Þjóðviljinn - 27.10.1984, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 27.10.1984, Blaðsíða 4
LEIÐARI Vatnaskil Nú fer í hönd einn erfiöasti kaflinn í þeirri harðsnúnu kjaradeilu sem hefur staðið um all- langa hríð milli íslenskrar verkalýðshreyfingar og fjandsamlegs ríkisvalds, sem ekki skirrist við að beita hvaða óþverrabragði sem er, til að koma verkalýðshreyfingunni á kné. Meðlimir BSRB hafa staðið í ströngu og erfiðu verkfalli á fjórðu viku, og í dag er ekki enn séð fyrir endann á því. Hvernig sem því lyktar er þó eitt víst: sá eldmóður og sú samstaða sem með- limir samtakanna hafa sýnt í verkfallinu eru slík að það eitt er í sjálfu sér glæstur sigur sem mun seint gleymast í sögu samtakanna. En verkföll eru háð til þess að ná fram kjar- abótum og stilla af valdahlutföllin í þjóðfé- laginu. Það þarf ekki einungis að sýna and-| stæðingum hinna vinnandi stétta að íslenskt launafólk er búið að fá yfir sig nóg af langvinnu kaupráni. Fyrr en seinna þarf að ná samning- um sem fólkið og hreyfingin getur sætt sig við, - áður en félitlar fjölskyldur eru rúnar inn að skinni. En ástandið í dag er svo brothætt og svo erfitt og flókið að til að svo geti orðið er nauðsynlegt að gervöll verkalýðshreyfingin stilli saman krafta sína, leggist á eina og sömu sveif. Það ríður á að menn sýni gagnkvæman | skiíning og átti sig á hversu viðkvæm staðan er í dag. Þetta gildir bæði um hina almennu fé- laga í hinum ýmsu félögum og samböndum sem í dag eiga í kjaradeilum, en ekki síður um forystumennina. Gagnkvæm samúð - sam- staða og skilningur: Þetta eru lykilorð. Nú eru þáttaskil í kjaradeilunni. Tiltekin kjarabótaleið - skattalækkunarleiðin svo- nefnda - hefur verið rannsökuð til hlítar. Um það er ekki neinum blöðum að fletta að sú leið hefur kosti og galla og er í augum margra afskaplega álitlegur kostur, ekki síst sumra í BSRB sem borga að líkindum hærri hluta af launum sínum í skatta en margir aðrir hópar í þjóðfélaginu. Hins vegar verða menn einfaldlega að hafa kjark til að horfast í augu við það, að einsog ríkisstjórnin hefur komið málum fyrir borð þá virðist skattalækkunarleiðin ekki lengur fær. Ríkisstjórnin hefur klúðrað málinu, einsog Guðmundur J. Guðmundsson sagði í viðtali við Þjóðviljann fyrir helgi. Krafa dagsins núna er um samstillingu kraft- anna. Um samúð. Um samstöðu. Umfram allt um skilning. Menn verða að gera sér grein fyrir hversu mikið er í húfi fyrir hreyfinguna alla í landinu. Það eru hengiflug á báðar hendur. Þegar ríkisstjórnin reynir að gefa líkinu and- litssnyrtingu og halda áfram að ræða skatta- lækkunarleið sem hún er sjálf búin að klúðra, þá verða menn að gera sér grein fyrir því eins- og Vésteinn í Gísla sögu Súrssonar, að „héð- an falla öll vötn til Dýrafjarðar“. Það eru orðin vatnaskil í baráttunni. Það er fennt í skatta- lækkunarleiðina og héðan er tæpast nema ein leið fær úr einstiginu. Böm verkfallsmanna á bamaskemmtun sem BSRB hólt í Háskólabíói fyrir fullu húsi. Skemmtunin var svo fjölsótt að hana þurfti aö endurtaka. DJðÐVIUINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar FramkveomdaBtjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson. Augiýsingastjóri: Ragnheiður Óladóttir. Auglýslngar: Anna Guðjónsdóttir, Margrót Guðmundsdóttir. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiðsia: Bára Sigurðardóttir, Krístín Pótursdóttir. Símavarsia: Ásdís Kristinsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir. Husmæöur: Bergljót Guðjónsdóttir, Ólöf Húnflörð. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Bjömsson. Útgefandl: Útgáfufólag Þjóðviljans. Rltstjórar: Árni Bergmann, össur Skarphóðinsson. Rltatjómarfulltrúl: Oskar Guðmundsson. Fróttaatjórl: Valþór Hlöðversson. Blaðamenn: Álfheiður Ingadóttir, Ásdís Þórhallsdóttir, Guðjón Friðriksson, Jóna Pálsdóttir, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Mörður Árnason, Ólafur Gíslason, Sigurdór Sigurdórsson, Víðir Sigurðsson (íþróttir). Ljóamyndir: Atli Arason, Einar Karlsson. Útllt og hönnun: Filip Franksson, Þröstur Haraldsson. Handrita- og prófarkaleatur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Útkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn: Siðumula 6, Reykjavík, sími 81333. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðapront hf. Verð í lausasölu: 22 kr. Sunnudagsverð: 25 kr. Áakriftarverð á mónuði: 275 kr. 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 27. október 1984

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.