþví að við þolum þetta þá ættu
þau líka að geta þolað sín bönd,
eða þá gera eitth vað til að losa sig
úr þeim. “
Hann er djúpur þessi. „Úr því
við getum þolað þetta, þá ættu
þau líka að geta þolað sín bönd“.
Sem er hliðstæða við það píslar-
vættishugarfar sem einkennir
stjórn SteingrímsHermannssonar
nú um stundir. Og um leið er
minnt á, að þrátt fyrir það að dag-
ar séu þeim langir sem eru saman
bundnir, þá sé líka hægt „að gera
eitthvað til að losa sig“. - Á bak-
síðu NT þennan sama dag er ein-
mitt rokufrétt um Sjálfstæðis-
konu í Vestmannaeyjum sem
hefur slitið sín bönd og gengur nú
úr flokki sínum með svofelldum
ummælum:
„Það er mannskemmandi að
vera í Sjálfstæðisflokknum“.
áb.