Þjóðviljinn - 31.08.1984, Page 3
FRETTIR
Kjaraskerðingin
Smánarkjör!
Tvítug iðnverkakona hefur einungis 750 krónur til að lifa af á viku
Hvaða læti eru þetta út af einum
1200-kalli! Þið fáið nú að éta líka!
Igær greindi Þjóðviljinn frá sex-
tugri iðnverkakonu sem hafði
ekki nema 625 krónur til að
kaupa mat á viku, eftir að búið
var að draga öll gjöld og
reikninga frá launum hennar.
Vert er að leggja áherslu á, að sú
kona var ekki með léleg laun mið-
að við iðnverkafólk, til dæmis
hafði hún 20 prósent yfirborgun!
Kjör hennar eru því miður
síður en svo einsdæmi. Þannig er
Þjóðviljanum kunnugt um tví-
tuga iðnverkakonu sem vinnur í
sælgætisgerð. Eins og fjölmargir
aðrir sem vinna í iðnaði hefur hún
einungis dagvinnutekjutryggingu
í laun. Það gera 12.913 krónur á
mánuði.
Þegar búið er að draga frá fé-
lagsgjöld, lífeyrissjóð, spari-
merki, skatta og útsvar fær þessi
stúlka útborgað 9.054 krónur á
mánuði til að lifa af.
Hún býr með vinkonu sinni í
lítilii tveggja herbergja íbúð og
hennar helmingur af húsa-
leigunni eru 4.000 krónur. í raf-
magn greiðir hún 830 krónur og
hennar hluti af húsgjaldinu eru
630 krónur. Til að komast í vinnu
og heim aftur borgar hún 653
krónur í strætisvagnafargjöld á
mánuði.
Þegar búið er að draga þessi
gjöld frá tekjunum á hún því eftir
2.942 krónur til að lifa af mánuð-
inn!
Þessi tvítuga stúlka hefur með
öðrum orðum 750 krónur til að
eyða í mat, föt og til að lyfta sér
upp fyrir á viku hverri!!
Á sama tíma harðneita iðnrek-
endur, sem flestir velta sér upp úr
botnlausri einkaneyslu, að greiða
þessari stúlku og starfsfélögum
hennar 14 þúsund krónur í lág-
markslaun á mánuði.
Er það réttlæti?
-ÖS
Utanríkisþjónustan
Sendiherra-
skipti
Allmiklar breytingar eru á döf-
inni hjá íslensku utanríkisþjón-
ustunni. Hendrik Sv. Björnsson
sendiherra í Brussel mun innan
tíðar láta af störfum vegna aldurs
og tekur Tómas Á. Tómasson
sendiherra í París við hans stöðu.
Haraldur Kröyer í Moskvu tekur
við sendiherrastöðunni í Paris,
Páll Ásgeir Tryggvason í Osló fer
í hans stað til Moskvu og Níels P.
Sigurðsson sem gegnt hefur störf-
um í utanríkisþjónustunni tekur
við starfi sendiherra íslands í
Osló.
-v.
Móðurmjólk
Brjósta-
ráðstefna
Borgarleikhúsið verður ein sérkennilegasta byggingin í nýju byggðinni við Kringlumýri. Sviðsturninn er nú kominn í fulla
hæð en ofaná honum hvíla 8 burðarbitar úr strengjasteypu og vegur hver þeirra nær 7 tonn.
Niðurskurður Ragnhildar
Ráðstefna um brjóstagjöf verð-
ur haldin dagana 8. og 9. sept-
ember í Varmahlíð í Skagafirði.
Það eru Ahugafélag um brjósta-
gjöf og Sjúkrahús skagfirðinga
sem halda ráðstefnuna.
Fyrirlesarar verða Elisabet
Helsing sem er starfsmaður
WHO og hefur ritað bækur um
brjóstagjafir ásamt því sem hún
starfar í Amnehjelpen í Noregi.
Marga Thome dósent við Há-
skóla íslands, Sigríður Sigurðar-
dóttir sagnfræðinemi og Hörður
Bergsteinsson barnalæknir munu
einnig flytjafyrirlestra. Áhugafé-
lag um brjóstagjöf á íslandi verð-
ur kynnt.
Lærðir og leikir eru velkomnir
á ráðstefnuna. Nánari upplýsing-
ar fást £ símum 95-5333 og 95-
5396._______________________-jp
Stigahlíð
Furðuleg tilmæli
Frœðslustjórinn á Vestfjörðum telur óeðlilegt að
menntamálaráðherra skuli lofa aukinni kennslu
samhliða niðurskurði í útgjöldum.
Eg tel óeðlilegt að senda þessi
þrenn tilmæli saman, sagði
Pétur N. Bjarnason fræðslustjóri
á VestQörðum: „Ráðuneytið fer
fram á 33% aukningu á forskóla-
kennslu, aukningu á kennslu í
heimilisfræði og svo 2,5% niður-
skurð“.
Pétur sagði að þeir vestra hafi
fengið fyrirmæli um niðurskurð
án þess að skerða kennslu og taldi
hann að það gæti hugsanlega tek-
ist með samræmingaraðgerðum,
og aukinni samkennslu, auk þess
sem skólinn á Flatey á Breiðafirði
verður lagður niður sökum þess
að engir nemendur eru þar. Hann
sagðist þó ekki hafa séð lausnir á
því að spara um 5%.
Um heimilisfræðina sem
menntamálaráðherra vill efla,
sagði hann að það væri á valdi
viðkomandi skólanefnda að ák-
veða þar um, og sagðist efast um
að hún yrði aukin annars staðar
en á ísafirði. „Við gerum ekki
annað en að koma þessum til-
mælum á framfæri", sagði hann.
-gat.
Reykjavík
Niðurskurður í reynd
Stóraukin þörfá stuðningskennslu í vetur en
fjárveitingar standa þráttfyrir það ístað segir
frœðslustjórinn íReykjavík.
Engin rannsókn
„Nei. Það er engin sérstök
rannsókn í gangi,“ svaraði Garð-
ar Valdimarsson skatt-
rannsóknarstjóri þegar hann var
spurður um það hvort embættið
væri eitthvað að athuga skatta
þeirra einstaklinga sem keyptu
sér lóðir í Stigahlíð: „Þetta eru
fjárfestingar á árinu 1984 og þetta
fólk þarf vitanlega að gera grein
fyrir þeim árið 1985.
Garðar sagði einnig að það
væri óþægilegt fyrir deildina að
lýsa því yfir að hún væri að rann-
saka - eða ekki að rannsaka -
skattamál nafngreindra einstak-
linga, því samkvæmt lögum hvíldi
þagnarskylda á starfsemi deildar-
innar. -gat
Kennsla stendur í stað í Reykja-
vík sem þýðir það að hún hafi
í reynd verið skorin niður að sögn
Áslaugar Brynjólfsdóttur
fræðslustjóra í Rcykjavík. Áslaug
sagði að viðbótarstaða á bóka-
söfnum hafi verið skorin niður:
„þannig að nú verða kennarar
sjálfir að fylgja börnunum á safn-
ið og taka þær ferðir af annarri
kennslu.“
Áslaug kvað það einnig alvar-
legt mál að nú væri fjárveiting til
stuðningskennslu hin sama og í
fyrra, þrátt fyrir mun meiri þörf
núna. „Það var áætlað að fá
meira því áhersla hefur verið lögð
á að skólarnir taki nemendur út
af stofnunum í ríkari mæli. Ef
fjárveiting til stuðningskennslu
verður ekki aukin, geta skólar
ekki tekið við alvarlegri tilfellum
af öðrum stofnunum. Fræðslu-
stjóri benti á að þar kostaði dvöl
einstaklingsins enn meira en sem
nemur kostnaði við stuðnings-
kennslu til þeirra. -gat/jp
Föstudagur 31. ágúst 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Borgarleikhús:
Að
verða
fullsteypt
Borgarleikhúsið er smátt og
smátt að taka á sig endanlega
mynd. Sviðstum hússins er upp-
steyptur og sömuleiðis aðaláhorf-
endasalur. Að sögn Tómasar Zo-
éga, framkvæmdastjóra Leikfé-
lags Reykjavíkur, verður lokið
við að steypa upp húsið allt fyr-
rihluta næsta árs. Þá er eftir að
setja á það þak og innrétta.
Reiknað hefur verið með að hús-
ið yrði tekið í notkun, að ein-
hverju leyti að minnsta kosti eftir
tvö ár, ’86, en þá er 200 ára af-
mæli Reykjavíkurborgar. Verk-
taki við bygginguna er
Sveinbjörn Sigurðsson. óg.
Flugleiðir
Þotukaup
skamm-
tíma
aðgerð
Það hefur verið farið of seint í
þessi mál, sagði Kristjana Milla
Thorsteinsson einn stjórnar-
manna í Flugleiðum er við spurð-
um hana um afstöðu hennar til
nýlegra kaupa félagsins á tveimur
DC-8 vélum af hollenska fiugfé-
laginu KLM.
„Ég lít á þetta sem skamm-
tímaaðgerð“, sagði Kristjana,
„og ef ekki hefði verið gripið til
þessa ráðs hefði félagið staðið
uppi vélarlaust, þannig að í sjálfu
sér var ég ekki mótfallin kaupun-
um úr því sem komið var. Mín
skoðun hefur hins vegar verið sú
að félagið hafi átt að kaupa DC-
10 á meðan nóg var til af þeim á
markaðnum, fyrir 2-3 árum, en
það þótti ekki tímabært þá. Það
kemur hins vegar í ljós núna þeg-
ar farþegum er að fjölga að það
var grundvöllur fyrir þeim
kaupum þá“.
Kristjana Milla sagði einnig
ýmislegt óljóst um þá hljóðdeyfa
sem til stæði að setja í vélarnar,
ekki væri ljóst hvort þeir yrðu
samþykktir af Bandaríkjamönn-
um eða hvort undanþágur haldist
áfram að nota DC-8-63. Hún
taldi að ríkið þyrfti ekki að
hlaupa undir bagga með félaginu
til að setja þessa nýju hljóðdeyfa í
vélarnar því þessi flugvélakaup
hefðu verið það hagstæð fyrir fé-
lagið. -gat.