Þjóðviljinn - 31.10.1984, Síða 7
Hér er Anna Frank ásamt Pétri (Kristjáni Franklín Magnús).
Musterisvígsluhátíðin. F.v. Gísli Halldórsson, Valgerður Dan, Guðrún
Kristmannsdóttir, Ragnheiður Tryggvadóttir, Sigurður Karlsson, Margrét
Helga Jóhannsdóttir, Jón Sigurbjörnsson og Kristján Franklín Magnús.
Anna (Guðrún Kristmannsdóttir) ásamt móður sinni og systur (Valgerði Dan og
Ragnheiði Tryggvadóttur).
Dagbók Önnu Frank
Lokaæfingar standa nú yfir á
leikritinu Dagbók Önnu Frank
eftir Frances Goodrich og Al-
bert Hackett hjá Leikfélagi
Reykjavíkurog verðurfrum-
sýning auglýst þeaar að loknu
verkfalli. DagbókOnnu Frank
var áður sýnd í Þjóðleikhúsinu
árið 1957 við miklar og góðar
undirtektir sýningargesta og
sérstaklega er þar í minnum
höfð góð frammistaða Kristb-
jargar Kjeld í titilhlutverkinu en
þar sló hún fyrst í gegn á
leiksviðinu. Nú leikur það
sama hlutverk 16 ára gömul
stúlka, Guðrún
KristmannsdóttirfráSelfossi,
en hún lék þetta sama hlut-
verk fyrir tveimur árum með
Leikfélagi Selfoss.
Dagbók Önnu Frank er sann-
sögulegt leikrit byggt á hinni
frægu dagbók gyðingastúlkunnar
Önnu Frank, sem dvaldist í felum
ásamt foreldrum sínum, systur og
fleira fólki í tvö ár á geymslulofti í
Amsterdam vegna ofsókna nas-
ista. Þetta er átakanlegur harm-
leikur sem býr þó yfir fjölda
skemmtilegra atvika. Pýðandi
verksins er sr. Sveinn Víkingur,
leikmynd og búninga gera þau
Þórunn S. Þorgrímsdóttir og
Grétar Reynisson en leikstjóri er
Hallmar Sigurðsson. Við hittum
að máli Hallmar leikstjóra og
spurðum hann hvort einhverjar
nýjungar væru á ferðinni að þessu
sinni í uppfærslunni og sagði
hann að hver einasta uppfærsla á
hverju verki væri ávallt ný.
Leikmyndin vekur sérstaka at-
hygli en leiksviðið hallast fram á
við. Við spurðum hverju það
þjónaði. Hallmar sagði að það
þjónaði fleiri en einum tilgangi.
Hallinn legði áherslu á að fólkið
leyndist uppi á geymslulofti og öll
ógn stafaði að neðan, einnig
auðveldaði það áhorfendum að
sjá upp á senuna og gerði leika-
rana meðvitaðri um staðsetningu
og hreyfingar á sviðinu. Fleira
mætti telja upp.
Foreldra Onnu Frank leika
Sigurður Karlsson og Valgerður
Dan, Ragnheiður Tryggvadóttir
leikur systurina, Jón Sigurbjörns-
son leikur herra Daan, Margrét
Helga Jóhannsdóttir leikur frú
Daan og Kristján Franklín Magn-
ús leikur Pétur, son Daan-
hjónanna. Gísli Halldórsson
leikur Jan Dussel, María Sigurð-
ardóttir Niep og Jón Hjartarson
Kraler.
Þess skal getið að á liðnum
árum hafa margsinnis komið upp
kvittir um að dagbók Önnu
Frank sé fölsuð en það hefur j afn-
harðan verið hrakið fyrir dóm-
stólum. Húsið sem fjölskyldan
faldist í er nú safn í Amsterdám
og þeir sem standa að því halda
jafnframt uppi mannréttinda-
hreyfingu sem m.a. hefur tekið
upp málstað erlendra farand-
verkamanna í Hollandi, Þýska-
landi og víðar. -GFr
„Þetta er ofsalega gaman“
„Ég var 13 ára þegar ég lék
önnu Frank fyrst meö Leikfé-
lagi Selfoss undir leikstjórn
Stefáns Baldurssonar.
Mamma var þá í stjórn leikfél-
agsins og það vantaði stelpu í
hlutverkið og ég vargripin.
Svo núna hringdi Stefán í mig
og spurði hvort ég væri tilbúin
að leika þetta hlutverk aftur í
Iðnó og ég féllst á það.“
ÞaðerGuðrún
Kristmannsdóttirsem segir
blaðamanni Þjóðviljans frá til-
drögum þess að hún er nú á
fjölum atvinnuleikhúss í aðal
hlutverki. Guðrún er Ijóshærð
með blá augu, snaggaraleg
og hispurslaus.
- Og hvernig finnst þér svo ad
vera innan um alla þessa atvinnu-
leikara?
' - Bara ofsalega gaman.
- Fer ekki skólinn hjá þér út
um þúfur?
- Ekki get ég neitað því. Ég er
utan skóla fram að áramótum.
- Er ekkert erfitt að búa á Sel-
fossi og stunda œfingar hér í
Reykjavík? - Nei, nei, það er
ekkert erfitt.
- Hvað ertu gömul?
- Ég er 16 ára og verð 17 ára
18. janúar.
- Finnst þér leikritið hafa
eitthvað að segja okkur í nútíman-
um?
- Já, það hefur alveg tilgang
núna, það er ekkert verið að sýna
okkur eitthvað ævagamalt og úr-
elt. Þetta er átakanleg saga sem á
erindi við okkur.
- Ætlarður að leggja fyrir þig
leiklist?
- Guð, ekki spyrja mig að
þessu. Ég veit ekki. Éger búinað
vera með bakteríuna síðan ég var
13 ára gömul!
- Hefurðu nokkuð leitað ráða
hjá Kristbjörgu Kjeld sem sló í
gegn í þessu hlutverki á sínum
tíma? - Nei, en hún kom og sá
sýninguna hjá okkur á Selfossi og
ég held að henni hafi þótt allt í
lagi með hana.
Nú er ekki hægt að trufla hina
ungu leikkonu meira því að hún
gaf sér aðeins smástund með okk-
ur í smáhléi á æfingu en það sem
við sjáum til hennar á æfingunni á
eftir sýnir að hér er stórefnileg
manneskja á ferðinni. -GFr