Þjóðviljinn - 27.10.1984, Page 1

Þjóðviljinn - 27.10.1984, Page 1
SUNNUDAGS- BLAÐIÐ MENNING BSRB Skriður á viðrœðum við BSRB. Samninganefnd ríkisins tilbúin að rœða kaupmátt. Beðið eftir ríkisstjórninni. Asáttafundi í deilu BSRB og ríkisins í gær var í fyrsta sinn í sögu deilunnar rætt um tryggingu kaupmáttar á samningstímanum. Launahækkun var hins vegar ekki til umræðu á fundinum. Rík- isstjórnarfundi sem vera átti eftir hádegi í gær var frestað og verður haldinn í dag, og er talið að úrslit hans skeri úr um hvort samningar. nást nú um helgina. Fundurinn hjá sáttasemjara átti upphaflega að hefjast klukk- an hálftvö í gær en var frestað til hálffimm. Um sexleytið mætti samninganefnd ríkisins á staðinn og kom í ljós að nefndin var tilbú- in að ræða hugmyndir BSRB- manna um kaupmáttartryggingu í einhverju formi. BSRB-menn lögðu fram tillögu um leið hinna rauðu strika til slíkrar tryggingar. Far er gert ráð fyrir ákveðnu svig- rúmi handa verðbólgunni en bæt- ur fyrir umframbólgu. Þær bætur verði greiddar 1. apríl og 1. ágúst á næsta ári, og er þá gert ráð fyrir samningum út árið. Nokkurrar bjartsýni gætti í herbúðum BSRB í gær. Á blaða- mannafundi um kvöldmatarleyti tóku forystumenn bandalagsins þó fram að BSRB gæti „fynrvara- laust hert tökin verulega“ ef á þyrfti að halda, en menn vildu komast hjá því eins lengi og hægt væri. Ljóst þykir að samningavið- ræður hefjast ekki í alvöru nema ríkisstjórnin ákveði á fundi sínum í dag. Getum er að því leitt að innan stjórnarinnar séu nú svipt- ingar miklar um markmið og leiðir í samningamálum, og er einkum bent á leiðara NT í gær þarsem ábyrgðinni á stöðu mála er varpað á stuttbuxnadeild Sjálf- stæðisflokksins, Albert Guð- mundsson, Davíð Oddsson og Þorstein Pálsson. - m Síðustu fréttir Sáttafundi lauk um kl. 11 í gær- fundur væri boðaður kl. 3 í dag. kvöldi og sagði Guðlaugur Þor- Hann sagði að biðstaða væri þar valdsson sáttasemjari að málin til eftir ríkisstjórnarfund sem hefðu ekkert skýrst en nýr sátta- hefst á hádegi í dag. -GFr Jón Gfslason starfsmaður Hollustuverndar með sýnishorn af þeirri olíu sem nú hefur verið innkölluð vegna mengunar. Hollustuvernd Efnamenguð matarolía Kvartanir hafa borist vegna magakveisu. Olían innkölluð. rír íbúar á höfuðborgarsvæð- inu hafa kvartað undan magakveisu og niðurgangi eftir að hafa notað matarolíu sem ver- ið hefur f verslunum hér frá því um miðjan september. Um er að ræða soyabaunaolíu frá efnagerðinni Flóru en olían er innflutt í tunnum frá Danmörku og sett á neytendaumbúðir hér. í frétt frá Hollustuvernd ríkisins segir að olían sé gölluð vegna mengunar af lífrænu upplausnar- efni (etýlasetati). Matarolían hafði sérkennilega lykt sem líktist asentonlykt. Jón Gíslason starfsmaður Hollustuverndar sagði í samtali við Þjóðviljann í gær að mengaða olían hefði að öllum líkindum verið í einni tunnu sem tók 200 lítra. Einhver snefill af leysiefn- inu gæti hafa verið í tunnunni þegar olían var sett á hana. Ekki sé um bráða hættu að ræða vegna hinnar menguðu olíu en ákveðið hafi verið að kalla inn þann hluta sendingarinnar sem kann að vera mengaður. Þess vegna væru þeir sem hafa undir höndum soya- baunaolíu frá Flóru í 780 ml. og 465 ml. plastflöskum beðnir að hafa samband við viðkomandi heilbrigðiseftirlit. -•g- Fylgishrun Sviptingar í Sjálfstæðisflokknum Fyrsti sigur íslendinga á Svíum í hand- knattleik í 20 ár! Sjá bls. 6 Miklar sviptingar eru nú í Sjálfstæðisflokknum í kjöl- far framkomu flokksforystunnar í verkfallinu. Samkvæmt heimild- um Þjóðvi(jans eru nú margir hópar að ráða ráðum sínum í þeim tilgangi að losa flokkinn við hið harðskeytta frjálshyggjulið sem ráðið hefur ferðinni á liðnu misseri. Staða formannsins er orðin nyög veik - og er nú reynt til þrautar að koma honum inní ríkisstjórnina til að forða honum frá sömu örlögum og hinum frjálshyggjugaukunum eru búin. Talið er að Matthías Bjarnason heilbrigðis- og samgönguráð- herra sé reiðubúinn að standa upp fyrir Þorsteini Pálssyni. Hófsamari öflin í Sjálfstæðis- flokknum vilja að allir offors- mennirnir úr verkfallinu, Davíð Oddsson, Albert Guðmundsson, Ragnhildur Helgadóttir og Þor- steinn Pálsson, verði nú látnir standa á bak við nýja flokksfor- ystu sem verið er að leita að. Heimildamenn Þjv. í Sjálfstæð- isflokknum töldu að Matthías Á. Mathisen væri nú undir þrýstingi til að taka við forystu flokksins og fleiri úr þeim armi (sem nú er orðinn hófsamur) eru taldir koma til greina. Hófsamari öflin í Sjálfstæðis- flokknum telja að flokkurinn hafi þegar orðið fyrir gífurlegu fylgis- hruni - og ekkert geti orðið til bjargar frá þeirri skriðu kjós- endaflótta sem við blasir, nema að ofstopaliðið hverfi úr tals- mennsku fyrir flokkinn. „Hrunið er rétt að byrja“, sagði Sjálfstæðismaður í Breið- holti við Þjóðviljann í gær. „Ef þetta fólk fær áfram að ráða, má reikna með að aðalskrifstofa Fé- lags frjálshyggjumanna verði færð inní ráðuneytin. Frjáls- hyggjuklíkan og útverðir hennar komu í ljós í verkfallinu, með lögbrotum og ofstopa. Við höf- um ekki ráð á að missa önnur 10% af fylginu næstu 4 vikurnar“, sagði þessi Sjálfstæðismaður og kvað meirihluta almennra flokksfélaga tilheyra hófsamari hluta Sjálfstæðisflokksins sem nú væri forystulaus eftir fráfall Gunnars Thoroddsen. ös/óg

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.