Þjóðviljinn - 21.07.1984, Blaðsíða 11
Áfram
með
hœfi-
leikana
Viðar Sóló-umboðsmaður
kom við hér á Þjóðviljanum í
vikunni og var óhress yfir og
bað afsökunar á að ekkert
varð úr 2. þætti hæfileika-
keppninnar í Safarí um dag-
inn. Svo mun mál með vexti
að hann var í hljómleikaför
með Bubba Morthens úti um
land og staðgenglar hans hér í
bæ fóru út af sporinu. En nú er
Viðar semsagt kominn til
bæjar „fýr og flamme“ og
ábyrgist að hæfileikakeppni
nr. 2 verði haldin n.k.
miðvikudagskvöld í Safarí.
Fyrsta hæfileikakeppnin fór
fram með glans og verður
sama framkvæmd á málum og
síðast: keppendur 10 og 10
manna dómnefnd. Síðan fer
úrslitakeppni fram í haust.
Hljómsveitin Centaur leikur
að lokinni sjálfri hæfileika-
keppninni, en hún hefst hins
vegar kl. 22. .
Flutningurinn er líkur því sem
Brúsi hefur áður gert, og sem
fyrri minnir hann á köflum á Dyl-
an, Elvis og Woody Guthrie, og
sá samanburður er ekki útí hött,
því að Bruce á heima á toppnum í
námunda við þessa risa. Sextett-
inn „The E Street Band“, sér að
vanda um allan hljóðfæraleik,
ásamt Brúsa. Auk trommu og
bassa er notað slatti af gíturum,
píanó, svuntuþeysir og hljóm-
borð, auk saxófóns og söngs.
Þetta fer þó ekki í graut, heldur
hljómar allt tært og skýrt, - og
mætti nú fyrr vera með alla þessa
yfirlegu í hljóðverinu. Krafturinn
hefur heldur ekki farið úr músík-
inni, þrátt fyrir mikla fágun, en
næst ættirðu að koma með hljóm-
leikaplötu, Bruce, jafnvel þótt
hún kæmi ekki meiru til skila en
broti af sviðstöfrum þínum.
gg
Rokkunnendur leggja flest-
ir eyrun við, þegar plata kem-
urfrá Bruce Springsteen, sem
ameríkanar nefna gjarnan
„The Boss“. Þessi átti
reyndar að koma út fyrir tæpu
ári, en þegar búið var að
hljóðblanda hana, henti
Bruce bandinu í ruslafötuna
og byrjaði upp á nýtt. Perfex-
jónismi er vænn hluti af mýt-
unni Springsteen.
Ég vil segja það strax, að Born
in the USA er góð plata, jafngóð
og bestu plötur Brúsa. Gallinn er
bara sá, að hún bætir þar engu
við. Mér finnst Darkness on the
edge of town (1978) best og The
River (1980) og Born to run
(1975) næstbestar. Séu menn
Brúsafrík, er náttúrulega gaman
að fá 12 lög til viðbótar. Þau sem
aldrei hafa hlustað á hann, geta
alveg eins byrjað á þessari plötu
eins og annarri.
Amerískt
öreigaskáld
með rafgítar
Brúsa verður jafnan minnst í
rokksögunni fyrir þrennt að
minnsta kosti: Hann var einn af
aðalmönnunum í endurvakningu
og endurnýjun hressilegs rokks
um miðjan síðasta áratug. Hann
er einhver magnaðasti seiðmað-
ur, sem sést hefur á sviði, („Ég er
ekki hingað kominn til að gefa
ykkur það sem þið hafið borgað
fyrir. Ég veit að þið viljið fá meira
- og það skuluð þið fá.“) Síðast
en ekki síst er hann mikið skáld -
túlkar manna best reynsluheim
bandarísks lágstéttarkarlmanns:
Þessir strákar stunda götulífið, og
hraðbrautir og bílar eru tákn
frelsislöngunarinnar. Það er hægt
að njóta lífsins þennan stutta
'ævikafla, eftir að þú sleppur út úr
skólanum og áður en launavinn-
an hefur murkað úr þér lífslöng-
unina. í ástaróðum sínum biður
Brúsi stelpuna gjarnan að setjast
upp í bílinn hjá sér, svo að þau
geti þeyst „burt“ - út úr „gildr-
unni“. Rokkmúsíkin er snar hluti
af þessari veröld: „We learned
more from a three minute record
than we ever learned in school“
(No surrender).
Brúsi slapp út úr gildrunni, en
vinir hans urðu flestir eftir, og
Það vex eitt blóm
fyrir westan
Bruce Springsteen: Born in the USA
hjarta hans dvelur með þeim.
Textar hans hafa orðið þung-
lyndari með árunum. Hann lýsir
vonbrigðunum, eftir að eldar
æskuástarinnar hafa slokknað og
blóðið rennur hægar í æðunum.
Söguhetjur hans setjast þá
gjarnan undir stýri og æða
eitthvað út í bláinn, í örvænt-
ingarfullri leit að draumum sem
aldrei geta ræst.
Brúsi hefur sennilega aldrei
heyrt orðið stéttaskipting, en
túlkun hans á veröld amerísks
verkalýðs afsannar rækilega að
ekki sé til stéttasfcipting í Amer-
íku: Niðurdrepandi vinna, ör-
skotsfrelsi í frítímanum („When
I’m out in the street, I walk the
way I wanna walk“), vonbrigði
fullorðinsáranna o.s.frv. Hér er
stéttarreynsla túlkuð af næmu
skáldi, sem ekki hefur orðin ein
að vopni, heldur líka alþýðutón-
list vorra tíma, rock’n ’roll.
Jafngóð plata
Það er erfitt að finna eitt lag
öðru betra á nýju plötunni. Titil-
lagið Born in the USA er kannski
það slakasta, þótt textinn sé
þrælgóður. Dancing in the dark
er auðmeltasti slagarinn, enda
komið út á tveggja laga plötu.
Bestu rokkararnir finnast mér
Cover me og Darlington county,
en aðrir myndu ábyggilega nefna
önnur lög, - svo jafn góð er
platan.
Eins og gjarnan er með Bruce-
lög hljóma þau kunnuglega frá
fyrstu heyrn, enda ekki sérlega
frumleg. Svipað og á Darkness
on the edge of town og hluta af
The River, felst sjarmi plötunnar
mikið í spennunni á milli þung-
lyndislegra texta og lífsglaðrar
rokktónlistar. Svartsýni skyn-
seminnar og bjartsýni tilfinning-
anna, svo að maður leyfi sér að
vera svolítið heimspekilegur.
GOODWYEAR
GEFUR 0'RETTA GRIPIÐ
Hefurðu gert þér grein íyrir því að milli bíls og
vegar eru aðeins íjórir lófastórir íletir. Aktu því
aðeins á viðurkenndum hjólbörðum.
Sértu að hugsa um nýja
sumarhjólbarða á íólks-
bílinn cettirðu að haía
samband við nœsta
umboðsmann okkar.
HUGSIÐ UM
ÆlíJEOluiW eigid öryggi
OG ANNARRA
FULLKOMIN HJÓLBARÐAPJÓNUSTA
TÖLVUSTÝRÐ JAFNVÆGISSTILLING
GOODfÝEAR
PRISMA