Þjóðviljinn - 31.10.1984, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 31.10.1984, Qupperneq 8
MENNING Listamiðsföðin Háskólatón- leikar í dag Aðrir háskólatónleikar á haustmisseri 1984 verða í Nor- ræna húsinu í hádeginu í dag, miðvikudaginn 31. október. Flutt verður rómatísk tónlist eftir Áma Bjömsson, Sveinbjörn Sveinbjörnsson, Hallgrím Helga- son og Þórarin Jónsson. Flytjendur era Guðný Guð- mundsdóttir, fíðla, og Snorri Sig- fús Birgisson, píanó. Tónleikamir hefjast kl. 12.30 og standa u.þ.b. hálfa klukku- stund. Guðmundur Emilsson æfir islensku hljómsveitina. Tónlist Islenska hljómsveitin Þriðja starfsórið hafið Þegar íslenska hljómsveitin hóf störf haustið 1982 lýstu tals- menn hennar yfir þeirri ætlan sinni að reka hljómsveitina, erfrá liði, án opinberra styrkja, en greiða hljóðfæraleikurum samt sem áður full laun. Ýmsum fannst þetta nokkuð djarflegar áætlanir og ekki ýkja líklegar til að standast. En hvernig skyldi nú horfa við upphaf þriðja starfsárs- ins? Því svaraði stjórn hljóm- sveitarinnar, þeir Guðmundur Emilsson, Ásgeir Sigurgestsson og Sigurður I. Snorrason, (en Þorsteinn Hannesson vantaði á fundinn), - á þá leið, að fyrsta starfsárið hefði hljómsveitinni sjálfri tekist að afla 75% rekstrar- fjárins, annað árið 80% og í ár næðust vonandi 85% og yrði sótt um styrk í samræmi við það. - Við nálgumst því óðfluga uppha- flegt markmið og stefnum að því að verða alveg sjálfbjarga eftir 2 ár, sagði Guðmundur og bætti við: Ætli það yrði þá ekki Norð- urlandamet í hljómsveitar- rekstri? En hér hafa margir lagst á eitt um aðstoð, bæði einstaklingar og félög. Reynt hefur verið að gæta ýtrastu hagkvæmni í rekstri. Nær allir tónleikar hljómsveitarinnar á liðnu starfsári vora haldnir fyrir fullu húsi. Hugmyndin er að hljómsveitin haldi 9 tónleika áþessu starfsári. Efnisskrá þeirra er ákaflega fjöl- breytt og spannar yfir flest tíma- bil tónlistarsögunnar. Flutt verða hljómsveitarverk, kammerverk, skemmtitónlist, óperar og kór- verk. Af 10 íslenskum tónverkum á efnisskrá verða 8 frumflutt, öll samin að tilhlutan fslensku hljómsveitarinnar. Álitlegur hópur einleikara, einsöngvara og stjórnenda, innlendra og er- lendra, mun koma fram með hljómsveitinni í vetur. Ætlunin er að Sjónvarpið sýni þátt þar sem hljómsveitin flytur þrjú tónverk eftir unga, íslenska höfunda. Með vordögunum er svo fyrir- huguð hljómleikaferð til Græn- lands, ásamt Söngsveitinni Fíl- harmoníu. Verður það önnur ut- anför hljómsveitarinnar en hin fyrri var farin til Svíþjóðar sumarið 1983. Stefnt er að því að hljómleikar verði haldnir út um landsbyggðina. - Það hefur verið gaman að taka þátt í þessari uppbyggingu og ég hlakka til framtíðarinnar, sagði Sigurður I. Snorrason. - Þegar mér var boðið að taka þátt í að stofna nýja hljómsveit þá Söngsveitin Fílharmónía er nú að hefja 25. starfsár sitt. Frum- kvæði að stofnun Söngsveitar- innar átti félagið Fílharmónía, sem stofnað var 1959. Markmið félagsins var að stofna blandað- an kór, sem hefði til þess burði, að flytja veigameiri tónverk með sinfóníuhljómsveit. Söngsveitin hélt fyrstu tónleika sína í apríl 1960. Flutti hún þá Carmina Burana eftir Carl Orff, ásamt Þjóðleikhúskórnum, og þrífyllti Þjóðleikhúsið. Stjórn- andi á þessum tónleikum var dr. Róbert A. Ottósson, en hann stjórnaði Söngsveitinni frá upp- hafí og þar til hann lést 10. mars 1974. Á ferli sínum hefur Söngsveitin flutt mörg helstu kórverk tón- bókmenntanna: Missa Solemnis, Níundu sinfóníuna, C-dúr messu og Kórfantasíuna eftir Beetho- ven, Messías eftir Hándel, sálu- messur eftir Brahms, Mozarts, Verdi og Fauré. Sköpunina eftir Haydn, Magnificat og Kantötu nr. 140 eftir Bach, Sálmasinfóní- una eftir Stravinsky, As-dúr messu eftir Schubert, Te deum eftir Bruckner, Dvorak og Ko- daly, Dies Irae eftir Pendercki, In ecclesiis eftir Gabrieli, Ti- umphlied eftir Brahms og Polo- vetska dansa eftir Borodin. Mörg þessara verka frumflutti Söngs- veitin hérlendis en í mest var ráð- ist er Missa Solemnis var frum- flutt, svo og og Níunda sinfónían verkaði það á mig eins og að vera boðið upp í loftbelg, sagði Ásgeir Sigurgestsson. - En ég sé ekki eftir að hafa lagt í þetta. Hljóm- sveitin hefur aukið möguleika ungs hljómlistarfólks á að koma heim að loknu námi í stað þess að ílendast erlendis. Nauðsynlegt er að skipuleggja svona rekstur vel Söngsveitin Fflharmónía. Dr. Róbert A. Ottósson stjórnaði Söngsveitinni Fílharmóníu frá upp- hafi og þar til að hann andaðist 10. mars 1974. sem sungin var á fimm tónleikum fyrir fullu húsi. Nokkur verkanna hafa verið flutt með árs millibili. Fjölmennastur var kórinn við flutning Níundu sinfóníunnar, 156 manns. Þá hefur Söngsveitin og flutt íslensk verk: Alþingishátíðar- kantötu Páls ísólfssonar, Völu- spá Jóns Þórarinssonar, íslands þúsund ár, eftir Björgvin Guð- mundsson, fyrsta þátt í Friði á jörðu, einnig eftir Björgvin og Greniskóginn eftir Sigursvein D. Kristinsson. og gera um hann nákvæmar áætl- anir og þar hefur Guðmundur unnið ómetanlegt starf. Guðmundur: Ef reksturinn er lélegur þá verður tónlistar- flutningurinn slæmur. Því ákvað ég að snúa mér af alefli að rekstr- inum. Fyrirhugaðir tónleikar hljóm- sveitarinnar á starfsárinu verða ekki sérstaklega kynntir hér nú. Reynt verður að gera það jafnóð- um og að þeim dregur. -mhg Síðan 1980 hefur Söngsveitin árlega tekið þátt í konsertupp- færslum á óperam, með Sinfóníu- hljómsveitinni, sem hún starfar í nánum tengslum við, öðrum kór- um og innlendum og erlendum einsöngvurum. Þá hefur Söng- sveitin og sungið með íslensku hljómsveitinni. Söngsveitin hefur sungið inn á tvær hljómplötur: Alþingishátíð- arkantötu Páls ísólfssonar, ásamt Fjórar einka- sýningar Einkasýningar fjögurra listamanna standa nú yfir í Listamiðstöðinni við Lækjar- torg (nýja húsinu 2. hæð). Þau eru: Santiago Harker frá Kól- umbíu sem sýnir Ijósmyndir, Ingiberg Magnússon með krítarmyndir, Anna Ólafsdóttir Björnsson dúkristur og Gunn- ar Hjaltason vatnslita- og pennateikningar. Sýning Harkers nefnist „Hul- ið“ og era ljósmyndirnar allar um mannlíf í Bogota, fæðingarstað höfundar. Harker er verkfræð- ingur að mennt og er hér í náms- og kynnisferð á vegum samtaka stúdenta á sviði hagfræði. Ingiberg kallar krítarmyndir sínar trjástúdíur en þær era unnar í Danmörku á síðustu mánuðum en þar dvaldi hann í boði Nor- ræna félagsins í Odense. Dúkristur Önnu kallast einu nafni Blikur, en hún hefur nokk- urra ára nám í myndlist að baki. Gunnar Hjaltason gullsmiður er elstur sýnenda, en hann hefur auk gullsmíðanáms stundað teikningu hjá þeim Birni Björns- syni og Marteini Guðmundssyni á sínum tíma. Allar sýningamar era opnar daglega kl. 14-18 til 4. nóvember. -GFr Karlakórnum Fóstbræðrum og minningarhljómplötu um dr. Ró- bert A. Ottósson, en þar era þættir úr Messíasi eftir Hándel og Þýskri sálumessu eftir Brahms. Þá tók hún og þátt í Listahátíð 1982 og flutti þætti úr Boris Gu- dunov eftir Mussorgsky, og Lífi fyrir keisarann eftir Glinka. Síðan dr. Robert A. Ottósson leið hafa nokkrir söngstjórar stjórnað Söngsveitinni sinn vetur hver. Marteinn H. Friðriksson stjórnaði henni 1976-1980, en Guðmundur Emilsson síðan 1982. Mikil breidd í verkefnavali ein- kennir Söngsveitina. Á tveggja ára söngstjóraferli Guðmundar Emilssonar hafa verið flutt sjö verk, sem spanna yfír tímabilið frá 15. öld og fram á seinni hluta 20. aldar. Yngsta verkið, Dies Irae eftir Panderecki, var samið 1967, sannkallað nútíma tón- verk. Fyrstu stjórn Söngsveitarinnar skipuðu: Aðalheiður Guð- mundsdóttir, formaður, Sigur- laug Bjarnadóttir, ritari, Lúðvík Albertsson, gjaldkeri og með- stjórnendur Sigurður Þórðarson og Rolf Markan. í núverandi stjórn era: Dóróthea Einarsdótt- ir, formaður, Sigurður Guð- mundsson, varaformaður, Anna María Þórisdóttir, ritari, Elín Möller, gjaldkeri og Emma Eyþórsdóttir, meðstjórnandi. -mhg ___FílharmónÍQ Tuttugasta og fimmta starfsárið 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 31. október 1984

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.