Þjóðviljinn - 03.11.1984, Page 7

Þjóðviljinn - 03.11.1984, Page 7
"■v Meiri fslendingur en margur annar Kuregej Alexandra listamaður fró Jakútsíu sem nú er með sýningu í Norrœna húsinu segirfró fjölbreyttu lífshlaupi sínu Á sýningunni í Norræna húsinu. Myndin til hægri er helguð móður Alexöndru en hún dó þegar Kjuregej Alexandra var 16 ára. Ljósm.: Atli. Jakútsía er stórt land í NA- Síberíu, 30 sinnum stærraen ísland. Þargeturkuldinnfarið niður í 60 gráður á veturna og hitinn upp í 40-50 gráður á sumrin. Þarbúa Jakútar, forn menningarþjóð. Og uppi á (s- landi hefur um langt skeið búið listakona sem er komin alla leiðfráJakútsíu. Þaðer hún Kjuregej Alexandra sem kom hingað vorið 1966 og hefur átt heima hér að mestu leyti síðan. Kjuregej Alex- andraerekkibeint íslendingsleg í útliti en samt er hún orðin mikill íslendingarog talar íslensku ágætlega. Um þessar mundir er hún með sýningu á myndum sem unn- ar eru í efni (application) í Nor- ræna húsinu og svo mikill áhugi er á sýningunni að við opnunina komu á 5. hundrað manns og þarvar bæði dans- að og sungið. í stilltu og köldu haustveðri sl. miðviku- dagsmorgun fórum við og heimsóttum hana og mann hennar, GunnarGunnarsson sálfræðing, á heimili þeirravið Langholtsveg og spjölluðum um líf hennar og feril yfir rjúk- andi kaffi, brauði og vínar- brauði. - Myndir unnar í efni eins ogþú ert að sýna núna eru ekki beint algengar hér á landi, en er kann- ski hefð fyrir þeim íþínu fæðing- arlandi? - Ekki get ég nú sagt það beint en þar hefur þó verið stunduð mikil handavinna í sambandi við leður, skinn og þess háttar. -Já, er þjóð þín ekki hirðingja- þjóð? Kunna að lifa í landi sínu - Jakútsía er gamalt hirðingja- þjóðfélag. Við erum upprunnin í Tyrklandi fyrir um 3000 árum og tungumálið er af tyrkneskum uppruna. Svo höfum við blandast mikið öðrum þjóðum svo sem Töturum og Mongólum og m.a.s. í Kákasusfjöllum er þjóð sem heitir Balkarar og er skyld okkur. Það sýnir hvaða leið við höfum farið á sínum tíma en Jakútar settust að í Jakútsíu og reistu þar sín bjálkahús en flökkuðu ekki um eins og hirðingjar. Fólkið á stórt land og eignir og stundar hesta-, hreindýra- og nautgripa- rækt. - Hvernig er loftslagið? - Sumrin eru mjög heit, hita- stigið getur farið upp í 45-50 stig á Celcius, en á haustin kemur regntíminn með monsúmvindun- um og síðan fer að snjóa. Mesta Alexandra og Gunnar. Hún kennir leikræna tjáningu á Kleppi og Vítils- stöðum og hann er sálfræðingur og hafa þau unnið töluvert saman. Ljósm.: Atli. frost sem mælst hefur í Jakútsíu er 61 gráða. Mismunurinn á hit- astigi getur þvx verið um eða yfir 100 gráður. En Jakútar kunna vel að lifa í landi sínu. í>eir stunda sína vinnu allan ársins hring og skólahald fellur aldrei niður á vetuma hvemig sem veðráttan er. Kanínur og kaplamjólk - Hver erfallegasti árstíminn? - Það er æðislega fallegt í sept- ember. Þá verður skógurinn allur gulur. Fólk fer þá að veiða kanín- ur og fára þá kannski 60-70 manns í hóp og helmingurinn fer til þess að reka þær með miklum látum en hinir bíða og skjóta þær svo þegar þær koma hlaupandi. Það er mikið fjör og gaman. Hver maður kemur svo kannski með 20-30 kanínur á bakinu heim. Á vetuma eru tunglskinsbjartar nætur og þá er tunglið beint fyrir ofan mann þannig að skuggarnir verða mjög stuttir. Þá er farið á skíði og ég var töluverð íþrótta- kona á sínum tíma. - Er ekki þjóðin mikil hesta- þjóð? - Hestar em ekki notaðir mjög mikið til reiðar en því meira til vinnu og þeir em étnir. Þjóðar- drykkur Jakúta er kaplamjólk - nefnd kúmis. Hún er kæld mjög mikið niður og hellt bræddu smjöri ofan í drykkinn sem verð- ur að smákögglum. Kaplamjólk- in er svo dmkkin úr trébikumm t.d. á sumarhátíðum og þá er mikið um að vera. - Nú er landið risastórt. Hvað- an ert þú? - Ég er úr litlu þorpi sem heitir Bjutedjek og er ekki langt frá höfuðborginni Jakútsk. Þegar ég var lítil bjuggu þar 3-400 manns en nú em íbúamir orðnir um 1200. í þorpinu mínu er mikil menning ríkjandi. Þar em skólar, mikið tónlistarlíf og við höfum okkar bókmenntir. Fólk hefur gaman af því að yrkja og segja sögur og þar er dansað og sungið. Við Gunnar fómm í heimsókn þangað ekki alls fyrir löngu og þegar lokahóf var haldið fyrir okkur komu allir þorpsbúar í samkomuhúsið, nema kannski þeir sjúklingar sem verst vom haldnir, og einnig kom fólk úr nágrannaþorpum og það var dansað fyrir okkur og sungið. Sjálf söng ég íslensk lög svo sem Til em fræ og Gunnar sagði frá íslandi en ég túlkaði. Eg hef komið nokkmm sinnum í heim- sókn eftir að ég fluttist að heiman og fólk er alltaf jafn spennt að fá okkur í heimsókn en jafnframt undrandi að ég skuli geta það því að það heldur að við eigum svo bágt á íslandi. Það er alveg sannfært um að það hafi það best í heimi í Jakútsíu. - Er iðnaður í landi þínu? - Jakútsía er líklega ríkasta land Síberíu því að þar er olía, gull, silfur, salt og demantar í stóram stíl þó að þessi efni fari nú að vísu mest bakdyramegin úr landi. Grafík og galdrar - Nú ert þú listakona. Er kann- ski mikið um listamenn í þinni œtt? 1 UMSJÓN: GUÐJÓN FRIÐRIKSSON Laugsrdagur 3. nóvember 1984 ÞJÓOVILJINN - :

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.