Þjóðviljinn - 21.07.1984, Qupperneq 4
LEIÐARI
Ólgan í ríklsstjórninni
í málgögnum ríkisstjórnarinnar má þessa daga
glögglega sjá, að þó þeir Þorsteinn Pálsson og
Steingrímur Hermannsson Ijúki upp einum og
sama munni um endurskoðun stjórnarsáttmál-
ans, er þó bullandi óánægja undir niðri innan
beggja stjórnarflokkanna með ríkisstjórnina.
í leiðara NT í gær, ræðst Framsóknarflokkur-
inn heiftarlega að tveimur ráðherrum Sjálfstæðis-
flokksins; þeim Matthíasi Á Mathiesen viðskipta-
ráðherra og Albert Guðmundssyni fjármálaráð-
herra. í leiðaranum telur Framsóknarflokkurinn
það óviðunandi að efnahagsstefna ríkisstjórnar-
innar felist aðallega í því að skerða kaup launa-
fólks. Orðrétt segir NT „Menn una því ekki, að á
sama tíma og staðið er gegn kauphækkunum hjá
þeim launalægstu, blómstrar hvers konar milli-
liðastarfsemi m.a. vegna þess að hún hefur
hömlulítinn aðgang að erlendu lánsfé“.
Leiðarahöfundur Framsóknarflokksins dregur
enga dul á að viðskiptaráðherra og fjármálaráð-
herra Sjálfstæðisflokksins eigi höfuðsökina á
gegndarlausum erlendum lántökum „Staðr-
eyndir sýna að af hálfu viðkomandi ráðherra hef-
ur verið beitt lausatökum á þessu sviði“. Bent er á
að fyrirtækjum hafi verið leyft að auka lán sín
erlendis, einkum milliliðirnir, viðskiptabankarn-
ir hafa tekið stórfelld lán erlendis til að komast
undan refsivöxtum Seðlabankans og þar fram
eftir götum. Við endurskoðun stjórnarsáttmálans
er greinilegt að bullandi óánægja er innan Fram-
sóknarflokksins með stjórnarstefnuna. Hvort
verður látið þar við sitja að sjóði uppúr í leiðurum
NT er svo annað mál
Ekki fer minna fyrir ágreiningnum og óánægj-
unni með ríkisstjórnina innan Sjálfstæðisflokks-
ins. Útgerðarmenn um land allt eru ævareiðir við
forystu Sjálfstæðisflokksins, sem vill helst leggja
stórum hluta fiskiskipaflotans eins og endurróm-
að hefur í Morgunblaðinu. Útgerðarmenn margir
í Sölumiðstöð Hraðfrystihúsanna telja SÍS og
Framsóknarflokkinn vera að notfæra sér völdin í
ráðuneytinu til að leggja undir sig stærri hluta
útgerðar og fiskvinnslu.
Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson forstjóri SH gefur
tóninn í Morgunblaðinu í gær og segir aðild Fram-
sóknarflokksins að ríkisstjórninni koma í ljós í
framleiðslutölum fiskvinnslunnar. Fjárfesting
Sambandsins í frystihúsum og togarakaupum um
land allt séu til vitnis um þessa þróun. Á fyrstu
fimm mánuðum ársins varð 6.1% samdráttur í
framleiðslu frystihúsa Sölumiðstöðvar Hrað-
frystihúsanna á sama tíma og frystihús Sam-
bandsins juku framleiðslu sína um 13.5%.
Allt er þetta til marks um æpándi ágreining
meðal stjórnarflokkanna og er þá ekki allt talið
með. Verslunarráð íslands sem hefur látið ríkis-
stjórnina framkvæma að stórum hluta áætlun sína
frá því fyrir kosningar í fyrra, hefur nú á ný gefið
tóninn. Verslunarráðið er meðal voldugustu
stofnana í tengslum við Sjálfstæðisflokkinn í
landinu og setur fram sínar tillögur einmitt nú
þegar endurskoðun stjórnarsáttmálans stendur
fyrir dyrum. Verslunarráðið ætlar að láta ríkis-
stjórnina hjóla í undirstöðuatvinnuvegi þjóðar-
innar, sjávarútveg og landbúnað með enn blygð-
unarlausari hætti en stjórnin hefur hingað til
treyst sér til. Lausn Verslunarráðsins og ýmissa
aðilja í ríkisstjórninni er fólgin í því að svelta og
þrengja að landbúnaði og sjávarútvegi - og skapa
þannig pólitískt svigrúm til að kalla inn í atvinnu-
lífið fleiri erlenda auðhringi. Það er engin tilvilj-
un, að Ragnar Halldórsson forstjóri Alusuisse á
íslandi er einnig formaður Verslunarráðsins.
Spurningin er sú hvort ólgan í ríkisstjórninni
kemur til með að sprengja ríkisstjórnina - eða
hvort ríkisstjórnin haldi áfram að láta Verslun-
arráð íslands segja sér fyrir verkum.
0-ALIT
Þetta er toppurinn í New York-fluginu í dag .. .algjörlega hljóðlaust.
ICELANDAIR
DiomnuiNN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar .
Útgefandi: Útgáfufólag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Kerl Haraldsson.
Fréttastjórar: Óskar Guðmunasson. Valþór Hlöðversson.
Blaðamenn: Álfheiður Ingadóttir, Guðjón Friðriksson, Halldóra Sigurdórs-
dóttir, Jóna Pálsdóttir, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Mörður
Ámason, Súsanna Svavarsdóttir.Vfðir Sigurðsson (íþróttir).össurSkarp-
héðinsson-
Uóamyndir: Atli Arasori, Einar Karlsson.
Útlit og hönnun: Svava Sigursveinsdóttir, Þröstur Haraldsson.
Handrlta- og prófarkaiestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Framkvœmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir.
Auglýsingastjóri: Ólafur Þ. Jónsson.
Augiýsingar: Margrót Guðmundsdóttir, Ragnheiður Óladóttir, Anna
Guöjónsdóttir.
Afgreiöslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiösla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pótursdóttir.
Sknavarsla: Ásdís Krístinsdóttir. Sigríður Kristjánsdóttir.
Húsmóöir: Bergljót Guðjónsdóttir.
Bflstjóri: Ólöf Sigurðardóttir.
Innheimtumaöur: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Bjömsson.
Útkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn:
Síöumúla 6, Reykjavík, sími 81333.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Pjóðviljans hf.
Prentun: Blaöaprent hf.
Verð í lausasölu: 22 kr.
Sunnudagsvorð: 25 kr.
Áskriftarverö á mánuöi: 275 kr.
4 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN Laugardagur 21. júlí 1984