Þjóðviljinn - 22.01.1985, Síða 12
SUMARLISTINN
KOMINN
1000 SÍÐUR KR. 200 + BGJ.
SÍMI 52866.
HEIMURINN
Stroessner: Ég er besti vinur Bandaríkjanna en ég skil samt vel að Reagan vill ekki að ég heimsæki sig...
Laust starf
Norræn nefnd um samstarf Færeyinga, (slendinga og
Grænlendinga óskar eftir að ráða mann til að skipu-
leggja samstarf þessara þriggja þjóða á sviði ferða-
mála.
Okkur vantar hugmyndaríkan, drífandi starfsmann,
sem er lipur í samstarfi, en getur starfað sjálfstætt.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst, eigi
síðar en næsta vor.
Umsóknarfrestur er til 15. febrúar n.k. og skal senda
umsóknir til Sigurðar Hjaltasonar, framkvæmdastjóra
Sambands sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi, sími
97-8700, Svalbarði 5, 780 Höfn, Hornafirði, og gefur
hann nánari upplýsingar.
Samstarfsnefndin.
H/TT
Ldkhúsið
GAMLABÍÓ
5. syning þriðjudag 22. jan. kl. 21.00.
Osottar pantanir seldar i dag.
6. syning miðvikudag 23. jan. kl. 21.00.
Osottar pantanir seldar i dag.
VtSA
.1MOIK PAH TtL STNtNG MEFST A ABYHQO KOHTHAFA
Leiðbeiningar
við framtalsgerð
Verkamannafélagið Dagsbrún gefur félagsmönnum
sínum kost á leiðbeiningu við gerð skattframtala. Þeir
sem hug hafa á þjónustu þessari eru beðnir að hafa
samband við skrifstofu Dagsbrúnar og láta skrá sig til
viðtals. Síðasti frestur til skráningarinnar er I. febrúar
n.k. Frá I. feb. n.k. verða viðtalstímar lögmanns fé-
lagsins frá kl. I4-I8 alla þriðjudaga.
Verkamannafélagið Dagsbrún.
m Stjórn sjúkrasamlags
Kópavogs auglýsir:
Starf forstöðumanns Kópavogs er laust til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 5. febrúar n.k. Með umsóknir
verður farið sem trúnaðarmál.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið starf eigi síðar en
1. apríl n.k.
Umsóknum ber að skila til formanns stjórnarinnar
Gissurar Jörundar Kristinssonar, Hjallabrekku 13,
Kópavogi.
Auglýsið í Þjoöviljanum
Aldursforseti
einræðisherranna
Stroessner hefur drottnað yfir Paraguay í 20 ár.
Spillingin ræður ríkjum en stutt er ígrimmdina
I þrjátíu ár hefur Don Alfredo
Stroessner drottnað yfir Par-
aguay, forseti, yfirhershöfð-
ingi og æðsti dómari landsins.
Besti vinur Bandaríkjanna í álf-
unni og mikill lýðræðisvinur
að eigin mati. Og hefur flæmt
um miljón manns í landi og
sýnist hafa drepið allt þjóðlíf í
þann dróma að sárafáir hafa
þrek eða nennu til að æmta
eða skræmta lengur.
Allt frá því Paraguay lýsti yfir
sjálfstæði sínu árið 1811 hefur
landið lengst af verið á valdi
harðstjóra af verstu sort. Hinn
fyrsti þeirra bannaði allar ferðir
til útlanda og alla fundi. Francico
Solano Lopez hét annar afreks'-
maður - honum tókst að etja
landinu út í stríð við Brasilíu, Ur-
uguay og Argentínu öll í einu -
þegar því stríði lauk lá meira en
helmingur landsmanna í valnum.
Ríki
fáránleikans
Stroessner rændi völdum árið
1954 eftir mikið róstuskeið. Síð-
an þá hefur ríkt einskonar umsát-
ursástand í landinu sem setur
hershöfðingjann og forsetann
lögum ofar. Valdatími hans er
saga pyntaðra andófsmanna sem
hent er hlekkjuðum í árnar eða úr
flugvélum. Á seinni árum er hún
kannski fyrst og fremst saga ótrú-
legrar spillingar. Kannski á að
efna til leiksýningar í höfuðstaðn-
um - en henni er svo aflýst því að
einhver er horfinn með búning-
ana og með leiktjöldin. Einhverj-
um erlendum náttúruvinum dett-
ur í hug að gefa skógræktinni þrjá
vörubfla - þeir bflar hverfa í tolli
og sjást aldrei framar. Samið er
um að byggja sementsverksmiðju
upp á 650 þúsund tonna afköst -
enda þótt ekki sé notuð nema 200
þúsund tonn af sementi á ári í
landinu. Astæðan er sú, að því
hærri sem samningurinn er, þeim
mun meira mútufé mun renna í
vasa þeirra ráðherra eða herfor-
ingja sem málin afgreiða. Mest-
allt það land sem best er til rækt-
unar fallið er lagt undir stórbú
hershöfðingja og kafteina: þrjú
prósent landeigenda eiga þrjá
fjórðu landsins.
Á seinni árum hefur Stroessner
meira treyst á að stjórna í krafti
spillingar en ótta við grimmd lög-
reglunnar. Samt er fólk minnt á
það reglulega að lögreglan er til
og er til alls vís: einhver hverfur,
konu er misþyrmt og menn vita
hvar þeir eru, vita að þeir eru
læstir inn í búri og mega sig ekki
hreyfa án þess að komast í háska.
Hinn vitri
landsfaðir
Stroessner er ekki eins og kol-
legi hans í Chile, Augusto Pinoc-
het, sem þykist ætla að taka upp
lýðræði aftur í áföngum. Hann
stendur staffírugur á því, að það
sé nú þegar allt í himnalagi með
lýðræðið hjá sér. Það verður ekki
þverfótað fyrir „lýðræði“ í um-
fjöllun hinna opinberu mál-
gagna, sem eiga það kannski til
að birta svosem sex litmyndir af
forsetanum á forsíðu.
Forsetinn er alltaf að minna á
sig. Á hverjum morgni tekur
hann á móti gestum - kannski
kemur sendiherra Chile að heilsa
Andlit landsföðurins.
upp á hann, kannski þýskur dýra-
fræðingur. Sama hver er - lands-
menn fá að vita það á hverjum
degi að gestir koma til Stro-
essners, því allir fréttatímar á
báðum rásum sjónvarpsins byrja
alltaf á að sýna forsetann taka á
móti gestum. Nálægt hádegi fer
hann út að opna bankaútibú, af-
henda prófskírteini og vígja sím-
stöðvar. Þegar hann kom til valda
var landið ekki rafvætt og renn-
andi vatn ekki til staðar í höfuð-
borginni Asuncion: þetta hefur
gert landsföðurnum mögulegt að
tengja skinið af hverri rafmagns-
peru og ágæti hverrar skólp-
leiðslu í hinum opinbera áróðri
við eigin visku, forsjálni og um-
hyggju fyrir alþýðu.
Her og flokkur
Vald hershöfðingjanna hvflir
annarsvegar á hernum, hinsvegar
á svonefndum Coloradoflokki.
Hver sá sem vill fá starf á vegum
hins opinbera eða einhvern bit-
ling eða fyrirgreiðslu kemur sér í
Coloradoflokkinn. Ekki svo að-
skilja: svo á að heita að það sé til
stjórnarandstöðuflokkur og það
er kosið til þings. En kosningarn-
ar eru markleysa og þingið gerfi-
þing og Stjórnarandstaðan verður
að sitja og standa eins og Color-
adomenn og þá forsetinn vilja.
Hún er vita áhrifalaus, og ef ekki
er hægt að múta henni þá er hún
lamin niður.
Mestu skiptir fyrir Don Al-
fredo Stroessner að halda fylgi
herforingja og liðsforingja. Það
er gert með því að veita þeim að-
gang að hinu svarta eða ólöglega
hagkerfi - að smygli, að mútum
og að hreinum og beinum þjófn-
aði. Jafnvel stjórnarblöðin segja
að þetta svarta hagkerfi nái yfir
um það bil helming þjóðarfram-
leiðslunnar og segja sem svo, að
þetta kerfi sé það verð sem greiða
þurfi fyrir þann „frið“ sem í
landinu ríkir. Hershöfðingjar
hafa ekki mikil laun á pappírnum
- kannski svosem 25 þúsund
krónur á mánuði. En þeir lifa á
geypilegu bflífi og reisa sér lúxus-
hallir eins og fara gerir.
Athvarf
óþjóðalýös
Ein tekjulind Stroessners og
manna hans er að selja skattsvik-
urum, landflótta fasistum og til-
ræðismönnum, svindlurum og
fjárglæframönnum landvistar-
leyfi. Meðal þeirra eru ýmsir
þeirra þýskra nasista sem leitað
hefur verið fyrir stríðsglæpi -
hvað eftir annað hafa menn til
dæmis þóst geta rekið spor hins
illræmda dr. Mengele til Paragu-
ay, en hann stóð að glæpsam-
legum tilraunum á lifandi fólki í
útrýmingarbúðum nasista.
Lamandi
ótti
Sem fyrr segir er andstaðan
lömuð, vinstrisamtök eru
bönnuð, mikill fjöldi manna hef-
ur flúið land. Vonleysi, uppgjöf,
hugleysi - þetta er það sem menn
helst telja sig finna í tilsvörum
landsmanna um nútíð og framtíð.
Kirkjan reynir að halda höfði og
er þá ekki síst til nefndur Melanio
Medina, biskup í lítilli borg
skammt frá Ásuncion. Hann
segir ekki alls fyrir löngu í viðtali
við bandarískan blaðamann:
„Einræðinu hefur tekist að
temja okkur. Óttinn kemur alls
staðar fram. Unga fólkið hefur
engan pólitískan metnað. Sá sem
hugsar lendir undir miklu fargi.
Enginn raunverulegur stjórnar-
andstæðingur gæti lifað hér af.
Landinu hefur blætt út í þeirri af-
drifaríku merkingu að mann-
leikinn er horfinn“....
ÁB byggði á Spiegel.
16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 22. janúar 1985