Þjóðviljinn - 03.11.1984, Side 14

Þjóðviljinn - 03.11.1984, Side 14
MYNDLIST HEIMUR í SPÉSPEGLI Ef ég væri ekki aö fara neitt sérstakt þá myndi ég nú ekki flýta mér svona mikið. TWASItMT © 1984 McNaught Synd.. Inr Því miöur, fiðluleikarinn veiktist í gær. Blaðburðarfólk Ef þú ert morgunhress? Hafðu þá samband við afgreiðslu Þjoðviljans, sími 81333 Laus hverfi: Nýja miðbæinn Fossvog Skerjafjörð í Betra blað WÐVIim 3 Stál og málning Sverrir Ólafsson sýnir höggmyndir að Kjarvalsstöðum Ein þeirra listsýninga sem farið hefur fram hjá mönnum í verk- fallinu, er sýning Sverris Ólafs- sonar myndhöggvara, á gangi Kjarvalsstaða. Það er viss kapít- uli út af fyrir sig hvernig að mál- um hefur verið staðið á þessum opinbera sýningastað. Þar hefur níct einhvers konar „haltu mér, slepptu mér“-stefna, sem bitnað hefur á þeim sem leigt höfðu sér pláss á þessum óheppilaga tíma undir sýningar. í stað þess að ganga hreint til verks og loka staðnum alfarið, bjóða lista- mönnum að hætta við eða fresta sýningum, hefur þeim verið leyft að setja upp sýningar fyrir lukt- um dyrum. Þannig hafa lista- menn verið táldregnir á þeirri veiku von að verkfallið leystis áður en leigusamningurinn rynni út. Afleiðingin hefur orðið sú að listamenn þessir hafa staðið uppi með fjárhagslegan bagga á herð- um án þess nokkur sæi sýningar þeirra. Eini sanngjami leikurinn í þessarri stöðu er að fella niður leigugjöldin, en betra hefði verð- ið að bjóða mönnum annan sýn- ingartíma gegn lægri greiðslu í skaðabætur. Sýning Sverris er umfangsmikil og sýnir hann 32 verk unnin í stál og kopar. Sverrir notar olíumáln- ingu til að gæða stálið lit og í mörgum tiifellum er stálið hreint og beint notað sem undirstaða undir málninguna. Þannig verða til myndir sem raunar eru mál- verk máluð á stálþynnur. Stál- þynnan er meginuppistaðan í öllum verkunum á sýninguni. Sverrir notar klippur og logsuðu ásamt hamri til að sveigja og beygja málminn. Fyrir bragðið standa höggmyndimar opnar; þær em ekki massívar. Þetta gerir þær iéttar og leikandi en um leið verða þær nokkurs konar millistig frístand- andi höggmynda og lágmyndar. Tækni Sverris býður upp á mikla möguleika. Hann finnur sér yrk- isefni í grímunni, þessari eilífu „arkitýpu" eða fmmgerð og not- ar þá alla miðla sem hann hefur komið sér upp. Vissulega má finna í verkum hans sterk áhrif frá samtímahrær- ingum í málaralist og högg- myndalist. Englendingurinn Bill Woodrow beitir ekki ólíkum að- ferðum og ef betur er að gáð leynast þræðir frá þessum verk- um aftur til höggmyndalistarinn- ar eins og hún kom fram á 7. ára- tugnum í verkum manna eins og Césars og Chamberlain. En Sverrir gerir sína persónu- lega úttekt á áhrifunum og tekst að finna sér farveg sem er bæði frjór og möguleikaríkur. Bestu verkin em sterk og útfærð af krafti og hispursleysi. Eina hætt- an er fólgin í fmleikanum, en efn- ið býður ekki upp á slíkt. Það gæti leitt til tepmlegrar útfærslu sem deyðir áhrifamátt sköpunarinn- ar. Þau verk em veikust sem byggja á samsetningu trés og fín- legra stálsteina. Stálið er nefni- lega voldugt í sjálfu sér eins og iðnaðurinn sem við það er kennd- ur. Því voldugri og hrjúfari sem umgjörð þess er, því sterkari áhrifum geislar það. Þegar á heildina er litið má sjá að margt athyglisvert býr í sýn- ingu Sverris. Vald hans á tækni jámsmiðsins sýnir að hann er til alls vís. Spurningin er hvort hann eigi ekki eftir að laða enn snarp- ari gildi út úr efniviðnum. Sýn- ingin hefur verið framlengd til 4. nóvember. -HBR Listasafn Islands 100 ______________óra______________ Sýnir glermyndir Leifs Breiðfjörð í Listasafni íslands stendur nú yfir sýning á 30 nýjum glermynd- um eftir Leif Breiðfjörð sem hann hefur gert fyrir Listasafnið í tilefni af 100 ára afmæli þess og tileinkar föður sínum Agnari G. Breiðfjörð blikksmíðameistara. Á sýningunni í Listasafninu gefst gott tækifæri til að sjá hina fjölbreyttu möguleika glersins. í verkum sínum hefur Leifur notað handblásið antik-gler, bæði gegn- sætt og ógegnsætt. Grafísk áferð glers hefur ávallt heillað Leif og má sjá þess stað í þessum verk- um, en í þau hefur hann t.d. not- að bólótt, hamrað eða æðótt gler og prisma til að ná fram þeim áhrifum sem hann hefur leitað eftir hverju sinni. Nokkur verk- anna eru auk þess máluð og inn- brennd. Mjög vönduð sýningarskrá hefur verið gefin út með litmynd af hverju verki. Sýningin er opin daglega frá kl. 13.30-16.00 fram til 11. nóvem- ber. 14 SÍÐA - öJÓÐVlLJlNN Laugardagur 3. nóvember 1984 NÝ HÁRSNYRTISTOFA Veitum alla hársnyrtiþjónustu • DÖMU , HERRA 0G BARNAKLIPPINGAR • DÖMU 0G HERRA PERMANENT • LITANIR - STRÍPULITANIR - NÆRINGARKÚRAR NÆG BÍLASTÆDI SMART Nýbýlavegi 22 - Kópavogi - Sími 46422.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.