Þjóðviljinn - 23.01.1985, Page 10

Þjóðviljinn - 23.01.1985, Page 10
MINNING ALÞYBUBANDALAGIÐ Árshátíð og Þorrablót ABR Árshátíö og þorrablót Alþýöubandalagsins í Reykjavík verður hald- iö laugardaginn 2. febrúar í flokksmiöstöö Alþýðubandalagsins aö Hverfisgötu 105. Athugið að í fyrra var fullt út úr dyrum og komust færri aö en vildu. Pantið því miöa strax í síma 17500. Dagskrá nánar auglýst síöar. - Skemmtinefnd ABR. Alþýðubandalagið Kópavogi Árshátíð verður haldin laugardaginn 2. febrúar nk. Staðurinn er auövitað Þinghóll Hamraborg 11 og verðurhúsiðoþnað kl. 20.30. Fjölbreytt skemmtiatriði, m.a. mun Böðvar Guðlaugsson hagyrðingur flytja gamanmál og fleiri kraftar munu koma fram. Heitur réttur verður borinn fram síðla kvölds og aðrar veitingar verða að sjálfsögðu á boðstólum. Veislustjóri verður Steingrímur J. Sigfússon. Verð að- göngumiða er aöeins 350.- kr. Pantanir í símum: 45306 og 40163. Athugið: Nauðsynlegt er að ganta miða tímanlega því í fyrra var húsið fullt út úr dyrum! - ABK. Alþýðubandalagið í Kópavogi Félagsfundur ABK heldur félagsfund í Þinghóli, miðviku daginn 23. janúar kl. 20.30. spjallar um félagslegt starf o.fl. í sveitarstjórnarmál um. Logi Kristjánsson Dagskrá: 1) Félagsmál 2) Félagslegt starf AB Félagar! Mætið og takið virkan þátt í umræðunni. b Stjórn ABK. Þorlákshafnarbúar og nágrannar Verður kosið í vor? Opinn fundur með Svavari Gestssyni formanni Alþýðubandalags- ins og Margréti Frímannsdóttur þingmanni í Félagsheimilinu Þor - I ákshöfn fimmtudaginn 24. janúar kl. 20.30. Svavar Margrét AB fél. Selfoss og nágrennis Opið hús verður laugardaginn 26. janúar nk. Margrét Frímannsdóttir vara- þingmaður mætir og spjallar við fólk. Kaffi og meðlæti. Staður: Kirkjuvegur 7 Selfossi. Tími: Kl. 14.00-? Félagar fjöl- mennið til skrafs og ráðagerða yfir kaffinu. - Stjórnin. 1X2 1X2 1X2 21. leikvika - leikir 19. jan. 1985 Vinningsröð: X1 1-2X2-X1 X — 1 XX 1. VINNINGUR: 12 réttir, kr. 204.825.- 3718(3/11)+ 9831 2. VINNINGUR: 11 réttir, kr. 4.620,- 4408 39568+ 56012+ 89196+ 95426 50887(2/11) 9311 45168 85283 90830 95434 59271(2/11) + 35218 47537+ 86633 91131 182954+ 90495(2/11) + 36258 48078 87059 91589 3719(3/11)+ úr 20. viku: 39024 48808 87814 92838+ 45989(2/11) 86952 Kærufrestur er til 11. febrúar 1985 kl. 12.00 á hádegi. Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og á skrifstof- unni í Reykjavík. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef kærur verða teknar til greina. Handhafar nafnlausra seðla (+) verða að framvísa stofni eða senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir lok kærufrests. GETRAUNIR - íþróttamiðstöðinni - REYKJAVÍK Til sölu Marantz stereotæki, Candy uppþvottavél, barnakojur og lítill opinn skjalaskápur. Upplýsingar í síma 16289 e. kl. 18.00. Jón Yngvi Yngvason fœddur 11/2 1944 - dáinn 10/1 1985 Veruleikinn er stór og þeir eru fáir sem helga líf sitt leit að eðli hlutanna og kjarnanum í mann- eskjunni. Um leið er eins víst að þeir fyrirgeri lífshamingjunni og einangri sig frá fjöldanum. Við Jón Ýngvi vorum fyrst samtíða í Núpsskóla en það var fjórum árum síðar að sameigin- legur kunningjahópur og áhuga- mál efldu með okkur varanlega vináttu. Þá starfaði Jón með Leikhúsi æskunnar, fékkst við myndlist, músík og sökkti sér í lestur bókmennta. Við létum okkur dreyma um fegurra mannlíf og betri veröld, spurn- ingin var bara með hvaða hætti við gætum lagt fram okkar skerf. Jón var fjölhæfur og hann gerði sér ljóst að til þess að ná árangri hlaut hann að fórna einhverju og þótt hann síðar meir annað veifið tæki upp pensilinn, spilaði á ýmis hljóðfæri í glöðum hópi og gæfi sig að því að setja upp leikrit, og leika sjálfur, tók hann snemma þá ákvöðun að leita sér tjáning- arforms í skáldskap. Hvort sú leit bæri árangur efuðumst við ekki um, félagar hans, hæfileikarnir voru til staðar. Hins vegar gerði Jón þá kröfu til sjálfs sín að láta ekkert frá sér fyrr en hann væri sannfærður um gildi þess og þótt honum lægi á þurfti hann fyrst að kynnast skáldskap og heimspeki liðinna tíma. Jón var félagsvera í ríkum mæli en leitaði fljótt í einveruna til þess að vinna að takmarki sínu. 21 ára gamall er hann flúinn úr þéttbýlinu, hliðvörður uppi í Borgarfirði í tvö sumur, hann gerist vetrarmaður í Biskups- tungum og upp frá því eyðir hann sífellt lengri tíma í Flatey á Breiðafirði, stundum einn að vetrarlagi, í þekkingarleit. í bréfi frá Flatey veturinn 67/68 sé ég að Jón býr þar einn og strýkur hús- kettinum. Hann hefur að félags- skap Spinoza, Strindberg, Proust, Sartre og Beckett ásamt trúarbragðasögu - og fleiri rit hef- ur hann meðferðis. í okkar þjóðfélagi eru menn krafðir afkasta og Jón tók það nærri sér þegar þau létu á sér standa. Hann var enn ekki reiðu- búinn, svo margt var ólesið og ennþá var langt í þá fullkomnun sem hann þráði. Flest skrifa hans urðu eldinum að bráð. Við héldum um tíma félagarnir að við hefðum heimt hann til Reykjavíkur, þegar hann stað- festist hér um tíma með konu og dóttur, en töfrar Flateyjar og friðurinn þar heilluðu hann til sín að nýju. Þar sest hann að aftur með fjöldskyldunni og lifir sín ánægjuríkustu ár í burtu frá skarkalanum og þeirri örvænt- ingu sem oft vildi grípa hann, jafnvel í stuttri heimsókn til Reykjavíkur. Hann var orðinn náttúrubarn og bestu stundir hans voru kannski að vorlagi þeg- ar hann reri til grásleppu á lygnum morgni eða í leik við dótt- ur sína. Þeir eru margir sem heimsóttu Jón og Ibbý á Flateyjarárunum. Heimili þeirra var kjölfesta í merku menningar- og félagslífi sem beið mikinn hnekki þegar þau fluttu burt. Jón tók gestum vel og gladdist við hverja heim- sókn og eftirminnileg voru böllin í Flatey þegar Jón Ýngvi þandi nikkuna fram á nætur. Jón var vinmargur, en þegar hann fluttist aftur til Reykjavíkur fækkaði heimsóknum hans til okkar vinanna sífellt meir. Hann hafði lokað sig af. Einveran var honum erfiðari hér en friðurinn í Flatey og það var sú tegund ein- veru sem jafnvel vinur megnar ekki að bæta úr. Jón Yngvi lést af slysförum þann 10. þessa mánaðar. Við vit- um það öll sem þekktum hann að þar er dáinn góður drengur. Fyrir hönd margra félaga Jóns í lífinu votta ég samúð Sigrúnu, dóttur hans, og móður hans, Guðrúnu. Við syrgjum hann öll. í ljóði sem Jón Ýngvi sýndi mér fyrir nokkrum árum eru þetta síð- ustu línurnar: kaldur er ótti minn við þann eld sem heitar brennur í augum og sem við skuldalúkníng mun leiftra hvítur á svörtum skjá hinnar síðustu nætur. Brynjar Víborg Leiðbeiningar við framtalsgerð Verkamannafélagið Dagsbrún gefur félagsmönnum sínum kost á leiðbeiningu við gerð skattframtala. Þeir sem hug hafa á þjónustu þessari eru beðnir að hafa samband við skrifstofu Dagsbrúnar og láta skrá sig til viðtals. Síðasti frestur til skráningarinnar er I. febrúar n.k. Frá I. feb. n.k. verða viðtalstímar lögmanns fé- lagsins frá kl. 14-18 alla þriðjudaga. Verkamannafélagið Dagsbrún. Móðir mín Ingibjörg Guðjónsdóttir Sólheimum 23 andaðist að morgni 22. janúar á Landspítalanum. Friðþjófur Björnsson. Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vinsemd við andlát og útför Oddnýjar Guðmundsdóttur kennara. Gunnar Guðmundsson Sólveig Kristjánsdóttir PállGunnarsson Guðmundur Gunnarsson Sigurður Gunnarsson Oddur Gunnarsson Auglýsið í Þjóðviljanum Margrét Árnadóttir Kristín Gísladóttir BRIDGE Það hafa verið skrifaðar bækur um bókstaflega allt sem getur hent bridgespilara, bæði við græna borðið og utan þess. Meira að segja um svindl í bridge. Hér er dæmi úr bókinni: Snares and Swindles in Bridge eftir þá félaga Reese/Trézel: 1096 D1042 ÁK K654 K75 65 D7632 973 G832 ÁG973 5 ÁD2 Suður er sagnhafi í 4 hjörtum. Utsþilið er tígulgosi. Getur þú að- stoðað sagnhafa í þessu spili? Hafirðu lesið fyrstu línurnar í þessu spili, ættirðu ekki að vera ýkja lengi að ráða fram úr þessu „vandamáli". Mottóið er: Að leiða andstæðingana á villigötur. Við tökum snarlega á ás og kóng í tígli og hendum laufatvist í tígulkóng, gluðrum út hjartagrýl- unni, Vestur tekur á kóng og horf- andi á laufakónginn í borði (og sagnhafi henti jú laufatvist) væri aðeins mannlegt að spila laufa- gosa í þessari stöðu (félagi gæti átt laufaás og því spilað spaða til baka). Og ef við fáum laufagosa til baka, er spilið einfalt til vinnings þegar laufið brotnar 3-3, við tökum á ás og drottningu, förum inn í borðið á hjartatíu og hendum tveimur spöðum niður í laufið í borði. Gefum því 2 slagi á spaða og 1 á hjarta. Þetta var dæmi um árang- ursríka blekkispilamennsku, sem erfitt er að varast í vörninni. ÁD4 K8 G10984 G108 10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 23. janúar 1985

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.