Þjóðviljinn - 14.06.1984, Side 9

Þjóðviljinn - 14.06.1984, Side 9
Fimmtudagur 14. júní 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9 Lögin um Ríkismat sjávarafurða Gölluð lög sem standa frá faglegu sjónarmiði langt að baki eldri lögum Eitt af verkum síðasta alþingis, sem lokið var við á síðasta degi þingsins, eru lög um Ríkismat sjávarafurða. Frumvarp að þessum lögum var lagt fram á alþingi á sl. hausti af Halldóri Ásgrímssyni sjávarútvegsráð- herra og er það sagt samið af svokölluðu „fiskmatsráði", einkastofnun Steingríms Her- mannssonar í embætti sjávar- útvegsráðherra, sem svo Hall- dór fékk í arf við inngöngu sína í ráðuneytið. í hinum nýju lögum erfiskmatsráði Steingríms fengin lögleg staða í 3. grein laganna, sem hljóðarsvo: „Sjávarútvegsráðherra skipar sjö menn í fiskmatsráð til fjögurra ára er verði ráðherra til ráðuneyt- is varðandi starfsemi og verkefni ríkismats sjávarafurða. Eigi skuli færri en fjórir þeirra er í fisk- matsráði sitja, vera úr röðum helstu hagsmunasamtaka sjávar- útvegsins. Ráðherra skipar for- mann ráðsins". Hér lýkur tilvitnun í upphaf 3. greinar laganna, sem síðan heldur áfram að marka nánar starfssvið ráðsins. Ég vil vekja sérstaklega athygli tilkomu fiskmatsráðs að hinni nýju fiskmatsstofnun. Hér er um grund- vallar stefnubreytingu að ræða frá öllum Iögum um útflutningsmat, sem samþykkt hafa verið á Aþingi allt frá því 1904, þegar fyrstu lögin um útflutningsmat á saltfiski tóku gildi. Á öllu þessu langa tímabili hefur það gengið eins og rauður þráður í gegnum lög um útflutn- ingsmat sjávarafurða nauðsynin á því að matsstofnunin væri sjálfstæð í störfum sínum og algjörlega óháð hagsmunaaðilum í sjávarútvegi. Með tilkomu fiskmatsráðs að matsstofnuninni, þar sem ekki færri en fjórir menn af sjö, eða meirihluti ráðsins, á að vera úr röðum helstu hagsmunasamtaka sjávarútvegsins, þá verður ríkismat sjávarafurða ekki lengur sú óháða ríkisstofnun gagnvart útflutnings- mati, sem eldri lög í þessu efni vildu reyna að tryggja. Égog marg- ir fleiri, sem nálægt fiskmati hafa komið síðustu áratugina, við telj- um að hér sé um varhugaverða lag- abreytingu að ræða, þar sem sporin á þessu sviði eru stigin aftur á bak, í staðinn fyrir áfram. Hingað til hafa yfirfiskmats- menn og deildarstjórar skorið úr faglegum ágreiningi, hafi þess þurft með. Hins vegar hljóðar 22. grein hinna nýju laga svo í þessu efni: „Ef ágreiningur rís vegna fisk- mats eða eftirlits, úrskurða yfir- fiskmatsmenn í samráði við fisk- matsstjóra og fiskmatsráð. Skjóta má úrskurði um skilning á lögum þessum og reglum settum sam- kvæmt þeim til ráðherra“. Sé hér um faglegan úrskurð á gæðamati að ræða, sem fram- kvæmdur er af kunnáttumönnum, þá hefur hann ekki gildi eins og verið hefur, samkvæmt hinum nýju lögum, nema að úrskurðurinn sé gerður í samráði við fiskmatsstjóra og fiskmatsráð. Þó er þess hvergi getið í lögunum að fiskmatsstjóri eða menn í fiskmatsráði þurfi að búa yfir þeirri faglegu þekkingu, sem slíkur úrskurður verður að grundvallast á. Þetta er eitt dæmi af mörgum í lögunum sem vitnar um skort á þekkingu á viðfangsefninu. Fagleg þekking á fisk- mati er ekki talin margra fiska virði í þessum lögum Um þetta vitnar ein af máls- greinum í 10. grein laganna, sem hljóðar svo: „Fiskmatsstjóra er heimilt að veita mönnum án tilskilinna rétt- inda undanþágu til matsstarfa í allt að þrjá mánuði, ef sérstakar aðstæður krefjast“. Þetta hlýtur að skoðast sem sér- stök kveðja til þeirra manna sem nú stunda nám í fiskvinnslu og fisk- mati í Fiskvinnsluskólanum í Hafn- arfirði, en hafa fram að þessu verið. sviknir um nauðsynlegt húsrými fyrir verklega kennslu í skólanum og hafa verið á hrakhólum á þessu nauðsynlega kennslusviði og eru enn. fþessari tilvitnuðu málsgrein laganna þykir Iöggjafanum ekki nema sjálfsagt að veita hinum til- vonandi fiskmatsstjóra heimild til þess að ráða til matsstarfa menn án nauðsynlegrar þekkingar. Og þó ættu alþingismenn að vita, eða þyrftu að vita, að velgengni á okkar fiskmörkuðum grundvallast fyrst og fremst á því, að útfluttar sjávar- afurðir standist þær gæðakröfur sem tilgreindar eru í sölusamning- um. En til þess að matsmenn geti staðið þarna forsvaranlega að verki, þá þurfa þeir að búa yfir nauðsynlegri kunnáttu og mikilli þjálfun. Það er því vansæmd fyrir alþingi að hafa látið slíkt ákvæði verða að lögum. Stefnir Halldór Ás- grímsson að tvöföldu kerfi í útflutningi sjáv- arafurða? Samkvæmt 18. grein laganna um Ríkismat sjávarafurða gæti maður haldið að svo væri. En 18. grein hljóðar þannig: „Útflytjendum sjávarafurða er skylt að hafa starfandi eftirlits- menn á sínum vegum, sem jafn- framt séu löggiltir matsmenn. Eft- irlitsmenn þessir skulu sérstaklega kynna framleiðendum, verk- stjórum þeirra, matsmönnum, eftirlitsfólki og starfsfólki, eftir því sem við á hverju sinni, kröfur erlendra viðskiptaaðila. Eftirlits- menn skulu vinna að samræmingu mats og eftirlits ásamt yfirfisk- matsmönnum og fylgjast með yfir- mati á afurðum áður en útskipun fer fram. Útflytjendum sjávaraf- urða, sem ekíci hafa í þjónustu sinni löggilta eftirlitsmenn, er skylt að kaupa þessa þjónustu af aðilum, sem Ríkismat sjávaraf- urða samþykkir“. Hér lýkur 18. grein. Samkvæmt ofanskráðu sem nú er orðið að lögum sem taka gildi þann 1. ágúst n.k., þá er hér um mikla breytingu wað ræða frá lögunum um Fram- leiðslueftirlit sjávarafurða. Það ákvæði nýju laganna, sem skyldar alla útflutningsaðila fiskafurða til að láta eftirlitsmenn á sínum veg- um fylgjast með yfirmati á afurðum áður en útskipun fer fram, það ákvæði hefur geysilegan auka kostnað í för með sér fyrir söluað- ila, sem framleiðendur fiskafurða verða að greiða. Á undanförnum árum eru það aðeins þrír útflutn- ingsaðilar, sem hafa haft fasta eftir- litsmenn í sinni þjónustu, en það eru Sölumiðstöð hraðfrystihús- anna, Sjávarafurðadeild SÍS og Sö- lusamband íslenskra fiskfram- leiðenda, nú allra síðustu árin. Sá er munurinn á eftirliti og leiðbeiningarstarfsemi þessara að- ila að hér er um frjálsa leiðbeining- atstarfsemi að ræða á vegum þess- ara aðila, án beinnar lagalegrar skyldu frá hendi ríkisvaldsins. Nú hins vegar, samkvæmt lögunum um Ríkismat sjávarafurða, þá eru allir útflutningsaðilar skyldaðir til að hafa slíka eftirlits- og leiðbein- ingarmenn í sinni þjónustu. Þetta getur orðið mjög kostnaðarsamt fyrir minni útflytjendur fiskafurða. Én máske er þetta ákvæði sett til að fækka þein? Þá er enginn vafi á því, að samkvæmt því ákvæði í lögun- um að eftirlitsmenn útflytjenda séu skyldugir til að vera viðstaddir þeg- ar yfirmat fer fram á undan út- skipun afurðanna, þetta ákvæði rnun hafa í för með sér nauðsyn á fjölguneftirlitsmanna þeirra sölu- samtaka sem hafa slíka menn i þjónustu sinni nú. Öll þessi laga- lega skylda, sem nú á að innleiða, leysir engan vanda en íþyngir hins vegar framleiðslustarfseminni. Eg tel hina frjálsu eftirlits- og leiðbeiningarstarfsemi framan- greindra sölusamtaka nauðsynlega og háfa orðið til þess að lyfta fram- leiðslunni á hærra gæðastig. Góð samvinna hefur líka jafnan verið á milli þessara eftirlitsmanna og ríkismatsins án nokkurrar þving- unar á hvoruga hlið. Frá mínu sjón- armiði hefði það verið affarasælast að slík þróun mála hefði haldið áfram. Ég hef nú komið inn á nokkur atriði hinna nýju laga, sem ég tel að þurft hefði að athuga betur áður en lögin voru samþykkt og snúa að útflutningsmati íslenskra sjávaraf- urða. Ferskfiskdeildin og fœkkun deilda Samkvæmt lögunum um Ríkis- mat sjávarafurða þá á hin nýja stofnun að starfa' í tveimur deildum, sem eru ferskfiskdeild og afurðadeild. Samkvæmt þessu þá fækkar deildum frá því sem verið hefur, því hjá Framleiðslueftirliti sjávarafurða hafa verið starfandi ferskfiskdeild, freðfiskdeild, saltfisk- og skreiðardeild og hreinlætis- og búnaðardeild. Sam- kvæmt nýju lögunum verður hreinlætis- og búnaðardeildin lögð niður, en í stað hennar verður ráð- inn hreinlætisfulltrúi. Starfsemi þessarar deildar á svo að skiptast á milli ferskfiskdeildar og afurða- deildar. Starfsemi þessarar deildar hefur mörgu góðu komið til leiðar á undanförnum árum og tel ég því að um afturför sé að ræða þegar deildin verður lögð niður. Að mínu mati er ekki jákvætt að fækka deildunum eins og nú hefur verið gert, hins vegar hefði þurfti að stofna til viðbótar síldardeild, þar sem verkun hinna ýmsu greina sfldarsöltunar krefst sérstakrar kunnáttu sem er ólík annarri fisk- verkun. Við fyrstu sýn gætu ókunnugir haldið að um fækkun yfirmanna yrði að ræða hjá hinni nýju mats- stofnun. En þegar betur er að gáð, þá fjölgar toppmönnum líklega um tvo, sem eru hinir nýju deildar- stjórar. í stað núverandi deildar- stjóra koma nefnilega fulltrúar deildarstjóranna sem annast hinar ýmsu framleiðslugreinar og verða nánustu yfirmenn yfirfiskmats- manna í stað viðkomandi deildar- stjóra nú. , Vík ég þá máli mínu að ferskfisk- deildinni og fyrirhugaðri starfsemi hennar samkvæmt hinum nýju lögum. f þessu sambandi tel ég rétt og sjálfsagt að birta hér orðrétt 11. grein laganna, sem fjallar um þessa deild og starfsemi hennar. Enda átti allt bröltið sem orsakaði samn- ingu frumvarpsins um Ríkismat sjávarafurða upptök sín þar. 11. greinin hljóðar svo í hinum nýju lögum: „Ferskfiskdeild skal annast gæða- og stærðarmat á öllum fers- kum, nýjum eða ísuðum fiski við löndun hans. Hún skal enn fremur fylgjast með geymslu og ástandi landaðd afla allt til þess er vinnsla hans hefst. Ferskfiskdeild hefur eftirlit með búnaði og hreinlæti í fiskiskipum og flutningstækjum fyrir afla og gefur út hæfnisvottorð til fiskiskipa“. Það er ekkert nema gott um þessa 11. grein laganna að segja ef hún yrði framkvæmd samkvæmt orðanna hljóðan. Hins vegar er ég ekki viss um að Halldór Ágrímsson sjávarútvegsráðherra hafi gert sér grein fyrir því að samþykkt 11. . geinar hefur í för með sér stóraukin útgjöld úr ríkissjóði og skal nú gerð grein fyrir því. En Framleiðslueftirliti sjávara- furða hefur verið neitað úm aukið fjármagn til þessara-hluta á undan- förnum árum. Svo er nefnilega mál með vexti að 11. greinin felur ferskfiskmatinu stóraukið verkefni til að framkvæma, frá því sem nú er. Nú heyrir aðeins gæðamatið á ferska fiskinum undir verksvið ferskfiskmatsins á vegum ríkis- matsins. Hins vegar hafa kaupend- ur fisksins orðið að greiða sérstak- lega fyrir stærðarmat- til mats- manna. Þetta er rrú bannað sam- kvæmt 13. grein laganna og fellur stærðarmatið hér undir skyldumat. Þá er ferskfiskmatinu gert það að skyldu þegar nýju lögin taka gildi að fylgjast með geymslu og ástandi landaðs afla, allt til þess er vinnsla hans hefst. Þetta er ekki framkvæmanlegt af núverandi mannafla og þarí að bæta við þar mörgum mönnum vegna þessa nýja verkefnis. Úti á landi er mikill fjöldi ferskfiskmatsmanna aðeins í hlutastarfi og fá þeir nú full árslaun vegna hinna nýju verkefna sem þeim eru falin samkvæmt 11. grein hinna nýsamþykktu laga. Öðru vísi er þetta ekki framkvæmanlegt. En ef lögin sem nú hafa verið sam- þykkt verða ekki framkvæmd á þessu sviði þegar þau ganga í gildi vegna stóraukins kostnaðar við framkvæmdina, þá hefði verið betra að sleppa samþykktinni. Kál- ið er nefnilega ekki alltaf auðvéld- lega sopið þó í ausuna sé komið. Eða hefur Halldór máske tryggt fjárhagslegu hliðina? Punktakerfinu svokall- aða hefur verið hafnað af Verðlagsráði Hin nýju lög um Ríkismat sjáv- arafurða og sögð nauðsyn þeirra fyrir sjávarútveginn, þau áttu upp- tök sín að mínu mati í ekki vönduð- um áróðri sem komið var af stað með ómældum kostnaði í tíð fisk- matsráðs, einkastofnunar Stein- gríms Hermannssonar, þegar hann var sjávarútvegsráðherra. Þessi áróður byggðist á þeirri staðhæf- ingu, sem aldrei hefur verið færð sönnun á, að ferskfiskmatið væri handahófskennt og misjafnt á milli hinna ýmsu verstöðva. Seljendum var sagt að matið snuðaði þá og kaupendum var sagt hið sama. Við þessum arfi tók Halldór Ás- grímsson, þegar hann settist í sæti sjávarútvegsráðherra. Ekki verður dregin önnur ályktun af við- brögðum - ráðherrans gagnvart framangreindum söguburði en að hann hafi trúað honum. Tveir full- trúar úr Verðlagsráði fyrrverandi ráðherra voru því fengnir til að koma lagi á hlutina. Sá sem tók að sér ferskfiskmatið lét hendur standa fram úr ermum og samdi nýtt matskerfi, sem gengið hefur undir nafninu „Punktakerfið“. En þegar átti að hefja mat eftir þessu nýja kerfi á sl. vetrarvertíð, þá kom babb í bátinn, því Verðlagsráð sjávarútvegsins sem saman stendur annars vegar af fulltrúum fisk- kaupenda og hinsvegar fulltrúum útvegsmanna og sjómanna, það hafnaði nýju matsreglunum. Á ný- afstöðnum fundi í ráðinu, þar sem verið var að fjalla um nýtt fersk- fiskverð sem taka átti gildi þann 1. júní samkvæmt lögum, þá var hinu nýja matskerfi aftur hafnað. Þann- ig stendur málið þegar þetta er skrifað. Að yfirveguðu ráði hefur Verð- lagsráð einróma kosið að fá að halda hinum gömlu matsreglum þrátt fyrir róginn um óhæft fersk- fiskmat sem haldið hafði verið á lofti, og magnaður var upp um skeið. Eg.tel þetta vera verðuga uppreisn fyrir hinn aldna deildar- stjóra ferskfiskmatsins sem unnið hefur að því ötullega að gera matið á nýjum fiski jafnt og raunhæft um allt landið. Énda segir það sína sögu að höfundur „Punktakerfis- ins“ bað þennan mann að hætta ekki strax störfum, þó hann hefði náð aldurshámarki opinberra starfsmanna. Niðurlag Frumvarpið um Ríkismat sjávar- afurða tók á sig ýmsar breytingar á ferð sinni gegnum Alþingi. Flestar voru þessar breytingar til bóta, en skiptu ekki sköpum um megin atr- iði frumvarpsins. Lögin um Ríki- smat sjávarafurða bera vitni um gölluð lög sem standa frá faglegu sjónarmiði langt að baki lögunum um Framleiðslueftirlit sjávara- furða, sem falla úr gildi. Og í sam- bandi við þessa lagasetningu sem að mínu mati var sótt meira af kappi en forsjá, mætti spyrja: Verður það í tísku á næstu árum að hver nýr sjávarútvegsráðherra setji ný lög án tillits til þess hvort þau sem fyrir eru hafa reynst vel eða illa? Það er að síðustu von mín að hin nýsamþykktu lög um Ríkismat sjávarafurða valdi minni skaða í framkvæmd heldur en þau gefa ti- lefni til við yfirlestur. 30. maí 1984 Jóhann J.E.Kúld

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.