Þjóðviljinn - 25.11.1984, Blaðsíða 19
SKÁK
Scevar skákmeístari T.R. 1984
Nú er lokið einvígi þeirra Sæv-
ars Bjarnasonar og Benedikts
Jónassonar um titilinn „Skák-
meistari Taflfélags Reykjavíkur
1984“. Fóru leikar á þann veg að
Sævar stóð upp sem sigurvegari.
Til þess að úrslit næðust þurfti þó
fimm skákir því eftir hinar fjórar
hefðbundu hafði hvorugum tek-
ist að vinna skák. Það var greini-
legt á þeirri fimmtu að báðum
leiddist þófið og tefldu báðir stíft
til vinnings. Eins og lesendur
hafa sennilega gert sér grein fyrir
sigraði Sævar í þessari baráttu-
skák með fyrrgreindum
afleiðingum.
Sævar Bjamason er vel að
þessum sigri kominn og nú fyrr á
árinu varð hann Skákmeistari
Reykjavíkur. Hann, eins og
reyndar Benni einnig, er einn af
þeim fáu mjög sterku skák-
mönnum landsins sem eru tíðir
gestir á innlendum vettvangi. Þar
á ég við það vandamál sem kemur
upp þegar menn hafa náð
ákveðnum styrkleika þá virðast
þeir hætta að mestu þátttöku í
hinum hefðbundnu mótum inn-
anlands nema há verðlaun séu í
boði. Þetta er orðið mikið vanda-
mál og er kominn tími fyrir móts-
haldara að hugsa sinn gang þó
ekki sjái ég neina eina lausn í
sjónmáli. Það má kannski reyna
að bjóða nokkrum erlendum
skákmönnum, það mundi eflaust
trekkja að. Þessir menn þyrftu
ekki að vera í neinum
heimsklassa því nóg er af stiga-
háum skákmönnum sem þyrstir í
skákmót. Eins og áður sagði er ég
ekki að koma með lausn á vanda
heldur reyna að efla umræðu um
þessa hluti.
Við skulum skoða þá skák er
réði úrslitum í einvíginu:
Hvítt: Benedikt Jónasson
Svart: Sævar Bjarnason
Spánski leikurinn.
1. e4 e5
Sævar er þekktur fyrir góðan ár-
angur með frönsku vömina en
hana hefur hann teflt svo til allt
sitt líf. Er nema von að maðurinn
vilji breyta til?
2. Rf3 Rcó
3. Bb5 aó
4. Ba4 Rf6
5. 0-0 Be7
6. Hel b5
7. Bb3 0-0
8. c3d6
Allt kallast þetta þekkt teóría.
Nú gat svartur boðið upp á hina
tvíeggjuðu Marshall árás með 8. -
d5 en Sævar kýs heldur lokaðar
stöður.
9. h3 Bb7
10. d4 He8
11. Rbd2 Bf8
12. Bc2 exd4
Hvasst framhald, svartur gat val-
ið t.d. 12. - g6 13. d5 Rb8 14. b3!
og með c4 tryggir hvítur sér yfir-
burði í rými.
13. exd4 Rb4
14. Bbl c5
15. d5 a5!
Smellinn leikur eins og brátt sést,
a6 fyrir riddarann skal það vera!
16. Rfl g6
17. Rg3 Bg7
18. a3
Kannski vanhugsaður leikur,
riddarinn rekinn á leið í ferðalag
sem hann ætlaði sér hvort eð er.
Ég mæli með 18. a4.
18. - Ra6
19. Bg5 Db6
20. Dd2 Hac8
21. Bc2 Rd7
22. Habl c4
Sævar hefur nú lokið undirbún-
ingi sínum og brátt koma riddar-
arnir í spilið. Benni reynir nú
sóknaraðgerðir á kóngsvæng en
svarstaðan er þar föst fyrir.
23. Bh6 Bh8
24. Df4 Re5
25. Rg5 Rc5
26. De3
Nú kemur fát á hvítan og leikir
hans bera nú merki ráðleysis.
Stöðuyfirburðir svarts em nú
orðnir greinilegir og hvítur verð-
ur að leita á taktísk mið. Ekki
dugði þó strax 26. Rh5 vegna
Dd8 og ekki heldur 26. Rf5 g6.
26. - Dc7
27. Dd2 Red3
28. Bxd3 Rxd3
29. He3 Be5!
LÁRUS
JÓHANNESSON
Sterkur leikur, hótar m.a. að
taka á b2 og leika c3. Hvítur er
þvingaður til að leggja á stöðuna.
30. Rf3 Bf6
31. e5
Hvað annað?
31. - dxe5
32. Re4 Bg7
33. Bxg7 Kxg7
34. Rh4 De7
Ennþá þvingar Sævar andstæðing
sinn út í ævintýri sem ekki stand-
ast. Þetta kallast á fræðimáli, ef
mig misminnir ekki, próvókatív
taflmennska.
35. Rf5 gxf5
36. Hg3+ Kh8
37. d6 Dh4!
Þennan leik sá Benedikt ekki og
má segja að hann geri út um tafl-
ið. Enn eru að vísu gildrur hér og
þar en Sævar slær ekki feilnótu í
framhaldinu.
38. Rg5 Hf8
39. Dxa5 Dd4
40. Dxb5 Bc6
41. Da6 Bd7
42. Db7 Dxd6
43. Hbl f6
44. Rxh7 Hf7
Biðleikur Sævars, staðan er
gjörunninn leikurinn hélt þó
áfram um stund en að lokum
gafst Benedikt upp.
&otf hcmttor etf
Aðalstræti 4 — Bankastræti
TRYGGING GEGN
YERDBÓLGU
Á sex mánaða fresti er óhreyfð innstæða borin saman við
ávöxtun verðtryggðra reikninga með 6.5% vöxtum og
hagstæðari kjörin látin gilda. S/ík trygging er sérstaklega
mikilvæg í ótryggu ástandi þjóðmála.
Sparisjóðurinn í Keflavík, — Sparisjóður Kópavogs, — Sparisjóður Mýrasýslu, — Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis, — Sparisjóður vélstjóra.