Þjóðviljinn - 31.08.1984, Page 4
LEIÐARI
Friedman, Hendry og Chile
í vetur skýröi Þjóöviljinn frá því aö einn
fremsti hagfræðingur í Bretlandi, prófessor
David Hendry sem starfar við Cambridge há-
skólann, hefði tætt í sundur tilraunir Miltons
Friedman til að sanna kjarnann í hinni frægu
peningamagnskenningu. Sú kenning er burð-
arásinn í fræðilegu framlagi þessa spámanns
markaðskreddumanna sem nú gistir ísland.
Prófessor David Hendry hefur notið alþjóð-
legrar virðingar fyrir tölfræðilegar prófanir á
sannleiksgildi hagfræðikenninga. Hann sýndi
fram á að kenningar Friedmans stæðust ekki
slíkar prófanir. í þágu sannleiksleitar innan
hagfræðinnar væri nauðsyniegt að allir áttuðu
sig á þeim blekkingum sem fælust í tilraunum
Friedmans til að „sanna“ fræði sín.
Þessar fréttir Þjóðviljans sem byggðar voru
áfrásögnum hinna virtu bresku stórblaða, The
Guardian og The Observer, fóru mjög í
taugarnar á trúarhirð markaðskreddumann-
anna í Sjálfstæðisflokknum. Hannes Hólm-
steinn, sem gert hefur Friedman-trúboð að
sérstakri atvinnugrein sem hérlend stórfyrir-
tæki hafa fjármagnað, jós upp miklu ritryki til
að reyna að hylja afhjúpun Hendry á hinum
lélegu vinnubrögðum Friedmans. Tveir ís-
lenskir hagfræðingar, Ásgeir Daníelsson og
Yngvi Örn Kristinsson, tóku Hannes þá í bak-
aríið í ýtarlegri og vel rökstuddri grein sem
birtist í Morgunblaðinu. Hljóp þátrúboðinn í að
senda prófessor Hendry sérhannaðar þýðing-
ar á skrifum Þjóðviljans og fékk að sjálfsögðu
afarkurteislegtsvarfrá hinum hógværa breska
fraeðimanni.
(Ijósi þessarar umræðu á liðnum vetri sætir
það nokkrum tíðindum að á fundi með íslensk-
um blaðamönnum í fyrradag treysti Milton Fri-
edman sér ekki til að sýna fram á að hin sterka
gagnrýni Hendrys væri röng. Sjálfur spámað-
urinn fór undan í flæmingi og var sú afstaða
afarfróðleg í Ijósi ofurkapps trúboða hans hér á
landi. Greinilegt var að Milton Friedman gerði
sér skýra grein fyrir því að rannsóknir Hendrys
eru mesta áfall sem fræðiheiður Friedmans
hefur orðið fyrir. Spámaðurinn reyndi að skjóta
sér á bak við að Englandsbanka „væri ilia við
sig“, en sú merka stofnun gaf út gagnrýni
Hendrys. Og að lokum var gripið til þess svars
sem fræðimenn nota tíðum þegar þá skortir
efnisleg rök en eru ekki menn tii að viðurkenna
ósigur sinn: Tíminn myndi leiða í Ijós hina réttu
niðurstöðu.
Það eru því heldur ömurleg endalok fyrir
átrúnaðarhirð Friedmans á íslandi að spá-
maðurinn skuli ekki geta sett fram nein efnis-
leg svör við hinum frægu rannsóknum próf-
essors Hendrys. Það var þá til heldur lítils að
greiða honum stórfé fyrir að láta svo lítið að
gista ísland um skamma stund.
Þótt Milton Friedman vefðist tunga um tönn
þegar hann var spurður um afhjúpanir Hend-
rys losnaði heldur betur um málbeinið þegar
spurt var um framkvæmdina á kenningum
hans í Chile en Friedman var eins og kunnugt
er andlegur leiðtogi herforingjastjórnarinnar
sem hrifsaði völdin í Chile og drap réttkjörinn
forseta landsins. Friedman kvað allt hafa
gengið að óskum í nokkur ár og reynslan í
Chile sýnt ágæti kenninga sinna.
Þegar slíkur gæðastimpill er settur á stjórn-
arfarið í Chile er rétt að rifja upp megineinkenni
þess: Lýðræðið var fótum troðið. Mannréttindi
voru afnumin. Tugþúsundir voru fangelsaðar,
pyntaðar eða drepnar fyrir skoðanir sínar. Um-
ræða og frjáls samtök voru bönnuð. Harðræði
hersins ríkti á öllum sviðum.
Það er vissulega við hæfi að heiðursgestur
hinnar nýju forystu í Sjálfstæðisflokknum skuli
hæla sér af því að slíkt stjórnarfar hafi reynst
ákjósanlegur jarðvegur til að framkvæma hin-
ar dáðu kenningar.
KLIPPT OG SKORIÐ
í MORGUNBLADID. FIHMTUDAGUR 30. ÁGOS'
fclk f fréttum -j rng'.' *
!^Lfegu*8tit
eavers, Christie Brinkíey, Phoebe Cntea, Kate
' ueline Biaset
Tíu fallegustu
konur í Ameríku
-f Bandarúka «...
Bazaar" hcfur nú nýlega ...
sinn yfir liu fallegu.stu konurnai
|>ar í landi eins og venjan hefur
vcriA um langt árabil. I»ar kemur
vel í Ijós sú þróun, sem átl hefur
ser .stað á undanfornum árum, að
það eru ekki lengur unj;ar og
óþroskaðar stúlkur sem nú þykja
verðastar, heldur konur
ine Bisset hefur
* kynþokkanum
þó góð leikkona
eins^V *ýnir í myndinni
„Undir eldfjallinu"; Linda Ev-
ans. sem er af norskum ættum,
er kunnust fyrir leik sinn í
„I)ollars“; Candice Bergen er
kunn leikkona en hefur nú að
mesttMjnúið sér að ritstórfnm ok
marjrir úr myndinni „Dagar víns
og rósa“ með Jack læmmon;
Bernadette Peters hóf feril sinn
með heldur veigalitlum hlut-
verkum en hefur verið að sækja í
sij» veðrið; Sigourney Weaver sló
i Ke«n í myndinni „The Alien";
Phoebe Cates er unjí fyrirsæta,
sem vafalaust mun leKKja fyrir
kvikmyndaleik; Kate Capshaw
Fréttir úr
draumaheimi
Kjaramálin eru efst í huga
flestra um þessar mundir. Sam-
tök launafólks knýja á um kjara-
bætur, en fá köld svör frá at-
vinnurekendum og ríkinu. „Blað
allra landsmanna“, Morgunblað-
ið hefur mestan hug á því um
þessar mundir að sætta fólk við
kjaraskerðinguna og draga
kjarkinn úr kjarabaráttunni. Til
þess eru ýmsar leiðir, t.a.m. þær
að tyggja í lesendur „fréttir" af
draumaheimi þar sem kvikmynd-
astjörnur og fegurðardísir velta
sér í frægð, frama og fjármunum.
Sambúðarvandamál og lifnaðar-
hættir þessa fólks eru ofarlega á
baugi í Morgunblaðinu.
Fegurðardísir
í tvíriti
Nú þegar broddur er kominn í
kjarabaráttuna og veður viðsjál
liggur mikið við að beina sjónum
launafólks að öðru en eigin
kjörum og vagga því inn í
draumalandið þar sem allt er fag-
urt og frítt. Við færiböndin og í
stritvinnunni geta menn látið sig
dreyma um betra líf og Moggann
sem færir fréttirnar af því hvernig
hægt væri að hafa það ef maður
væri fallegur og ríkur. Blaðið
dregur ekki af sér við að sinna
þessum þörfum og birtir í gær
tvisvar sinnum sömu fréttina um
tíu fegurstu konur Bandaríkj-
anna að mati tímaritsins Harper’s
Bazaar. Fyrst er fréttin birt á 25.
síðu sem ein helsta erlend frétt
dagsins. Síðan er hún aftur birt
með ýtarlegri texta í Fólk í frétt-
um.
Raunveru-
leikinn
Pað er ekki vanþörf á því að
reka þessi tíðindi af fallegu og
ríku fólki í Bandaríkjunum ofaní
fólk eins og það sem rætt var við í
Þjóðviljanum í gær. Konuna sem
hefur 625 krónur á viku í mat og
föt, starfskonumar í eldhúsi Kópa-
vogshælis, sem eru með 13.100
kr. á mánuði, og malbikunar-
strákana sem hafa 60 kr. á tím-
ann. Allt er þetta þó frítt og
föngulegt fólk. En það hefur eng-
ar ríkidæmissögur að segja: „það
hrekkur skammt til þess að
skinna sig upp fyrir veturinn,
fæða sig og klæða“.... „Það hefur
allt hækkað um helming síðan í
vor, matvæli, meðul og aðrar
nauðsynjar.“... „Þetta dugár að
minnsta kosti ekki fyrir lóð í Stig-
ahlíðinni, þó sumir kaupendur
milljónalóðanna þar hafi sam-
kvæmt skattskrá ekki haft hærri
laun en eldhússtarfsfólkið á Kóp-
avogshæli.“... „Fólk hefur varla
efni á að fara til læknis.“...
Af þessum veruleika eru litlar
fréttir í Morgunblaðinu. Og það
eru ekki líkindi til þess að þetta
fólk fari út á dýra næturklúbba á
kvöldin eins og hinar tvírituðu
fegurðardísir Morgunblaðsins.
„Við gemm ekki mikið eftir
vinnu annað en fara heim og
leggja okkur.“
Aðrar fráttir
frá USA
Aðrar fréttir frá Bandaríkjun-
um kæmu líka til greina heldur en
fréttir af fegurstu konum. Meira
en 35 miljónir manna lifa nú und-
ir opinberum fátæktarmörkum í
Bandaríkjunum og það er hunda-
líf í harðkapítalískum heimi þar
vestra og á nýafstöðnum borgar-
stjórafundi voru birtar upplýsing-
ar umað óskum um matargjafir
hefði fjölgað um 71% á einu ári í
19 af 20 stærstu borgum Banda-
ríkjanna. Miljónir manna hafa
færst niður fyrir fátækramörkin í
stjórnartíð Reagan forseta. Af
þessu er lítið sagt í Morgunblað-
inu, en hinsvegar mjög haldið
upp á Friedman og Reagan fyrir
snilli í fjármálastjórn fyrir þá sem
betur mega sín.
Meldingar Moggans til al-
mennings á íslandi eru einfald-
lega þær í máli og myndum að
þeir sem ekki séu nógu séðir til
þess að verða ríkir eigi að sætta
sig við orðinn hlut og láta sér
nægja að dreyma um ríkidæmi og
fegurð.
-ekh
DJÓÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufólag Þjóðviljans.
Rltstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson.
Fróttastjórar: Óskar Guömundsson, Valþór Hlöðversson.
Blaöamenn: Álfheiður Ingadóttir, Guðjón Friðrikssson Halldóra Sigur-
dórsdóttir Jóna Pálsdóttir Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Mörður
Ámason, Súsanna Svavarsdóttir, Víðir Sigurðsson (íþróttir), össur Skarp-
hóðinsson.
Ljósmyndlr: Atli Arason, Einar Karlsson.
Utlit og hönnun: Björn Brynjúlfur Björnsson Svava Sveinsdóttir, Þröstur
Haraldsson.
Handrita- og prófaricalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Framkvœmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir.
Auglýsingastjóri: Ólafur Þ. Jónsson.
Auglýsingar: Margrót Guðmundsdóttir, Ragnheiður Óladóttir,
Anna Guðjónsdóttir.
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiðsia: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pótursdóttir.
Símavarsia: Ásdís Kristinsdóttir, Sigriður Kristjánsdóttir.
Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir.
Bílstjóri: Ólöf Sigurðardóttir.
Innheimtumaður: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson.
Útkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn:
Síðumula 6, Reykjavík, sími 81333.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 22 kr.
Sunnudagsverð: 25 kr.
Askriftarverð á mánuðl: 275 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 31. ágúst 1984