Þjóðviljinn - 31.08.1984, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 31.08.1984, Qupperneq 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsfmi: 81663. MODVIUINN Föstudagur 31. ágúst 1984 196. tölublað 49. árgangur Byggðastefna Raufarhöfn í baklás Jökullstoppar eftir helgi-Albert vildi að Framkvœmdastofnun reiddiframfé tilbjargar en kommissarar neita, segjasthafanógásinnikönnuog fáttumfjármuni - enda hafiAlbert skoriðfjárveitingar mjög við nögl. Vvið stoppum bara, það er ekki annað að gera. Reynum að vinna fiskinn sem kemur um helg- ina, og stoppum svo. Hólmsteinn Björnsson framkvæmdastjóri Jökuls á Raufarhöfn talar, og er ekki hress með endalok tilrauna fyrirtækisins til að fá framlag að sunnan. Það er verið að loka raf- magninu hjá Jökli, og ekkert fé til að borga lausaskuldir, hvað þá skuldir við ríkið, um 6 miljónir. Albert Guðmundsson fjár- málaráðherra reyndi að fá Fram- kvæmdastofnun til að leggja fé- laginu til 8 miljónir (bráðabirgða- lán) úr Byggðasjóði, og bauðst til að flýta afgreiðslu fjár til sjóðsins frá ríkinu. Framkvæmdastofnun neitar. í fréttatilkynningu frá henni segir að Byggðasjóður sé kominn 25 miljónum framyfir áætlað ráðstöfunarfé á þessu ári. Þessi vonda staða Byggðasjóðs stafi af erfiðum innheimtum og niðurskurði áríkisframlagi. Með- al annars hafi fjárveiting verið skorin niður í vor um 5,4 miljónir að tillögu sama ráðherra og nú vill að sjóðurinn bjargi fyrirtæk- inu á Raufarhöfn. Tæknimenn Framkvæmda- stofnunar hafa athugað rekstur Jökuls og verður afstaða stofnun- arinnar til þeirra mála send for- sætisráðherra fljótlega. Að því er Þjóðviljinn hefur fregnað er skýrslan svört, og mun talið að það þurfi að stokka upp spilin til að skapa traustan grunn undir reksturinn - og þarmeð búsetu á Raufarhöfn. Jökull rekur eina frystihúsið á staðnum og gerir út eina togarann, Rauðanúp; á að auki í togaranum Stapafelli með Þórshafnarmönnum. Frystihúsið er nokkuð við aldur og lengi staðið til að veita því nábjargirnar og byggja nýtt, enda stenst það engar kröfur framieiðslueftirlits, umhverfis- sjónarmiða og arðsemiskokka- bóka. Um 120 manns vinna hjá Jökli af um 450 íbúum í kauptún- inu. „Það er erfitt að svara því hvort þessar átta miljónir hefðu dug- að“, sagði Flólmsteinn fram- kvæmdastjóri, „þær hefðu dugað til að bæta greiðslustöðuna, borga skuldir sem hvfla á okkur hér og þar. En ekki til að borga ríkinu til dæmis.“ - m Hitaveitumálið Þetta eru ekki fornar hasspípur heldur hnífar og hólkur úr rústunum við Stóru borg. Ljósm -eik. Fornleifar Kapphlaup við sjó á Stóruborg Hópurinn sem hefur verið að róta í eigum Önnu og annars heimilisfólks á Stóruborg undir EyjaQöIIum undanfarin ár, er kominn í bæinn með drjúgan feng. Við hittum leiðangursstjór- ann, Mjöll Snæsdóttuir í Þjóð- minjasafninu í gær og hún lét vel af ferðinni, sagði að þetta hefði gengið mun betur í sumar en til að mynda í fyrra þegar rigndi ein- hver ósköp. „Þessu miðar þokkalega, við erum meira en hálfnuð og ef ekk- ert verður til að setja strik í reikninginn ætti uppgreftrinum að ljúka eftir fjögur ár“. Góssið er að sögn Mjallar frá 1500-1800 en eftir er að koma niður á það alelsta. Það sem helst gæti eyðilagt uppgröftinn er ágangur brims, en Stóraborg liggur nálægt sjó og þegar stórstreymt er og brimið kemur nálægt ,er hætta á því að rústin kunni að eyðileggjast - það gæti orðið nú í ár, sagði Mjöll, eða eftir fimmtán ár, en hún mun eyðast. Mjöll sagði að gífurlegur fjöldi alls kyns minja hefði fundist þarna, leirinn hefði séð um að varðveita þá gegnum aldirnar. Þetta góss er einkum ýmislegt sem lýtur að hversdagsstörfum og ætti því að reynast sagnfræðing- um og þjóðháttafræðingum ærið notadrjúgt við alls kyns rann- sóknir. Mjöll sýndi okkur til dæmis tilkomumikið naglasafn sem bíður tilvonandi doktors í naglafræðum, vandlega niður- raðað. Við spurðum Mjöll hvort hún væri ekki farin að sjá ljóslifandi fyrir sér heimilisfólkið á Stóru- borg við hin ýmsu störf: „Það liggur við“, svaraði hún. - gat Byggingar- fulltrúi aflar gagna Sektir og brottnám segir byggingarreg- lugerð um fram- kvœmdir í leyfisleysi Á fundi byggingarnefndar Reykjavíkurborgar í gær tók Magnús Skúlason til umræðu veginn sem Hitaveitan hefur látið leggja útaf bílastæði sínu og inná Suðurlandsbraut. Einsog fram kom í Þjóðviljanum í gær falla öll vötn að því að þessi vegarspotti hafi verið lagður án leyfis og í trássi við almenna umferðar- menningu. Magnús fól bygging- arfulltrúa, Gunnari Sigurðssyni, að afla allra gagna í málinu. í byggingarreglugerð segir að gerð bifreiðastæða sé háð sam- þykki byggingarnefndar, og skuli sýna á uppdrætti m.a. tengsl við gatnakerfi (grein 5.2.7.). Þar segir ennfremur að óheimilt sé að breyta notkun lóða nema með leyfí nefndarinnar (grein 5.1.4.). í kaflanum um refsiákvæði er byggingarnefnd heimilað að beita þá sektum sem hefja fram- kvæmdir án leyfis, og getur bygg- ingarfulltrúi fyrirskipað brott- nám byggingar eða byggingar- hluta, með aðstoð lögreglu ef þörf krefur (grein 9.1.3.). - m Fjölbrautakennarar Ekki til vinnu Ef fjármálaráðuneytið gengur ekki að kröfum kennara við fjölbrautaskóla um að fá greidda vangoldna yfirvinnu frá því í fyrravetur, munu þeir ekki mæta til vinnu eftir helgi. Kl. 10.00 í dag verður haldinn fundur með fulltrúum kennara og ráðuneytis- manna þar sem reynt verður til þrautar að ná samkomulagi. Deila þessi um að fá greidd laun vegna heimaunninnar yfir- vinnu hefur staðið allt frá því sl. haust. Um er að ræða 2-300 kenn- ara við fjölbrautaskóla og hafa stjórnvöld hingað til neitað að verða við kröfum þeirra. Kennar- arnir eru flestir í Flinu íslenska kennarafélagi og þeir sendu ráðuneytinu boðsent bréf í gær þar sem boðað var til viðræðu- fundarins kl. 10 í dag og jafn- framt tilkynnt að þeir muni ekki koma til vinnu sinnar þegar skólar hefjast nema samkomulag náist strax í deilunni. -v. Friedman Háskólinn borgar 2000 dollara Fordœmifá um aðgangseyri að háskólafyrirlestrum að sögn rektors Petta er nú á vegum fleíri aðila en Háskólans. Við borgum bara hluta af því sem kostar að fá hann, sagði Guðmundur Magnússon háskólarektor um heimsókn markaðshyggjuspek- ingsins Miltons Friedmans. - Það er ekkert endanlegt hvað við borgum, ég giska á um 2000 doll- Fram kom í viðtali við rektor að hluti fjárins kemur úr sjóði sem Landsbankinn hefur stofnað handa viðskiptafræðideild HI til að efla samskipti við útlönd og bjóða mönnum til fyrirlestra. Þeir sem ætla að hlýða á Fried- man þurfa að borga 1200 krónur. Guðmundur kannaðist ekki við bein fordæmi þess að seldur væri aðgangur að háskólafyrir- lestrum, en sagði að þessi fyrir- lestur væri ekki í Háskólanum og ekki eingöngu á vegum hans. Einu fordæmin væru námskeið á vegum Háskólans og Stjórnun- arfélagsins. - Ég veit það ekki, sagði Guð- mundur þegar hann var spurður hvort hann héldi að margir stúd- entar mundu sækja fyrirlestur- inn. Heldurðu að þeir hafi efni á að mceta? - Ég treysti mér ekki til að svara því. Það er matur inní þessu líka, sagði háskólarektor. - m

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.