Þjóðviljinn - 27.10.1984, Side 14
Bókmenntir
Ef þú vœrir
fótboltalið
hélclí ég með því
Segir Stefán Snævarr í einu af
ástarljóðum nýútkominnar
bókar hans, - Greifinn af Kaos.
Áður hafa komið frá Stefáni bæk-
urnar Limbórokk 1975 og Sjálfs-
saiinn 1981.
Greifinn af Kaos hefur að
geyma 30 ljóð sem skipt er niður í
eina átta kafla. Flestir tengjast
þeir Greifanum sjálfum, - heiti
þeirra eru til dæmis: Þannig kvað
Greifinn, Úr náttbók Greifans
o.s.frv. Greifinn leiðir lesanda
sinn inn og út úr bókinni og setur
þetta með öðru dálítið skemmti-
lega. persónulegan svip á bókina.
Eins og í fyrri bókunum fer
Stefán mjög víða í viðfangsefnum
sínum, - spannar heima rokks og
klassíkur, heimspeki og fótbolta,
ísak Harðarson
Ræflatestamentið.
Mál og menning 1984.
Seint í þessari bók er bálkur
sem heitur Andlit heimsins. Þar
er farið með sígilt viðfangsefni:
Ljóðmanneskjan, égið andspæn-
is heiminum. Þeim kemur ekki
vel saman fremur en fyrri daginn.
„Mér“ er sama um þann heim
sem er fyrir utan gluggann. Rétt-
ara sagt: Eg þarf að setja upp
grímu ef ég mæti þessum heimi,
sem er úti fyrir, því hann er
grimmur, rispar og klórar djúp
sár í andlitin. Svarið er að setja
upp grímu, sem hæfir hátterni
heimsins, grímu tígrisdýrsins og
reyna að láta engan sjá, að á bak
við þína eigin grímu eru mennsk
augu.
Þessi bálkur er einskonar sam-
nefnari fyrir bókina alla. Þar er
ástar og angistar. 'I'il að mynda
eru yfirskriftir kaflanna tilvitnan-
ir í menn eins og Friedrich Nietzs-
che, Bob Dylan og Anatoly
Karpov. Það fer þó fyrir Stefáni
eins og mörgum sem velja köflum
sínum glæsileg einkunnarorð, -
þau hreinlega stela senunni,
skyggja á það sem á eftir kemur.
Þetta gerist hér til dæmis í eftir-
minnilegum sítötum í Saraþústra
Nietzsches.
Bestur er Stefán í ást-
arljóðunum, sem auðvitað er að
finna í náttbók Greifans. í þeim
kemur fram bæði einlægni og al-
vara sem ljær þeim meiri dýpt en
öðrum ljóðum bókarinnar. En
einnig vegur þungt að þar verður
skýrust sú einsemdartilfinning
manneskjan á rölti í myrkum
frumskógi og á sér alls ills von og
slokknað á öllum leiðarstjörnum.
Næst á eftir bálknum fer kvæðið
„Andlit mitt hefur aldrei iam-
ast“, þar segir meðal annars:
Hjarta mitt hefur hjúpast grófri
steypu
og draumarnir grátið sig í svefn,
hver af öðrum
eins og mállaus vanhirt börn.
Og ég hefi bitið, klórað og drepið
í Ijósi dagsins
samkvæmt ríkjandi boðorðum...
og er þá stutt að bókinni Ijúki á
tveim stuttum kvæðum - annað
inniheldur ráðleggingar um vel
heppnað sjálfsmorð, hitt er síð-
asta viðvörun af nokkrum um at-
ómstríð og endar á hálfu orði:
Strengurinn sem sverðið hangir í
Stetán Snævarr
sem talsvert litar Greifann af
Kaos eins og fyrri bækur höfund-
ar.
Á kaffihúsi
Borðin og stólarnir
bollarnir
umhverfis
fjarveru
þína.
í Greifanum af Kaos gerir Stef-
án meira af því en áður að yrkja
fyrir málið, hrynjandi þess,
ísak Harðarson
hefur slitnað og klofið þann haus
sem undir var.
Þetta ljóðakver fsaks Harðar-
sonar sver sig í ætt við heimsó-
sómakvæði fyrri tíma og þá ekki
síst rómantísica alheimsþjáningu.
Lesandinn ætti vitanlega ekki að
vera í neinum umtalsverðum
vandræðum með að skilja, hvern-
ig á slíkum áherslum standi í ljóð-
um ungs skálds, sem lifir ekki að-
eins í alkunnri fólsku heimsins
heldur og í þeim tímapunkti, þeg-
ar svo ótal margir sem áttu sér
merkingarsvið og einnig fléttast
oft grafískar pælingar saman við,
enda er það vissjulega hluti ljóð-
formsins hvernig ljóðið horfir við
lesandanum af pappírnum.
Það hefur líka í gegnum tíðina
verið aflvaki og undanfari góðs
skáldskapar, - að brjóta svið
tungumálsins til mergjar, enda
auðugan garð að gresja. Stefán er
meira leitandi í þessa átt en í fyrri
bókunum þótt honum takist hins
vegar misjafnlega vel upp. Þegar
best lætur nær hann þó að verða
frumlegur í skynjun sinni, -
greinir líkindi með ólíkum
hlutum, t.d.
Trjónar banani flaug á skot-
palli...
Af slíkri blöndu óskyldra fyrir-
bæra er mikið í ljóðum Stefáns og
þar sem honum tekst best, hefur
húmorinn fengið að njóta sín.
Það hefur oft mátt ráða hæfi-
leika manna til ljóðrænnar
sköpunar af því, hvernig þeim
tekst á sem knappastan hátt að
gæða ljóð sín dýpt og frumleika, -
nýta sér margræðni málsins.
Þennan hæfileika hefur Stefán og
þarf einungis að þroska hann
með sér og ná á honum betra
valdi.
von og traust á mannlega við-
leitni þurfa að leggja á sig sárs-
aukafullt endurmat eins og það
heitir. Og það er ýmislegt vel um
þessa einlægu texta. Helst þarf að
gagnrýna ísak fyrir það, að hann
vanræki myndmál ljóðanna. Þess
í stað fer hann mjög nálægt ræðu-
mennsku, almennum umræöu-
grundvelli og málfari hans,
félagsfræði- og jafnvel fjölmiðia-
skotnu. Dæmi um þetta skulu
tekin úr ljóði sem heitir „Rödd úr
12. húsi“, en þar rekur hvað ann-
að:
ég þoli ekki þetta gerilsneydda
líf...
það er enga fullnœgingu að hafa
neins staðar...
reglur hópfélagsins og sífelld
pressa míns nánasta umhverfis...
okkur dreymir enga drauma
lengur
og hugsjónirnar horfnar...
Allt er þetta vafalaust heiðar-
leg hreinskilni, en málfar af þessu
tagi dugir ekki til að smíða úr
þann hvassa hníf sem skorið gæti í
sundur tregðu lesandans, fengið
hann til að trúa því að hann væri
að bæta við reynslu sína.
Best tekst ísak Harðarsyni upp
þegar hann sparar hugtökin lætur
Annars staðar
Taktu spegil
horfðu
með mínum
augum.
Greifinn af Kaos geymir mörg
góð ljóð, en þegar litið er á bók-
ina í heild er tæplega hægt að
PÁLL
VALSSON
segja hana vera mjög góða bók.
Til þess eru ljóðin of misjöfn að
gæðum. Sé bókin til að mynda
borin saman við Sjálfssalann, fer
ekki hjá því að Greifinn af Kaos
fari halloka. Hún er ekki eins
heilsteypt og vönduð eins og
Sjálfssalinn sem enn verður að
teljast Stefáns besta bók. Þrátt
fyrir þetta brokkgengi þá lumar
Greifinn á mörgum býsna athygl-
isverðum hlutum sem fyllsta
ástæða er til að hvetja ljóðafólk
til að athuga nánar.
Páll Valsson
sér kannski nægja eitt afstraktorð
eins og „menning“ og smíðar
utan um það samstæða mynd í
fáum dráttum:
Og hvað er menning okkar annað
en postulínsdansmær
sem við höfum tyllt á borðbrún
og fellur á gólfið
um leið og einhver guðinn
teygir sig í ostafatið?
Önnur dæmi um góðan árang-
ur í knöppu formi má taka af
„Dómsdagsviðbrögðum", alls
átta talsins, sem dreift er um bók-
ina eins og viðlagi við atómvals
tímans. Sjötta viðbragð er til
dæmis svona:
Þeir segja atómstríð í vœndum.
Væri ekki ráð að byrja að lifa
svo þeir hafi eitthvað að drepa?
Á.B.
Augun ábak
við grímuna
Mótmæli gegn böli atvinnu-
leysisins fremur en ábendingar
um úrræði voru meginþáttur
kreppusósíalismans, þess félags-
lega viðhorfs, sem á fjórða og
fimmta áratugnum gaf sameigin-
legt svipmót mörgum bestu son-
um og dætrum síðustu kynslóðar í
Vestur-Evrópu og Norður-
Ameríku. Tala þeirra er legío og
nöfn margra þeirra enn tungutöm
svo sem nafn J.B. Priestley, sem
lést 14. ágúst 1984.
í Bradford á Norður-Englandi
var J.B.Priestley fæddur 13. sept-
ember 1894, en faðir hans var
kennari og ötull í samtökum jafn-
aðarmanna í borginni. Naut hann
allgóðrar skólagöngu, þótt hann
færi ungur að vinna í ullariðnað-
inum, í verksmiðju og skrifstofu.
Gróska var í félagslífi í borginni
og listalíf með nokkrum blóma,
og fór hann snemma að skrifa í
bæjarblöðin. Minntist hann fæð-
ingarborgar sinnar með þakklæti
og leit stundum aftur til árabilsins
fyrir 1914 sem gullins skeiðs á
Bretlandi.
í fýrri heimsstyrjöldinni barð-
ist Priestley á vesturvígstöðvun-
um, fyrst sem óbreyttur hermað-
ur, síðan sem liðsforingi, og særð-
ist þrívegis. Eftir styrjöldina las
hann ensku og bókmenntir við
Háskólann í Cambridge, og tók
1922 til við blaðamennsku og
önnur ritstörf í London. Nýtísku-
legar stefnur í bókmenntum skír-
skotuðu ekki til hans, og þótti
hann rita áþekkan stíl sem enskir
ritgerðahöfundar um og upp úr
aldamótunum.
Skyndilega frægð hlaut Pri-
estley 1929 fyrir skáldsögu sína,
The Good Companions, og næsta
skáldsaga hans, Angel Pavement,
jók 1938 enn á hróður hans. I
upphafi heimskreppunnar ferð-
aðist hann um England og sá
atvinnuleysið grafa um sig í borg-
um landsins, eins og hann sagði
frá í English Journey 1934. Jafn-
aðarmann hafði hann kallað sig
frá barnæsku, en þá fyrst varð
sósíalisminn honum sannfæringa-
mál, og mótaði hann mjög rits-
míðar hans næstu tvo áratugi,
J.B. Prlestley: hér á landl þekkja
menn hann ekkl síst fyrlr leikritið
Óvænt heimsókn: lögreglufulltrúi
ber aft dyrum hjá ríkrl f jölskyldu og
afhjúpar sekt hvers og eins á
heimilinu á dauða ungrar stúlku...
þótt í þeim ómaði af fleiri streng-
jum. í síðari heimsstyrjöldinni
flutti hann 1940-1941 reglulega
útvarpserindi, „Postscript,“ sem
um áhrif stóðu aðeins að baki
ávörpum Churchills sjálfs.
Til Ráðstjórnarríkjanna fór
hann 1945, og heimkominn bar
hann á þau lof og kvaðst vísvit-
andi aldrei mundu mæla um þau
hnjóðsyrði né þá lífshætti, sem
þau væru að skapa. Og 1947 sagði
hann: „Ég mun gera allt, sem ég
get, til að hindra, að Bretland
hverfi frá sósíalismanum, sem
einn getur orðið því til bjargar.“
Þó fór svo, að áhugi hans á þjóð-
málum öðrum en afvopnunarm-
álum dofnaði, en hann varð einn
af forystumönnum bresku frið-
arhreyfingarinnar, Campaign for
Nuclear Disarmament, á sjötta
áratugnum og framan af hinum
sjöunda. Fór svo, hvað sem því
olli, að 1958 ávarpaði hann lands-
fund Frjálslynda flokksins.
Á dulspeki örlaði í ritum Pri-
estley, og sökkti hann sér ofan í
rit eftir J.W.Dunne, Gurdjeff og
Ouspensky. Meira að segja fyrsta
leikrit hans, Dangerous Corner,
1932, bar þess merki, en upp frá
því öfluðu leikrit honum mestra
vinsælda. Voru 1937 sýnd eftir
hann leikrit í þremur leikhúsum í
London samtímis, og hafði þá
starfandi rithöfundur ekki lotið
þá viðurkenningu frá 1918. Og nú
er fullyrt, að varanlegan sess í
enskum bókmenntum hljóti hann
einkum þeirra vegna.
J.B.Priestley var menningar-
legt kennileiti í augum þeirra,
sem gistu Bretland eftirstríðsár-
anna. Blöð fluttu greinar hans,
hugleiðingar og hugvekjur,
bækur hans í ódýrum útgáfum
voru á boðstólum og í höndum
fólks í lestum, leikrit hans voru
flutt í útvarpi og sýnd á leikhús-
um. Eftir að hafa lesið andláts-
f regn las undirritaður eitt leikrita
hans, I Have Been Here Before.
Samtölin eru látlaus og hnitmið-
uð, eitt atriði fylgir sjálfkrafa af
öðru, og þótt annarlegur leik-
þráður þess flosniupp að lokum
verður ekki um villst, að það er
gott verk.
Haraldur Jóhannsson
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 27. október 1984