Þjóðviljinn - 21.07.1984, Blaðsíða 13
Láakúran í öndvea
Mark Blankfield hamast við að leika doktor Jekyll... ■ • • og herra Hyde.
Jekyll og Hyde aftur á ferð
(Jekyll & Hyde... Together Again)
Bandaríkin, 1982
Stjórn: Jerry Belson
Kvikmyndun: Philip Lathrop
Tónlist: Barry DeVorzon
Leikendur: Mark Blankfield, Bess
Armstrong, Krista Erickson
Sýnd í Regnboganum.
Lokaatriðið í þessari mynd
segir í rauninni allt sem hægt er
að segja um myndina og aðstand-
endur hennar. Þar sést Robert
Louis Stevenson snúa sér við í
gröfinni og rymja „þeir hafa eyði-
lagt söguna mína, skepnurnar!
Sagan um doktor Jekyll, lækn-
inn sem fann upp aðferð til að
leysa úr læðingi villidýrseðlið í
sjálfum sér, hefur oft verið kvik-
mynduð með misjöfnum árangri.
Fyrsta myndin mun hafa verið
gerð 1908, og stjórnaði henni
maður að nafni William Selig,
sem var einn af frumkvöðlum
bandarískrar kvikmyndagerðar
og vann fyrir sér sem töframaður
áður en hann fór að fást við kvik-
myndir. Árið eftir gerðu Danir
kvikmynd um Dr. Jekyll og Mr.
Hyde og síðan komu útgáfurnar
hver á fætur annarri og urðu fleiri
en upp verði talið. Þýski snill-
ingurinn Friedrich Murnau gerði
sína útgáfu 1920, með Conrad
Veidt í titilhlutverkinu, og 1921
lék John Barrymore þetta eftir-
sótta hlutverk, og Frederic
March fékk Óskarverðlaun 1932
fyrir leik sinn í myndinni Dr. Jek-
yll og Mr. Hyde eftir Rouben
Mamoulian.
Það er ekkert nýtt að skopstæla
þessa vinsælu hrollvekju, í gegn-
um tíðina hafa menn einsog
Abott og Costello og Jerry Lewis
fengist við það, svo einhverjir séu
nefndir. Einu sinni hefur hún ver-
ið dubbuð upp í söngleik, svo ég
viti til, það var 1973, þegar Kirk
Douglas lék hlutverk læknisins í
INGIBJÖRG
HARALDSDÓTTIR
sjónvarpsútgáfu af Dr. Jekyll og
Mr. Hyde.
Myndin sem nú er sýnd í Regn-
boganum er eiginlega skóladæmi
um það hvernig ekki á að búa til
gamanmynd. Það er einsog hóp-
ur fáráðlinga hafi lagst á eitt við
að troða inn í handritið öllum
þeim fimmaurabröndurum sem
þeir kunnu og síðan hafi verið
fenginn hópur annars flokks
leikara til að fíflast fyrir framan
myndavélina. Útkoman er
auðvitað stíllaus endaleysa.
Samt er einsog örli á hugmynd-
um annað slagið, sem hefði vel
mátt nota. Það er t.d. ekki svo
vitlaust í sjálfu sér að láta Dr.
Jekyll' -vtast í einskonar „flipp-
a" ' . ^ekur ekki meiri athygli
e .ir slíkir þegar hann gengur
inn á skemmtistað - allir hinir
gestirnir eru í svipuðum múnder-
ingum og hegða sér ekki ósvipað
honum. Gleðikonan sem hann
leggur lag sitt við er heldur ekkert
hissa á honum - henni leiðast svo-
lítið lætin í honum og afbrigði-
legar aðferðir hans, en hann er
kannski ekkert verri en margir
aðrir sem hún hefur þurft að um-
bera í starfi sínu.
Sá er þó galli ágjöf Njarðar, að
einmitt andstæðuleysið gerir
myndina að marklausri dellu.
Það sem kemur fyrir doktor Jek-
yll á sjúkrahúsinu þar sem hann
vinnur sem ungur og upprenn-
andi skurðlæknir er alveg
jafnfáránlegt og þær uppákomur
sem hann lendir í sem Hyde, kyn-
óði villimaðurinn. Vissulega má
hugsa sér að hægt hefði verið að
hafa einmitt þetta að aðalinntaki
myndarinnar: allt er fáránlegt.
En það er ekkert fyndið, a.m.k.
ekki í þessari mynd. Hún er öll á
sama lákúrulega planinu.
Það er alveg hárrétt sem Ro-
bert Louis Stevenson rymur í gröf
sinni í lokaatriðinu: þeir eyði-
leggja söguna hans, skepnurnar.
Lillian Hellman er látin
Óameríska nefndin kallaöi
Lillian Hellman fyrir sig árið
1952. Kvikmyndahöfundur
einn, Martin Berkeley, haföi
sagt nefndinni, aö fimmtán
árum fyrr hefði hann séö
skáldkonuna og sambýlis-
mann hennar Dashiell Ham-
mett á fundi sem bandaríski
kommúnistaflokkurinn skipu-
lagði í Hollywood. Nefndin
vildi aö Lillian Hellman staö-
festi upplýsingar þessar og
vildi fá fleiri nöfn. Hún svaraði
bréflega og kvaöst reiöubúin
til að segja frá því „sem hún
hefði sjálf gert og hugsaö", en
að hún mundi ekki bera vitni
gegn öörum.
„Mér finnst það ómanneskju-
legt og vansæmandi að baka sak-
lausu fólki tjón bara til að bjarga
eigin skinni. Ég hvorki get rié vil
sniðið samvisku mína eftir tísk-
unni í ár. Ég er alin upp í anda
gamaldags amerískra grundvall-
arhugmynda og hef lært nokkrar
einfaldar grundvallarreglur eins
og til dæmis þessar: Reyndu alltaf
að segja sannleikann, berðu
aldrei falskan vitnisburð,
skaðaðu ekki nágranna þinn,
vertu trúr landi þínu. Ég hefi
reynt eftir bestu getu að lifa eftir
þessum kristnu grundvallarhug-
myndum um heiður“.
Óameríska nefndin lét þar við
sitja og veit enginn hvers vegna.
Aðrir sluppu ekki eins vel. Ári
áður hafði Dashiell Hammett
(hann samdi sérstæðar og frægar
glæpasögur eins og t.d. Möltu-
fálkann) setið í fangelsi mánuð-
um saman. Hammett hafði neit-
að að gefa nefndinni upplýsingar
og sagði við það tækifæri: „Ég
þarf enga dómara til að útskýra
fyrir mér hvað lýðræði er“. Ham-
mett var ekki heilsugóður maður
og náði sér aldrei eftir fangavist-
ina. Skattayfirvöldin lögðu hald á
öll ritlaun sem þessum „rauðu“
höfundum bar. Það var ekki fyrr
en árið 1960 að Lillian Hellman
gat aftur selt eftir sig verk. Árum
saman sá hún fyrir sér og hinum
sjúka vini sínum m.a. með vinnu
við afgreiðslustörf.
Hammett og Lillian Hellman
bjuggu saman í nær þrjátíu ár.
Hann var eldri en hún og orðinn
allfrægur þegar þau kynntust.
Um tíma var hann svotil
gleymdur, en bækur hans eru nú
aftur gefnar út í stórum upp-
lögum. Nýlega var gerð kvik-
mynd um ævi þessa sérstæða höf-
undar, sem hætti snögglega að
skrifa eftir að hafa farið vel af
stað, og vita menn ekki gjörla
hvernig á því stóð.
Lillian Hellman var af gyðinga-
ættum, fædd í Suðurríkjunum.
Hún hóf feril sinn í blaða-
mennsku og fékkst einkum við
kvikmyndir og leikhús. En það
var sem leikskáld að hún varð
nafnkennd á fjórða áratuginum.
Leikrit hennar fóru mjög víða og
það voru gerð eftir þeim kvik-
myndir. Einna frægast þeirra er
Refirnir, sem lýsir miskunnar-
lausu fjölskyldustríði um vald
peninganna, einnig má nefna
verk eins og Rógburður og
Leikföng uppi á lofti. En það var
svo seint á sjöunda áratugnum að
Lillian Hellman vakti aftur á sér
athygli fyrir verk sem beint og
óbeint tengdust hennar eigin
endurminningum. Eftir einni
þeirra bóka . Pentimento, var
gerð kvikmyndin Júlía - þar
leikur Jane Fonda Lillian sjálfa
og Jason Roberts fer með hlut-
verk Dashiell Hammetts, en
Vanessa Redgrave er Júlía, hug-
rökk kona sem gefur sig að and-
spyrnu gegn nasistum í Þýska-
landi Hitlers. Lillian Hellman var
79 ára að aldri þegar hún lést.
áb tók saman.
Laugardagur 21. júlí 1984 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 13