Þjóðviljinn - 21.12.1984, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 21.12.1984, Blaðsíða 10
ALÞYÐUBANDALAGIB MINNING JÓLAKVEÐJUR JÓLAFRÍ Starfsfólk skrifstofu Alþýðubandalagsins sendir öllum flokks- mönnum og velunnurum Alþýðubandalagsins bestu óskir um gleðileg jól. Við þökkum ágætt samstarf á árinu sem er að líða og óskum okkur öllum árangurs í flokksstarfinu á næsta ári. Jafnframt tilkynnist að við ætlum að hafa skrifstofuna lokaða 27. og 28. desember. Við bendum á heimasíma ef mikið liggur við. Við opnum aftur og hefjum starfið af fullum krafti 2. janúar 1985. Einar Karl Haraldsson Kristján Valdimarsson Margrét Tómasdóttir Gjaldkerar AB auglýsa Aríðandi orðsending! Hér með er skorað á alla þá sem enn hafa ekki gert skil á flokks- og félagsgjöldum ársins að greiða þau fyrir jól. Munið að þetta er megintekjulind flokksins og að flokksstarfið geldur þess ef einhver skerst úr leik. Gíró- seðla má auðvitað greiða í öllum bankaútibúum og pósthúsum. Gjaldkerar Alþýðubandalagsins ABR Breiðholt auglýsir Opið hús á Hverfisgötu 105 Á morgun, laugardaginn 22. desember,verðuropið hús að Hverfis- götu 105 frá kl. 18-23. Jólakaffi, kökurogjólag... (ekki blettir) frá kl. 19.00. Árni Björnsson lítur inn og spjallar um jólaglögg og Stefán Jónsson ræðir um Sína menn. Söngvar, gamanmál og fleira. Gangið við í Flokksmiðstöð Alþýðubandalagsins meðan á jóla- innkaupunum stendur og takið þátt í stemmningunni með okkur. ABR Breiðholt ABH og ÆFHaGa Opið hús Alþýðubandalagið í Hafnarfirði og Æskulýðsfylkingin í Hafnarfirði og Garðabæ halda opið hús í Skálanum, Strandgötu 41, laugar- daginn 22. desember frá kl. 13.00-23.00. Kaffi, kakó og handunnar kökur á boðstólum. Kíkið við í búðarráp- inu og fáið ykkur kaffisopa. Alþýðubandalagið í Hafnarfirði og ÆF Hafnarfirði og Garðabæ ÆSKULÝÐSFYLKINGIN Jólafögnuður Árlegur jólafögnuður ÆFAB verður haldinn föstudaginn 21. des. að Hverfisgötu 105. Margt verður til skemmtunar. Húsið verður opnað kl. 21.00 og því lokað aftur um kl. 24.00. Á boðstólum verða piparkökur og annað jólalegt til að glöggva menn á tilgangi jólanna. Mætum öll íðilhress. Félagsmálaglöggvunarvandamálanefndin 81333 Er ekki tilvalið að gerast áskrifandi? Þorsteinn Pjetursson í dag föstudaginn 21. de- sember, verður til moldar bor- inn Þorsteinn Pjetursson fyrr- verandi framkvæmdastjóri Fulltrúaráðs verkalýðsfélag- anna í Reykjavík. Með þessu fáu línum vil ég f.h. Fulltrúaráðsins flytja þakkir til minningar um mann sem helgaði stóran hluta ævi sinnar verkalýðs- málum og mörg verkalýðsfélögin í Reykjavík standa í mikilli þakk- arskuld við. Þorsteinn Pjetursson vann í tugi ára mikið og óeigingjarnt starf sem framkvæmdastjóri Fulltrúaráðsins og í þágu verka- lýðshreyfingarinnar í heild. Sér- staklega var Þorsteinn vinnufús fyrir smærri verkalýðsfélögin í Reykjavík, en þau félög höfðu ekki á þeim tíma neina starfs- menn til að hugsa m.a. um gerð kjarasamninga og úthlutun at- vinnuleysisbóta, svo eitthvað sé nefnt. Þau eru mörg handtökin sem hann innti af hendi og oft ekki spurt hver launin væru. Það var ómetanlegt fyrir verkalýðs- hreyfinguna að eiga menn að eins ög Þorstein Pjetursson, alltaf boðinn og búinn til starfa og hjálpar, og verður seint fyllt það skarð sem hann skilur eftir. Síðustu árin hefur Þorsteinn verið sjúklingur en alltaf var hann með hugann við Fulltrúa- ráðið og hvað þar væri að gerast. Eftir að hann hætti störfum hjá Fulltrúaráðinu, starfaði hann við að koma röð og reglu á ýmis skjöl varðandi verkalýðshreyfinguna og var það hans takmark að skrif- uð yrði saga Fulltrúaráðsins frá upphafi, en því miður entist ekki heilsa hans né aldur til. Þegar að leiðarlokum er komið vil ég f.h. Fulltrúaráðs verkalýðs- félaganna í Reykjavík þakka Þor- steini Pjeturssyni fyrir allt það mikla brautryðjendastarf sem hann innti af hendi fyrir Fulltrúa- ráðið og verkalýðshreyfinguna. Um leið og ég persónulega þakka Þorsteini samfylgdina hjá Fullt- rúaráðinu, • flyt ég eftirlifandi eiginkonu hans Guðmundu Ól- afsdóttur mína innilegustu sam- úðarkveðju. Blessuð sé minning Þorsteins Pjeturssonar. F.h. Fulltrúaráðs Verka- lýðsfélaganna í Reykjavík, Hilmar Guðlaugsson. Með Þorsteini Pjeturssyni er fallinn frá einn þeirra manna sem helgað hafa verkalýðshreyfing- unni líf sitt. Þorsteinn hóf ungur afskipti af stjórnmálum og verka- lýðsmálum og sinnti störfum fyrir verkalýðshreyfinguna fram í and- látið. A löngum lífsferli var Þor- steinn ein af burðarásum ís- lenskrar verkalýðshreyfingar. Ég ætla ekki að rekja feril hans hér en minni á að um árabil var Þor- steinn starfsmaður fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík og sinnti allri daglegri þjónustu við félagsmenn ýmissa smærri verkalýðsfélaga sem ekki höfðu skrifstofu. Hinu daglega amstri í slíkri þjónustu fylgir mikið álag á einstaklinginn og fjölskyldu hans alla og sjaldan fá menn þær þakk- ir sem vert er. En Þorsteinn var ekki einasta skrifstofumaður heldur virkur baráttumaður eins og t.d. kom fram í baráttunni gegn gerðardómslögunum 1942. Eitt helsta áhugamál Þorsteins var að saga verkalýðshreyfingar- innar varðveittist í þjóðarvitund- inni. Hann safnaði bókum og skjölum um allt sem hreyfingunni viðkom og forðaði þannig mörg- um mikilsverðum heimildum frá glötun. Hann færði Alþýðusam- bandinu ómetanlegt safn sitt að gjöf fyrir rúmum áratug og hefur síðan unnið að flokkun þess þannig að það kæmi að sem best- um notum. Fyrir hönd Alþýðusambands- ins færi ég Þorsteini þakkir fyrir mikilvægt starf hans í þágu hreyfingarinnar og votta að- standendum samúð. Ásmundur Stefánsson Þorsteinn Pjetursson fæddist í Reykjavík 1906, í þann mund er Verkamannafélagið Dagsbrún var stofnað, og var elstur sex barna Pjeturs G. Guðmunds- sonar og fyrri konu hans, Ágúst- ínu Þorvaldsdóttur. Pjetur átti hlut að stofnun Dagsbrúnar og varð síðar formaður hennar nokkur ár, en allt til æviloka lifði Þorsteinn og hrærðist í verkalýðs- málum. í barnsminni var honum verkfallið í grjótnáminu í Öskju- hlíðinni 1913, þegar unnið var að hafnargerð í Reykjavík, en því lauk með viðurkenningu 10 stunda vinnudags og mishás álags í eftir- og næturvinnu. Frá hlut föður síns að verkalýðsmálum og bæjarmálum fram til 1914 hefur- Þorsteinn sagt í samtalsbók sinni, Pjetur G. Guðmundsson, Upphaf samtaka alþýðu. Á Bolungarvík var Pjetur G. Guðmundsson búsettur 1914 til 1919, og þaðan átti Þorsteinn góðar bernskuminningar. Ásamt Finnboga Bernódussyni og fleirum stofnaði Pjetur þar (skammlíft) verkalýðsfélag 1915, og sat Þorsteinn stofnfund þess. Aftur til Reykjavíkur kominn, fór Þorsteinn að bera út Alþýðu- blaðið þegar það hóf göngu sína haustið 1919. Verkamannavinnu fór Þorsteinn að vinna 1923, þá 17 ára gamall. Þá um haustið gekk hann í Félag ungra kom- múnista á eins árs afmæli þess og varð einn máttarstólpa þess, á meðan það starfaði. Fyrir þess hönd sótti hann þing Alþjóða- sambands ungra kommúnista í Moskvu 1928, og hlýddi þá á ávörp Stalins og Bukharins. Einn af stofnendum Kommún- istaflokks íslands varð Þorsteinn 1930. Litlu síðar var varnarlið verkalýðsins stofnað („öðrum þræði vegna þessarar svonefndu atvinnuleysisbaráttu og hinum vegna athafna og storkunar nas- ista“) og var Þorsteinn formaður þess. Hélt það saman nokkur ár og var 60-80 manna lið. Kom Þor- steinn við sögu í Gúttó-slagnum 9. nóvember 1933, og var daginn eftir hnepptur í varðhald ásamt Guðjóni Benediktssyni, Hauki Björnssyni og Magnúsi Þorvarð- arsyni. Pjetur G. Guðmundsson var einn þeirra forystumanna Alþýðuflokksins, ásamt Héðni Valdimarssyni, Sigfúsi Sigur- hjartarsyni og öðrum, sem unnu að samfylkingu við Kommúnist- aflokkinn, og fylgdist Þorsteinn vel með samfylkingarmálunum. Minntist hann þess, að af útifundi um útvegsmál og önnur atvinnu- mál við Miðbæjarskólann 1936 fylgdust þeir Brynjólfur Bjarna- son með Héðni heim til hans og ræddu samfylkingarmálin við hann. Framkvæmdastjóri Kommúnistaflokks íslands var Þorsteinn 1937, og sá hann um starf hans fyrir alþingiskosning- arnar ásamt Halldóri Jakobssyni. í stjórn Dagsbrúnar átti hann sæti 1938- 1940, en Héðinn var þá for- maður hennar. („Ekki illskaðist Héðinn við mig, þótt ég liti mál öðrum augum en hann. Hann vildi aðeins ráða ferðinni."). Stofnþing Sameiningarflokks alþýðu, Sósíalistaflokksins, sat Þorsteinn 1938, og var hann kjör- inn í miðstjórn flokksins ásamt föður sínum, og sátu þeir síðan báðir framkvæmdanefnd hans. Og fyrstu þrjá mánuðina eftir stofnun flokksins var Þorsteinn blaðamaður við Þjóðviljann. í deilum þeim, sem urðu um af- stöðu Sósíalistaflokksins til vetrarstríðs Rússa og Finna, 1939- 1940, „Finnagaldursins", skildu leiðir með Þorsteini og fyrri skoðanabræðrum hans. („Ég gat ekki fallist á þá rök- semdafærslu þeirra, að Rússar hygðust aðeins treysta öryggi sitt, varnir sínar.“). Upp úr hernáminu vorið 1940 hófst Bretavinnan, og vann Þor- steinn að byggingu Reykjavíkur- flugvallar fram á haust 1914, að hann hóf eyrarvinnu við höfnina. Og hefur hann sagt svo frá: „Þá voru verkföll ólögleg, og Dags- brún bundin af formlegum samn- ingum, svo að félagsstjórnin treysti sér ekki til að hefjast handa. Þegar liðið var fram í apríl-maí 1942, hafði ég náð sam- bandi við allmarga menn, sem unnu hjá Ríkisskip og Eimskip. Við afréðum að setja fram kaup- kröfur til skipafélaganna. Til stuðnings kröfum okkar gerðum við þrjú verkföll hvert af öðru. Eitthvað höfðum við upp úr þeim öllum, þótt ráðamenn skipafélag- anna neituðu að ræða við okkur í því fyrsta. Við héldum smáfundi í pakkhúsum hjá Ríkisskip og Eimskip, og verkföllin gengu eins og í sögu... Það má segj a, að þessi átök við Reykjavíkurhöfn hafi verið upphaf skæruhernaðarins á vinnustöðum sumarið 1942, en hann breiddist út um allt land.“ Starfsmaður Dagsbrúnar varð Þorsteinn í september 1942 fram í maí 1943, að hann var skipaður fulltrúi Dagsbrúnar í nefnd þá, sem fjallaði um verðlagningu landbúnaðarvara. („Þegar nefndin hafði gengið frá samkomulagi sínu, bar ég það upp á miðstjórnarfundi ASÍ, þar sem það var samþykkt. Enn í dag hvílir verðlagning landbúnaðar- vara á þessu samkomulagi. Ég tel, að á þeim tíma hafi án efa verið rétt að gera þetta sam- komulag.“). Og þegar fulltrúa- ráð verkalýðsfélaganna í Reykja- vík opnaði skrifstofu, öðru sinni, 15. september 1943, varð Þor- steinn starfsmaður á henni. Þar voru unnin margs konar störf fyrir lítil verkalýðsfélög, sem engan starfsmann höfðu. Og upp frá því vann Þorsteinn slík störf og áþekk allt fram til 1979. Þorsteinn Pjetursson var ákaf- lega einlægur maður og einarður, kappsamur og orðhvass. Með honum er genginn jötunn dag- legra félagsmála. Reykjavík, 20. des. 1984 Haraldur Jóhannsson. 10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 21. desember 1984

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.