Þjóðviljinn - 31.08.1984, Side 9
UM HELGINA
Gítartónleikar
í Tónkvísl
Gítarskólinn „Gítar-inn“ verð- f*ar koma fram m.a. Björn Thor-
ur settur formlega á morgun kl. 2 oddsen, Pétur Grétarsson, Skuli
með tónleikum í Hljóðfæraversl- Sverrisson og fleiri.
uninni Tónkvísl að Laugavegi 17. Myndin er tekin í skólanum.
Glerlistamennirnir Saren S. Larsen, Sigrún Ó. Einarsdóttir, Tchai Munch og
Finn Lynggaard sýna verk sín á göngum Kjarvalsstaða og opnar sýningin á
morgun. „Stefnumót glervina" nefnist þessi sýning, en tvö þau fyrrnefndu reka
glerverkstaeðið Bergvík á Kjalarnesi og verður þar blásið fyrir opnum dyrum
sunnudaginn 9. september og eru allir velkömnir. Dönsku listamennirnirTchai
og Finn reka glerverkstæði í Ebeltoft á Jótlandi og mun Finn halda fyrirlestur á
Kjarvalsstöðum 6. september er nefnist „Strominger i moderne glaskunst".
„Stefnumót glervina" endar 16. september.
_ Agústa í
Ásmundarsal
Á morgun laugardaginn 1.
september verður opnuð í Ás-
mundarsal við Freyjugötu sýning
á verkum Ágústu Ágústsson. Sýn-
ing jressi nefnist Bréf til íslands,
en Agústa sem er fædd í Reykja-
vík árið 1952 er búsett í Banda-
ríkjunum. Á sýningunni verða 20
pasteimyndir af íslensku iands-
lagi, en Ágústa hefur unnið að
gerð landslagsmynda vestur í
Bandaríkjunum síðastliðin 8 ár
með mismunandi efnum, s.s.
olíu, textíl og pastel. Auk þess
verða á sýningunni 14 veggspjöld
(plaköt) sem hún hefur gert fyrir
fyrirtæki og stofnanir vestur þar.
Fyrir nokkur þessara veggspjalda
hefur hún hlotið verðlaun og
viðurkenningar t.d. frá „Art Dir-
ector’s Club of Boston“ og önnur
hafa birst á prenti t.d. í „Graphis
Posters Annual“, „Best in Covers
and Posters“ og „Print Casebooks
V.“ Sýningin sem stendur til 10.
september verður opin virka
daga frá kl. 16:00-22:00 og frá kl.
14:00-22:00 um helgar.
Verkið „Hrafninn og dúfan" olíumálverk eftir Marianne Lykkeberg, sem nú sýnir
í Nýlistasafninu.
Dönsk listakona
í Nýlistasafninu
Danska listakonan Marianne pressionisti sem numið hefur
Lykkeberg opnaði í gær sýningu á m-a; a Konunglegu Akademí-
verkum sínum í Nýlistasafninu uan* 1 Höfn. Hún hefur haldið
við Vatnsstíg. Á sýningunni eru sýningar víða, m.a. í Jo Banks
málverk unnin á síðustu tveimur Galleri og á Carlotteborg. Sýning
árum. Marianne er litaglaður ex- hennar stendur til 9. september.
„Ensomhet" (Einmanaleiki) nefnist þetta verk eftir Svein Ellingssen sem opnar
sýningu í anddyri Norræna hússins á morgun.
Tveir Norðmenn
í Norræna húsinu
Norski listamaðurinn Svein
Ellingssen opnar á morgun sýn-
ingu í Norræna húsinu, en hann
er einnig þekktur sem sálma-
skáld. Svein er fæddur 1929 og
nam við Listaháskólann í Osló
1952-55 og við einkaskóla. Hann
hefur haldið fjöldamargar sýn-
ingar, en sýningin hér er fyrsta
einkasýningin utan Noregs. Sýn-
ingin er opin daglega frá 9-19 og
sunnudaga 12-19.
Annar Norðmaður sýnir nú í
kjallara Norræna hússins, Herm-
an Hebler og er þetta síðasta sýn-
ingarhelgin. Hann sýnir 40 graf-
íkverk.
Operu-
prógrammið
í síðasta
sinn
Sumarprógram íslensku óper-
unnar er á dagskrá í kvöld kl.
21.00 í síðasta sinn. Meðal efnis
eru íslensk þjóðlög og ættjarðar-
söngvar, kór og einsöngslög svo
og atriði úr óperum og óperett-
um. í hléi er gestum kenndur ís-
lenskur vikivaki. Einsöngvarar í
kvöld eru Ólöf K. Harðardóttir
og Garðar Cortes. Auk þeirra
kemur fram kór íslensku óper-
unnar. Sumarprógram óperunn-
ar er ætlað henni til styrktar og
gefa allir listamennirnir vinnu
sína í því skyni. Stjórnandi er
Garðar Cortes og undirleikari
Þóra Fríða Sæmundsdóttir.
Rykk-
rokk í
Fellahelli
Það verður rykkt og rokkað á
planinu við félagsmiðstöðina
Fellahelli á morgun frá kl. 19.00.
20 breakarar skrykkja undir
stjórn diskótekarans Titta og
hljómsveitirnar sem spila eru:
Dalli og rytmadrengirnir, Svefn-
purkur, Óákveðna riffið og stór-
rokkhljómsveitin OXSMÁ.
Tónlist
Kór-
mennta-
námskeið
Söngsveitin Fflharmónía
hyggst nú í fyrsta sinn halda nám-
skeið í kórsöng. Nefnist það
Kórmenntanámskeið og hefst 10.
sept. n.k. Leiðbeinandi verður
Sigrún Andrésdóttir og annast
hún og skipuleggur kennsluna.
Jafnframt sér hún um raddþjálf-
un kórsins og „upphitun“.
Námskeiðið verður þrískipt:
Undirbúningsnámskeið, grunn-
námskeið og framhaldsnám-
skeið.
Sem fyrr segir hefst undirbún-
ingsnámskeiðið 10. sept. oglýkur
26. sept. Kennt verður tvö kvöld í
viku, mánudags- og miðviku-
dagskvöld, kl. 18,30 - 19,30.
Undirbúningsnámskeiðið á að
veita uppörvun því fólki, sem á-
huga hefur á kórsöng en enga
reynslu og veigrar sér því við að
ýta ur vör. Þar eiga menn að geta
öðlast undirstöðuþekkingu fyrir
kórsöng. Þátttökugjaldið er kr.
250,-
Grunnnámskeiðið hefst í okt.
og lýkur um miðjan des.
Leiðbeint verður um radd-
beitingu, nótnalestur, texta-
framburð o.fl. sem tengist kór-
söng. Gjald fyrir grunnnám-
skeiðið er áætlað 1000 kr.
Framhaldsnámskeiðið hefst
síðan í janúar og verður nánar
kynnt síðar.
Væntanlegir þátttakendur
hringi í síma: 16034 - Dóróthea,
74135 - Anna María, 42724 -
Margrét.
- mhg.
Föstudagur 31. ágúst 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9