Þjóðviljinn - 19.12.1984, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 19.12.1984, Qupperneq 9
MANNLIF Jólaglögg Vermir vel óáfeng sem áfeng Jólaglöggin er víöa drukkin og yljarmörgumdaganafyrirjól. Pessi siður hefurfærst í vöxt hérlendis seinustu ár og virð- ist leggjast vel í landsmenn. Jólaglöggin er hingað komin frá frændum voru í Skandin- aviu. Heyrst hefur að upphaf- lega hafi glöggin verið drukkin eftirjólin. I hanafóru vínaf- gangarsem eftirvoru (jólalok. Tóku menn það ráð að safna saman öllum afgöngum í einn pott og hella sitt litlu af hverju jólakryddi sem til var í húsinu út i. Þessi drykkur þótti velgja vel í norrænum vetrarhörkum. Nú eru breyttarvenjur, enda breyttirtímar. Glöggin leggst einkar vel í menn fyrir jól og uppskriftir hafa verið þróaðar. Ýmsar aðferðir eru til við glaggargerðina. (mörgum verslunum er hægt að fátil- búna kryddblöndu sem hellt er út í nokkra potta af rauðvíni og margir styrkja síðan með sterkarivínum. Þessar blöndur eru margar hverjar mjög góðar. Sumir láta þær duga en öðrum finnst róman- tískt að búa glöggina til og telja hana bragðast betur. Þjóðviljinn á ýmsar uþpskriftir að jólaglögg í sínum fórum og lætur þær neytendum nú í té. -JP Rauðvínsgiögg 2 fl. rauðvín 5 stk. heilar kardemommur 2 stk. heill kanill 2 '/2 dl sykur 100 gr rúsínur 100 gr afhýddar möndlur Rúsínurnar og kryddið er látið út í vínið og látið liggja í bleyti allt frá 2 tímum upp í 24 tíma. Þá er allt hitað í potti, sykurinn látinn út í ásamt afhýddum möndlunum (skornum í flísar). Drykkurinn má ekki sjóða heldur aðeins hitna vel. Borinn fram í rauðvínsglös- um á fæti ef ekki eru til hefð- bundnir púnsbollar með hanka. Glögginni er ausið í glösin og rús- ínur og möndlur látnar fylgja með. Sama aðferð er við tilbúning á glögginni þótt notað sé óáfengt rauðvín. Sterk jólaglögg 5 dl brennivín 5 dl rauðvín 5-7 heilar kardimommur, afhýdd- ar 1-2 kanelstengur 4 negulnaglar rifinn börkurafl appelsínu (eða4 msk af þurrkuðu pomeranshýði, mjög smátt söxuðu, en það fœst í pokum meðal bökunarkrydda í verslunum) 100-250 gr strásykur Meðlœti: rúsínur og möndluflög- ur 1. Setjið allt kryddið í pott ásamt appelsínuberkinum og hellið áfenginu yfir. Látið þetta stand með loki, gjarnan í nokkra tíma, svo að vínið fái keim af kryddinu. 2. Hitið glöggina yfir vægum hita, en hún má þó ekki verða heitari en u.þ.b. 50 gr., því þá má búast við að vínandinn gufi upp. 3. Setjið helminginn af sykrinum í síu, haldið henni yfir rjúkandi pottinum og ausið glögginni yfir sykurinn sem bráðnar náttúrlega og rennur niður í pottinn. Þegar allur sykurinn úr síunni er bráðnaður, takið þið pottinn af hellunni, hrærið betur í og smakkið. Finnist ykkur glöggin ekki nógu sæt, bætið þið út í hana meiri sykri á sama hátt og fyrr. Verði hún hins vegar óvart of sæt verður að vega það upp með meira brenni- og rauðvíni. Glögg meö madeira 1 heilflaska rauðvín 3 dl madeira 2 kanelstangir 3-5 negulnaglar 5 heilar kardimommur, afhýddar (1 dl sykur) Meðlœti: rúsínur og möndluflög- ur Hellið víninu í pott. Bætið kryddinu út í og leyfið blöndunni Jólaglögg í fögru glasi og piparkökurnar eru ómissandi. Mynd - E.ÓI. gjarnan að hvíla í nokkra tíma áður en hún er hituð við mjög lágan hita, upp að 40-50 gr.. Suð- an má alls ekki koma upp, því þá gufar áfengið út í veður og vind. Bætið dálitlum sykri út í glöggina ef þurfa þykir. Dönsk glögg 1 '/2 dl vatn 50 gr sykur 150 gr rúsínur 10 negulnaglar 1 stöng af kanil börkur af V2 appelsínu 2 kardimommur 50 gr möndlur 1 flaska rauðvín 1 dl sherrí eða portvín 3 dl sterkt (vodkilkláravín) Vatnið er soðið og rúsínum og sykri bætt út í. Negulnaglar, kan- ilstöng, appelsínubörkur og kardimommur settar í grisjupoka og soðið með í stuttan tíma. Möndlurnar brytjaðar niður og bætt í pottinn og rauðvínið. Soðið upp að suðupunkti. Sherrí og því sterka bætt síðast út í. íslensk glögg 1 flaska rauðvín 10 cl gin 10 negulnaglar 1 kanelstöng 1 msk hunang möndlur, rúsínur eftir smekk Þessi blanda er sterkari en sú fyrri. Rauðvínið hitað, gini bætt í, negull, kanill og hunang/sykur, möndlur og rúsínur beint í pott- inn. ALLT í JÓLAMATINN í Jli-HÚSINU Rjúpur á 140 kr. stk. Mikið úrval af úrbeinuðu kjöti Vinsæla norðlenska hangikjötið frá KEA Hamborgarahryggir frá KEA Allt svínakjöt af nýslátruðu Lambahamborgarahryggir Peking endur Veisiugæsir Allt nautakjöt af U.N. 1 Mikið úrval af ódýrri niðursuðuvöru Jólakerti og serviéttur í stórkostlegu úrvali JL-GRILLIÐ: Grillréttir allan daginn. Réttur dagsins í hádeginu. Munið kjúklingana. Takið þá með ykkur heim í jólaönnunum.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.