Þjóðviljinn - 07.07.1984, Síða 9
MENNING
Lítilfjörlegt
offors
með pati
Oft er mikil gúrkutíð í umræð-
unni um listir. En svo koma lista-
hátíðir og þá taka fjölmiðlar ör-
lítinn kipp líkt og væru þeir ill-
yrmislega vaktir af værum
blundi. Þá fyllast þeir af umræð-
um, samtölum og greinum um
þennan sérstaka geira menning-
arinnar.
í byrjun vikunnar barst t.d.
óvæntur hvalreki á fjörur mínar í
formi Dagfaragreinar (DV, mán-
udaginn 2. júlí). Hefði égþó búist
við skemmtilegu kúltúrspj alli úr
einhverri annarri átt.
Þessi Dagfaragrein er skotin
ótal atriðum, stórum og smáum,
sem mér þykja merkileg. Þau eru
þó afar einkennandi fyrir viðhorf
vissra manna hér á landi. Ég ætla
því að leyfa mér að styðjast við
þessa grein í spjalli mínu. Um
leið þakka ég þessum ónefnda
skríbent fyrir framlag sitt til lista-
umræðunnar í landinu.
Llstir og
gróðasjónarmið
Grein Dagfara nefnist „List-
rænt ofát með tapi“ og fjallar um
Listahátíð ’84, einkum hinn
mikla halla sem er á fyrirtækinu.
Við Dagfari getum áreiðanlega
verið sammála um það að endur-
skoða beri alla framkvæmd Lista-
hátíðar með tilliti til hins mikla
taps og taka verði afstöðu til
framhaldsins samkvæmt því.
Öðrum niðurstöðum Dagfara er
ég hins vegar ósammála og tel
þær vægast sagt vafasamar.
Tökum t.d. upphaf greinarinn-
ar. Þar segir Dagfari: . . lista-
hátíðir teljast ekki merkilegt
framlag í þágu listanna nema tap
komi fram á reikningum,“ og síð-
ar: „List er tjáning, ekki
markaðsvara, segja þeir sem
mest hafa vit á menningunni og
það brýtur raunar í bága við vel-
sæmi og listræna sköpun þegar
svo óttalega vill til að hægt er að
græða á henni.“
Hvað er Dagfari að fara? Jú,
honum finnst það ömurlegt hve
lítt markaðssjónarmiðin eru virt í
listaheiminum. Honum til hugg-
unnar get ég frætt hann um það
að þar ríkja markaðslögmál eins
og annars staðar. En þau eru á
dálítið öðru plani en Dagfara
dreymir um. Éitt er víst að þeir
fitna seint á markaðstorgi list-
anna sem hafa smásálarleg sjón-
armið að leiðarljósi.
Hvers vegna
gróðahyggju?
En lítum um stund á annan
stóran þátt í menningu þjóðar-
innar og spyrjum að því hvort
markaðslögmálin séu skilyrði
fyrir ræktun mannsins á sjálfum
sér.
Þessi þáttur er vitanlega íþrótt-
irnar. Það má segja að ýmislegt sé
skylt með listum og íþróttum.
Annað beinist að ræktun huga,
sálar og ímyndunarafls, hitt að
ræktun líkamlegs atgervis, stæl-
ingu þreks og leikni. Þess vegna
fannst höfundum okkar vestrænu
menningar, Grikkjum til forna,
mikið til lista og íþrótta koma.
Ásamt vísindaiðkunum töldu
þeir þessa mikilvægu þætti menn-
ingarlífsins forsendu andlegs og
líkamlegs jafnvægis. Þó dreg ég
fastlega í efa að þeir hafi grætt svo
mjög á menningu sinni í mark-
aðslegu tilliti. Listum og íþrótt-
um var að mestu haldið uppi af
skattborgurum grísku ríkjanna
og nokkrum velviljuðum auð-
mönnum. Svo er og á íslandi okk-
ar daga.
íþróttamannvirki á borð við
þau sem við berjum augum í
Laugardal eða Bláfjöllum, eða
öðrum stöðum um landið, verða
seint metin til gróða í hagfræði-
legum skilningi. En þau eru
ómetanleg landsmönnum til
leikja, gleði og líkamsræktar.
Aldrei hefur mér dottið í hug að
óskapast út í starfsemi hinna fjöl-
mörgu íþróttasambanda og fé-
laga sem stuðla að viðhaldi
kroppsins, þótt ég þykist vita að
þau seilist óbeint ofan í vasa minn
og annarra til að viðhalda starf-
semi sinni.
Þvert á móti samgleðst ég
íþróttasinnuðum löndum mínum
yfir hverri dáð, s.s. þegar Ásgeir
Sigurvinsson skorar sín glæsilegu
mörk. Enn fremur tek ég því með
jafnaðargeði þegar menn styrktir
til Ólympíufarar lenda í 69. sæti
af 70 mögulegum. Þeir standa sig
bara betur næst.
Ég veit nefnilega að jákvætt
hugarfar þessa fólks og baráttu-
vilji er fjölda ungra sem gamalla
hvatning til heilbrigðrar lífs-
stefnu. Og því miður, Dagfari
minn, er ég svo barnalegur að
meta slíkt meir en gróðasjónar-
mið.
Snobbþvœla
Margir kunningjar mínir hafa
tjáð mér að þeir séu við það að
gubba yfir öllum íþróttasíðunum
í dagblöðunum. Þeir æla hreint
„Frú mín góð! í yðar sporum mundi
ég hraða mér brott“ Teikning eftir
Cham sem birtist í grínblaðinu „Le
Charivari," 1877. Tilefnið var að ýms-
ir töldu hættu á að konur létu fóstur ef
þær sæju málverk eftir impression-
istana.
og beint þegar þeir hafa tekið út
sinn skammt af Bjarna okkarFel.
á laugardegi og fá hann síðan aft-
ur framan í sig á mánudegi. Þrátt
fyrir slæma líðan skrifa þessir
menn ekki lengur Dagfaragrein-
ar í blöðin. Hvers vegna ekki?
Vegna þess að þeir telja sig ekki
hafa nægjanlega þekkingu á mál-
efninu, en einnig vegna hins að
þeir virða sjónarmið þeirra sem
áhuga hafa á íþróttum.
Því er öðru vísi varið með Dag-
fara. Hann hleypur með sína
magapínu út af listinni beint í
fjölmiðlana og heimtar að vera
tekinn alvarlega, einnig sem
listfrömuður: „Öllum skyn-
sömum mönnum (en í þeirra hópi
telur Dagfari sig vera ) er löngu
orðið Ijóst að þaulskipulagðar og
samanþjappaðar listahátíðir eru
jafnvel snobbuðustu listaliði of-
vaxnar. . .“ og í lokin: „Lista-
hátíðir á að leggja niður . . .lista-
hátíðir eru snobb og eru sóttar af
þeim sem halda að það sé fínt að
láta troða listinni niður í sig. “
Hvað skyldi Dagfari segja um
mig aumingjann? Án þess að
hafa hið minnsta vit á íþróttum
stend ég sjálfan mig að því að
hafa oft gaman af íþróttaþætti-
num í sjónvarpinu. Til dæmis lét
ég Bjarna Felixson „troða niður í
mig“ mynd af ágætu skautapari
frá Nottingham dansandi í
rómantískum rús undir Bolero
Ravels. Og ég lét hann ekki troða
bólerónum einu sinni niður í mig
heldur þrisvar til fjórum sinnum.
Samt sem áður hef ég enga hug-
mynd um hvort frammistaða
þessara hjúa átti skilið „fullt hús“
í einkunnargjöf eður ei. Dagfari
hlýtur því að álíta mig hið argasta
íþróttasnobb ef marka má skil-
greiningu hans á orðinu. En
e.t.v. er snobb í hans huga ein-
ungis bundið við áhuga á listum.
Lýðskrum
En svo kernur Dagfari upp um
sig og eigið snobb þegar hann
segir: „Nú er það að vísu svo að
almenningur á íslandi hefur góð-
an smekk á gildi menningar- og
listviðburða. . . Almenningur
vill nefnilega sjálfur fá að ráða
hvað hann sér eða heyrir. . . “
Oj bara, svona lýðskrum hét í
mínu ungdæmi „að snobba niður
á við“ og þótti hámark lágkúr-
unnar. Að fela sitt auma skinn
bak við ímyndaðan almenning og
kasta þaðan skít í ailar áttir tákn-
ar aðeins eitt: Dagfari er að vona
að þessi almenningur hans sé
heimskari en hann sjálfur og taki
því upp hanskann fyrir hann þeg-
ar skítinn þrýtur og götótt rökin.
Reyndar tókst dr. Göbbels að
halda úti slíku menningarlýð-
skrumi í 12 ár með dyggri aðstoð
lögreglu og hers, en Hriflu-Jónas
féll á einum 12 dögum, enda
vantaði hann stormsveitimar að
baki sér. Hefði Dagfari tekið sér
listasöguna í hönd og grautað ögn
í henni í stað þess að eyða tíma
sínum í ónýt skrif hefði hann
komist að ýmsu merkilegu. Með-
al annars hefði hann séð að al-
menningsálit, hversu sterkt og
óvægið sem það kann að vera, fer
ávallt halloka fyrir þeim sannleik
sem birtist í góðri list.
Eins hefði hann komist að því
að góður listamaður á bágt með
að þjóna tveim herrum, listinni
og mammoni. Honum getur
vissulega græðst fé, en einungis
vegna utanaðkomandi aðstæðna
sem ekkert hafa með innstu tján-
ingu hans að gera. M.ö.o. þá hef-
ur sönn list aldrei sprottið undan
lýðskrumi og gróðahyggju.
HBR
Grein Dagfara í DV á mánudaginn var er tilefni greinar Halldórs.
j dag mælir Dagfari
í dag mælir Dagfari
dag mælír Dagfari
Listrænt ofát með tapi
I.lstahátíft hrfur enn einu slnnl
verið haldln meö myndarlegu tapl. I
sjálfu sér þarf það ekkl að koma
nelnum á óvart því að lislahátiðir
teljast ekkl merkllegt (ramlag i þágu
listanna nema tap koml fram á reflm-
ingum. Llst er tjánlng, ekki
markaðsvara, segja þelr sem mest
hafa vlt á mennlngunnl og það brýtur
raunar í bága við velscml og Ust-
rcna sköpun þegar svo óttalega vill
til að h*gt er að grsða á bennl. Þarf
ekkl að minna á að þelr llstamenn
sem hafa i slg og á af Ust sinnl cru
Ula þokkaðtr, borgaraleglr fuskarar
I augum llstfrrðlnga. Helst er
mönnum fyrirgefið e( verk þelrra
eða llstsköpun verður eftirsótt þegar
listamaðurinn er allur, þó að það sé
auðvttað asskoti hart fyrir artlstana
að fá þá fyrst eitthvað fyrir sinn snúð
þegar þeír eru löngu dauðlr.
En svona hefur þctta veriö og er
enn. Þess vegna þarf englnn að
verða undrandi þótt Ustahatlö sé
haldln með tapi. Rorgarstjórinn
okkur er það ekki hcldur. „Kg yröl.
ekkí hissa þott tapið yrði 5 milljónir
eða meira," segir hann og l*lur sér
hvergi bregða.
F.n cinmitt af þvi uð l)a\ ið hnrgar-
stjórl þarf ekkl að vera hlssa á
tapinu á llstabátiðlnnl, og er það ekkl
heldur, kemur mannl spánskt fyrir
sjónir þegar hann lctur hafa eftir sér
að tapið hafl verið miklð áfall. Hann
talar jafnvel um að llslahátiðir verðl
ekkl haldnar nema annað bvert ár,
jafnvelcnnstrjáUa.
Þelrri skemmtUega óvsrntu hug-
mynd slcr nlður að borgarstjórtnn sé
að gera þvi skóna að Ustalhátið sé
ekki þess vlrðl að borga með bennl S
mUljónir króna. Getur það virkUega
verið að sú hugsun hafi Irðst að yfir-
völdum borgar- og menntamála að
listinnl elgl ekki og þurf 1 ekkilengur
að troða nlður í almennlng?
ÖUum skynsömum mönnum er
löngu orðið Ijóst að þaulskipulagðar
og samanþjappaðar Ilstahátiðir eru
jalnvel snobbuðustu UstaUði of-
vaxnar enda cnginn mannlegur
máttur fa-r um að heyja kapphlaup
milli listviðburða upp um hóla og
hcðir holuðburgarinnar nema gubba
uf li.strcuu ofáti. I.istahátiðir eru.
eins «g flestir vita, fyrst og iremst
haldnar >U _ð þóknast þessu fulki
sem telur sig hafa vit á list og hefur
það sjálfsagt sumt hvert. Nú er það
að visu svo að abnciuiingur a Lslamli
befur góðan smekk á glldi menn- þess vegna hefur hann látlð lista-
Ingar- og llstvlðburða og kannske hátiðlr fara fram bjá sér. Almenn-
ingur vill nefnilega sjalfur fá að raða
hvað hann sér eða heyrir í listinni og
lctur ekki troða annars og þriðja
flokks listamönnum upp i sig i nafni
einhverra hátiða.
Öseldu miðarnir eru kvittanir fra
þcim sem hafa vit á list en nenna
ekki að eltast við hvað sem er.
Og þar sem Davið borgarstjóri er
glöggur maður og er ekki hissa á 5
mUljón króna tapi á listahálið á það
heldur ekki að koma honum á óvart
þegar reykvLskir kjósendur hans
kvitta fyrir þvi með óseldum miðum.
að listahátið er bruðl scm kcmur
hvorki listinni né listncytcndum til
gagns. I.istahátiðir á að lcggja niður.
ekki bara annað eða þriðja hvcrt ar.
heldur um ofyrfrsjaaiilega fraintið.
Kkki \egna þcss að þa-r eru reknar
mcð tapi. það hol sitjimi \ ið uppi njeð
hvort sem er. Nci. al lnmi. að li-:.i-
liatiðu eru snolil, ,•
troða iisliiini ■ ó u '. ••
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 7. júlf 1984