Þjóðviljinn - 25.11.1984, Síða 14
BÆJARROLT
Byggingarfélag verkamanna Reykjavík
Aðalfundur
félagsins verður haldinn í Hótel Hofi, Rauðarárstíg 18,
miðvikudaginn 28. nóv. 1984, kl. 20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf
Breýtingar á samþykktum félagsins
önnur mál
Félagsstjórnin.
Fjárhagsdeild Sambandsins óskar eftir að ráða í eftir-
taldar stöður:
I. Deildarstjóra í Verðlagningardeild
Leitað er að manni með stjórnunarhæfileika sem
hefur reynslu eða þekkingu í tollafgreiðslu og
verðútreikningum. Bókhaldskunnátta nauðsyn-
leg.
II. Starfsmann í tollmerkingar
Leitað er að starfsmanni til að sjá um tollmerkingar
á tollskjölum. Æskilegt er að umsækjandi hafi
þekkingu á tollskrá svo og lögum og reglugerðum
um tollamál.
Umsóknareyðublöð hjá starfsmannastjóra, sem veitir
nánari upplýsingar. Umsóknarfrestur er til 5. des. nk.
SAMBAND ÍSL. SAMVINNUFÉIAGA
STARFSMANNAHALD
LINDARGÖTU 9A
Sálfræðiþjónustan
Laufásvegi 17 sf.
Höfum opnað sálfræðistofu að Laufásvegi 17,
Reykjavík.
Sérsvið:
Sálfræðileg ráðgjöf varðandi ungbörn, börn og
unglinga:
Geðræn vandkvæði, þroskafrávik og fatlanir.
Tímapantanir mánudaga-fimmtudaga kl. 17-18 og
laugardaga frá kl. 10-12, sími 20159.
Edvald Sæmundsen sálfræðingur
Páll Magnússon sálfræðingur
Tryggvi Sigurðsson sálfræðingur
Þorgeir Magnússon sálfræðingur
RAFVIRKJAR -
r™ RAFVÉLAVIRKJAR
Félagsfundur verður haldinn mánudaginn
26. nóvember n.k. kl. 18:00, í Félagsmiðstöð
rafiðnaðarmanna, Háaleitisbraut 68.
Fundarefni: Nýir kjarasamningar.
Stjórn FÉLAGS ÍSLENSKRA RAFVIRKJA
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Laus staða hjá Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg óskar eftir að ráða starfs-
mann til starfa í Tómstundaheimili Ársels.
Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
Menntun og reynsla á sviði uppeldismála
æskileg.
Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma
78944.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð
á sérstökum umsóknareyðublöðum, sem
þar fást fyrir kl. 16.00, mánudaginn 3. des-
ember 1984.
Það gœti verið gaman
Ég og konan mín og dóttir fór-
um í þykkar peysur eftir matinn á
fímmtudagskvöld og margvöfð-
um um okkur trefla. Síðan þröm-
muðum við heldur ábúðarmikil
niður Spítalastíginn, beygðum til
hægri inn Þingholtsstrætið og
hálfhlupum svo niður
Amtmannsstíginn. Við léttum
ekki för okkar fyrr en niður á
Austurvelli. ískuldi og norðan-
nepja. Við fórum til að sýna sjálf-
um okkur og verkalýð þessa
lands samstöðu.
Á Austurvelli stóðu þúsund
manns, dúðaðir í kuldanum,
þögulir og íhugulir með kerti og
blys. Ljósin flöktu í norðanvind-
inum og vörpuðu draugalegu
bliki á andlit fólksins. Glugga-
tjöldin voru vandlega dregin fyrir
sal neðri deildar og þar sáust eng-
in andlit í glugga.
Inni í þessu húsi, sem hefur
kórónu og kóngsstafi yfír dyrum,
sátu 60 menn og konur sem hafa
verið kosin af hinni þögulu þjóð
utan dyra til að fara með mál sín.
Varla hefur hin virðulega sam-
kunda verið kosin til að ógilda
eigin samninga við fólkið utan
dyra. Það gerir hún samt - eins og
að drekka kalt vatn.
Eftir að hafa norpað um hríð á
alþingi götunnar ákváðum við, ég
og konan mín og dóttir, að ganga
upp á þingpalla og líta á hitt al-
þingið. Þingmenn sátu makinda-
lega í stólum sínum og ef ein-
hverjir þeirra voru með blá eða
rauð nef var það ekki af kulda
heldur einhverju allt öðru.
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra var að halda ræðu
með sjónvarpsvélar og hljóð-
nema fýrir framan sig. Ekki var
ræðan tilþrifamikil þó að hún
heyrðist og sæist út í hvert lands-
hom, til Unaðsdals, Grenivíkur,
Bakkafjarðar og Eyrarbakka.
Við sátum hljóð uppi á pöllunum
og það sótti á okkur svefn undir
þessari löngu og svæfandi ræðu.
Kristín Ástgeirsdóttir þing-
maður sat til hægri handar við
ræðustól ráðherrans og hún hóst-
aði. Skyndilega varð mér ljóst að
þessi hósti mundi heyrast út á
hvert krummaskuð, jafnvel allt
norður á Hraun á Skaga. f*á datt
mér í hug að við, ég og konan mín
og dóttir, gætum kannski líka
Iátið heyra í okkur. Ég laut niður
að konu minni og hvíslaði í eyra
hennar: Eigum við að hrópa eins
hátt og við getum: Niður með
stjórnina!? Hún leit á mig með
glampa í augum og sagði: Eigum
við?
En þá kom upp í mér smáborg-
arakenndin, hollustan við lög og
rétt, hégómagimdin, óttinn við
æmmissi og álitshnekki. Mér
varð Ijóst að mig skorti hug og
dug. Bölvaður aumingjaskapur.
Ég sagði með nokkmm semingi
við konu mína: Það gæti verið
gaman. En svo var það ekki meir.
Við læddumst þögul út í nepjuna
og kuldann.
-Guðjón
ALÞÝBUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið -
Akranesi
Opið hús er öll
mánudagskvöld í Rein.
Næsta mánudag verður rætt
um verkalýðsmál.
Félagar mætið vel og takið
með ykkur gesti.
Kaffi á könnunni.
AB Selfossi
Almennur
félagsfundur
verður haldinn að Kirkjuvegi 7
Selfossi, þriðjudaginn 27. nóv-
ember kl. 20.30. Fluttar fréttir af
flokksráðsfundi, rætt um
kvennamál, vinstra samstarf
o.fl. Fulltrúi frá kvennafylkingu
kemur á fundinn. - Stjórnin.
Konur-
1985 nálgast!
Miðstöðin minnir allar konur á
undirbúning vegna loka
kvennaáratugsins 1985.
Fimm opnir hópar hafa hafið
störf á vegum ’85 nefndarinn-
ar, sem 23 samtök kvenna
standa að.
Hópamir eru:
Gönguhópur
Listahátíðarhópur
Alþjóðahópur
Fræðsluhópur
Atvinnumálahópur.
Skráið ykkur til starfa strax.
Allar upplýsingar um fundar-
tíma og starf hópanna fást hjá
Jafnréttisráði, síminn er
27420.
Kvennafylklngin.
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
I
‘m®
Tryggingamiðstöðin h/f
tekur fram að gefnu tiléfni
að félagið mun framvegis
3em hingað til, veita góðúh
Viðskiptavinum sínuríi \sítí’
bestu kjör.
Góð þjónusta
er sérgrein okkar.
Aðalstræti 6 sími 26466-