Þjóðviljinn - 03.11.1984, Blaðsíða 15
DÆGURMAL
Carla Bley er einn af frum-
legustu höfundum nútíma-
tónlistar sem uppi eru í dag.
Hún hefur, ásamt manni sín-
um Mike Mantler, sett á stofn
eigið plötuútgáfufyrirtæki,
Watt Works, hljóðver og fleira
sem stuðlar að sjálfstæðum
tónlistarrekstri. Hún á einnig
aðild að stofnun fjölmargra
styrktarsjóða, dreifingarfyrir-
tækja, til eflingar nýrrar tón-
listarog ónefndra félaga, sem
miðast að því að kappkosta
frið með tónlistina eina að
vopni (Charlie Haden’s Liber-
ation Music Orchestra lét t.d.
mjög til sín taka í stuðningi við
frelsisbaráttu ríkja Suður-
Ameríku, en Carla Bley var
helsta tónskáld þeirrar frelsis-
sveitar). í þessari grein um
Cörlu Bley í Dægurmálum í
dag er stuðst við ýmis upps-
láttarrit og viðtal í bók um
djass- og bræðslutónlistar-
menn.
Carla Borg fæddist 11. maí
1938 í Oakland, Kaliforníu. Dóttir
píanókennara og kórstjóraog
ólst því upp innanum tónlistar-
fólk, tóna og tvfundir. Þriggja ára
gömul byrjaði hún að spila á pía-
nóið og tróð upp fyrst í kirkju þeg-
ar hún spilaði Þrjár blindar mýs
með smáum hnefunum á svörtu
nóturnar. Seinna átti hún eftir að
bæta um betur og leika u.þ.b. tíu
mismunandi útsetningar á hinum
sígilda kristniboðssmelli Áfram
kristmenn krossmenn og syngja í
kirkjukórnum. Þegarhúnvartíu
ára gömul söng hún í óratoríu
Bachs, Messíasi, og var sú eina
sem hafði vald til að syngja milli-
raddimar. Þávarhún þegarbyrj-
uð að semja stutttónverkfyrir
píanó.
Það fer ekki dult, að Carla er
sérstakur efniviður í tónlistar-
sköpun, listamaður sem hlýðir
straumum en ekki stefnum. En
svo virðist sem hún hafi síður en
svo átt auðvelt með að taka þá
ákvörðun að verða músíkant og
tónskáld. Hún segir: - Ég hætti í
skóla 15 ára gömul, strax að
loknu skyldunámi, og fór í verk-
námsskóía, þar sem mér var
kennt að vaska upp. í u.þ.b.
fjögur ár reyndi ég að gera það
upp við mig hvemig ég vildi haga
lífi mínu, hvað ég ætti til bragðs
að taka í mínu eymdarlífi. Tónlist
kom ekki til greina, því að ég áleit
ekki að hægt væri að lifa af henni
og geri ekki enn. En mér fannst
ég verða að læra að komast í
snertingu við þjóðfélagið. Og ég
ígrundaði uppvask, eða að verða
einkaritari (en ég kunni ekki rétt-
ritun), - loks, löngu síðar, upp-
götvaði ég, að ég gæti raunveru-
lega tengt þetta tvennt saman;
samið tónlist og átt þrátt fyrir allt
samleið með þjóðfélaginu. Auð-
vitað hefði ég átt að skilja þennan
möguleika fyrr, en í þeim hæfi-
leikaprófum sem lögð voru fyrir
mann í gaggó, og áttu að vísa á
getu manns, var tónlist þar að
sjálfsögðu að finna.
Á síðari hluta sjötta áratugar-
ins, flutti Carla til New York þar
sem nafn hennar varð senn þekkt
á meðal framúrstefnu-djass-
rokkara, og menn eins og George
Russell og Paul Bley (sem Carla
átti eftir að giftast og skiija við
síðar) léku verk hennar opinber-
lega, einnig víbrafónleikarinn
Gary Burton (sem hefur gefið út
plötu eingöngu með verkum eftir
Cörlu Bley), og Charley Haden’s
Liberation Music Orchestra (sem
sameinaðist að nýju árið 1982
undir nafninu Charlie Haden’s
Liberation Express og kom m.a.
við hér á landi það ár á hljóm-
leikaferðalagi þar sem Carla fór í
fararbroddi sem tónskáld, stjórn-
andi og píanóleikari.)
Árið 1964 stofnaði Carla Bley
ásamt síðari eiginmanni sínum,
trompetleikáranum Michael
Mantler, hljómsveitina Jass
Composers Orchestra, sem vakti
verulega athygli fyrir frumleika
tónverka Cörlu. Til að fá örlitla
innsýn í tónsköpun Cörlu Bley,
þá hefur nánast öll svört tónlist
verið hennar helsti aflvaki til
tjáningar og einnig komst hún á
barnsaldri í náin kynni við Beet-
hoven.
Hún lék ekki með öðrum tón-
listarmönnum á unglingsárum
sínum, og aðspurð hversvegna,
hefur hún sagt: - Ég er ekki
hljóðfæraleikari. Ég er tónskáld.
Ég get auðveldlega hrist stykki
fram úr erminni á staðnum -
hlaðið mistökum. Ég verð að
íhuga það vandlega, síðan útset
ég það, og það er ekki fyrr en að
vel hugsuðu máli sem ég kemst að
endanlegri niðurstöðu. Carla var
spurð hvort það hafi hindrað
hana á einhvem hátt á tónlistar-
ferlinum að hún er kona; hvort
hún hafi orðið fyrir einhverri mis-
munun vegna kynferðis síns:
- Nei, ekkert grófari en þegar
foreldrar mínir hirtu af mér þá
smáaura sem fólk gaf mér á
hljómleikum þegar ég var að
syngja einsöng með kómum...
En annars hugsa ég ekki þann-
ig. Ég á við, fólk gæti notfært sér
mig, og það má vera að ég sé
misnotuð sem kona, en ég verð
ekki vör við það sjálf. I mínu
eigin umhverfi er ég það ömgg-
lega ekki.
Carla Bley vann að ópem sinni
Escalator over the hill árið 1968, í
samvinnu með textasmiðnurm
Paul Haines, og lauk við hanJ
fjómm ámm seinna. Hún fékk ti|
liðs við sig óvenjulegt samansafrí
af hljómlistarmönnum við uppí
töku óperunnar á hljómplötu s.sj
eins og Lindu Ronstadt, Jacjt
Bmce, John McLaughlin, Ga|b
Barbieri, Don Cherry og Charne
Haden (þeir tveir síðastnefndu
þá í Omette Coleman’s Quartett,
en síðar, ásamt Cörlu, saman í
„Frelsishljómsveitinni"). Það má
geta nærri um útkomuna! Eftir
þetta verk, hefur Carla Bley
haldið uppi samstarfi við bæði
rokk- og djasstónlistarmenn, t.d.
Julie Driscoll, (á plötunni Tropic
Appetides) og trommara Pink
Floyd, Nick Mason, á Fictitious
Sports, ’81, sem, þrátt fyrir að
Carla hafi samið öll lög og texta,
kom út undir nafni Nicks. - En
sem óperuhöfundur, skrifar hún
þá með söngvara sérstaklega í
huga?
- Mér líka ekki þjálfaðar radd-
ir, svo ég skrifa fyrir amatöra. Ég
nota þjálfaðar raddir eingöngu
upp á grín. Ég skrifa fyrir tón-
listarfólk sem syngur. Rödd og
tónlistargáfa fylgist ekki alltaf að.
Mér finnst það síðarnefnda vera
númer eitt.
Mörg verka Cörlu em gletti-
lega snjöll og sérstök, láta aldrei
illa í eyrum. Enginn sem hlýðir á
tónlist hennar fer varhluta af
hinni háðslegu beiskju, sem er
svo einkennandi fyrir verk henn-
ar (-hlustið t.d. á plötunaFititio-
us Sports, þar em bæði textar og
lög að springa úr fáránleika og
kímni).
Við skulum að endingu grípa
niður í viðtal það sem hér hefur
verið stuðst við.
- Ég hlusta ekki á plötur. Ég
kýs ýmist þögnina, eða að hlusta
á sjálfa mig semja tónlist. Þetta
tvennt hef ég í hávegum. Ég
hlusta einu sinni á .mínar
fullgerðu hljómplötur og þá
aldrei aftur. Ég kýs þögn. ■
- Hvað um móðurhlutverkið?
Það tekur mikinn tíma að semja,
tónlist og það tekur líka míkinn
tíma að ala upp bam. Hvemig
leysirðu það?
- Það hefur aldrei verið vanda-
mál hjá mér. Dóttir mín hefur
alltaf skilið, að ég skrifa tónlist,
og gætt þess að tmfla mig ekki og
gerir það enn.
Vinnur hún samkvæmt ákveð-
inni áætlun?
- Já, frá níu til fimm með mat-
arhléi. Ég er ekki að grínast, ég
vil raunverulega vinna eins og
múrari. (Munið að hún er naut
blessunin.)
önnur áhugamál?
- í allan dag var ég á skautum.
Ég er fyrir útiveru, garðinn minn,
mér finnst gaman að byggja hús,
moka snjó í stafla. Mér finnst gott
að fá svolitlu ráðið um það sem er
í kringum mig, það gerir mig
hamingjusama.
9
Þungt hjarta. Melódía; hljóm-
fegurð, sönglag.
Nánast bitur Ijúfleiki tjáður á
leiksviði, skipulögð vinnubrögð
frjósemisgyðju.
Carla byggir kastala, en það er
enginn venjulegur kastali sem
hefur dyrnar á efstu hæð og
gluggana opna ofan í jörðina. Þú
kemst heldur ekki í heimsókn
nema þú kunnir að fljúga, en það
er bannað að nota platvængi.
Krítarkort duga ekki, hvað þá
nafnbót. Ef þú kemst inn þarft þú
ekki að nota sérstök sólgleraugu
til að sjá, hvað þá orð. Oj bara,
orð! Fátt er ómerkilegra en orð
þama inni í húsakynnum hins
sérvitra „gestgjafa", nema ef þau
eru notuð í eintómu gríni og ein-
göngu til þess að spotta gestinn.
Þá fá þau milda og djúpa
meiningu, og verða kannske að
kennisetningum djúpviturra
manna, sem þá verða gerðir að
leiðtogum sem síðan verða myrt-
ir fyrir friðarboðskap sinn.
Og þar sem eyrun hafa ekki
augu, verður uppspunnin atburð-
arás augljóslega sett á svið, með
persónum og ieikendum. Saga
er sögð án frásagnar. Kinnhest-
ur! Fjarræn návist paródíu mynd-
ar kryppu á kött sem tekur hliðar-
spor án tillits til þyngdarlögmáls
jarðarinnar. Taktviss lausn frá
takti.
En, þá hverfur allt í einu köttu-
rinn eins snögglega og hann birt-
ist, rétt eins oa frændi hans í
Undralandinu. An þess þó að láta
sér til hugar koma að skilja eftir
sig hiö minnsta glott. Þvílík
ósvífni!
Einhverjar raddir sjást kyssast
á haus og svo eru tjöldin dregin
fyrir í lausu lofti. Að þessu loknu
er blásið í kuðung; hafið þið feng-
ið skilaboöin?
Loftbólur 'og sápukúlur. Svo-
leiðis er tónlistin. Verður hvað
sem það kostar ekki hneppt í
varðhald lærdómsins, eða troðið
í kassa og merkt. Aðeins skynjuð
i óhlutbundnum veruleika líf-
slöngunar, og með öllu tilgangs-
laus.
Tónlistin: Hinn heilagi til-
gangur tilgangsleysisins. Tónlist
Cöriu; mikil þögn, og í þessari
þögn er allt eða ekkert. $
Laugardagur 3. nóvember 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15