Þjóðviljinn - 13.12.1984, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 13.12.1984, Blaðsíða 7
Fiskverð Ráðskast með sjómenn með boðum og bönnum Margrét Frímannsdóttir: Ekki vilji sjómanna að al- þingi taki ákvörðun um fast fiskverð til 31. ágúst á nœsta ári. Margrét og Karvel Pálmason með tillögu gegn ríkisstjórninni. Það er fátítt að sjómenn eigi fulitrúa á alþingi, þrátt fyrir það er ráðskast með fáar stéttir meira með með lagaboðum og bönnum en sjómenn, sagði Margrét Frí- mannsdóttir þegar hún mælti fyrir breytingatillögu sem hún flytur ásamt Karvel Pálmasyni um að Verðlagsráð sjávarútvegs- ins ákvarði sjálft lengd fiskverðs- tímabilsins í stað þess að fastsetja það til 31. ágúst 1985 einsog gert er ráð fyrir í stjórnarfrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Sjómanna- samtökin hafa mótmælt þessari fyrirætlan ríkisstjórnarinnar og lýst yfir stuðningi við breytinga- tillöguna. í meðförum sjávarútvegs- nefndar neðri deildar lýsti Guð- mundur Einarsson fulltrúi Bandalags jafnaðarmanna sig andvígan hvers konar afskiptum ríkisvaldsins af þessum málum en kvaðst mundu sitja hjá við at- kvæðagreiðslu um málið. MargrétFrímannsdóttir sagði í umræðunni í Neðri deild alþingis: „Þessi breytingartillaga er hér flutt í samræmi við þau sjónarmið sem fram hafa komið frá for- mönnum Sjómannasambandsins og Farmanna- og fiskimannasam- bandsins,sem mættu á fundsjáv- arútvegsnefndar þegar hún fjal- laði um frumvarp ríkisstjórnar- innar um fiskverðsákvörðun. Á þeim fundi kom fram frá áðurn- efndum fulltrúum sjómanna, að þörf á nýju fiskverði væri augljós og þeir hefðu ekkert við það að athuga síður en svo, að nýtt fisk- verð tæki gildi frá 21. nóv. En þeir lýstu sig hins vegar mjög óá- nægða með þann vilja stjórnvalda að færa völd Verð- lagsráðs sjávarútvegsins til þess að ákvarða verðlagstímabil fisk- verðs yfir til Alþingis þrátt fyrir áðurnefnd ákvæði í lögum um Verðlagsráð. Þeir formenn sögðust ekki heldur fallast á það að þegar um svo langt verðtímabil væri að ræða eins og umgeturþ.e. frá21. nóv. 1984 til 31. ágúst 1985 sé óheimilt að segja fiskverði upp fyrr en eftir 1. júní 1985. Yfirleitt hefur fiskverð gilt frá 1. jan. til 1. Binding fiskverðs til langs tíma er ekki sjómönnum til hagsbóta í komandi kjarabaráttu þeirra, segir Margrét Frímannsdóttir. júní og þá með uppsagnarheimild í mars. Þeir Óskar Vigfússon og Guðjón Kristjánsson kváðust hafa gengið á fund sjávarútvegs- ráðherra og kynnt honum þessi sjónarmið sín. Það er ekkert vafamál að flest mælir með því að nýtt fiskverð verði tekið uppfrá21. nóv. s.l. þó ekki lægju aðrar ástæður að baki en þær að sjómenn fá einhverja Framhald á bls. 8 Náttúruvernd Uppstokkun í umhverfismálum Nokkrirþingmenn Alþýðubandalagsins leggja til viðamiklar úrbœtur á náttúruverndarmálum. Framlög til Náttúruverndarráðs og landgrœðsluácetlunar skert um helming að krónutölu ífjárlagafrumvarpinu, - aðeins 13 miljónir, en voru 26.4 miljónir á fjárlögum yfirstandandi árs Lögð hefur verið fram þings- ályktunartillaga á alþingi þarsem lagt er til að alþingi feli ríkis- stjórninni að undirbúa og fram- kvæma fjölmörg atriði sem brýn- ust eru talin á sviði umhverfis- og náttúruverndarmála og móta áætlun um aðgerðir til næstu 10 ára. í greinargerð kemur fram að eftir mikla vakningu í umhverf- ismálum hafi þau lent í nokkrum öldudal, sem birtist m.a. í því að framlög til Náttúruverndarráðs og til landgræðsluáætlunar eru skert um helming að krónutölu í fjárlagafrumvarpi 1985, í 13 milj- ónir króna í stað 26.4 miljóna króna á fjárlögum ársins 1984. Flutningsmenn þessarar viða- miklu tillögu eru Hjörleifur Gutt- ormsson, Helgi Seljan, Stein- grímur J. Sigfússon og Svavar Gcstsson. Tillaga þeirra félaga er svo- hljóðandi: Alþingi ályktar að fela ríkis- stjórninni að sjá til þess að undir- búin verði og framkvæmd eftir- farandi atriði til úrbóta í um- hverfismálum og náttúruvernd: 1. í tengslum við endurskoðun laga um Stjórnarráð Islands verði yfirstjórn helstu mála- flokka á sviði umhverfis- verndar sameinuð í einu ráðuneyti ekki síðar en í árs- lok 1985. 2. Undirbúin verði löggjöf um umhverfismál sem sérstak- lega taki til mengunarvarna á landi, í sjó og lofti, svo og framkvæmdaáætlun um að draga úr mengun frá frá- rennsli og verksmiðjum. 3. Endurskoðuð verði lög nr. 50/1981, um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, m.a. til samræmis við nýja löggjöf um mengunarvarnir (skv. 2. lið) og breytta yfirstjórn um- hverfismála (skv. 1. lið). 4. Lagt verði fyrir yfirstandandi Alþingi frumvarp til nýrra laga um náttúruvernd sem undirbúið hefur verið á veg- um Náttúruverndarráðs og stjórnvalda. 5. Gripið verði til samræmdra aðgerða til verndar gróðri með friðun og hóflegri nýt- ingu eftir því sem við á og komið á virkri stjórn og eftir- liti í þessu skyni. Næsta landgræðsluáætlun (1968- 1990) verði mótuð með hlið- sjón af slíku endurmati og nýjum viðhorfum. 6. Auknar verði rannsóknir á dýrastofnum á landi og í sjó við ísland og tryggt að við nýtingu þeirra og verndun sé tekið mið af vistfræðilegum sjónarmiðum. 7. Gerð verði átak í skipulags- málum með lagabótum og með langtímasjónarmið í huga og tekið tillit til þess að landið allt er skipulagsskylt. Bætt verði hið fyrsta úr vöntun á kortum og öðrum grunnforendum, svo að unnt sé að koma við nútímalegum vinnuaðferðum við undir- búning og gerð skipulagstil- lagna. 8. Náttúruverndarráð undirbúi í samráði við yfirvöld orku- mála áætlun um verndun vatnsfalla og jarðhitasvæða, fossa og hvera. Slík áætlun verði lögð fyrir Alþingi til kynningar og staðfestingar. 9. Mótuð verði opinber stefna f ferðamálum sem feli í sér nauðsynlegar verndarað- gerðir fyrir náttúru landsins með tilliti til breyttra sam- gönguhátta og aukins ferð- amannastraums. 10. Aukin verði fræðsla um ís- lenska náttúru, umhverfi- svernd og auðlindir í fjöl- miðlum og skólum, m.a. með því að nýta söfn, friðlýst svæði og náttúrulegt um- hverfi við þéttbýli með skipu- legum hætti í þessu augna- miði. Ríkisstjórnin láti gera framkvæmda- og kostnaðaráætl- un til næstu 10 ára um æskilegar úrbætur samkvæmt ofangreindu og leggi hana fyrir næsta reglulegt Alþingi til að auðvelda stefnu- mörkun og fjáröflun í þessu skyni.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.