Þjóðviljinn - 28.12.1984, Page 3
FRETTIR
Höfundur Gullsands, Ágúst Guðmundsson á tali við forseta íslands Vigdísi Finnbogadóttur. Á milli þeirra situr eiginkona
Ágústs, Maureen Thomas en til hægri handar Vigdísi situr Valgerður Tryggvadóttir. Ljósm. eik.
Frumsýning
Frábærar viðtökur
Gullsandur Agústs Guðmundssonar
í Austurbœjarbíói
Aannan dag jóla var frumsýnd í Austurbæjarbíói áhorfendum á frumsýningunni.
ný íslensk kvikmynd eftir Ágúst Guðmundsson. Ágúst gerði það ekki endasleppt í kvikmynda-
Gullsandur heitir myndin og fjallar m.a. um við- gerðarlistinni annan í jólum því sjónvarpið frum-
brögð íslenskrar þjóðar við heimsókn bandarískra sýndi Gullna hliðið eftir Davíð Stefánsson í leikgerð
hermanna. Gullsandi var forkunnarvel tekið af hans í fyrrakvöld.
Ása Wright
Dr. Ólafur
Bjamason hlaut
verðlaunin
í gær var hin árlega úthhitun úr
verðlaunasjoði Ásu Guðmundsdóttur
Wright Að þessu sinni fékk dr.
Ótafur Bjamason prófessor verð-
launin 100 þúsund krónur,
heiðursskjal og söfurpening við hátíð-
lega athöfn í Norræna húsinu.
Dr. Ólafur fær verðlaunin fyrir
veigamikil rannsóknarstörf á sviði
læknisvfeinda. Dr. Ólafur lagði
grundvöllinn að krabbameinsskrá ís-
lands. Þá varð hann fyrstur til að hefja
ffumrannsóknir á legkrabba sem hafa
orðið til að lækka mjög tíðni hans hér
á landi en sá árangur hefur hlotið
heimsathygli.
-GFr
Úr Litlu hrvllingsbúðinni sem Hitt leikhúsið ætlar að frumsýna eftir nýárii
Ljósm. E.OI.
Afmæli
Egill Jónas-
son 85 ára
Einn af höiúð snillingum ferskeytí-
unnar á okkar dögum, Egill Jón-
asson á Húsavík átti 85 ára afmæli í
gær. Egill dvdur nú á ciliheimilinu á
Húsavík og er vd em. Og enn yrkir
hann af sömu snilld og áður, þeim
sem unna ferskeytlunni til óblandinn-
ar ánægju. þjóðvi|jinn óskar Agli til
hamingju með afinæhð og ámar hon-
um allra hcilia.
Og svona til gamans látum við
fylgja með nýlega vrsu eftír Egil, sem
ort var þegar umræður um viðskipta-
hallan á fjárlögum áttu sér stað á dög-
unum:
Miljarðwwa niínus-sajn,
mirmihluti á fuigrum telur.
Efað kaup er nefra á nafn
nábíturinn Albert kx’elur.
Jólasala_
Bókin vann
Síðasta vikan: hálfu betri bóksala
en ífyrra, fœrri bœkur en betri seld-
ust meir. Gljúfrasteinninn: 9000
eintök
að var hressilegt hljóð í bók-
sölum sem Þjóðviljinn ræddi
við í gær að lokinni vertíð: „Meiri
sala í færri og betri bókum“ sagði
Guðmundur Þorsteinsson hjá
Svörtu og hvítu, en hjá því forlagi
sátu menn aðgerðalausir á Þor-
láksmessu eftir að útgáfubókin,
„Nafn rósarinnar“ seldist upp.
- Helmingsaukning síðustu
vikuna miðað við t' fyrra, sagði
Guðmundur, og undir það tók
formaður félags bókaútgefenda,
Eyjólfur Sigurðsson. Eyjólfur
sagði að bóksala væri nú orðin
eins og fyrir síðustu áfallaár í
bókaútgáfu, „eldri bóksalar
sögðust hafa þekkt aftur gamla
tíð og síðasta vikan minnti þá á
bestu árin hér áður.“
„Ég hef á tilfinningunni að jól-
asalan í heild hafi ekki aukist í ár“
sagði Eyjólfur, „en bókin vann
samkeppnina í þetta skiptið."
Við spurðum hversvegna og út-
gefandinn nefndi þrennt: lítil
verðhækkun á bókum nú frá fyrra
ári, góð samvinna bókamanna
við fjölmiðla og sín í millum,
betri og vandaðri útgáfa að efni
til: ýmsar mjög athyglisverðar ís-
lenskar bækur og þýðingar á góð-
um erlendum höfundum. Landið
er þá að rísa í bókaheiminum?
Eyjólfur: „Já, við erum þeirrar
skoðunar, ég tala nú ekki um ef
allir eru skynsamir.“
Meðal nýjunga í blessuðu
bókaflóðinu voru „uglur“ Máls
og menningar, kiljur helmingi
ódýrari en venjulega innbundna
jólabókin. „Okkur var sagt að
þjóðin mundi ekki líta við þessu
til gjafa“ sagði Halldór Guð-
mundsson Máls og menningar-
maður, - en það var ekki rétt,
þær seldust allar vel, sérstaklega
bók Árna Bergmann, barnabók-
in um Ljónshjartað og Jólaóra -
torían. Ög það verður haldið
áfram á þessari braut, sagði Hall-
dór.
En hvernig gekk stórvirki Arn-
ar og Örlygs, Ensk-íslenska orða-
bókin sem í ár var dýrust bóka á
markaði? „Mjög vel“ sagði okkur
Örlygur Hálfdanarson, - hlaut
afskaplega góðar móttökur, og
þau 2200 eintök sem náðist að
binda inn fyrir jólin ruku öll úr
húsi. Bókin var seld á sérstöku
jólaverði en hækkar um áramótin
nema pantaðar bækur.
Um 10. janúar er von á loka-
niðurstöðum frá Kaupþingi um
sölu einstakra bóka, en metsölu-
höfundar ársins eru á hreinu:
Edda Andrésdóttir og Auður á
Gljúfrasteini, um níu þúsund ein-
tök.
-m
Hitt-leikhúsið
Mannætuplanta
í aðaihlutverki
Nýtt leikhús œtlar að frumsýna gaman-
söngleik með hrollvekjuívafi
Nú standa yfir lokaæfingar á
Litlu hryllingsbúðinni, amer-
ískum sönglcik sem Hitt-leikhúsið
ætlar að frumsýna rétt eftir nýár-
ið í Gamla bíói. En Hitt-leikhúsið
er nýtt fyrirtæki undir forystu fél-
aganna Páls B. Baldvinssonar og
Sigurjóns Sighvatssoanr, sem
ætlar að einbeita sér að leikhús-
rekstri og ýmsum tengdum miðl-
um.
„Petta er gamansöngleikur
með hrollvekjuívafi“ sagði Páll
við Þjóðviljann í gær. „Verkið er
jöfnum höndum mjög móralskt
en þó bráðfyndið og skemmti-
legt. Það gerist í kringum plöntu
sem í fyrstu er ósköp lítil og visin,
en vex og verður að lokum að
mannætuplöntu".
Páll vildi lítið segja frekar um
efni Litlu hryllingsbúðarinnar en
kvað gamanleikinn hafa reynst
óhemju vinsælan erlendis.
„Hann hefur til að mynda gengið
samfleytt í þrjú ár í New York,
eitt og hálft í Lundúnum, hefur
verið sýndur á öllum Norður-
löndunum nema Finnlandi og
gerði rífandi lukku alls staðar.
Sænska ríkisleikhúsið er til dæmis
á ferðalagi með hann um Svíþjóð
þessa stundina“.
Margir þekktir karaktérar
koma við sögu uppsetningarinnar
á Litlu hryllingsbúðinni, Megas
og Einar Kárason rithöfundar
þýddu texta, Gísli Rúnar Jónsson
og Laddi leika stór hlutverk
ásamt Eddu H. Backman og Leifi
Haukssyni en miklar kröfur eru
gerðar til leikaranna, sem þurfa
að geta sungið, dansað og leikið,
allt í senn. Þrennt erlent kunn-
áttufólk mun taka þátt í sýning-
unni, þekktur ísraelskur brúðu-
leikari, heimsþekktur snillingur á
sviði ljósa kemur frá Englandi og
hinn ameríski höfundur dans-
anna mun koma fyrir frumsýn-
inguna 13. janúar og fínpússa
dansana, sem eru æfðir undir
stjórn Sóleyjar Jóhannesdóttur.
Þess má geta að Hitt-leikhúsið
mun samhliða frumsýningu gefa
út plötu með söngvunum.
-ÖS
Þjóðviljinn
Drætti
í happ-
drætti
frestað
Vegna þess að skil í Happdrætti
Þjóðviljans , einkanlega utan af
landi hafa verið dræm, hefur ver-
ið ákveðið að fresta drætti til 21.
janúar 1985. Eru þeir sem fengið
hafa heimsenda happdrættismiða
eindregið hvattir til að leggja
blaðinu lið og greiða sem allra
fyrst, annað hvort með gíró eða á
afgreiðslu Þjóðviljans Síðumúla
6.
Föstudagur 28. desember 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3