Þjóðviljinn - 03.11.1984, Page 4

Þjóðviljinn - 03.11.1984, Page 4
LEIÐARI ISAL Óviðunandi samningur Þegar Hjörleifur Guttormsson fyrrverandi iðn- aðarráðherra hóf baráttuna fyrir því að Alusu- isse auðhringurinn greiddi íslendingum hærra verð fyrir raforku voru þeir margir sem andæfðu því og töldu samninginn, sem þá var í gildi, nægilega góðan. Þegar Alþýðubandalagið sýndi svo fram á svik fyrirtækisins í viðskiptunum við íslendinga, hina frægu hækkun í hafi, þá vöruðu þessir sömu menn við því að forsvarsmenn álhrings- ins yrðu styggðir með slíkum og þvílíkum ásök- unum. Út afþessu spunnust miklar og harðar umræður á íslandi, og andstæðingar Alþýðu- bandalagsins lögðu mörg orð og þung í garð þess - sérílagi Hjörleifs Guttormssonar - fyrir að hafa lagst svo harkalega gegn Alusuisse. Það mátti nefnilega ekki styggja auðhringinn, því það þurfti að fá nokkrar álverksmiðjur í við- bót hingað norður á hjarann. Nú er hins vegar komið í Ijós, að málflutningur Alþýðubandalagsins í þessu máli átti fullan rétt á sér. Niðurstöður þeirra viðræðna sem íslensk stjórnvöld hafa átt í við fulltrúa auðhringsins fela í sér fulla viðurkenningu á því að það var hárrétt að krefjast endurskoðunar á samningnum. Álfurstarnir hafa ennfremur viðurkennt sekt sína hvað varðar hina frægu hækkun í hafi, einsog sést á því að þeir hafa nú fallist á að greiða eitt hundrað miljón íslenskra króna í sekt. Þar með er fengin full réttlæting fyrir þeim mál- flutningi sem fyrrverandi iðnaðarráðherra áttií frumkvæði að gegn hinni alþjóðlegu auðsam-| steypu og vakti verðskuldaða athygli víða um lönd. Það er einnig vert að geta þess, að sá málatilbúnaður var með þeim hætti, að ríkis- stjórnir í fjarlægum heimsálfum hafa síðan haft hann til fyrirmyndar í svipuðum deilum, sem þær hafa háð um orkuverð til alþjóðlegra ál- hringa. Þessum áfanga ber því tvímælalaust að fagna. Hins vegar er full ástæða til að vekja á því ríka athygli að það uppkast sem liggur fyrir að nvjum samningi er fráleitt viðunandi: - I fyrsta lagi er orkuverðið sem gert er ráð fyrir alls ekki nógu hátt. Það er enn töluvert undir kostnaðarverði á framleiddu rafmagni í virkjun- arkefi Landsvirkjunar í dag. í þessu sambandi er einnig vert að benda á, að fyrir skömmu náðu Grikkir og Ghanamenn fram orkuverði, sem er mun hagstæðara en í þeim samningi sem ís- lendingum er nú boðinn. Jafnframt yrði orku- verðið til ísal enn töluvert minna en orkuverðið sem Alusuisse þarf að greiða annars staðar. - í öðru lagi eru ákvæði samningsins um endurskoðun mjög óljós, og samkvæmt þeim mun tæpast hægt að hækka orkuverðið á nvjan leik fyrr en að liðnum hálfum áratug. Áhrif breytinga á gengi og verðbólgu eru ennfremur mjög vanmetin í samningnum, sem getur auðveldlega leitt til þess að í framtíðinni verði hann talsvert óhagstæðari en hann er nú. Þessi atriði og ýmis fleiri í ákvæðum hins nýja samnings gera það að verkum að hann er ein- faldlega ekki aðgengilegur fyrir íslendinga. Á það skal sérstaklega bent að Alusuisse mun samkvæmt samningsuppkastinu sleppa við að hlíta úrskurði gerðardóms í hinum gömlu deilumálum fyrri ára. íslendingar kröfðust þess að fyrirtækið greiddi þrjú hundruð miljónir í sekt vegna þeirra svika sem fólust í hækkun í hafi, en fær að sleppa með 100 miljónir. Þetta er þeim mun alvarlegra, þegar þess er gætt að nýjar upplýsingar fyrir síðasta ár, 1983, sýna svo ekki verður um deilt að Alusuisse heldur áfram fyrri svikum. Þessu getum við sem þjóð engan veginn unað. Við getum ekki látið erlendum stórfyrir- tækjum líðast að stela af okkur stórum upphæð- um. Við megum ekki kikna í hnjánum gagnvart erlendum auðhringum. Þetta er ekki einungis spurning um fjármuni, heldur ekki síður um sjálfsvirðingu okkar sem þjóðar. Sfðasta næturvakt „Mörgæsahópsins" sem eru kennarar úr Snælandsskóla. Þau héldu hópinn í verkfallinu og stóðu reglu- lega vaktir á kvöldin og nóttunni. Lásu í upphafi brandarabók og sögðu síðan sömu brandarana aftur og aftur. Stunduðu það Ifka að kveðast á og sögðust finna fornu húslestrarstemmninguna! Þjóðviljinn hitti þau síðustu verkfallsnótt- ina. Sátu þau í lítilli rútu í Sundahöfn og drukku kaffi í lítravís. Kváðu þá þessa vísu: Við skulum okkur gera gott. Við skulum gleyma straffi. Við skulum hella vatni í pott. Við skulum drekka kaffi. Á myndinni eru frá vinstri: Sólveig Pét- ursdóttir, Haukur Viggósson, Agla Snorra- dóttir, Snorri Jóelsson, Helgi Helgason, Inga Karlsdóttir, Sigríður Guðmundsdóttir og Elín Lýðsdóttir. NðÐHUINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis o0 vertalýðshr vfingar Utgefandi: Útgáfufólag Þjóðviljans. Ritatjórar: Ámi Bergmann, Ossur Skarphóðinsson. Ritstjómarfulltrúi: Oskar Guðmundsson. Fróttastjóri: Valþór Hlöðversson. Blaðamenn: Álfheiður Ingadóttir, Ásdís Þórtiallsdóttir, Guðjón Friðriksson, Jóna Pálsdóttir, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Mörður Ámason, Ólafur Gíslason, Sigurdór Sigurdórsson, Víðir Sigurðsson (íþróttir). Ljósmyndir: Atli Arason, Einar Kartsson. Utllt og hönnun: Filip Franksson, Þröstur Haraldsson. HendrKa* og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. I_____________________________________________________ 4 SÍOA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 3. nóvember 1984 Framkvœmdastjórl: Guðrún Guðmundsdóttir. Skrlfstofustjóri: Jóhannes Harðarson. Auglýalngaatjóri: Ragnheiður Óladóttir. Auglýsingar: Anna Guöjónsdóttir, Margrót Guðmundsdóttir. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Símavarala: Ásdís Kristinsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir. Húamœður: Bergljót Guðjónsdóttir, Ólöf Húnflörð. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Bjömsson. Útkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Ðlaðaprent hf. Verð I lausasölu: 22 kr. Sunnudagsverð: 25 kr. Áskriftarverð á mánuði: 275 kr.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.