Þjóðviljinn - 26.01.1985, Síða 1
26? DJÖÐVIUII I
SUNNUDAGS-
BLAÐIÐ
MENNING
Olíuverðsstríðið
Nýtt olíufélag?
Sjómannasambandið og FFSÍ œtla að leita samvinnu við LIU og fiskvinnslustöðvarnar
um að fá olíuinnflutningslögunum breytt og að þessir aðilar stofni nýtt olíufélag
Sjómannasamband Islands og
Farmanna- og fiskimanna-
sambandið eru að vinna að því að
fá Landssamband ísl. útvegs-
manna og fiskvinnslustöðvarnar í
landinu til að taka höndum sam-
an um að fá lögum um olíuinn-
flutning breytt, með það í huga að
þessir fjórir aðilar stofni nýtt
olíufélag.
Fyrir þessu hefur^Þjóðviljinn
öruggar heimildir. Þótt þeir aðil-
ar sem blaðið ræddi við hjá SSÍ og
FFSÍ hafi ekki viljað neitt um
málið segj a var þessu ekki neitað.
Þessi hugmynd er tilkomin
vegna þess hve útgerð og þar af
leiðandi sjómenn, svo og fisk-
vinnslustöðvar telja sig vera
mergsogin af olíufélögunum.
Uppúr sauð nú við síðustu hækk-
unarbeiðni olíufélaganna, þar
sem um er að ræða beiðni um
hækkun á álagningu. Veruleg olí-
uverðslækkun hefur átt sér stað
undanfarin misseri á heimsmark-
aði, en á sama tíma hækkar verð á
olíu og bensíni stöðugt hér á
landi.
Ef af þessu verður, að stofnað
verði nýtt olíufélag sem útgerð og
fiskvinnsla snéri viðskiptum sín-
um til, myndi það koma meira en
lítið við olíufélögin þrjú sem í
landinu eru, enda eru þessir aðil-
ar lang stærstu viðskiptavinir fé-
laganna hvað olíukaup varðar.
-S.dór
Verslun
516 króna
blóm-
kálshaus
„Þetta kostar sama og lamba-
læri“, sagði húsmóðir í Laugar-
nesinu þegar hún sá blómkáls-
hausinn, - „eða brennivíns-
flaska“ bætti við ung
karlkynsvera. 515 krónur þóttu
báðum óheyrilegt verð á einum
blómkálshaus.
Þessi sending af blómkáli kom
með flugi frá Kaliforníu fyrir
skömmu, og útsöluverðið hjá
Kjötmiðstöðinni þarsem Þjóð-
viíjamenn bar niður í gær er 314
krónur kílóið. Nýkomnir eru
hausar frá Evrópu og kosta þeir
ekki nema um 95 krónur kílóið.
Verslunarstjórinn sagði að þeir
hefðu pantað nokkra hausa frá
innflytjandanum til að eiga blóm-
kál ef einhver vildi, - en verslunin
hefði tapað á viðskiptunum,
þetta keypti enginn og yrði að
fleygja því.
Á þessum tíma árs er græn-
metið dýrast, og allra dýrast frá
Kaliforníu. Við bendum
neytendum þó á að 500-krónu-
hausarnir eru ekki einir um hit-
una. *-m
Guðmundur Guðmundsson fremstur í flokki Víkinga fagnar fræknum sigri islensku bikarmeistaranna á júgóslavnesku
bikarmeisturunum í Laugardals höllinni í gærkvöldi. (E.ÓI).
Sjá bls. 6.
Reykjavíkurborg
Krafla í uppsiglingu
Á annað hundrað miljónir króna í rannsóknir fyrir
orkuver á Nesjavöllum í ár. Hitaveita Reykjavíkur
hugar að orkuframleiðslu á markað offramboðsins
N
ýti Hitaveita Reykjavíkur
jarðvarmann á Nesjavöllum í
Grafningi yrði sú virkjun að
stærð til á borð við Kröflu og að
afli tíu sinnum háhitaveita Suður-
nesja í Svartsengi. Þetta kemur
fram í samtali Þjóðviljans við Sig-
urð G. Tómasson sem situr í
stjórn veitustofnana Reykjavík-
urborgar.
Á annað hundrað milljónum
króna verður á þessu ári varið til
rannsókna á hitasvæðinu við
Nesjavelli. Sigurður segir að
sumra álit sé að ekki sé þörf á
nýrri virkjun strax, - nýta megi
gömlu svæðin miklu betur, og
hefur hann flutt tillögu um að
kanna hvort lengja megi lífdaga
núverandi orkusvæða með því að
nota varmadælur við frárennslis-
vatn einsog gert er á Akureyri.
Enn hefur ekki verið samþykkt
að virkja á Nesjavöllum, en svo
miklu fjármagni hefur verið veitt
til undirbúnings að ýmsir telja
erfitt að ákveða að ráðast ekki í
framkvæmdir. „Ég vil ekki að við
flýtum okkur svo mikið að ekki
verði snúið við“, segir Sigurður.
-m
Sjá síðu 3.
Tímaritaupplag
Frjálst framtak kært
Sjómannablaðið Víkingur hef-
ur kært fyrirtækið Frjálst
framtak fyrir að segja í auglýs-
ingu að blað þess Sjávarfréttir sé
fjórum sinnum útbreiddara en
önnur sambærileg tímarit.
Þetta telja forráðamenn Vík-
ingsins alrangt og vitna í upplags-
könnun sem gerð var 1982. Telja
forráðamenn Víkingsins að sú
upplagstala sem Frjálst framtak
gefur upp sé fjórum sinnum of
há.
Ástæðan fyrir kærunni er fyrst
og fremst barátta þessara tíma-
rita um auglýsingar en með því að
segja upplag margfalt hærra en
það í raun eru, aukast mögu-
leikar á að fá auglýsingar.
S.dór