Þjóðviljinn - 19.12.1984, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 19.12.1984, Blaðsíða 2
FRETTIR Félagsdómur Launafólk tapaöi Úrskurður félagsdóms í hag borginni. Haraldur Hannesson: vonbrigði, - gerum þetta öðruvísi nœst. Eg varð fyrir vonbrigðum með þessi úrslit, ég taldi einsýnt að þetta væri unnið mál, sagði Har- aldur Hannesson formaður Starfsmannafélags Reykjavíkur- borgar í gær um úrskurð Félags- dóms. Félagið höfðaði mál gegn borginni vegna vangreiddra launa í verkfallinu og í fyrradag var úrskurðað að borgin hefði verið í rétti þegar aðeins voru borgaðir fyrstu dagarnir í októ- ber. Dómnum er ekki hægt að áfrýja. Haraldur sagði að dómurinn hefði þau áhrif fyrst og fremst á kjaradeilur í framtíðinni að opin- berir starfsmenn mundu haga uppsögnum og atkvæðagreiðslu þannig að þetta kæmi gagnaðila ekki að notum. Hann benti á að ef atkvæðatalning um sáttatil- löguna hefði farið fram eftir mán- aðamót hefði ekki verið hægt að skera af laununum. Félagsdóm skipa Bjarni K. Bjarnason borgardómari, Gunn- laugur Briem yfirsakadómari og Björn Helgason hæstaréttarrit- ari. Auk þess sátu í dómi um þetta mál Ragnar Halldór Hall borgarfógeti fyrir fjármálaráðu- neyti og Sigurfinnur Sigurðsson á Selfossi fyrir BSRB.Einndómar- anna skilaði séráliti, sennilega BSRB-maðurinn. í dag verða flutt fyrir Félags- dómi tvö mál Blaðamannafélags- ins gegn útgefendum vegna van- greiddra launa í verkbanni. Að auki hefur verið flutt fyrir dómnum mál hárgreiðslunema, sem vilja fá skorið úr um hvort aðildarfélög VSÍ geta fellt samn- inga, sem vinnuveitendur hafa skrifað undir „með venjulegum fyrirvörum". Dóms í þessum málum mun að vænta fyrir ára- mót. - m Fiskverð Nýtt verð ekki fyrir áramót? Að sögn Sveins Finnbogasonar framkvæmdastjóra Verðlagsráðs sjávarútvegsins var á fundi yfir- nefndar í gær verið að fara yfir gögn um áhrif gengisfellingarinn- ar og fleira er varðar Fiskverð. Ekki er enn byrjað að semja um verðið, en sem kunnugt er á það fiskverð sem nú verður ákveðið að gilda frá 21. nóvember sl. Að sögn fróðra manna kemur þetta nýja fiskverð trauðla fyrir áramót. Flestir telja líklegt að allt verði sett í einn „pakka“ eins og það er kallað, fiskverð og nýir kjarasamningar sjómanna, en samningar þeirra renna út um áramótin. Vitað er að sjómenn vilja fá fiskverðið fyrst, en semja síðan um kjör sín, en eins og áður hefur verið skýrt frá í Þjóðviljanum er aðal krafa sjómanna að þessu sinni að kauptrygging þeirra verði tvöfölduð úr 17.100 kr. á mánuði í 35.000 krónur. - S.dór Páll Helgason: Aldraðir verða að taka höndum saman. Ljósm. eik. Aldraðir Verkamaður stofnar sjóð Á dögunum staðfesti forseti ís- lands skipulagsskrá fyrir Hús- byggingasjóð aldamótakynslóð- arinnar. Sjóður þessi er stofnað- ur af Páli Helgasyni fyrrum verkamanni og nú vistmanni á Hrafnistu í Hafnarfirði. Til- gangur sjóðsins er að stuðla að „byggingu íbúðahverfis fyrir afdraða á Reykjavíkursvæðinu, er verði í nánum tengslum við heilsugæslustöðvar sem veiti fullkomna heilsugæslu og læknis- þjónustu“, eins og segir í skipu- lagsskránni. Stofnfé sjóðsins er 200 þús. krónur gefið af Páli til minningar um foreldra sína, fósturforeldra og sambýliskonu, Maríu Þórðar- dóttur frá Hofsstöðum í Gufu- HAPPDRÆTTI ÞJÓÐVILJANS HaDDdrættismiöar hafa nú verið sendir út til áskrifenda og þeir vinsamiegast beðnir að gera skil sem allra fyrst. Nnr viötakítnda lilvtsiinamr Vd TXT Stotnun Hb I Reikn nr viðtakanda 7124 8844 i i i CO. CM O OC 1677 GÍRÓ-SEÐILL NR c Happdrætti Þjóðviljans Síðumúla 6 Greiöandi Jón Jónsson Laugavegi 200 105 Reykjavík Viöskiptastotoun viðtakanda. . Alþyðubanktnn h.f. Algreiðslustaöur viöskiptastofnunar Aðalbanki Tegund reikmr.gs ..^Ciroreikningur , Avisanareikningur . Hlaupareikmngur Skyrmg greiöslu Nftf vwM.tk.ind.l tilvi* :■ ' i i 1 •IFH r.HiM NFOAM MA Happdrættismiðar Hægt er að gera skil á afgeiðslu Þjóðviljans Síðumúla 6, hjá Alþýðubandalaginu Hverfisgötu 105, hjá umboðsmönnum um land allt, greiða með gíróseðli í banka eða pósthúsi (sjá sýnishorn um útfyllingu). Á Reykjavíkursvæöinu er hægt að sækja greiðslu til þeirra sem þess óska og er tekið við þeim beiðnum í síma 81333. dalssveit en hún er látin fyrir nokkrum árum. Hugmynd Páls er að ellilífeyr- isþegar á höfuðborgarsvæðinu taki höndum saman og stofni fé- lag er hafi að markmiði að byggja íbúðahverfi fyrir aldraða. „Mér finnst að við gamla fólkið eigum að stofna sjóð um alda- mótakynslóðina, sem lagði undirstöðurnar að lífskjörum landsmanna á verklegu og and- legu sviði. Við sem erum orðin það fullorðin og tilheyrum ekki „tölvukynslóðinni" eigum ekki að láta hugfallast, eða láta skammta okkur hugsjónir, varð- andi framgang góðra mála“, sagði Páll Helgason. - *g- 'T0RGIÐ! Auðvitað verðum við að bjóða réttum mönnum í lax. Hverjir myndu annars lána okkur 40 miljarða í erlendri mynt? Alþingi Jolaleyfi Stefnt er að því að síðustu þing- fundir fyrir jólaleyfi þingmanna verði á morgun, Fimmtudag. Pá hefur forsætisráðherra lagt til að þing verði kallað saman að nýju að loknu jólaleyfi eigi síðar en 28. janúar á komandi ári. Fyrirspurn Nýting- húsmæðra- skóla Hversu mörg skólahús í landinu eru byggð fyrir hús- mæðrakennslu og hversu margir þessara skóla eru starfandi í dag?, eru spurningar sem Guð- rún Helgadóttir hefur lagt fyrir menntamálaráðherra. Þá spyr Guðrún einnig um hversu margir nemendur stundi nú nám í húsmæðraskólum, hve margir kennarar annist kennslu þeirra, hvort einhverjir skólanna séu nýttir til annarrar kennslu, hversu mikið húsrými sé í Hús- mæðraskóla Reykjavíkur og hvaða starfsemi fari nú fram þar. -lg- Skattafrádráttur Stórfyriitækin fá frádrátt Við afgreiðslu alþingis á frum- varpi ríkisstjórnarinnar um frá- drátt frá skattskyldum tekjum vegna fjárfestingar í atvinnu- rekstri var lagður fram listi yfir þá aðila sem sótt hafa um slíkan frádrátt. I Ijós kom að einungis stórfyrirtæki hafa sótt um þennan frádrátt, en m.a. þingmenn Bandalags jafnaðarmanna hafa stutt frumvarpið með tilvísun til þess, að verið væri að auðvelda litlum fyrirtækjum og almenningi þátttöku í atvinnulíflnu. Páll Pétursson, Friðrik Soph- usson, Guðmundur Einarsson, Halldór Blöndal og Þorsteinn Pálsson lögðu til að frumvarpið yrði samþykkt, en með nefndará- liti Svavars Gestssonar og Kjart- ans Jóhannssonar fylgir listinn yfir þá sem sótt hafa um frádrátt frá skattskyldum tekjum vegna fjárfestinga í atvinnurekstri: Almennar tryggingar hf., Al- þýðubankinn hf., Arnarflug hf., Hf. Eimskipafélag íslands, Fjár- festingarfélag íslands hf., Flug- leiðir hf., Hampiðjan hf., Iðnað- arbanki íslands hf., Sjóefna- vinnslan hf., Skagstrendingur hf., Tollvörugeymslan hf., Versl- unarbanki Islands hf.. Fram kemur í nefndarálitinu að Guðrún Agnarsdóttir er sam- þykk þeim Svavari og Kjartani og lögðu þau til að frumvarpið yrði fellt, en allt kom fyrirekki, frum- varpið varð að lögum. -óg 2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 19. desember 1984

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.