Þjóðviljinn - 25.08.1984, Blaðsíða 16
MENNING
Verk eftir Jónu Guðvarðardóttur.
FORM ISLAND vekur athygli í Finnlandi
„Þroskuð og
sjólfstœð verk“
íslenska farandsýningin,
FORM ISLAND, sem hefur að
undanförnu verið sýnd í Finn-
landi, hefur vakið mikla athygli.
Hér er um að ræða fyrstu stóru
yfirlitssýningu á íslenskum list-
iðnaði og iðnhönnun, sem sýnd
verður á öllum Norðurlöndun-
um. Á sýnipgunni eru verk 42
listamanna, samtals yfir 200 verk.
Skipulag sýningarinnar annaðist
Norræna húsið, Listiðnaðarsafn-
ið í Helsingfors og Samstarfs-
nefnd um kynningu á Listiðnaði
og iðnhönnun.
Vegleg sýningarskrá með yfir-
gripsmiklum upplýsingum um ís-
lenskan listiðnað var gefin út í
tilefni sýningarinnar. Hrafnhild-
ur Schram listfræðingur skrifar
um sögu listiðnaðar á íslandi og
einnig er grein eftir Stefán Snæ-
björnsson innanhúsarkitekt. Út-
lit og umsjón sýningarskrárinnar
önnuðust Tryggvi T. Tryggvason
og Stephen Fairbairn.
Verndari sýningarinnar, Vig-
dís Finnbogadóttir, forseti Is-
lands, opnaði sýninguna í apríl-
mánuði 1984íListiðnaðaðarsafn-
inu í Helsingfors er hún var þar í
opinberri heimsókn. Sýningin
hefur síðan verið sett upp í Lista-
safninu í Villmanstrand (Lappe-
enranta) í Finnlandi og þann 30.
ágúst nk. verður sýningin opnuð í
Wáinö Aaltonen listasafninu í
Ábo. Sýningin verður sett upp á
enn einu safni í Finnlandi haustið
1984, og baðan heldur sýningin
áfram til Árósa í Danmörku, Sví-
þjóðar, Noregs og Færeyja.
Sýningin hefur hlotið sérlega
góðar móttökur sýningargesta og
hafa listgagnrýnendur fjallað
mjög jákvætt um hana í finnskum
blöðum.
íslensk hönnun er lítið sem
ekkert þekkt á hinum Norður-
löndnum og því kemur á óvart
hve íslensku verkin búa yfír mikl-
um þroska og Sjálfstæði. Hin
þjóðlegu sérkenni í formi, litum
og vali á efnum hafa vakið hrifn-
ingu og ennfremur sú alþjóða-
hyggja, sem birtist í verkunum og
sýnir að hinir íslensku listamenn
fylgjast vel með þróuninni í öðr-
um löndum. í blaðadómum um
sýninguna í Villmanstrand segir
m.a.: „Sýningin er afar falleg.
Litirnir segja sína eigin sögu um
hið margbreytilega loftslag og
náttúru á hinni fjarlægu eyju.
Sérhvert verk á sýningunni dreg-
ur að sér óskipta athygli áhorf-
andans og milli hans og verksins
myndast samband. Þá vekur
einnig athygli sambandið við
náttúruna, sem kemur m.a. fram
í ljósmyndum Guðmundar Ing-
ólfssonar og Rafns Hafnfjörðs.
Athyglin beinist einnig að
óvenjulegu efni til myndgerðar
t.d. hrosshári og fiskroði".
Þá kemur einnig fram hjá
gagnrýnendum ánægja með að
sýningin spanni yfir flest svið
hönnunar s.s. textíl, keramik,
málma, glerlist, leður, grafíska
hönnun og iðnhönnun.
Hluti af „FORM-ISLAND"-sýningunni sem nú er sýnd í Finnlandi, en á eftir að fara til Danmerkur, Svíþjóðar, Noregs og
Færeyja.
SÝNING
Stóllinn SÓLEY sem teiknaður er af Valdi-
mar Harðarsyni vekur nú athygli víða um
heim. Framleiðandi er KUSCH 8r Co., þekktur
húsgagnaframleiðandi í Þýzkalandi.
Epal hf. hefur tekið að sér söluumboð á ís-
landi og heldur sýningu í Siðumúla 20 á
stólnum í fjölmörgum lita- og efnistilbrigð-
um. Verið velkomin.
epcil
Síðumúla 20 - Reykjavík - sími 91-36677
BFrá
Grunnskólum
•— Seltjarnarness.
Innritun:
Innritun nýrra nemenda fer fram í skólanum daglega
frá kl. 9 til 12 f.h. sími Mýrhúsaskóla er 17585 og
Valhúsaskóla 27743.
Upphaf skólastarfs 1984:
Mýrhúsaskóli:
Kennarafundur mánudaginn 3. september kl. 9. f.h.
Nemendur komi í skólann föstudaginn 7. september
sem hér segir:
Kl. 9 nemendur 3., 4., 5. og 6. bekkjar.
Kl. 13 nemendur 1. og 2. bekkjar.
Nemendur 6 ára deilda verða boðaðir símleiðis.
Valhúsaskóli:
Kennarafundur mánudaginn 3. september kl. 9 f.h.
Nemendur komi í skólann fimmtudaginn 6. september
kl. 9.30 f.h.
Kennsla hefst föstudaginn 7. september samkvæmt
stundaskrá.
Skóiastjórar.