Þjóðviljinn - 21.07.1984, Blaðsíða 16
LISTIRII
„Jóhann Strauss er
maður að mínu skapi"
Áður en Rúholla Khomeini
leiðtogi íslömsku byltingarinn-
ar í íran hvarf aftur til heima-
lands síns, var hann spurður
að því hvort eitthvað í evróp-
skri menningu hefði haft áhrif
á hann. Hann svaraði því til að
ekkert í evrópskri menningu
hefði snortið hann. En svo
hugsaði hann sig um að loknu
svari og bætti við: „Jú, ann-
ars, Jóhann Strauss er maður
að mínu skapi. Hann er hið
eina úr vestrænni menningu
sem við munum hafa brúk
fyrir. Það er ágætt að láta íran-
ska hermenn marséra undir
tónlist hans.“
Ég minntist þessara orða
leiðtogans þegar mér barst til
eyrna þessi drepleiðinlegi
bumbusláttur sem á öldum hljóð-
vakans heitir „létt-sígild tónlist".
Þetta var um síðustu helgi, en það
þarf ekki helgarnar til því þessi
hljómlist glymur í tíma og ótíma
hvenær sem þáttaskil verða í dag-
skrá útvarpsins.
Ríkisútvarpið er býsna gott og
mikil menningarstofnun, meiri
en flestar í þessu landi. Úr sam-
anburði við áþekkar stofnanir er-
lendis kemur útvarpið okkar vel
út, jafnvel þótt ekki væri tekið
með í reikninginn hversu lítið og
fjárvana það er. Alla mína tíð hef
ég notið þess að hlusta á dagskrá
sem er fjölbreytt og fróðleg svo
undrum sætir, en þá ber ég hana
saman við dagskrá margra vel-
megandi stöðva erlendis.
Sem dæmi má nefna að afar
sjaldan heyrist í Ríkisútvarpinu
þetta eilífðarsuð sem byggist á sí-
bylju talsjúkra froðusnakka.
Suðið myndast þegar þulir taka
sífelltframmi fyrir tónlistinni sem
'þeir eru að reyna að kynna og
leyfa engum að syngja út. Þessi
hljópvarpsstefna er ættuð þaðan
sem amfetamín-neysla er mikil
meðal fjölmiðlafólks, enda má
gjörla þekkja sjúkdómseinkenn-
in. Þulirnir hætta að geta sofið og
pissað eðlilega og eru því í sífelld-
um spreng.
Nokkrum kauðum hjá Ríkisút-
varpinu finnst þetta flott (senni-
lega vegna þess að svona er þetta
í Kananum) og hafa þvf gert til-
raunir með slíka munnræpu á
laugardögum. En þá skortir
nægjanlegt púst, sennilega vegna
þess að þeir eiga ekkert spítt til að
„kýla á netta nös“ og springa
þ.a.l. fljótt.
Það er því lítil hætta á að Ríkis-
útvarpið verði þess háttar blað-
urskjóðum að bráð, enda ekki
samkeppnishæft í slíku mara-
þoni. En það er annar fúll pyttur
sem stundum bíður hönnuða dag-
skrárinnar. Það er þurrdrumbs-
háttur í kynningum, einkum á
klassískri tónlist og sífelldar end-
urtekningar á sömu stefjunum.
Ég gat þess í grein um síðustu
helgi að ég væri hræddur við þá
uppástungu að gera Listahátíð að
stofnun. E.t.v. hef ég haft kynn-
ingar Ríkisútvarpsins á sígildri
tónlist í huga, því sú listgrein set-
ur hvað mestan svip á hátíðina.
Það er nefnilega svo mikil stofn-
analykt af kynningum hljóð-
varpsins á þessari eftirlætistónlist
sinni að hún er dæmd til að fara
halloka fyrir annars lags hljóm-
list.
Ég kalla það stofnanalykt þeg-
ar lofta þarf út svo starfsfólk sofni
ekki þegar það les skýrslur um
það sem hlustendur eiga í vænd-
um frá þessari eða hinni tónlistar-
hátíðinni úti í heimi. Þar er nefni-
lega mest áhersla lögð á það sem
engu máli skiptir, s.s. dagsetning-
ar, ópusa og „heiti“ á köflum:
„Kaflarnir heita allegro, lento.
o.s.frv.
Ekki vissi ég að kaflar „hétu“
sérstökum nöfnum. Ég hef staðið
í þeirri meiningu að orð eins og
„allegro“ og „lento“ væru lýsing-
arorð komin úr ítölsku og þýddu
„kátur“ og „hægur“. Með lýsing-
arorðum hélt ég maður notaði
sögnina „að vera“ en ekki „að
heita“ nema lýsingarorðum væri
breytt f heiti og notuð yfir
skepnur, þá með stórum staf.
En þetta sýnir einmitt sofanda-
háttinn. Það er ekki nóg með að
verið sé að þylja yfir hlustendum
orð sem þeir skilja illa, svo virðist
sem höfundar kynninga og þulir
botni heldur ekkert í þeim. Að
kynningu lokinni er svo tónlistin
leikin án frekari greinargerðar
eða lýsingar. Hafi hlustendur
lítinn áhuga, slokknar hann alveg
eftír slíka matreiðslu. Þeir sem
frekari áhuga hafa eru einnig
sviknir. Þá langar flesta til að vita
meira um tónleikana, en þeir hafi
verið haldnir í Belgrad eða
Björgvin þennan eða hinn mán-
aðardaginn.
HALLDÓR
B. RUNÓLFSSOf
Garðabær, Einbýli
Vorum aö fá í sölu stórglæsilegt einbýli - 5 -
6 svefnherbergi, stórt eldhús, borðstofa, 2
stofur og blómaskáli - Þvottahús meö
innréttingum og vinnuherbergi 2 baöherbergi
og gestasnyrting. - Tvöfaldur bílskúr og bíl-
skýli. Verð 6.5 - 7.0 milj.
Bráðræðisholt Vesturbær
Lítið tvílyft timburhús ca. 80 - 90 fm. 2 her-
bergi uppi - Stofa, eldhús, og herbergi niðri.
Verð 1.650 þúsund. 50% útborgun. Eftirst. á
6-8 árum.
Snorri Welding,
Árni Þorsteinsson
Birna Jónsdóttir,
Sævar Pálsson
3ja herb. sérhæð
m/bílskúr í Kópavogi
98 fm. Efri hæð - 2 svefnherbergi. - Allt sér.
- Góðar innréttingar. - Skipti á 3ja herbergja
íbúð í Miðbæ Reykajvíkur. Verð 2.400 þús.
Hvassaleiti
Höfum fengið í sölu 3ja herb. íbúð + bílskúr
við Hvassaleiti. - Mjög vel staðsett. - Björt.
Verð 1.850 þúsund.
Barmahlíð
3ja herb. jarðhæð með sér inngangi - 80 fm.
- Rúmgóð íbúð. - Nýstandsett sameign.
Verð 1.500 þúsund. Laus strax.
c^MA^KIPTI EP'' ftRUGGARL
FASTEIGNASALAN
OPIÐ Mánudag -
föstudag kl. 9 - 18
um helgar 13 - 17.
simar
687520
39424
687521
Bolholti 6 4. hæö