Þjóðviljinn - 19.12.1984, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 19.12.1984, Qupperneq 10
ALÞYÐUBANDALAGIÐ Áki Jónsson forstjóri ACO hf., Óli Vestmann Einarsson yfirkennari og Ingvar Ásmundsson skólastjóri við afhendingu á Linotype setningartölvunni sem ACO hf. gaf Iðnskólanum. Iðnskólinn Töhnigjöf í tilefni 80 ára afmælis Iðnskólanum í Reykjavík hefur verið faerð setningartölva af Linotype-gerð að gjöf í tilefni af 80 ára afmæli skólans. Það er fyr- irtækið ACO hf. sem færði skól- anum þessa rausnarlegu gjöf. Er það vel v;3 hæfi að prentdeildin, sem er elsta fagdeild skólans, fái svo veglegt tæki sem tölva þessi er. Vélina er hægt að tengja við tölvu beint eða um símalínu. Með þessu skapast möguleiki á því að setja texta í smátölvu með rit- vinnsluforriti. Vélin kemur síðan textanum í endanlegt form. Handunnið frá Mexíkó Handunnir munir frá Mexíkó hæð. Ágóðahluti mun renna til fást nú í verslun sem nýlega hefur bágstaddra barna í Mexíkó. verið opnuð að Laugavegi 28, 2. Greiðið flokks- og félagsgjöldin fyrir jól! Hér með er skorað á alla þá sem enn hafa ekki gert skil á flokks- og félagsgjöldum ársins að greiða þau fyrir jól. Munið að þetta er megintekjulind flokksins. Það má enginn skerast úr leik. Gíróseðl- ana má greiða í öllum bankaútibúum og pósthúsum. - Gjaldkerar. Konur - 1985 nálgast Miðstöðin minnir allar konur á undirbúning vegna loka kvennaára- tugsins 1985. Fimm opnir hópar hafa hafið störf á vegum ’85 nefndarinnar, sem 23 samtök kvenna standa að. Hóparnir eru: Gönguhópur, Listahátíðarhópur, Alþjóðahópur, Fræðsluhóp- ur, Atvinnumálahópur. Skráið ykkur til starfa strax. Allar upplýsingar um fundartíma og starf hópanna fást hjá Jafnréttisráði, síminn er 27420. - Kvennafylkingin. 3. platan frá Grafík Hljómsveitin Grafk hefur ný- verið sent frá sér sína þriðju hljómplötu og nefnist hún „Get ég tekið cjéns“. Graf s.f. er útgef- andi, en undir því nafni gefur hljómsveitin út eigin hljómplötur. Áður hafa komið út með hljóm- sveitinni plöturnar „Út í kuld- ann“ (’81) og „Sýn“ (’83). Á nýju plötunni eru átta frum- samin lög og textar. Var hún hljóðrituð í Hljóðrita í Hafnar- firði í október og nóvember sl. og var Sigurður Bjóla upptökumað- Magnús og Jóhanna hafa gert jólaplötu á vegum Skálholtsútgáf- unnar. Reynt var að gera hljóm- plötuna þannig úr garði, að allir aldurshópar gætu notið hennar. Önnur hliðin er með jóla- lögum, nýjum og gömlum. Hin hliðin hefur að geyma tónlist (spiritual), sem ætti að geta gengið allt árið. Sum laganna á ur. Hljóðblöndun önnuðust Sig- urður Bjóla og Grafík. Gerð umslags var í höndum Páls Stef- ánssonar og Helga Björnssonar. Alfa sá um pressun og Prisma um filmugerð og prentun. Dreifingu annast Fálkinn hf.. í hljómsveitinni Grafík eru Rafn Jónsson, Rúnar Þórisson, Helgi Björnsson og Örn Jónsson, en á plötunni nutu þeir aðstoðar Hjartar Howser og Stefáns S. Stefánssonar. Auk þess kom fjöldi barna nokkuð við sögu. þeirri hlið eru ný, önnur gamalk- unn: „Konan sem kyndir ofninn minn“, „Drottinn vakir“ (gamall texti við lag Jóhanns Helga- sonar), „Faðir vor“ við lag Magn- úsar Sigmundssonar. Jólalögin eru fremur „poppuð“ - a.m.k. sum hver. Yfir 300 klst. var varið til upptöku og hljóðblöndunar (í Mjöt). BRIDGE Hér er annað spil með þeim Páli Valdimarssyni og Hannesi R. Jónssyni sigurvegurum á Opna mótinu á Akranesi um síðustu helgi: xxxx D x ÁDxx Kxx xxx 10xxxx ÁDxxx Páll sat í Austur og vakti á 2 laufum (eðlilegt og lofar lauflit og opnun), Suður doblaði, Hannes sagði 3 iauf, Norður pass, Páll pass og eftir svolítið maus sagði Suður pass. Nú, útspilið var spaði, tekið á ás og meiri spaði, sem Páll trompaði heima. Smár tígull, lítið frá Suðri, kóngurinn hélt. Nú spilaði Páll laufi úr borði, lítið frá Norðri og Páll stakk upp ás (og skipaði Suðri um leið að láta kónginn), Páll fékk kónginn (hann var stakur). Nú kom hjartaás og meira hjarta trompað í borði, spaði trompaður heim og þriðja hjartanu spilað og aftur heimtaði Páll kónginn (hann fékk hann einnig í þetta skiptið). Síðan henti Páll einum tígli í hjartadömu og fékk 11 slagi og 19 stig af 26 mögulegum fyrir spilið. Brandar- inn í þessu spili var sá, að bless- aður maðurinn í Suðri var orðinn svo leiður á þessu röfli í Páli (og utan við sig) að hann henti hjart- akóngnum í þegar Páll bað um hann, þó hann væri fjórði hjá Suðri? En þetta fór þó allt fram í vin- semd milli þeirra Páls og Hannes- ar annars vegar og Marons Björnssonar og Sigurbjörns Jónssonar hinsvegar. Sem betur fór. Gleðilega hátíð! Hljómplötuútgáfan Geim- steinn hefur nýlega gefið út hljómplötu sem ber nafnið Gleðilega hátíð. Eins og nafnið bendir til er þetta hátíðar- hljómplata sem inniheldur 16 hátíðarlög. 10 lög eru alveg nýjar upptökur af hefðbund- num erlendum jólalögum með nýjum íslenskum textum, hin 6 eru af eldri hljómplötum sem ekki hafa verið fáanlegar. Fjöldi þekktra söngvara kemur fram á plötunni: Sigrún Hjálm- týsdóttir, Þuríður Sigurðardóttir, Einar Júlíusson, Rúnar Jú- líusson, Björgvin Halldórsson, Hljómar, María Baldursdóttir, Þórir Baldursson, Geimsteinn o.fl.. Útsetningar eru flestar eftir Þóri Baldursson en einnig hefur Gunnar Þórðarson útsett nokkur lög. Sveinbjörn Gunnarsson hannaði umslagið. Magnús Sigmundsson og Jóhann Helgason. Ljósaskipti HAPPDRÆTTI ÞJÓÐ VILJA NS 1984 Miðaverð 100 krónur Nr. 1 7200 VINNINGAR: 1. Corona tölva 2. Farseðill frá Samvinnuferdum-Landsýn 3. Húsgögn frá íslenskum húsbúnaði hf. 4. Húsgögn frá Furuhúsinu hf. 5. Húsgögn frá Árfelli hf. 6. Heimilistceki frá Fönix sf. 7. Hljómtaki frá Japis-hf. 8. -13. Bókaúttektir hjá Bókaútgáfu Máls og menningar kr. 5.000.00 hver Verðgildi kr. 92.000 00 30.000 00 30.000.00 30.000.00 30.000.00 30.000.00 30 000.00 30.000.00 Dregið verður 23. des. 1984. Upplýsingar í síma 81333. Samtals kr 502 000.00 Fjöldt mida 32.000 Vinningar óskast sóttir fynr 23 júm 1985 Hægt er að gera skil á afgeíðslu Þjóðviljans Síðumúla 6, hjá Alþýðubandalaginu Hverfisgötu 105, hjá umboðsmönnum um land allt, greiða með gíróseðli í banka eða pósthúsi (sjá sýnishorn um útfyllingu). A Reykjavíkursvæðinu er hægt að sækja greiðslu til þeirra sem þess óska og er tekið við þeim beiðnum í síma 81333. Borð komið við stól Valdimars Sóley, stóllinn frægi eftir Vald- imar Harðarson arkitekt sem Epal sclur hér á landi, hefur nú eignast félaga. Sá félagi er borð, sem Valdimar hefur einnig hann- að og er það ætlað til nota með stólnum. Vestur-þýska fyrirtækið Kusch og Co. framleiðir borðið ásamt stólnum, Sóleyju. Borðið er byggt á svipuðu formi og Sóley. Það er með kringlóttri plötu og við það rúmast 4 í sæti með góðu móti. Borðiðmáfellasaman,ým- ist alveg eða til hálfs. Það fer væntanlegt á markað hér á landi undir áramót. Mun það kosta sem svarar rösklega tvöföldu stólverði eða um fimm þúsund krónur. - jp. 10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 19. desember 1984

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.