Þjóðviljinn - 19.12.1984, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 19.12.1984, Blaðsíða 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663. Miðvikudagur 19. desember 1984 254. tölublað 49. örgangur djúðviuinn Ríkisstjórnin 1985 Skuldaklafiim þyngist Erlend lán hœkkuðu á þessu ári um 10 miljarða króna. Fjórði hluti útflutningstekna íslendingafer nú í að greiða afborganir og vexti aferlendum lánum. Heildarlánsfjáröflun til opin- berra aðila, Framkvæmda- sjóðs og atvinnuvega nemur alis 9.868 miijónum króna, að því er segir í fjárfestinga- og lánstjár- áætiun fyrir árið 1985 sem lögð var fram á alþingi í gær. Gert er ráð fyrir lánsfjáröflun innanlands að upphæð 2.568 miljónir króna, og tekið fram að um mjög ótrygga fjáröflun sé að ræða. Erlend lán eru áformuð árið 1985 að upphæð 7.300 milj- ónir króna til langs tíma en að auki skammtímalán að upphæð 1200 miljónir króna eða nýjar lántökur erlendis að upphæð 8500 miljónir króna. í áætluninni segir að gert sé ráð fyrir, að löng erlend lán muni í árslok 1984 nema 42.660 miljón- um króna á meðalgengi ársins en eru talin vera í árslok 1983 32.126 miljónir króna. Greiðslubyrði vegna afborgana og vaxta af löngum erlendum lánum er talin nema 23% í hlutfalli af útflutn- ingstekjum en var 20.6 % 1983. Gert er ráð fyrir að 4.700 milj- ónir fari til að greiða af erlendum lánum og síðan er áætluð lán- tökuþörf vegna viðskiptahalla 4800 miljónir króna. Þrátt fyrir þetta eru horfur á að greiðslu- jöfnuður verði óhagstæður um allt að 1000 miljónir króna, sem jafnframt rýrir gjaldeyrisstöð- una. -6g Rjúpan Guðríður Guðmundsdóttir hjá Sláturfélagi Suðurlands í Austurveri heldur hér á nokkrum rjúpum „að norðan". Mynd: E.ÓI. Togarauppboðin Kaldar kveðjur Sjávarútvegsráðherra: Verður að ganga til uppgjörs. „Það hefur allt verið gert sem frekast er kostur varðandi skuldbreytingar og það verður að gera dæmið upp. Því lengur scm þetta dregst því sárara verður það“, sagði Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra er uppboð togara sem nú eiga sér stað komu til umræðu í fyrirspurnartíma á alþingi í gær. Steingrímur J. Sigfússon sagði að heimamönnum þar sem togar- ar eru nú undir uppboðshamrin- um þættu þetta litlar fréttir og lítil svör frá ráðherra. Taka þyrfti sér- staklega á vanda þessara skipa og forða þeim frá uppboði. Svavar Gestsson sagði að ráð- herra væri að hlaupa frá vandan- um. Alþýðubandalagið hefði lagt fram ýtarlegar tillögur um hvern- ig tekið skyldi á þessum vanda en stjórnvöld ekki litið við þeim. -•g- Sjónvarp Skonrokk hafnar Bubba Umsjónarmenn telja myndstungu Friðriks Þórs ekki nógu góða Utgefendur Das Kapital, hljóm- sveitar Bubba Morthens og fé- laga, hafa skrifað útvarpsráði bréf vegna þcss að umsjónar- menn Skonrokks höfnuðu myndstungu (vídeóklippi) þar- sem hljómsvcitin leikur eitt af lögum sínum á Lækjartorgsfundi verkalýðsfélaga í haust. Anna Hinriksdóttir annar um- sjónarmanna sagði Þjóðvilja í gærkvöldi að þeim hefði ekki fundist efnið nógu vel unnið, - myndgæðin ekki nógu góð. „Þetta var feidandi úr og í fókus og myndavélin rásandi til og frá“. Skonrokki var boðin mynd- stungan til sýningar sl. föstudag. í hennar stað var sýnd önnur sem sjónvarpsmenn gerðu sjálfir í Gluggaþátt fyrir nokkru. Ásmundur Jónsson í Gramm- inu sem gefur út Kapítalsplötuna sagðist telja stunguna betri en ýmislegt annað Skonrokksefni, Veiði- tregða Engin sérstök uppgrip hafa verið hjá rjúpnaveiðimönnum á þessari „vertíð“ og síst á Suður- og Vesturlandi, að því er heimild- ir blaðsins herma. Nokkru betri mun veiðin hafa verið norðan- og austanlands. Þó sagði viðmæl- andi blaðsins á Akureyri að minna hcfði veiðst af rjúpu á Norðausturlandi en í fyrra. Ekki er því þó um að kenna að rjúpnastofninn hafi minnkað, raunar þvert á móti, því hann stækkaði í vor, að sögn þeirra, sem með því fylgjast. En veiði- skilyrðin hafa á hinn bóginn ekki verið góð að þessu sinni, snjólétt og rjúpan dreifð og stygg. Veiðin er því fyrirhafnarsöm og af þeim sökum hafa færri stundað hana en ella. En þeir Norðlendingar, sem lagt hafa sig fram og ekki talið eftir sér sporin, munu ýmsir hverjir hafa veitt vel í vetur. -mhg og þótti hart ef kvikmynd af hljómsveit á tónleikum væri ekki tekin gild til jafns við leiknar stungur. Friðrik Þór Friðriksson (Rokk í Reykjavík, Eldsmiðurinn, Kú- rekar norðursins) stýrði töku stungunnar. Hann sagði að sér virtist gagnrýnin ekki byggð á miklum kunnugleika á kvik- myndun kringum rokkmúsík. Fjórar vélar hefðu verið notaðar, þaraf tvær á hreyfingu, svipað og í mynd sinni um rokk í Reykja- vík. Hinsvegar væri auðvitað erf- itt fyrir íslenskar hljómsveitir og kvikmyndamenn að keppa við milljónungana sem tækju myndir af skonrokkstæi fyrir erlendar stjörnur. Friðrik og félagar vinna nú að annarri myndstungu sem Skon- rokki verður boðið að sýna næsta föstudagskvöld. Muggur Ennþá óupplýst Maðurinn sem leitað var í sam- bandi við stuldinn á listaverkinu eftir Mugg er nú fundinn. Hann gaf sig fram er blöðin gátu um málið í gær og er hann nú ekki grunaður lengur að sögn Helga Daníelssonar hjá Rannsóknarlög- reglunni. Helgi sagði að áfram verði unnið að rannsókn málsins. - GFr

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.