Þjóðviljinn - 14.06.1984, Page 16

Þjóðviljinn - 14.06.1984, Page 16
DJÚÐVIUINN A&alsimi Þjó&viljanser 81333 M. 9-20 mánudag tilföstudags. Utan þesstímaer hægt að ná í blaðámenn og aðra starfsmenn blaðsins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. ? -12 er hægt að ná í aigreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsimi Fimmtudagur 14. júní 1984 oiöö3 Guðrún Ágústsdóttir borgarfulltrúi: Okkurfannst rangt að uppsögninni staðið „AHtsemhaftereftir Magnúsi Skarphéðinssyni um mín ummæli í Þjóðviljanum í gær, er bull og vitleysa", sagði Guðrún Ágústsdóttir þegar Þjóðviljinn hafði samband við hana vegna uppsagnarinnar hjá SVR. „Málið er allt orðið umsnúið, sem sést best á því að Þjóðviljinn slær því fram sem mínum einleik. Sá úmdur sem Magnús er að vitna í var lokaður og við vorum ekki meðmælt því. Á þeim fundi bætti ég engu við ræðu þá sem ég hafði áður haldið. Þar tók ég undir bókun Ingibjargar Sólrún- ar Gísladóttur, borgarfulltrúa í borgarráði, þar sem hún lýsti því að henni fyndist rangt að upp- sögn Magnúsar staðið. Auk þess deildi ég á núverandi meirihlut- ann fyrir það hversu ötullega hann hefur gengið fram í því að losa sig á ýmsan máta við „óæski- lega“ starfsmenn“. Áður en fundi þessum var Iok- að tók Adda Bára Sigfúsdóttir það fram að borgarfulltrúar Al- þýðubandalagsins væru allir á sama máli og Guðrún Ágústs- dóttir og að ekki væri ágreiningur í þeirra röðum. Að loknu máli Öddu Báru var fundi lokað og greiddu 14 borg- arfulltrúar atkvæði með lokun- inni. Aðeins tveir borgarfulitrúar tóku til máls á lokaða fundinum, þær Jóna Gróa Sigurðardóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í stjórn SVR og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. „Það er því ekki rétt hjá Magn- úsi að ég hafi borið þar uppá hann sakir sem eru rakalaus ósannindi. Hvað líður framkvæmd upp- sagna, þá er það mál forstjóra. Ég hef ekki skipt mér af því. Við stóðum frammi fyrir gerðum hlut. Auðvitað má deila um það hvað ég hefði átt að gera og sjálf- sagt að gera það, en ég hef haft samstarf við mína félaga í mínum flokki í þessu máli eins og öllum öðrum málum og tel það skyldu mína í sósíalískum flokki“, sagði Guðrún ennfremur. ss. Sjá einnig 7 Nýtt fjölmiðlafyr- irtæki á Akureyri: KEA stærsti hlut- hafinn Verða verkalýðs- félöginmeð? „Það kom hingað bréf undirritað af Hermanni Sveinbjörnssyni, ritstjóra Dags, og Vali Arnþórssyni, kaupfélagsstjóra KEA, í síðasta mánuði þarsem Alþýðusambandi Norðurlands var boðin aðild að þessu fyrirtæki, Samveri h.f.“, sagði Þóra Hjaltadóttir, formaður Alþýðusambands Norðurlands í samtali við blaðið í gær. KEA á einn stærsta hlutinn í þessu fyrirtæki, en því er m.a. ætlað að gera myndbönd með upplýsinga- og fræðsluefni - svipað og ísfilm hf. í Reykjavík. Þóra sagði, að miðstjórn ASN hefði ákveðið að senda bréfið áfram til aðildarfélaganna, því ASN er alls fjárvana. ASN hafa borist nokkur svarbréf og hafa þau verið jákvæð, en endanleg ákvörð- un verður tekin af hálfu ASN í lok næstu viku. Stofnfundur Samvers hf. hefur verið haldinn, en ASN fékk frest til að taka endanlega ákvörðun. „Mér finnst þetta persónulega jákvætt“, sagði Þóra aðspurð um fyrirtækið. „Mér finnst gott til þess að vita að verkalýðsfélögin láti fjöl- miðlun til sína taka - við megum alls ekki verða útundan á þessu sviði. En eins og ég sagði þá verður aðildarfélögum ASN látið eftir að taka ákvörðunina um aðild“. ast Hvernig fara álviðræðurnar? Það má Oðinn vita segir Sverrir Hermannsson ráðherra „ Ég hef ekkert frétt ennþá“, sagöi Sverrir Hermannsson iðnaöarráöherra þegar Þjóðviljinn spurði eftir hádegið í gærfrétta afviðræðum álnefndar ríkisstjórnarinnar við Alusuissemenn. Þessi samningalota hófst í Lundúnum í gærmorgun og lýkur í dag. „Menn lifa í voninni um að þeir muni gera okkur viðunandi boð. Hvernig þetta fer má Óðinn vita. Ég er ekki spámannlegavaxinn. Enalltaf bjartsýnn“. Nú stóð til einusinni að þessum viðrœðum lyki fyrir 1. apríl í vor? „Já, í bráðabirgðasamkomulag- inu var stefnt að því, - það fer öðruvísi“. Verkalýðsfélagið í Vestmannaeyjum: Samningum sagt upp l.sept Aðalfundur Verkalýðsfélágs Vest- mannaeyja sem haldinn var á mánu- dag samþykkti einróma að veita stjórn og trúnaðarráði heimild til að segja upp samningum 1. september sl. Þetta mun vera fyrsta félagið scm samþykkir slíka heimild. Jón Kjartansson, sem á fundinum var endurkjörinn formaður félagsins sagði í gær að mikill baráttuhugur væri í fólki. Menn hefðu ekki viljað vinnurekendur eru famir að hafa orð bíða lengur með að veita stjórninni á því að það þurfi að hækka! Verka- slíka heimild, enda færu sumarleyfis- lýðshreyfingin verður að fara að tímar í hönd og erfitt gæti reynst að ná hrista af sér slenið, - það yrði nú til saman fundi aftur fyrir 1. ágúst þegar þess að taka af henni „glæpinn“ ef uppsögnin þarf að hafa komið fram. atvinnurekendur yrðu á undan henni „Ég skal ekkert um það segja, að krefjast hækkunar launanna!" hvort fleiri fylgja í kjölfarið“, sagði Stjórn félagsins var öll endurkjörin Jón. „Það hlýtur hins vegar að vera á fundinum. Þá voru samþykkt hörð orðið lélegt kaupið, þegar jafnvel at- mótmæli gegn hækkun á lyfjum og sjúkrakostnaði og vítur á verkalýðs- hreyfmguna fyrir að líða drukknum mönnum að tala úr ræðustól á fund- um sínum og þingum. Sjá nánar af fundinum á bls. 3. -ÁI Sjásíðu3 Hvernig er að eiga það yfir höfði sér að Alusuisse getur lœkkað raf- orkuverðið aftur ef enn teygist úr viðrœðum? „Þeir geta ekki sagt þessu upp fyrren í fyrsta lagi 23. júní og þá með þriggja mánaða uppsagnar- fresti.Ég á ekkivon áað þeir beiti þessu ákvæði. Samningarnir hafa dregist úr hömlu af ástæðum sem eru þeirra megin. Fyrsta janúar tók við hjá þeim nýr forstjóri, hann veiktist í febrúar og lá fársjúkur í þrjá mánuði og fór síðan í endur- hæfingu. Þeir hafa ekki viljað skipta um mann. Ég tel að það verði auðvelt að ná samkomulagi um að bráðabirgðasamkomulagið framlengist“. -m

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.