Þjóðviljinn - 02.09.1984, Qupperneq 20
Skáldið
og
Friedman
Rœtt víð Stefán Snœvarr
Einn farfugla sem hér sjást
um jól og sumur er Stefán
Snævarr sem leggur stund á
heimspeki í Óslóborg en lítur
uppúrfræðitorfinu og líturá
heiminn Ijóðrænum gler-
augum við og við. Stefán er
einn þeirra sem gagnrýnt hafa
markaðshyggjuhugmyndir
hægrimanna á síðari árum en
nú hefurfrést að hann hafi
aregiö upp 1200 krónurog
keypt sér miða að fyrirlestri
Friedmans.
- Já, þaö er kannski einhver
hissa á aö ég sem ekki er auðmað-
ur skuli hafa efni á þessu. En ég
seldi nokkrar ljóðabækur á hin-
um frjálsa markaði og fjárfesti í
aðgöngumiða. Ég er svo heiðar-
legur markaðssinni að ég nota að-
ferðir Friedmans til að komast á
fyrirlestur Friedmans.
- Af hverju stafar áhugi
heimspekistundunarmanns á
kenningum Friedmans?
- Það liggur í hlutarins eðli.
Fíeimspeki er víðfeðm grein og
frá dögum Sókratesar hefur
heimspekin sinnt samfé-
lagsmálum. Ég er ekki hagfræð-
ingur og get þess vegna ekki
dæmt faglega um til dæmis pen-
ingamagnskenninguna. Hef ekki
lesið fræðirit Friedmans. En
auðvitað gluggað í poppbækur
hans, bækur á borð við Frelsi og
auðvald (Capitalism and free-
dom), sem íslenskir markaðs-
hyggjumenn telja ranglega eitt
aðalverka hans, - og séð hann í
sjónvarpi.
Ég er afskaplega undrandi á
sumu því sem Ériedman lætur frá
sér fara. Hann er sjálfsagt flinkur
í reikningi, en er stundum svo
barnalegur að maður stendur á
öndinni. Það þurfti til dæntis ekki
hagfræðing til að sjá mótsagnir og
rangfærslur í sjónvarpsþáttunum
sem hér voru sýndir.
Friedman ver efnahagslegan
ójöfnuð með því að sjálft lífið sé
bara ekki réttlátt, - við því sé
ekkert að gera. Svo kvartar hann
og kveinar yfir því meðal annars
að embættismenn hafi tryggt
stöðu sína og gengi í lífinu með
því að koma sér fyrir í kerfinu og
íáta ráða sig ævilangt. Auðvitað
getur embættismaðurinn sagt á
móti: „sjálft lífið er bara ekki
réttlátt! Ég er flinkur að spila á
kerfið á sama hátt og Múhameð
Alí til dæmis er flinkur að boxa?
okkur græðist báðum fé.“
í útvarpsviðtali á miðvikudag
reynir Friedman að klóra sig út úr
þeim vanda markaðshyggju-
manna að lífskjör eru góð á
Norðurlöndum þrátt fyrir mikla
skattlagningu og ríkisumsvif
þvert á kenningar þeirra. Hann
bjargar sér fyrir horn með því að
þetta séu svo samstæð þjóðfélög,
svo einlitar þjóðir, þess vegna
gangi ríkisumsvif betur en ann-
arsstaðar. Hvernig getur maður á
þessu plani í hagfræði varið sig
með jafnóljósu hugtaki og eins-
leitum þjóðflokkum? Afhverju
eru markmið einstaklinga inn-
byrðis líkari á Norðurlöndum en
annarsstaðar? Hvaða hagfræði-
stærð er það?
Það sem hann gefur í skyn er að
norðurlandamenn búi við góð
lífskjör þrátt fyrir ríkisumsvif og
ekki vegna þeirra. Mætti ekki
eins segja að hagvöxturinn í
Hong Kong sé til orðinn þrátt
fyrir og ekki vegna þess markaðs-
kerfis sem þar ríkir? Ég læt mér
raunar detta í hug að Hong-
Kong-búar hagnist á að hafa í
vissum skilningi einkarétt á á-
kveðinni vöru, nefnilega frjálsum
markaði, þetta er eina höfnin á
strandlengju Kína sem býr við
það kerfi. Þessi mál eru flóknari
en markaðshyggjumenn vilja
halda.
- Er þá ekkert gott í frœðum
Friedmans?
- Jú, reyndar. Athyglisverð
hugmynd er til dæmis kenningin
um að leyfa öll eiturlyf. Hvað
hefur svo sem unnist í þessari sí-
felldu baráttu gegn heróíni annað
en að gera það svo dýrt að
neytendur svífast einskis til að ná
sér í fé til neyslunnar? Ætli áfeng-
isbannið í Bandaríkjunum hafi
ekki komið Mafíunni þar í núver-
andi veldi /
Ég get tekið undir það með
markaðshyggjumönnum að frelsi
sé að vera ekki hindraður af öðr-
um í ætlunum sínum. En þetta er
ekki alveg svona einfalt. Það er til
dæmis uppi sú kenning í
heimspeki að frjáls sé maðurinn
ekki ef hann er á valdi einhverrar
þráhyggju eða nautnar sem hann
í rauninni ræður ekki við. Alk-
óhólisti sem vill vera edrú.
Þjóðfélag þýlyndra getur ekki
verið frjálst. Frelsi hlýtur að
byggjast að einhverju leyti á sjálf-
ræði mannsins, en það sjálfræði
verður ekki til nema með þekk-
ingu, og ákveðinni upplýsingu.
Ég viðurkenni að við getum ekki
vitað nákvæmlega hvort við erum
sjálfráð. En það er hægt að gefa
sér ákveðnar þumalfingursregl-
ur.
Mig langar að koma að undrun
minni yfir því að viðskiptafræði-
deild Háskólans býður þessum
manni hingað í samvinnu við
Stofnun Jóns Þorlákssonar, sem
er ekkert annað en ómerkilegt
pólitískt áróðursfélag. Það hefði
verið uppá einhverjum tippið ef
háskóladeild hefði fengið hingað
þekktan marxista í samfloti við
Fylkinguna!
- Pú ert ekki bara áhugamaður
um heimspeki og hobbíhagfrœð-
ingur, - líka Ijóðskáld, og nýkom-
in frá þér þriðja bókin. Hvernig
kemst þetta fyrir í einni persónu?
- Ætli það sé ekki draumurinn
um að vera renessansmaður. Það
má kannski skýra þetta með titl-
inum á nýju bókinni: Greifinn af
Kaos. Ég hef gaman af að blanda
saman óskyldum hlutum. -m
ÞEIR BERA NAFN
MEÐRENTU
1771 V'T’TI l/nCTTD
, VJLPÍ, IAiíkJda IK
rm/PCQR A MVH ATQ
Frá ogmeð 1. september 1984 verða vextir
Útvegsbanka íslands sem hér segir :
INNLÁN
___________________ atls_áröxtun
Spaxisjóðsbœkur 17,0% 17,0%
Sparireíknirtgar:
a) með 3 mán. uppsögn 20,0% 21,0%
b) meðómán.uppsögn 23,0% 24,3%
c) með 12 mán. uppsögn 24,5% 26,0%
ÚTLÁN
Vextir alls
Almennir víxlar (forvextir) 22,0%
Viðskiptavíxlar (forvextir) 23,0%
Yíirdráttarlán 26,0%
Endurseljanleg lán:
a) íyrir íraml. á innlendan markað 18,0%
b) lán í SDR 10,25%
Almenn skuldabréf 25,0%
Viðskiptaskuldabréí 28,0%
Verðtryggð útlán:
a) allt að 2'/2 ár 8,0%
b) minnst 2'/2 ár 9,0%
UTVECSBANKINN
&