Þjóðviljinn - 14.06.1984, Qupperneq 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 14. júní 1984
Mondale er
forsetaefnið
eftir síðustu forkosningar, en Hart og
Jackson láta sér fátt um finnast
Framboðsraunum Demó-
krataflokksins bandaríska
lauk í fyrri viku: þá fóru fram
forkosningar í fimm síðustu
ríkjunum sem eftir áttu að
kjósa sér fulltrúa á flokks-
þingið sem gengur endan-
iega frá vali forsetaefnis,
sem á að glíma við Ronald
Reagan í haust. Walter
Mondale hefur þegar lýst sig
sigurvegara í kapphlaupi
þessu, en keppinautar hans,
Hart og Jackson, hafa ekki
viljað viðurkenna það og
vilja slást áfram fyrir sinni
stöðu.
Strax á fimmtudaginn var lýsti
Walter Mondale því yfir að hann
hefði fengið þann fjölda fulltrúa
sem þyrfti, en sjónvarpsstöðvum
bar ekki saman um það hvort það
væri rétt: helst kom það út að hann
hefði rétt 'innan við 2000 fulltrúa á
flokksþinginu vísa og vantaði
kannski eina fimmtán til útnefning-
ar - og mundi eiga auðvelt með að
útvega sér þá úr hópi óráðinna full-
trúa. Gary Hart hefur um 1250 full-
trúa og á því ekki neina teljandi
möguleika á að ná útnefuingu, þótt
hann svo geti gert Mondale og
Demókrataflokknum lífið leitt
með því að halda áfram að argast í
óráðnum fulltrúum.
Prósentur og
fulltrúar
urt annað ríki. Þar fékk hann 35%
atkvæða, Mondale 35 og Jackson
24%. Hart fór einnig með sigur af
hólmi í Nýju Mexíkó og Suður-
Dakóta, en Mondale fékk flest at-
kvæði í New Jersey og Vestur Virg-
iníu.
Munurinn á þeim fjölda fulltrúa,
sem hver og einn nær út úr kosn-
ingaárangri sínum, er misjafnlega
mikill eftir kosningatilhögun í ein-
staka ríkjum. Þetta þýðir, að mjög
víða gefur verulegur stuðningur við
frambjóðanda fáa eða enga full-
trúa. I Kaliforníu kom þetta Hart
til góða - hann fékk þar 205 fulltrúa
á flokksþing út á 38% atkvæða, en
Mondale fékk aðeins 72 út á 35%. í
New Jersey snýst dæmið við:
Mondale fær 97 menn út á 45%
atkvæða, en Hart ekki nema tvo út
á 29%! Jackson fékk átta menn í
sama ríki út á 24% atkvæða en eng-
an mann í Nýju Mexíkó út á 12%
atkvæða.
Þessi mismunun kemur þeim
einkum illa Hart og Jackson, enda
hafa þeir sárlega kvartað yfir kosn-
ingatilhögun. Hér má líka vera að
Mondale fagnar sigri: Sjálf kosningatllhögunin er mjög til umræðu.
finna meginástæðuna fyrir því að
t.d. Jackson segist ætla að halda
slagnum áfram þar til yfir lýkur.
Hans verkefni hefur verið það fyrst
og fremst, að efla þau kosninga-
samtök sem hann hefur komið á fót
og kennir við „Regnboga“ - með
það fyrir augum að fá út úr Demó-
krataflokknum sem mesta tillit-
semi við mál blökkumann og ann-
arra þeirra hópa í samfélaginu sem
lakast eru settir. Og ein af kröfum
þeirra er einmitt tengd tilhögun
forkosninga í mörgum ríkjum.
Virðingarmenn í Demókrata-
flokknum eins og Tip O’Neill,
oddviti fulltrúadeildar þingsins,
hefur hvatt forsetaefni til að slíðra
sverðin og taka upp vinskap, enda
muni ekki af veita í glímunni við
Reagan. Sem fyrr segir hafa þeir
Hart og Jackson tekið þeim tilmæl-
um fálega. Má þó vera að þeir verði
blíðari á manninn þegar nær dregur
útnefningu - þeir hafa ekki, allra
síst Gary Hart, efni á því upp á
framtíðina, að fá á sig það orð, að
þeir hafi viðhaldið sundrungu í
flokknum og þar með gert mögu-
leika Mondales gegn Reagan að
engu.
Misjöfn aðstaða
Fréttaritarar herma, að seinni
vikumar hafi verið frekar dauflegt
kringum forkosningar Demókrata,
sem fengu nokkra fjölmiðla-
sprautu þegar Gary Hart kom á
óvart snemma í slagnum með
nokkmm óvæntum sigrum. Til
dæmis var kosningaþátttaka í Kali-
forníu með minnsta móti (55%).
Demókrataflokkurinn er hálfvegis
í sárum eftir margar snarpar senur
undanfarinna vikna meðan Reag-
an og hans menn hafa þurft lítið
fyrir lífinu að hafa. Reagan hefur,
eins og auglýsinganæmir forsetar
áður, notað tækifærið og flutt
kosningaáróður sinn út úr landinu.
Hann hefur dembt yfir sjónvarps-
áhorfendur bandarískum frétta-
myndum af heimsókn sinni til Kína
(ég get talað við kommana hvað
sem hver segir), af sjálfum sér með
páfanum og í heimsókn til þorps
langafa síns á írlandi (brosað til fra
og annarra kaþólikka) og nú síðast
kemur hann við í Normandie til að
láta taka myndir af sér við sögu-
staði landgöngu bandaríska hersins
í stríðinu gegn Hitler.
ÁB tók saman
Pravda hefur áhyggjur af evr-
ópskum kommúnistaflokkum
Hart vann forkosningarnar í
Kaliforníu, sem sendir reyndar Háttsettur maður í Komm- hefur í grein í Prövdu lýst evrópskra kommúnista-
fleiri fulltrúa á flokksþing en nokk- únistaflokki Sovétríkjanna áhyggjum af þróun vestur- flokka frá lenínisma og til
kratisma, að því er hann tel-
ur. Líklegt má telja að í þess-
ari grein endurspeglist með-
al annars gremja sovéska
flokksins yfir úrslitum þeim,
sem fengust á nýafstöðnu
þingi Kommúnistaflokks
Finnlands, þar sem „harð-
línumenn" töpuðu öllum
sætum sínum í miðstjórn.
Keppinautarnir þrír - Hart, Jackson, Mondale. Og ekki mundi saka að finna kvenmann sem varaforsetaefni...
Vadim Zagladin er höfundur
greinarinnar, en hann er næstæðsti
maður í alþjóðadeild sovéska
kommúnistaflokksins. Hann segir
á þá leið í skrifi sínu, að í ýmsum
löndum séu menn nú að fjarlægjast
lenínisma og mynda „nýjan flokk
sem er opnari fyrir fjöldann". í
sovésku hugmyndakerfi er lenín-
ismi m.a. fólginn í því, að talið er
að ekki verði komið á sósíalisma
nema með „alræði öreiganna"
þ.e.a.s. algjöru forræði kommún-
istaflokks.
Zagladin segir að þessi þróun
muni þýða að snúið verði baki við
hugsjónum kommúnismans og
muni viðkomandi flokkum hnigna
og þeir þróast í átt til sósíaldemó-
kratisma.
Sem fyrr segir er talið að grein
Zagladins sé tengd vonbrigðum
með þing finnskra kommúnista á
dögunum. En ýmsir flokkar hafa
reyndar fjarlægt tilvísun til lenín-
isma úr stefnuskjölum sínum, m.a.
Kommúnistaflokkur Spánar.
Zagladin varar vesturevrópska
kommúnistaflokka við því að ef
þeir útþynni kommúníska hug-
myndafræði muni þeir aldrei verða
í stakk búnir til að leiða lönd sín til
byltingar og sósíalisma. Hann lagði
áherslu á það að heimshreyfingin
verði ekki aðeins að sýna hollustu
við marx-lenínismann heldur einn-
ig „alþjóðahyggju öreiganna". En
alþjóðahyggjan er einatt í með-
förum sovéskra kommúnista látin
jafngilda hollustu við Sovétríkin,
afdráttarlausri viðurkenningu á að
þeirra stefna sé rétt í flestum grein-
um.
Zagladin sagði ennfremur að
kommúnistaflokkar gætu því að-
eins haft áhrif á gang heimsmála að
þeir væru sameinaðir á einum og
sama grundvelli. áb endursagði
Demókratar hafa enn
sæmilega möguleika
segir nýleg skoðanakönnun í Bandaríkjunum
Enn trúa margir Banda-
ríkjamenn því, að forsetaefni
Demókrata hafi allgóða
möguleika á að sigra Reagan
í forsetakosningunum í
haust. En þeir sem svo telja
eru þó nokkru færri í skoð-
anakönnun sem birt var í
Newsweek í byrjun þessa
mánaðar en þeir hafa verið í
fyrri skoðanakönnunum.
Samkvæmt áðurnefndri könnun
teija 16% kjósenda að Demókrat-
ar hafi ágæta möguleika á að sigra,
en 36% að þeir hafi góða mögu-
leika. Þetta eru rösk fimmtíu pró-
sent og gæti það verra verið í vega-
nesti fýrir Mondale. 34% eru held-
ur vantrúaðir á sigurmöguleika
andstæðings Reagans og 13% telja
hann eigi sáralitla möguleika.
69% þeirra sem spurðir voru
telja að Mondale hafi mesta mögu-
leika á að sigra Reagan en 20%
setja traust sitt á Hart.
58% telja að það yrði flokknum
til framdráttar að finna sér konu
sem varaforsetaefni en 19% telja
að það yrði til skaða.
79% telja að þátttaka blökku-
mannsins Jesse Jackson í forkosn-
ingunum muni koma Demókrata-
flokknum til góðs, hvemig sem allt
veltist, en 9% telja að hún hafi ver-
ið skaðleg.
Nýkjörinn formaður Kommúnistaflokks Flnniands Arvo Aalto, flytur ræðu:
Þið eruð að verða kratar, segir Zagladin.