Þjóðviljinn - 28.12.1984, Qupperneq 11
^OSSGATUBÓK
ÁRSSNS ,
Krossgátu-
bók ársins
komin
Krossgátubók ársins heitir ný-
útkomin bók sem ÓP-útgáfan gef-
ur út. Er höfundur bókarinnar
Hjörtur Gunnarsson kennari sem
er fyrir löngu þekktur af
'krossgátum sínum.
í bókinni eru 77 krossgátur
með ýmsu sniði og þá ekki ein-
ungis ráðið í láréttar eða lóðrétt-
ar línur heldur og bugður, sveigi
og hringi. Pá er í Krossgátubók
ársins fyrsta þrívíddarkrossgátan
sem sést hér á prenti.
Eins og áður sagði er Hjörtur
Gunnarsson íslenskukennari höf-
undur bókarinnar en hann hefur
langa reynslu í að semja
krossgátur. í fyrra kom út fyrsta
Krossgátubók ársins og er hún
uppseld.
- v.
SVR
Ný leið
í gær hófst akstur á nýrri leið
Strætisvagna Reykjavíkur,
Lækjartorg-Grafarvogur, og
hlaut hún númerið 15. Verður
fyrst um sinn ekið á kiukkutíma
fresti mánudaga til föstudaga.
Endastöðvar vagnsins eru við
Reykjafold og Fjallkonuveg í
Grafarvogi og neðst í Hverfis-
götu. Ekið er um Fjallkonuveg,
Höfðabakka, Bíldshöfða,
Miklubraut, Grensásveg, Suður-
landsbraut, Laugaveg niður á
Lækjartorg og Hverfisgötu
austur þaðan. Lagt er af stað 8
mínútur yfir heila tímann frá
Lækjartorgi og á hálfa tímanum
frá Reykjafold. Fyrsta ferð frá
Lækjartorgi er kl. 7.08 en síðasta
kl. 18.08. Frá Reykjafold er
fyrsta ferð kl. 7.40 en síðasta kl.
18.30.
MFA
Ný stjóm
Stjórn Menningar- og fræðslu-
sambands alþýðu er samkvæmt
lögum Alþýðusambands íslands
kjörin á þingum ASÍ.
Á 35. þingi ASÍ, sem haldið var
26.-30. nóvember sl., voru eftir-
talin kjörin í aðalstjórn MFA:
Guðmundur Hilmarsson, Helgi
Guðmundsson, Karl Steinar
Guðnason, Kristín Eggertsdóttir
og Pétur A. Maack. Varastjórn
skipa Ingibjörg Sigtryggsdóttir,
Hildur Kjartansdóttir og Sonja
Kristensen.
Á fyrsta fundi nýkjörinnar
stjórnar skipti stjórnin með sér
verkum þannig: Formaður er
Helgi Guðmundsson, ritari var
kjörinn Karl Steinar Guðnason
og gjaldkeri Pétur A. Maack.
Þróunarfélagiö til Akureyrar
A fundi í Bæjarráði Neskaup-
staðar fimmtudaginn 6. desemb-
er var eftirfarandi ályktun sam-
þykkt samhljóða:
„Bæjarstjórn Neskaupstaðar
leggur áherslu á, að eðlileg dreif-
ing valds og þjónustu ríkisins er
snar þáttur í að snúa við hinni
alvarlegu byggðaþróun í landinu,
sem nú kemur svo glöggt fram í
gífurlegri þenslu á höfuðborgar-
svæðinu og vaxandi misvægi milli
þess og landsbyggðarinnar.
Því lýsir bæjarstjórnin yfir
fyllsta stuðningi við áskorun
bæjarstjórnar Akureyrar um að
fyrirhugað þróunarfélag sem
stofna á skv. ákvörðun
stjórnvalda, hafi aðsetur sitt
þar.“
Sauðanesbúar
Mótmæla herstöðvum
Fundur í hreppsnefnd Sauða- armannvirkjaáNorðausturlandi.
neshrepps, haldinn á Sauðancsi Jafnframt telur fundurinn að sér-
16. september 1984, gerir eftir- hver ný hernaðarframkvæmd
farandi samþykkt: auki á ófriðarhættu og heppilegra
„Hreppsnefnd Sauðanes- sé til árangurs að leggja herstöðv-
hrepps mótmælir harðlega öllum ar niður vilji menn stefna að
áætlunum um byggingu hernað- friði.“
STOFNFJARREIKNINGUR
SKAITALÆKKUN
, OG EIGIN
FJARFESTING
Framlög einstaklinga til atvinnurekstrar eru frádróttarbœr frá skatt-
skyldum tekjum að vissu marki skv. nýjum ákvœðum skattalaga.
Frádráttur má vera allt að kr. 25.000.~ á ári hjá einstaklingi eða
kr. 50.000.- hjá hjónum.
SKILYRÐI
Til þess að njóta þessara skattafríðinda geta einstaklingar m.a. lagtfé
inn á stofnfjárreikning íþví skyni að stofna síðar til eigin atvinnu
rekstrar.
Stofnun atvinnurekstrar má fara fram hvenœr sem er innan 6 ára frá
lokum innborgunarárs.
INNLÁNSKJÖR
Stofnfjárreikningarnir eru sérstakir innlánsreikningar bundnir í 6
mánuði. lnnstœður eru verðtryggðar samkvœmt lánskjaravísitölu.
HAGDEILDIN AÐSTOÐAR
Hefur þú í hyggju að stofna til eigin atvinnurekstrar með þessum
hœtti? Sé svo geturþú leitað til sérfræðinga Hagdeildar Landsbankans
að Laugavegi 7 Reykjavík og ráðfært þig við þá um rekstur fyrirtœkja
þér að kostnaðarlausu.
Upplýsingar um stofnun stofnfjárreikninga eru veittar í sparisjóðs-
deildum Landsbankans
LANDSBANKINN
Græddur er geymdur eyrir
ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15