Þjóðviljinn - 31.08.1984, Page 9

Þjóðviljinn - 31.08.1984, Page 9
UM HELGINA Gítartónleikar í Tónkvísl Gítarskólinn „Gítar-inn“ verð- f*ar koma fram m.a. Björn Thor- ur settur formlega á morgun kl. 2 oddsen, Pétur Grétarsson, Skuli með tónleikum í Hljóðfæraversl- Sverrisson og fleiri. uninni Tónkvísl að Laugavegi 17. Myndin er tekin í skólanum. Glerlistamennirnir Saren S. Larsen, Sigrún Ó. Einarsdóttir, Tchai Munch og Finn Lynggaard sýna verk sín á göngum Kjarvalsstaða og opnar sýningin á morgun. „Stefnumót glervina" nefnist þessi sýning, en tvö þau fyrrnefndu reka glerverkstaeðið Bergvík á Kjalarnesi og verður þar blásið fyrir opnum dyrum sunnudaginn 9. september og eru allir velkömnir. Dönsku listamennirnirTchai og Finn reka glerverkstæði í Ebeltoft á Jótlandi og mun Finn halda fyrirlestur á Kjarvalsstöðum 6. september er nefnist „Strominger i moderne glaskunst". „Stefnumót glervina" endar 16. september. _ Agústa í Ásmundarsal Á morgun laugardaginn 1. september verður opnuð í Ás- mundarsal við Freyjugötu sýning á verkum Ágústu Ágústsson. Sýn- ing jressi nefnist Bréf til íslands, en Agústa sem er fædd í Reykja- vík árið 1952 er búsett í Banda- ríkjunum. Á sýningunni verða 20 pasteimyndir af íslensku iands- lagi, en Ágústa hefur unnið að gerð landslagsmynda vestur í Bandaríkjunum síðastliðin 8 ár með mismunandi efnum, s.s. olíu, textíl og pastel. Auk þess verða á sýningunni 14 veggspjöld (plaköt) sem hún hefur gert fyrir fyrirtæki og stofnanir vestur þar. Fyrir nokkur þessara veggspjalda hefur hún hlotið verðlaun og viðurkenningar t.d. frá „Art Dir- ector’s Club of Boston“ og önnur hafa birst á prenti t.d. í „Graphis Posters Annual“, „Best in Covers and Posters“ og „Print Casebooks V.“ Sýningin sem stendur til 10. september verður opin virka daga frá kl. 16:00-22:00 og frá kl. 14:00-22:00 um helgar. Verkið „Hrafninn og dúfan" olíumálverk eftir Marianne Lykkeberg, sem nú sýnir í Nýlistasafninu. Dönsk listakona í Nýlistasafninu Danska listakonan Marianne pressionisti sem numið hefur Lykkeberg opnaði í gær sýningu á m-a; a Konunglegu Akademí- verkum sínum í Nýlistasafninu uan* 1 Höfn. Hún hefur haldið við Vatnsstíg. Á sýningunni eru sýningar víða, m.a. í Jo Banks málverk unnin á síðustu tveimur Galleri og á Carlotteborg. Sýning árum. Marianne er litaglaður ex- hennar stendur til 9. september. „Ensomhet" (Einmanaleiki) nefnist þetta verk eftir Svein Ellingssen sem opnar sýningu í anddyri Norræna hússins á morgun. Tveir Norðmenn í Norræna húsinu Norski listamaðurinn Svein Ellingssen opnar á morgun sýn- ingu í Norræna húsinu, en hann er einnig þekktur sem sálma- skáld. Svein er fæddur 1929 og nam við Listaháskólann í Osló 1952-55 og við einkaskóla. Hann hefur haldið fjöldamargar sýn- ingar, en sýningin hér er fyrsta einkasýningin utan Noregs. Sýn- ingin er opin daglega frá 9-19 og sunnudaga 12-19. Annar Norðmaður sýnir nú í kjallara Norræna hússins, Herm- an Hebler og er þetta síðasta sýn- ingarhelgin. Hann sýnir 40 graf- íkverk. Operu- prógrammið í síðasta sinn Sumarprógram íslensku óper- unnar er á dagskrá í kvöld kl. 21.00 í síðasta sinn. Meðal efnis eru íslensk þjóðlög og ættjarðar- söngvar, kór og einsöngslög svo og atriði úr óperum og óperett- um. í hléi er gestum kenndur ís- lenskur vikivaki. Einsöngvarar í kvöld eru Ólöf K. Harðardóttir og Garðar Cortes. Auk þeirra kemur fram kór íslensku óper- unnar. Sumarprógram óperunn- ar er ætlað henni til styrktar og gefa allir listamennirnir vinnu sína í því skyni. Stjórnandi er Garðar Cortes og undirleikari Þóra Fríða Sæmundsdóttir. Rykk- rokk í Fellahelli Það verður rykkt og rokkað á planinu við félagsmiðstöðina Fellahelli á morgun frá kl. 19.00. 20 breakarar skrykkja undir stjórn diskótekarans Titta og hljómsveitirnar sem spila eru: Dalli og rytmadrengirnir, Svefn- purkur, Óákveðna riffið og stór- rokkhljómsveitin OXSMÁ. Tónlist Kór- mennta- námskeið Söngsveitin Fflharmónía hyggst nú í fyrsta sinn halda nám- skeið í kórsöng. Nefnist það Kórmenntanámskeið og hefst 10. sept. n.k. Leiðbeinandi verður Sigrún Andrésdóttir og annast hún og skipuleggur kennsluna. Jafnframt sér hún um raddþjálf- un kórsins og „upphitun“. Námskeiðið verður þrískipt: Undirbúningsnámskeið, grunn- námskeið og framhaldsnám- skeið. Sem fyrr segir hefst undirbún- ingsnámskeiðið 10. sept. oglýkur 26. sept. Kennt verður tvö kvöld í viku, mánudags- og miðviku- dagskvöld, kl. 18,30 - 19,30. Undirbúningsnámskeiðið á að veita uppörvun því fólki, sem á- huga hefur á kórsöng en enga reynslu og veigrar sér því við að ýta ur vör. Þar eiga menn að geta öðlast undirstöðuþekkingu fyrir kórsöng. Þátttökugjaldið er kr. 250,- Grunnnámskeiðið hefst í okt. og lýkur um miðjan des. Leiðbeint verður um radd- beitingu, nótnalestur, texta- framburð o.fl. sem tengist kór- söng. Gjald fyrir grunnnám- skeiðið er áætlað 1000 kr. Framhaldsnámskeiðið hefst síðan í janúar og verður nánar kynnt síðar. Væntanlegir þátttakendur hringi í síma: 16034 - Dóróthea, 74135 - Anna María, 42724 - Margrét. - mhg. Föstudagur 31. ágúst 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.