Þjóðviljinn - 25.08.1984, Síða 14
JL-HÚSIÐ, RAFDEILD,
AUGLÝSIR
Eigum gott úrval af lampasnúrum, marga
liti, einnig kapla og ídráttarvír frá 0, 75q til
16q.
Eigum gmiss konar efni til raflagna,
innfellt og utanáliggjandi, jarðbundið og
ójarðbundið, svo sem klœr, hulsur, fatn-
ingar, fjöltengi, tengla og rofa, öryggi,
dimmera, tengidósir, bjöllur, spenna,
einnig veggdósir, loftdósir, lekaliða og
margt fleira, m.a. klukkustýrða tengla með
rofa.
12, 24 og 32
volta perur.
EIGUM 100
MÖGULEIKA
í PERUM
Venjulegar perur, kertaperur, kúluperur,
ópalperur, Ýmsar gerðir af spegilperum,
línestraperur, flúrperur, m.a. gróðurperur.
JI2
Jón Loftsson hf.
/A A A A A A *
G lO G £É! i
I^líLujuíJ EJQQQq
" i »* - " « -! a
Hringbraut 121 Sími 10600
Öllum þeim sem árnuöu mér heilla og
sýndu mér hlýhug og vináttu á 60 ára
afmæli mínu þann 29. júlí sl., flyt ég
alúöarþakkir.
Ingi R. Helgason.
FJÖLBRAUTASKÓLINN
BREIÐHOLTI
Austurbergi5 109Reykjavik ísland sími756 00
Frá Fjölbrautaskólanum
í Breiöholti
Skólinn verður settur í Bústaðakirkju mánudaginn 3.
sept. kl. 10.00 árdegis. Aðeins nýnemar og kennarar
eiga að koma á skólasetninguna.
Kennarafundur verður sama dag og hefst kl. 14.00.
Nemendatöflur verða afhentar í skólanum 3. sept-
ember frá kl. 13.00-17.00. Nemendur skulu þá greiða
gjöld til stofnunarinnar að upphæð kr. 800.00.
Sérstök kynning fyrir nýnema verður þriðjudaginn 4.
sept. og hefst kl. 9.00.
Kennsla samkvæmt stundaskrá hefst miðvikudaginn
5. sept. bæði í dagskóla og kvöldskóla.
Innritun og val í námshópa í öldungadeild F.B. (kvöld-
skóla) verður 28.-31. ágúst frá kl. 20.00-22.00 alla
dagana. Þá greiða nemendur skólagjöld.
Skólameistari.
14 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 25. ágúst 1984
Held
mest
upp
á
Bach
Bjöm Steinar
Sólbergsson
heldur
orgeltónleika
í Kristskirkju
á mánudag
„Jú, París er það sem hún var-
hún er enn sem fyrr besti staður-
inn til að nema listir. Þaö er geysi-
lega mikið að gerast þar á tónlist-
arsviðinu og maður kemst ekki
yfir nema brot af því. Og mann-
lífið í París er líka skemmtilegt,
þótt við höfum kosið að flytja út
fyrir borgina með dætur okkar,
því miðborgin er ekki beint fyrir
barnafólk“, sagði Björn Steinar
Sólbergsson, orgelleikari, sem
heldurorgeltónleika í Kristskirkju
á mánudagskvöldið kl. 20.30.
Björn stundaði nám í Róm hjá
einkakennara í eitt ár og hefur
lokið tveimur af fjórum við tón-
listarháskólann í París. Hann
hlaut fjögurra ára franskan styrk
og segir Björn að styrkurinn og
námslánin framfleyti honum,
konu hans, Hrefnu Harðardóttur
og dætrunum tveimur. „Án
franska styrksins hefði þetta ekki
gengið, því það eru svo oft tafir
með námslánin“, sagði Björn.
Við spurðum hann um skólann
og sagði hann að þetta væri geysi-
lega strangur og góður skóli, með
um 1500 nemendur, þar af innan
við 40 í orgelleik.
Er þetta hagnýtt nám?
„Ætli það? Það er hagnýtt fyrir
mig, því þetta er það sem ég hef
áhuga á, og ég er ákveðinn að
flytja heim að námi loknu. Fólk
spyr gjarnan hvers vegna, því hér
kvartar fólk mikið. En ég vil
hvergi búa nema hér, þótt það sé
gaman að vera við nám í París“,
sagði Björn.
Á efnisskránni verða verk eftir
J.S. Bach og 3 franska höfunda,
einn samtímamann Bachs, einn
nútímahöfund og einn síðróm-
antískan. Björn mun flytja sömu
verk í Akureyrarkirkju 6. sept-
ember.
„Ég held mest upp á Bach og
helmingurinn af tíma mínum fer í
að æfa verk hans“, sagði Björn að
lokum.
þs.
Friðardagar
Tónleikar á
grafíksýningu
Klukkan 16.00 í dag verða tónleikar á myndlistarsýningunni í Fé-
lagsstofnun stúdenta, en þá leika Kolbeinn Bjarnason og Páll Eyjólfs-
son á flautu og gítar verk eftir Atla Heimi Sveinsson, Þorkel Sigur-
björnsson, Erik Satie, Robert Dick.Albanez, Tottoba og Luis des
Narveaes. Grafíksýningin er opin frá kl. 14.00-21.00 í dag og aftur á
sunnudag frá kl. 14.00 þar til leiksýning Jan Bergquist hefst kl. 20.30.
MENNING
Nýtt íslenskt snjóbræðslukerfi
KOBRA
Viö höfum snjóbræöslurörin
Viö höfum tækniþekkinguna
Viö leggjum kerfiö
Viö gefum heildartilboö í efni og lögn
Við höfum lægsta verðið
Opið laugardag
Pípulagnir sf.
Skemmuvegur 26 L (bak við Stórmarkaðinn)
Kóoavoaur Sími 77400