Þjóðviljinn - 21.07.1984, Blaðsíða 8
MENNING
Sjáðu t.d. hvernig fötin eru bætt,
- þetta gefur innsýn í líf fólksins
og nauðsyn þess að nýta alla hluti
til hins ýtrasta‘% sagði Nanna.
Á ljósmyndunum á sýningunni
má sjá glögglega hvernig líf
kvennanna hefur verið á þessum
tímum, þegar menn voru fjarri
heimilunum á sjó megnið af ár-
inu. Konurnar urðu að sjá um allt
heima fyrir og ef veikindi eða
dauðsföll urðu, var ekki hægt að
ná í eiginmanninn. Konurnar
unnu í saltfiski og voru með lítils-
háttar landbúnað, því fiskiverð
var lágt á þessum tíma og mikil
fátækt.
Sýningin í Eimreiðarskemm-
unni er opin daglega frá 1.30 - 6
nema mánudaga. Þá er einnig
búið að opna Dillonshúsið, - það
er nýbúið að grunnmála allt hús-
ið, en það hefur verið í viðgerð í
vetur. Gullborinn verður einnig í
gangi og Gunnar Sigurjónsson,
sem vann á bornum á sínum tíma,
ætlar að vera á bornum um helg-
ina.
-þs-
Nanna fyrir framan Dillonshúsið
Brunnurinn:
istarmanna
Þriðja hefti listtímaritsins
Brunnurinn er komið út í bókar-
formi og inniheldur það Ijóð 20
myndlistarmanna. Bókin er um
80 blaðsíður að stærð en ábyrgð-
armenn hennar eru Helgi
Friðjónsson og Kristinn Harðar-
son, báðir vel kunnir í hópi yngri
myndlistarmanna. (formála segir
m.a.:
„Texti (gjarnan ljóðrænn) hef-
ur lengi verið notaður í myndlist.
Við getum byrjað á að nefna alt-
aristöflur frá miðöldum eða ís-
lensku handritin, þar sem textinn
er að vísu aðalatriðið en mynd-
ræn fegurð oft lítið eða ekki síðri.
En á þessari öld eru það Fútúrist-
amir og DADA-istarnir sem
ruddu brautina, og þá DADA-
listamennirnir sérstaklega. Þeir
notuðu texta í málverkin, relíf-
myndirnar eða skúlptúrana og
við prentun DADÁ ljóðanna
vom notaðar mismunandi letur-
gerðir og þau sett upp á óvenju-
legan hátt. Þetta hefur svo
seinna, aftur áhrif á Concrete
ljóðagerð (upp úr 1960) og einnig
má sjá sterk áhrif í því sem þykir
nútímaleg hönnun (lay-out)
tímarita, plakata og þvíumlíks.
Listamennirnir sem eiga efni í
Brunninum em Ámi Ingólfsson,
Björg Örvar, Daði Guðbjörns-
son, Eggert Einarsson, Halldór
Ásgeirsson, Hannes Lárusson,
Harpa Bjömsdóttir, Helgi Þorg-
ils Friðjónsson, Jökull Jónsson,
Kristinn G. Harðarson, Kees van
Gelder, Magnús Guðlaugsson,
Níels Hafstein, Ólafur Lámsson,
Ómar Stefánsson, Ragna Herm-
annsdóttir, Steingrímur Krist-
mundsson, Þorlákur Kristinsson
og Tumi Magnússon.
Hér er ýmist um ljóð eða prósa
að ræða með myndskreytingum
gjaman. Sum ljóðin em í hefð-
bundnum stíl, önnur ekki. Hefð-
bundnastar eru vísur Níelsar Haf-
stein sem eru dýrt kveðnar að
fomum hætti. Hér er sýnishorn,
Tvær vísur ortar í Olíustöðinni í
Hvalfirði 8. apríl 1982:
Ys og þys ú hlaðinu,
olían í svaðinu,
vaggar sér ú vaðinu
vis af skeiniblaðinu.
Biskví, ís og bisness,
bústin skvísa: hviss, fliss.
Sestu Dísa, piss, piss.
Prýðisvísa? Iss, Iss!
Brunnurinn er til sölu í bóka-
búð Sigfúsar Eymundssonar,
Máli og menningu og Gallerí
Langbrók.
- GFr
Steingrfmur Kristmundsson
(Fyrsta blaðslða eftir Viggo Andersen)
CIBIA
mZ ‘e/s
P’fye ,
V
-ý'.JM 7
Eggort Einarsson
8 SfÐA - ÞJÓÐVIUINN Laugardagur 21. júll 1984