Þjóðviljinn - 25.11.1984, Blaðsíða 5
MARTIN
FURÐUR
Samdráttur í
viskí-iðnaði
hœtta á atvinnuleysí sums staðar í Skotlandi
Mikil sorg ríkir nú í smábænum
South Queensferry, sem er um
tuttugu kílómetra frá Edínborg, á
leiðinni frá höfuðstað Skotlands
upp í hálöndin: á næstunni verð-
ur blöndunar- og átöppunarstöð
viskígerðarinnar DCL, sem er þar
í bænum, lokað og þeir 340
menn, sem við hana störfuðu,
munu fylla flokk þeirra sjö þús-
und, sem misst hafa vinnu sína
við viskí-iðnaðinn síðan 1978.
Vegna kreppunnar verður DCL,
sem framleiðir þó ýmsar heims-
kunnar viskí-tegundir svo sem
„Jón á röltinu", „Svart og hvítt"
og „Hvítaklárinn1', aðdragasam-
an seglin og hefur jafnvel verið
tilkynnt að hætt verði að fram-
leiða viskítegundina „Vat 69“
sem var þó í miklum uppgangi
fyrir einum tíu árum.
Fram til 1979 var mikil útþensla
í viskí-iðnaðinum og hafði salan
aukist jafnt og þétt í áratug.
Framleiðendurnir voru því mjög
bjartsýnir og hófu framleiðslu á
talsverðu magni fyrir framtíðina,
en til að geta kallast „skoskt
viskí" þarf viskíið að vera a.m.k.
þriggja ára gamalt, og það fer
ekki í úrvalsflokk nema það sé
sex ára eða enn eldra. En þessi
bjartsýni var ekki á rökum reist,
því að markaðurinn dróst saman
vegna kreppunnar og svo fylltist
hann af ýmsum lélegum viskí-
tegundum, sem voru mjög ódýr-
ar. Þegar viskíið, sem byrjað var
að framleiða í kringum 1979, var
nógu gamalt til að vera selt, var
ekki lengur markaður fyrir það.
Það voru miðlungsgóðar viskí-
tegundir eins og „Vat 69“, sem
fóru verst út úr kreppunni, og fór
því svo að framleiðsla þess bai sig
ekki lengur. Hins vegar minnkaði
salan ekki á bestu tegundunum,
og útflutningur þeirra stendur
með blóma: „Fyrir útlendinga er
viskí mjög fínn drykkur, hann er
framandi og minnir menn á
vindla og fágaða klúbba", er haft
eftir einum starfsmanni „Langa
Jóns". „Við höfum tekið eftir
því, að þegar gæðin eru jöfn selst
það viskí betur sem er svolítið
dýrara en annað".
Markaðssérfræðingar halda
því þess vegna fram, að viskí-
gerðin DCL hafi gert rétt í því að
hætta framleiðslu „Vat 69“ og
veðja þess í stað á „Jón á rölt-
inu", sem er frægur og virtur
drykkur um víða veröld. En
kreppan í viskí-framleiðslunni
getur verið alvarlegt áfall fyrir
ýmis héröð Skotlands. í einni
götu í South Queensferry munu
32 menn missa atvinnuna þegar
blöndunar- og átöppunarstöð
DCLverður lokað í mars, og
missa þá heilu fjölskyldurnarsitt
h'fsframfæri. Víða í dölum skosku
hálandanna er afkoma heilla hér-
aða komin undir einni bruggstöð,
sem er eini vinnuveitandinn.
(,,Libération“).
Barnamyndatökur
Borgarnes -
Sveitarstjóri
Starf sveitarstjóra Borgarneshrepps er laust til um-
sóknar. Umsóknarfresturertil 10. janúar 1985. Nánari
upplýsingar veita Gísli Kjartansson oddviti og Hún-
bogi Þorsteinsson sveitarstjóri.
Borgarnesi 21. nóvember 1984
Sveitarstjóm Borgarness.
Aðalfundur Samtaka
kvenna á vinnumarkaðnum
Aöalfundur Samtaka kvenna á vinnumarkaðnum
verður haldinn að Hótel Hofi við Rauðarárstíg sunnu-
daginn 2. des. kl. 14.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Félagar fjölmennið! Tengihópur S.K.V.