Þjóðviljinn - 23.01.1985, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 23.01.1985, Qupperneq 4
LEIÐARI Skattheimtukóngar í borgarstjóm Frá upphafi íslenskrar stjórnmálasögu hefur enginn flokkur haft uppi jafn hástemmd loforð um að minnka skattheimtu á landsmönnum og Sjálfstæðisflokkurinn. Sagan hefur hins vegar sýnt, að efndir hafa orðið allmiklu rýrari en orð. Þetta sést einkar glöggt þegar stjórnun Da- víðs Oddssonar og Sjálfstæðisflokksins á mál- efnum Reykvíkinga er skoðuð. Þá kemur það nefnilega í Ijós, að þrátt fyrir allan slagorða- vaðalinn um lægri skatta, þá er það fyrst og fremst eitt sem hefur einkennt stjórnartíð Da- víðs: stóraukin skattheimta. Þessi skattheimta kom meðal annars fram í því, að útsvarsprósentan var ekki lækkuð á síð- asta ári, þrátt fyrir að stórlega hefði dregið úr verðbólgunni. Þetta þýddi í rauninni að Sjálf- stæðisflokkurinn lét borgarbúa greiða verðbólgu-útsvar af kaupi ársins 1983 með óverðtryggðum launum ársins 1984! Eða með öðrum orðum: útsvarið hækkaði um 40% milli áranna en ráðstöfunartekjur borgarbúa ekki nema um 20%. Fyrir svo utan hækkanir á beinni skattheimtu Sjálfstæðisflokksins af borgarbúum, þá hefur dulin skattheimta í formi annars konar álaga einnig aukist geigvænlega. Hér er átt við stór- felldar hækkanir á verðlagi ýmis konar þjón- ustu, sem Reykvíkingum er nauðugur einn kostur að kaupa. Lýsandi dæmi um þetta var að finna í grein Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, borgarfulltrúa, sem birtist í Þjóðviljanum í gær. Þar er frá því greint, að síðan Sjálfstæðis- flokkurinn tók við stjórnartaumunum af vinstri meirihlutanum árið 1982, þá hafa meðal annars orðið eftirtaldar hækkanir á ýmissi þjónustu borgarinnar: * Verð á heitu vatni hefur hækkað um 355 prósent. * Rafmagnsverð til almennings um rúm 200 prósent. * Gjaldskrá dagvistarstofnana um rúm 150 prósent. * Aðgangur að sundstöðum borgarinnar um 300 prósent. * Fargjöld SVR um rúm 220 prósent. Á sama tímabili hafa hins vegar laun verka- konu ekki hækkað nema um 135 prósent. Samkvæmt þeim tillögum sem Sjálfstæðis- flokkurinn hefur nú lagt fram að fjárhagsáætlun fyrir Reykjavíkurborg á næsta ári virðist einsýnt að verðhækkunardraugurinn er orðinn 13. maðurinn í meirihluta Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn. Miðað við þær forsendur sem þar koma fram, er nefnilega nokkuð auðsætt, að enn er gert ráð fyrir stórfelldum hækkunum á þjónustu við borgarbúa. Þannig er líklegt að meirihlutinn muni enn hækka á árinu verðskrár SVR, sundstaða, bókasafna, svo einhver dæmi séu tekin. Að sjálfsögðu veldur svo þessi stóraukna skattheimta Sjálfstæðisflokksins því, að borgar- sjóður stendur ekki illa að vígi. Það er í sjálfu sér fagnaðarefni. En það er á hinn bóginn sjálfsagt að spyrja: hvernig hefur Sjálfstæðisflokkurinn varið þessu fé? Svo eitt dæmi sé tekið: hvað hefur Sjálfstæð- isflokkurinn gert í málefnum aldraðra í Reykja- vík? Því er fljótsvarað. Harla lítið, og í tíð núver- andi meirihluta hefur til dæmis ekki ein einasta íbúð fyrir aldraða verið tekin í notkun. Bendir það til þess að kynslóðirnar sem hafa skilað okkur ævistarfi sínu eigi góða elli vísa í borg Davíðs? KLIPPT 0G SK0RIÐ Morgunblaöið berst um á hæl og hnakka fyrir kerfisbreytingum á kerfinu. Ekki meir, ekki meir Á dögunum ætlaöi allt af göfl- unum að ganga í stjórnarmál- gögnunum NT og Morgunblað- inu, af því svo stórfengleg „uppstokkun" stóð fyrir dyrum. Það átti að skipta út gömlum og lélegum ráðherrum og setja yngri og brattari inn í ríkisstjórnina. Síðan átti að stokka upp ráðu- neytin, í stað þeirra gömlu áttu að koma ný svo hægt væri að ávarpa ráðherrana með nýjum titlum; Hæstvirtur Innanríkisráðherra Alfreð Þorsteinsson og Hæstvirt- ur Efnahagsmálaráðherra Guð- laugur Bergmann. Til dæmis. En ekki var nú Adam lengi í Par- adís breytinganna, því bráðlætið í NT og Mogganum var svo mikið, að málgögnin fóru ævinlega nokkrum gráðum lengra í breytingunum en til tals hafði komið milli ríkisstjórnarflokk- anna hverju sinni. Þetta endaði auðvitað með því að Albert sagði ekki meir, ekki meir, - og ákveð- ið var að breyta einmitt ekki neinu. Síðan hefur ríkt vand- ræðaleg þögn eftir yfirlýsingar um að ríkisstjórninni verði ekki breytt, nema hvað undarlegar yf- irlýsingar og upphlaup koma öðru hvoru. I gær sauð uppúr. Sverrir vill Þorstein Morgunblaðið sér ástæðu til þess að hafa eftir Sverri Her- mannssyni í gær, eftirfarandi: „Ég tel í hœsta máta eðlilegt og einsog nú standa sakir nauðsyn- legt að formaður Sjálfstœðis- flokksins eigi sœti í ríkisstjórn- inni“. Hvaða, hvaða, - var þetta ekki útrætt mál? Síðar í fréttinni kemur í ljós að deildar meiningar eru uppi um landsfund Sjálfstæð- isflokksins. Sverrir: „Þá verður formanni okkar án efa veitt á - framhaldandi umboð og honum fengið vald lil að stjórna með okk- ur“. Hingað til hefur Steini ekki fengið að koma nálægt stjórnun- arverkefnum, en sumsé það gæti breyst eftir landsfund. Valdimar vill hann líka Ekkert lát er á hálfum hollust- ueiðum þingmanna Sjálfstæðis- flokksins þessa dagana. NT hefur eftir Valdimar Indriðasyni í gær: „Ég sagði að það vœri hœgara fyrir Steingrím að stýra ríkis- stjórninni ef formaður Sjálfstæð- isflokksins vœri innan ríkisstjórn- ar“. Þetta hefði getað verið ögn afdráttarlausar sagt, en það eru líka aðrir kostir uppi. Mogginn ofsækir Verslunarráðið Það er nú ekki bara að því er snertir aðra ráðherra sem Mogg- inn og NT vekja upp drauginn um aðra ríkisstjórn í gær. Morgun- blaðið skammar Verslunarráð ís- lands og fleiri hagsmunasamtök kapítalsins og kallar alla aðstand- endur „kaupmenn" í fyrirlitning- artón.Þeir hafa ekki annað til saka unniö en vera andvígir því að fagráðuneyti viðskipta verði lagt niður. Mogginn segir í fýlu- leiðara í gær: „Vilji kaupmenn beita sér sem þrýstihópur hafa þeir jafnan snúið sér fyrr til við- skiptaráðaneytisins. Nú mega þeir ekki til þess hugsa að nokkur breyting verði á aðstoðinni að þessu leyti, þeir eru með sömu kerfissjónarmið og aðrir þegar rætt er um breytingar á þeirra ,fagráðuneyti“. “ Morgunblaðið lætur einsog ný ráðuneyti þýði í sjálfu sér eitthvað „andkerfislegt", minna ríkisvald eða eitthvað í þeim dúrnum - svo borin sé hönd fyrir höfuð Verslunarráðs íslands í Þjóðviljanum til tilbreytingar. Lausnin fundin? Ákafi Morgunblaðsins og löngun í ný kerfisráðuneyti í stað hinna sígildu sem við höfum átt að venjast undanfarna áratugi, ríður ekki við einteyming. Þeir skrifa síður upp og niður um nýju ráðuneytin leiðara og langar út- listanir landsfrægra kerfiskarla; allt fyrir nýju ráðuneytin. Meira að segja hefur Morgunblaðið fengið yfirkerfisfræðing Fram- sóknarflokksins, Eirík Tómas- son, til að réttlæta nýju kerfis- ráðuneytin. Er það svo að lausnin sjálf sé fundin? Skipt um hórur Þetta orðaskak um tilfærslur á stólum og kerfisverkefnum milli kerfisráðuneyta minnir klippara á sögu sem sovétfróð vinkona hans sagði af svipaðri uppákomu eystra. Hagræðingarráðunautar komu í ríkisstofnun og létu mik- inn; með mælitæki og út- reikninga. Gömul kona frá Odessu horfði uppá vísindalegar aðfarir þeirra og spurði: „Hvers- lags gassagangur er þetta?“ „Skilurðu það ekki, María mín Ivanóvna“, sagði deildarstjórinn. „Þegar búið er að reikna allt uppá nýtt og færa til skrifborðin og hagræða svosem vera ber, þá aukast afköst okkar að miklum mun. Þetta er einfalt mál.“ „Því á ég bágt með að trúa“, sagði María Ivanovna. „Þegar ég á sokkabandsárum mínum vann í hóruhúsinu í Odessu, þá gat það náttúrlega gerst að afköstin minnkuðu. En þá röðuðum við ekki rúmunum upp á nýtt. Það var skipt um hórur“. -óg DJðÐVIUINN Málgagn sósíalisma, þjóöfrelsis og verkalýöshreyfingar 0tg«fandl: Útgófufélag Þjóðviljans. Rttst)órar: Ámi Bergmann, Ossur Skarphéðinsson. Rltatjómarfulltrúl: Oskar Guðmundsson. Fréttaatjórl: Valþór Hlöðversson. Blaðamann: Álftieiður Ingadóttir, Ásdís Þórtiallsdóttir, Guðjón Friðriksson, Jóna Pálsdóttir, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Möröur Árnason, Ólafur Gíslason, Sigurdór Sigurdórsson, Víðir Sigurðsson (íþróttir). yóamyndlr: Atli Arason, Einar Karlsson. Útllt og hönnun: Filip Franksson, Þröstur Haraldsson. Handrtta- og prófarfcalaatur: Andrea Jónsdóttir, El.as Mar. Framfcvæmdaatjórl: Guðrún Guðmundsdóttir. Sfcrífatofuatjórl: Jóhannes Harðarson. Auglýalngaatjórl: Ragnheiður Óladóttir. Auglýsingar: Anna Guðjónsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir. Afgreiðalustjóri: Baldur Jónasson. Afgralðala: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Símavarala: Ásdís Kristinsdóttir, Sigriður Kristjánsdóttir. Húamæður: Bergljót Guðjónsdóttir, ólöf Húnfjörð. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ólafur Björnsson. Útfcayrala, afgreiðsla, auglýaingar, ritatjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, simi 81333. Umbrot og aetnlng: Prentamiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð I lauaaaölu: 30 kr. Sunnudagaverð: 35 kr. Áskriftarverð á mánuði: 300 kr. 4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 22. janúar 1985

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.