Þjóðviljinn - 08.12.1984, Síða 8

Þjóðviljinn - 08.12.1984, Síða 8
BÓKMENNTIR Vitskerðing og viturleiki Jón Óskar á sýningu sem nú er á verkum Sölva Helgasonar í Þjóðminjasafninu í tilefni af útkomu bókarinnar. Ljósm.: -eik. Jón Óskar: Sðlvi Helgason - listamaður á hrakn- ingi. Isafold 1984. Jón Óskar hefur víða leitað fanga til að setja saman þessa myndarlegu ævisögu kynja- mannsins Sölva Helgasonar. Stundum finnst lesandanum að höfundur hefði mátt gæta meiri sparsemi í notkun heimilda - einkum í fyrri hlutanum þar sem segir frá harkalegum viðbrögðum yfirvaldsins við fremur mein- lausum brellum Sölva (eins og „yfirnáttúrulegum reisupassa“ sem hann skrifaði handa sjálfum sér í nafni sýslumannsteturs nyrðra) og flakki hans um landið. En á hitt er að líta, að með taf- samri nákvæmni Jóns er því ræki- lega til skila haldið hve ótrúlega smásmugulega þolinmótt rétt- arkerfi aldarinnar er við að gera hinum sérstæða og listelskandi farandmanni sem flest til miska. Síðari hluti bókarinnar lýsir illri vist Sölva í dönsku fangelsi og á fátækrastofnun, heimkomu hans, flakki um landið, nýjum málarekstri hans vegna og einnig frá handritum hans og myndum stórmerkilegum. Og freistast þá lesandinn miklu síður en áður til að kvarta yfir ofgnótt efnis: hér fer saman heimildarýni og túlkun af því tagi sem vel er við hæfi í bókum þessarar ættar. Jón Óskar telur að Sölvi Helgason hafi ekki notið sannmælis. í eftirmála segir hann meðal annars: „Tilgangur minn... er að flytja almenningi sannari sögu af ævi- ferli Sölva Helgasonar en gert hafði verið til þessa dags, leiða fram sannleikann um það hver hann var þessi margstraffaði og margníddi förumaður, sem jafnvel skáldin höfðu ekki getað skrifað eða ort um nema með undirgefni við rógmælgi þjóðsög- unnar“. (248). J>að er í þessu ljósi, sem Jón Óskar Iýsir Sölva ekki sem „kyn- legum kvisti" fyrst og fremst, heldur sem efni í listamann, máski snilling, sem harðneskja tímans lék meira en grátt. Bestan samherja í þessari viðleitni á Jón Óskar sér í myndum Sölva, en ailmargar þeirra eru prýðilega lit- prentaðar í bókinni, einkenni- lega seiðsterkar myndir, hvort sem þær eru skrautlist eða þá fantasíur um sjálfan Andskotann á íslandsferð að heimsækja vini sína. Það er líka merkileg upp- lifun að lesa ýmsa þá texta eftir Sölva sjálfan sem höfundur til- færir, eins og t.d. bréf til Jóns Sigurðssonar, þar sem Sölvi bið- ur um aðstoð til að ná bók sem hann skrifaði í fangelsinu. „um ...grimmdina þar og guð- leysið höfðingjanna yfir hegning- arstaðnum og meðferð þeirra hina skelfilegu á aumingjunum, sem varnað er réttar síns, og eru þó bornir til frelsis og sannleiks og friðar, ekki minna en þeir þverhöfðarnir sálarlausu rang- lætisins og grimmdarinnar. Ham- ramir þjónar syndarinnar, móður anskotans!“ (bls. 139). Jón Óskar er öðru hvoru fullkappsamur við að rétta við mannorð Sölva. Til dæmis í kafla þar sem fjallað er um bókahnupl og útkoman verður helst sú, að engu er líkara en að sýslumaður- inn í Þingeyjarsýslu hafi lagt sér- staka gildru fyrir bókamanninn Sölva að hann félli í freistni og það „tækist að losa þjóðina í bili við einn af snillingum sínum". En þegar á heildina er litið er máls- vörn Jóns Óskars drengileg og finnur sér fróðleg rök. Til stað- festingar á því skal hér vitnað til túlkunar hans á því „mikilmenns- kuæði“ Sölva að hlaða á sig nöfnum stórmenna og ímynduð- um afrekum: „En í huga hans var vitundin um skyldleika við andansmenn veraldar það sem hélt honum ofan við dýrið, svo að hann yfir- bugaðist ekki í þrengingunum, en hefði nægilegan styrk til að brynja sig gegn algerðri brjál- semi, um leið og andi hans beið varanlegan skaða. Þetta felur í sér bæði vitskerðingu og vitur- leik: draumhugmynd til að lifa af, samræming brjálsemi og skyn- semi, einskonar vörn andans gegn blindu ofstæki grimmdar og heimsku samtímans." Þaö er sitthvað til í þessu, eins þótt Jón Óskar sé kominn með skilning okkar tíma á furðum sál- arlífsins fulllangt inn í vitund Sölva Helgasonar. Bókin er hin vandaðasta að frágangi. Otti og öryggisleysi Fríða Á. Sigurðardóttir Við giuggann smásögur Skuggsjá 1984. Hér eru níu sögur af ráðvilltum Reykvíkingum. Sögusviðið er yf- irleitt hversdagslegt og grátt, af- markað og þröngt, fólk talast vart við nema með einhverjum ónot- um, hugsanir þess fara í fábreyti- lega hringi, flestum líður illa; sumar persónur lenda í stórslys- um, aðrar tærast upp í ekki síður skelfilegum leiðindum hvunn- dagsins. Iðulega eru þetta þol- endur sem sjaldan skilja eigin vanda að fullu. Oftast eru þetta konur. Hér er eiginkona þumbaralegs húsbyggjanda (Ópið), eiginkona framhjáhaldara (Dans), fráskilin kona sem fantur hefur nauðgað (Dagsskíma), stelpa sem á tætara fyrir litla bróður (Stökkið), kona sem fer heim af balli með ókunn- ugum (Eitthvað), kona sem er kannski elt um nótt (Samfylgd). Þrjár sögur hafa sjónarhorn karl- manns, en fjalla engu að síður um konur, nema helst sagan Þetta kvöld. Þessar konur allar eiga sameiginlegan óttann og öryggis- leysið sem birtist í ýmsum mynd- um. Þær eru einmana, það er enginn sem skilur þær, enginn sem hlustar og samskipti þeirra við karlmenn hafa fært þeim lítið lán. Félagslegur bakgrunnur er ó- ljós og skiptir ekki máli. Sú vel tilhafða kona sem fer í utanlands- ferð er alveg jafnt smáð og hin sem þarf að láta sér nægja að fara á ball. Eiginmaður pelsklæddu konunnar er sami þögli fautinn og hinnar sem býr í blokk. Líf þeirrar konu sem vinnur úti hálf- an daginn er ekki vitund inntaksmeira en þeirrar sem flögrar um íbúð sína eins og fugl. Sögurnar snúast um tilfinningar og tilfinningar ráðast ekki af stéttarstöðu. í þeim snýst hlut- skipti konunnar um ást oghatur- löngun hennar stendur til hlýju, vemdar og faðmlags, en hún fær einungis kulda, vernd og í mesta lagi bak að hjúfra sig að. En þessi ófullnægja tekur á sig ýmsar myndir. í fyrstu sögunni heyrir konan nístandi óp sem vís- ast er hennar og bakvið öskrar Bubbi Morthens „Sieg heil!“ - hún bregst ekki við með neinum ósköpum heldur fer aðeins að suða í eiginmannsdrumbinum sem fellst á að vera heima eftir mikið þras sem satt að segja reynir töluvert á þolrifin í les- anda. Sagan fjarar þannig út og er Iengi að því. í öðrum sögum taka konur málin í sínar hendur og útvega sér stegg en hefðu bet- ur látið það eiga sig. í Dansi lendir konan í myrkviðum Afríku þegar hún fer að dansa við tvo svarta menn og ræður að sjálf- sögðu ekkert við það sem þá losn- ar úr læðingi með henni sjálfri, og leitar ásjár hjá eiginmanninum sem er úti í horni að kyssa annan kvenmann. í Dagsskímu er frá- skilin kona að reyna að vera sjálfstæð og neitar að taka aftur við eiginmanninum; hún hefur einhvern leppalúða heim með sér af balli og hún er vængbrotinn fugl og hann köttur sem ræðst á hana. Sagan endar á því að hún hringir í eiginmanninn. f Eitthvað fer söguhetja heim af balli með manni sem hefur falleg augu, þau fara upp í rúm en hann er svo fullur og ekki verður neitt úr neinu - í sögunni er gefið í skyn að þetta sé ekki í fyrsta sinn sem svona fer, það sem dregur hana að þessum auðnuleysingjum er eitthvað... Flestar eru þessar sögur vel gerðar, nema mér leiddist Stiginn þar sem einhver fullur náungi rausar þar til viðmælandi hans sofnar, sem er raunsætt. Fríða kann vel að fara með ramma- formið og má í því sambandi nefna sögurnar Dans og Eitthvað sem eru listavel ofnar. I Dansi er hún með þrjú tímaplön sem sífellt skarast í framvindunni - aðal- sagan er endurlit og við fáum á tilfinninguna að þetta eigi allt saman eftir að endurtaka sig. Fríða Á. Sigurðardóttir verður ekki sökuð um tilgerð í stfl eða óþarfa skreytni. Stfll hennar er fremur hófstilltur, orðin vekja ekki athygli á sjálfum sér því þau eru sjaldan óvænt og líkingamál- ið fær engan til að falla í stafi. Setningamar hjá henni em yfir- leitt stuttar og styttast eftir því sem á líður sögurnar og hugrenn- ingarnar verða ruglingslegri. Langoftast er lýst inn í eina per- sónu og hugsuðu tali er skeytt inn í frásögnina með þeim hætti að samskeyti sjást varla. Þetta hugs- aða tal og viðleitni til raunsæis - að sögumar séu trúverðugar, „eins og lífið er í rauninni" - hvort tveggja veldur því að málið á sögunum er ekki auðugt, eins og bókarkápuhöfundur segir, heldur ber mest á talmáli þar sem hið sérkennilega og persónulega víkur fyrir því almenna: einhvers konar almennri hugmynd ís- Ienskra raunsæishöfunda um það hvemig alþýðan talar. Sögur Fríðu em all einhæfar í framsetningu og stfl, þar er nán- ast ekkert um húmor, persónurn- ar eru lausar við þau smáskrýtnu sérkenni sem gerir einstakling að einstakling - en á móti kemur að þær em mjög vandvirknislega unnar og höfða án nokkurs vafa til margra. 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 8. desember 1984

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.