Þjóðviljinn - 21.12.1984, Qupperneq 9
MINNING
Sigurður
Sigurjónsson
F. 17.6. 1928-
Nóttin breiðir á djúpin sín dimmu
tjöld
og dauðinn ríður.
Hvort hefur sá betur er hreppir
þann gest í kvöld
eða hinn sem bíður?
Jón Helgason
Við sjáum nú þegar hann er
allur að kannske lauk það kvöld
einum kafla í sögunni sem ef til
vill verður seinna sögð, af raf-
væðingu bæja og byggða þessa
lands og útflæmingu myrkurs úr
húsunum. En það tók starfsævi
einnar kynslóðar að koma þessu í
verk. Og það varð til stétt manna
sem eignaðist sinn metnað og
stolt og hefðir, skipaðist í flokka
sem fóru um landið, sveit úr sveit
og dal úr dal og lögðu línur þang-
að til ljós logaði á hverjum bæ
byggðina á enda, og voru þá farn-
ir annað.
Farandflokkar línumanna
drógu einatt til sín unga menn
með ævintýralöngun, og einn
þeirra fyrstu var sá sem nú er
kvaddur og hafði haldið út í hálf-
an fjórða áratug.
Siggi Sigurjóns. Hann byrjaði
ungur í línuflokkum við að keyra
gamla herbíla og flytja efni til
línulagna um vegleysu, en seinna
á vörubílum, og fór þá landið um
kring og reyndi stundum á þol-
rifin í snjó og aurbleytu og ýmis-
legu basli meðan brýrnar voru
enn þröngar og beygja inná, ekki
hægt að mætast nema á útskotum
og vegurinn lá víða neðar en
landið í kring. En það var keyrt á
hverju sem gekk og hann varð
heimagangur á veitingaskálum
þjóðveganna og gistivinur hótel-
verta, og drakk kaffið í eldhúsinu
D. 1.9. 1984
í Fornahvammi, Blöndu gömlu
og Bakkaseli.
En nú er þetta allt búið að vera.
Og margur mun sakna vinar í
stað, nú þegar hans er ekki lengur
von, sakna trygglyndis hans og
hjálpsemi, léttrar lundar, og til-
svarana snöggu sem gátu skotið í
kaf spakri setningu áður en búið
var að depla auga. Hann vann
samfélaginu alla sína ströngu
starfsævi, skuldaði ekki neinum
neitt, og var sáttur við heiminn
þegar hann féll framá kvöldverð-
arborið meðan rauð sól var að
ganga bakvið jökulinn í vestri og
var farinn.
En ef við eigum einhvern tím-
ann enn eftir að verða hríðtepptir
í bílalest uppá heiði og bíða birt-
ingar af nóttu þá munum við
kannske segja „skál vinur“ og
þökkum samfylgdina.
Gísli Hermannsson.
Starmix hraðsuöukanna
með meiru, verð kr. 2.380
Starmix djúpsteikingar-
pottur, verð kr. 3.680
Starmix grill og hitaplata,
verð kr. 4.680
Krups kaffikönnur,
verð frá kr. 1.915
Moulinex grillofnar,
verð frá kr. 4.748
Aromatic kaffikönnur,
verð frá kr. 4.294
NÝJAR BÆKUR
Brúðubílllnn
Eftir Helgu
Steffensen
Út er komin hjá Forlaginu ný
barnabók - Afmælisdagurinn
hans Lilia eftir Helgu Steffensen.
Flest íslensk börn undir skóla-
aldri kannast við Brúðbflinn sem
ferðast hefur um landið þvert og
endilangt undanfarin ár með
brúðuleikrit sín. Og ekki þarf að
kynna litla appelsínugula apann,
sem er söguhetjan í þessari bók,
fyrir börnunum. Það er hann
Lilli, sem nú er orðinn fimm ára
og heldur upp á það með því að
bjóða til sín gestum sem er hver
öðrum kostulegri.
Afmælisdagurinn hans Lilla er
fyrsta bók um brúðuleikhús sem
frumsamin er á íslandi. Bókina
prýða fjörtíu litmyndir.
Umboðsmenn Happdrættis Þjóðviljans 1984
REYKJANES Mosfellssveit Kópavogur Kristbjörn Árnason Friögeir Baldursson Hamraborg 26 s. 45306
Garðabær Björg Helgadóttir Faxatúni 3 s. 42998
Hafnarfjörður Sigriður Magnúsdóttir Miðvangi 53 s. 52023
Seltjarnarnes Keflavík Sólveig Þóröardóttir Háteigi 20 s. 92-1948
Garður Kristjón Guðmundsson Melbraut 12 S. 92-7008
Sandgerði Elsa Kristjánsdóttir Holtsgötu 4 S. 92-7680
VESTURLAND
Akranes Gunnlaugur Haraldsson Brekkubraut 1 s. 93-2304
Borgarnes Sigurður Guðbrandsson Borgarbraut 43 S. 93-7122
Ólafsvík Jóhannes Ragnarsson Hábrekku 18 s. 93-6438
Grundarfjörður Matthildur Guðmundsd. Borgarhólstúni 10 S. 93-8715
Stykkishólmur Guðrún Ársælsdóttir Lágholti 3 s. 93-8234
Búðardalur Gísli Gunnlaugsson Búðardal S. 93-4142
VESTFIRÐIR
Patreksfjörður Bolli Ólafsson Sigtún 4 S. 94-1433
Bíldudalur Halldór Jónsson Lönguhlíð 22 S. 94-2212
Þingeyri Davíð Kristjánsson Aðalstræti 39 S. 94-8117
Flateyri Jón Guðjónsson Brimnesvegi 8 S. 94-7764
Suðureyri Sveinbjörn Jónsson, Sætúni 10 S. 94-6235
ísafjörður Smári Haraldsson Hlíðarvegi 3 S. 94-4017
Bolungarvík Hólmavík
NORÐURLAND VESTRA
Hvammstangi Örn Guðjónsson, Hvammstangabr. 23 s. 95-1467
Blönduós Vignir Einarsson Brekkubyggð 34 s. 95-4310
Skagaströnd Guðm. H. Sigurðsson Fellsbraut 1 s. 95-4653
Sauðárkrókur Hulda Sigurbjörnsd. Skagf.br. 37 s. 95-5289
Siglufjörður Kolbeinn Friðbjarnarson. Hvanneyrarbr. 2 s. 96-71271
NORÐURLAND EYSTRA
Ólafsfjörður Sæmundur Ólafsson Vesturgötu 3 s. 96-62267
Dalvík Hjörleifur Jóhannsson Stórhólsvegi 3 s. 96-61237
Akureyri Haraldur Bogason Norðurgötu 36 s. 96-24079
Húsavík Aðalsteinn Baldursson Baughóli 31B s. 96-41937
Raufarhöfn Þórshöfn Angantýr Einarsson Aðalbraut 33 s. 96-51125
AUSTURLAND
Neskaupstaður Elísabet Karlsdóttir Gauksmýri 1 S. 97-7450
Vopnafjörður Gunnar Sigmarsson Miðbraut 19 s. 97-3126
Egllsstaðir Magnús Magnússon Sólvöllum 2 S. 97-1444
Seyðisfjörður Guðlaugur Sigmundsson Ásstig 1 S. 97-2374
Reyðarfjörður Þorvaldur Jónsson Hæðargerði 18 s. 97-4159
Eskifjörður Vilborg ölversdóttir Lambeyrarbr. 6 s. 97-6181
Fáskrúðsfjörður Magnús Stefánsson Hlíðargötu 30 S. 97-5211
Stöðvarfjörður Ingimar Jónsson Túngötu 3 s. 97-5894
Höfn Hornaf. Björn S. Sveinsson Silfurbr. 33 s. 97-8582
Breiðdalsvík Snjólfur Gislason Steinaborg s. 97-5627
SUÐURLAND
Vestmannaeyjar Edda Tegeder Hrauntún 35 S. 98-1864
Hveragerði Ingiojöra Sigmundsdóttir Heiðmörk 31 s. 99-4259
Selfoss Rúnar Ármann Arthúrsson Úthaga 1 s. 99-2347
Eyrarbakki Auður Hjálmarsdóttir Háeyrarvegi 30 s. 99-3388
Stokkseyri Ingi S. Ingason Eyjaseli 7 S. 99-3479
Vík í Mýrdal Vigfús Guðmundsson Mánabraut 12 S. 99-4283
Laugarvatn Torfi R. Kristjánsson S. 99-6153
Allar nánarí upplýsingar á skrífstofu Þjóóviljans,
Síðumúla 6 - Sími 81333.