Þjóðviljinn - 19.12.1984, Blaðsíða 13
NYJAR B/€KUR
Smásögur
Guðbergs
Aðalsteinssonar
Af himnum ofan heitir safn
smásagna eftir Guðberg Aðal-
steinsson sem höfundur gefur
út. Þetta er önnur bók Guð-
bergs, en áður hefur komið út
eftir hann skáldsagan Björt
mey og hrein.
f bókarkynningu segir á þá leið
að bókin sé „safn smásagna“,
ævintýri þar sem hið ómögulega
getur gerst og gerist.
Geimvera nauðlendir á glugga-
sillu ungrar konu í Breiðholtinu.
Upprennandi stjórnmálamað-
ur leggur til atlögu tvið tvíhöfða,
eldspúandi dreka. Árrisull
skokkari hleypur fram á hafmey
við Ægissíðuna".
Bókin er 100 bls.
Guðrún Sveinsdóttir
Nýr barna-
bóka-
höfundur
Nýr barnabókahöfundur
kemur fram á vegum bókaút-
gáfu ísafoldarprentsmiðju h.f.,
Guðrún Sveinsdóttir á Orm-
arsstöðum á Fljótdalshéraði,
húsfreyja innan við miðjan
aldur.
Þótt þetta sé fyrsta bók Guðr-
únar, er hún orðin talsvert kunn
af sögum sínum, sem lesnar hafa
verið í barnatímum útvarpsins á
undanförnum árum.
Sagan, Jólasveinafjölskyldan á
Grýlubæ41 segir frá hinum þekktu
fjallabúum Grýlu og Leppalúða
og sonum þeirra þrettán talsins,
jólasveinunum. Einnig kemur
dóttirin Leiðindaskjóða við sögu,
svo og jólakötturinn. Nokkrir
aðrir íbúar Tröllabyggðar ganga
j b=u:" í" ,'jfa í>alj er Uf'ð
; .11 w. íí .. wí... at ri_yulegl og
hálda rnætti, síður en svo.
Segja má að Grýla sé aðalsögu-
hetjan. Hún er búkona góð og
hin rausnarlegasta í framgöngu,
þótt komin sé hún til ára sinna.
Og hjartalag hennar skelfir eng-
an krakka.
Þessi nýstárlega bók um jóla-
sveinafjölskylduna er prýdd
fjölda mvnda eftir unga stúlku,
Elínu Jóhannsdóttur. Bókin er
103 bls.
Landið þitt
ísland
Síðasta bindí kom-
ið út með sérkafla
umVestmanna-
eyjarog Þingvelli
Út er komið hjá Erni og Ör-
lygi fimmta bindi bókaflokks-
ins Landið þitt ísland eftir þá
Þorstein Jósepsson og Stein-
dór Steindórsson. í þessu
bindi eru sérkaflar um Vest-
mannaeyjar og Þingvelli. Guðj-
ón Ármann Eyjólfsson skóla-
stjóri ritar um Vestmannaeyjar
en Björn Þorsteinsson sagn-
fræðingur um Þingvelli. Bókin
er 272 blaðsíður. Litmyndir,
teikningar og málverk eru 300.
Hvunndagsljóð
Sólveigar
Pálsdóttur
Hvunndagsljóð nefnist bók
eftir Sólveigu Pálsdóttur sem
Prentsmiðja Suðurlands gefur
út.
Bókin geymir stökur og tæki-
færiskvæði, átthagakvæði og
ferðaminningar, studdar rími og
stuðlum, þá er og ljóðað óspart á
ýmsa samferðamenn. Síðasta
kvæði bókarinnar heitir Á ber-
angri og er þetta niðurlag þess:
En þó svo að fleyið mitt
fái þanri dóm
að farast við annesjakletta.
Mig langar að svolítið berangurs
blótn
á braki þess megi spretta.
Góði dátinn í
fjórðu útgáfu
Víkurútgáfan hefur gefið út
þýðingu Karls ísfelds á Góða
dátanum Svejk eftir tékkneska
édr^^umsisf^rsnn Jsroslsv
Hasek. Er þetta í fjórða sinn að
þýðing Karls er gefin út, en
hún kom fyrst út á striðsárun-
um.
Góði dátinn Svejk er, eins og
margir vita, einhver fyndnasta
lýsing á fáránleika styrjaldar sem
sett hefur verið saman. Og góði
dátinn sjálfur ein af eftirminni-
legustu persónum heimsbók-
menntanna - sá alþýðúmaðuf
sem kýs að synda gegnurn þao
forað sem yfirvaldið etur honum
út í með þeim merkilegu slóttug-
heitum að taka allt eða þykjast
taka allt alvarlega, sem haft er
uppi keisaranum og ríkinu og
hetjuskapnum til dýrðar.
Bókin er 368 bls.
Krakkar mínir
komið þið sœl!
Út er komin í 4. útgáfu bókin
Krakkar mínir, komið þið sæl!
en í henni eru hinar sívinsælu
vísur Þorsteins Ö. Stephensen
um jólasveininn i útvarpinu og
krakkana.
Myndir í bókinni eru eftir Hall-
dór Pétursson. Krakkar mínir,
komið þið sæl! er prentuð í Vík-
ingsprenti og bundin hjá Bók-
felli. Útgefandi er Helgafelli.
William Golding
Erfingjarnir
effir Golding
Ægisútgáfan-Bókhlaðan
hefur gefið út skáldsöguna
Erfingjarnir eftir breska nób-
elsverðlaunaskáldið William
Golding.
Golding hefur mjög lagt sig
eftir hinu góða og þó enn fremur
hinu illa í sögu mannsins. í þess-
ari sögu bregður hann sér til for-
sögulegra tíma - sagan fjallar um
ýmisleg stórmæli sem verða með
Neanderdalsmönnum, mann-
fræði og fornleifafræði liggja að
baki þessari skáldsögu um leið og
spurt er um þá hluti sem sam-
eiginlegir eru okkar rugluðu öld
og löngu liðnum tímum.
Ljóð og mynd
í samfellu
Jt er komin Svartllsi, íjoð og
mynd eftir Kristján Kristjáns-
son og Aðalstein Svan. í bók-
inni eru 25 Ijóð og 18 dúkristur,
60 blaðsíður og er gripurinn
prentaður í Hólum. Höfundarn-
ir gefa út.
Um þá er það helst að segja að
þeir eru „að norðan", Kristján er
frá Siglufirði og Aðalsteinn úr ná-
lægum firði sem heitir Eyjafjörð-
ur. Bókin er til sölu í helsíu bóka-
versiunum iandsins.
Sagnakver
Skúla
Gíslasonar
Út er komin hjá Helgafelli
önnur útgáfa af Sagnakveri
Skúla Gíslasonar með formála
eftir Sigurð Nordal.
Séra Skúli Gíslason (1825-188)
var einn af mestu skörungum ís-
lenskrar prestastéttar um sína
daga. Hann var prestur á Breiða-
bólstað í Fljótshlíð. Hann skráði
þjóðsögur og eru margar af bestu
og frægustu þjóðsögum í safni
Jóns Árnasonar frá honum. Fyrri
útgáfa þessarar bókar kom árið
1947 og hefur Halldór Pétursson
teiknað myndir við sagnirnar.
Fimm íslenskar
skáldsögur
Skjaldborg a Akureyri hefur
gefið út fimm nýjar íslenskar
skáldsögur.
Sumar á Síldarfírði heitir saga
eftir Eyjólf Kársson (og er það
dulnefni). Sagan gerist á árum
síldarævintýrsins, fyrirmyndin er
að líkindum Siglufjörður, þar
segir frá ungum sveitapilti sem
þarf að sjóast í gráu gamni síldar-
plássanna.
Háski á Hveravöllum heitir
skáldsaga eftir Birgittu H. Hall-
dórsdóttur. Þetta er ástar- og
spennusaga og er lesanda gefið í
kynningu undir fótinn með dular-
fullu morði á Hveravöllum og
háska sem vofir yfir knárri blaða-
konu.
Villt af vegi heitir sjötta bók
Aðalheiðar Karlsdóttur frá
Garði og fjallar ekki síst unt
taugastríð ungrar konu sem flýr
undan fötlun sem unnusti hennar
verður fyrir.
Sigrún heitir skáldsaga eftir
ísól Karlsdóttur og er kölluð
spennandi lífsreynslusaga ungrar
stúlku.
Súrt regn eftir Vigfús Björns-
son er önnur skáldsaga höfundar-
ins. Henni er svo lýst í bókar-
kynningu að hún fjalli „um ástir
heimasætunnar í dalnum, og tón-
skáldsins í borginni, ómengaða
íslenska náttúru, súrt regn, dap-
urlegar framtíðarhorfur heims-
byggðarinnar, gljáfægð dráps-
tæki og regintröll sem heimta
blóð“.
CMRT
'XÍeKjP III BJÖRNSSON
REGN
)
| .úMIfou |fjÉ
I
Reimleikasögur
Innlendar
og erlendar
Kynlegir farþegar nefnist
safn reimleikasagna sem Bjall-
an hefur gefið út.
í bókarkynningu segir á þá leið
að hér sé syrpa erlends og inn-
lends efnis af ýmsu tagi sem
spanni litrófið frá „hófstilltri
hrollvekju til góðlátlegrar gam-
ansemi“. Þorsteinn frá Hamri
hefur valið innlenda efnið og þýtt
það erlenda. Meðal innlendra
höfunda eru Þórbergur Þórðar-
son, Theódóra Thoroddsen og
Grímur Thomsen, en meðal
hinna erlendu Edgar Allan Poe,
Knut Hamsun og H.G. Wells.
Myndir eftir níu listamenn
prýða bókina og er einn þeirra
íslenskur, Hringur Jóhannesson.
„Hvað sem líður öllum bolla-
leggingum um trú og vantrú og
hjátrú hafa reimleikasagnir ætíð
gegnt djúpu hlutverki, jafnt í
daglegu lífi sem í lífi bókanna.
Þar fara saman fróðleikur og
skemmtan auk heilabrota um
hulin öfl“ segir í bókarkynningu.
Ógnarráðu-
neytið
Hjá Máli og menningu er
komin út bókin Ógnarráðu-
neytið (The Ministry of Fear),
ein þekktasta spennusaga
Grahams Greene, í þýðingu
Magnúsar Kjartanssonar.
Söguhetjan, Arthur Rowe, er
dagfarsprúður maður með erfiða
fortíð. Áf einskærri tilviljun rekst
hann inná útiskemmtun til að
hafa ofan af fyrir sér, en óðara
fara furðulegir hlutir að gerast:
iijuSLia
seinni heimsstyrjöldinni miöri.
Og þótt hann vilji feginn sleppa
heldur tilhugsunin um Önnu hon-
um föstum f atburðarásinni. Sag-
an er afar vel upp byggð og mann-
lýsingar vandvirknislega unnar,
bæði aðalpersóna og aukaper-
sónur.
Ógnarráðuneytið er 211 bls. og
fvrsta Náttuglan í nvjum kilju-
fíokki Máls og menningai. Anna
V. Gunnarsdóttir geröi kapu.
Miðvikudagur 19. desember 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13